Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Blaðsíða 7
f
7
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001
DV Fréttir
Borgarfulltrui Sjalfstæðisflokksins gagnrýnir borgina harðlega vegna Línu.nets:
Moldin farin að
rjúka í logninu
- að sögn borgarstjóra - enn harðar deilur um Línu.net
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
gagnrýnir harðlega að borgin hafi
dregið í heilan mánuð að svara fyr-
irspurn hans um rekstur fyrirtækis-
ins Línu.nets. Hann óskaði eftir
gögnum um fjárhagsstöðu fyrirtæk-
isins en hefur engin svör fengið
enn. „Þetta er að verða stórmál. Ég
hef aldrei upplifað það fyrr að mað-
ur fái engin viðbrögð við svona fyr-
irspurn," segir Vilhjálmur.
í kjölfar þessa máls hafa borgar-
ráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks lagt
fram tillögu í borgarráði þar sem
hnykkt er á málinu. Afgreiðslu til-
lögunnar var frestað en sjálfstæðis-
menn vilja að ráðið samþykki að
fela borgarendurskoðanda og skoð-
unarmönnum Reykjavikurborgar
að gera heildaryfirlit yflr fjárhags-
stöðu Línu.nets. Þá verði samskipti
fyrirtækisins og skuldbindingar
gagnvart Orkuveitu Reykjavikur
tekin til athugunar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir vegna gagnrýni Vil-
hjálms að mjög styttist í svör við
fyrirspurn hans en málið heyri und-
ir skrifstofu borgarstjórnar en ekki
hana sjálfa. Annars vegar hafl Vil-
hjálmur beðið um upplýsingar um
samskiptin við Orkuveituna og því
verði svarað á næstu dögum. Hins
vegar sé beðið um ýmis gögn sem
snúi beint að fyrirtækinu, s.s. fund-
Ingibjörg Sólrún Vilhjálmur Þ.
Gísladóttir. Vilhjálmsson.
argerðir og fjárhagsáætlanir.
Lina.net sé eins og hvert annað
hlutafélag og fundargerðir eigi ekki
heima utan hluthafanna. Henni sé
hins vegar kunnugt um að fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins hafl
boðið minnihluta borgarstjómar til
fundar um mál Línu.nets. Sam-
kvæmt hennar upplýsingum hafi
sjálfstæðismenn ekki svarað því er-
indi. „Það felst ákveðin mótsögn í
því að minnihlutinn vilji ekki
þiggja svona boð,“ segir borgar-
stjóri.
Sjálfstæðismenn hafa lengi gagnr
rýnt eignarhald Reykjavíkurborgar
i Línu.neti og segir Vilhjálmur að
almenningur eigi rétt á nýjum upp-
lýsingum. „Það er verið að dæla al-
mannafé í rekstur hlutafélags sem
að mestu er í eigu Orkuveitunnar.
Þetta fyrirtæki er í buflandi sam-
keppni við frjálsan markað og að
sjálfsögðu á að slíta alveg á þessi
tengsl milli fyrirtækisins og borgar-
innar. Mér sýnist fyrirtækið vera að
sökkva dýpra og dýpra. Það þarf
alltaf meira og meira fé úr sjóðum
Orkuveitunnar til að bjarga þessu
fyrirtæki," segir Vilhjálmur og vitn-
ar til óskar um viðbótarhlutafé
handa fyrirtækinu sem nemi 350
milljónum króna.
Vegna þessa segir borgarstjóri að
moldin sé farin að rjúka í logninu.
„Vilhjálmur mætti líta sér svolítið
nær. Hann ætti að muna að sjálf-
stæðismenn vörðu tveimur milljörð-
um á sínum tíma í Perluna. Hún er
bara veitingastaður sem er í sam-
keppni við annan rekstur i borginni
og á undanfornum árum hefur
Orkuveita Reykjavíkur sett 600
milljónir í Perluna til að halda
henni gangandi."
Ingibjörg Sólrún segir að draga
megi í efa að þetta sé eðlileg ráðstöf-
un á opinberu fé en öðru máli gegni
um lagningu grunnnetsins í borg-
inni sem kafli á mikla fjárfestingu
en verði síðar forsenda virkrar sam-
keppni á fjarskiptamarkaði. Hún
segir að hundruð fyrirtækja muni
njóta góðs af fjárfestingum
Linu.nets og neitar því að fyrirtæk-
ið sé að sökkva dýpra og dýpra.
Eðlilegt sé að það skili ekki hagnaði
nú í byrjun en hann geti orðið veru-
legur síðar. -BÞ
Neyðariínan
Slökkviliösstjórar vilja betra útkallskerfi en í gegnum SMS-kerfiö.
Óánægja slökkviliðsstjóra með SMS-kerfi Landssímans:
Hefur bitnað á ör-
yggi borgaranna
„Óánægja slökkviliðsstjóranna
með SMS-kerfi Landssímans er fyrst
og fremst til komin vegna þess að það
kerfi hefur ekki komið í staðinn fyrir
símboðakerfið með þeim hætti sem
menn vildu sjá. Það er hins vegar rétt
að taka það fram að ástandið hefur
eitthvað verið að batna að undan-
fömu,“ segir Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri á Akureyri, en á
fundi í Félagi slökkviliðsstjóra um
helgina bar mikið á óánægju slökkvi-
liðsstjóranna með boðun um útköll i
gegnum SMS-kerfið.
Dæmi munu um að liðið hafl aflt að
ein klukkustund frá því Neyðarlinan
sendi boð um útkafl þar til þau bárust í
símanum og sagðist Tómas Búi hafa
heyrt slíkt. Hann segir óánægjuna með
SMS-kerflð margþætta, langdrægnin á
GSM-símum sé minni en var á símboð-
unum sem notaðir voru áður og þá séu
staðir sem falli út og það sé mjög mis-
munandi hvað síminn sé sterkur. Það
geti jafhvel farið eftir því hvar i húsum
menn eru staddir.
- Hefur þetta bitnað á öryggi borgar-
anna?
„Já, það hefúr gert það, mér skilst að
það hafl gengið misjafnlega að fá menn
til að mæta fyrir vikið, en ég ítreka það
að ástandið hefur verið að batna.“
Tómas Búi segir að á fundi slökkvi-
liðsstjóranna hafl hann hvatt menn til
að fara yfir þessi mál hvern i sinni
heimabyggð og fá hlutina betri. „Það
þarf að kanna þetta markvisst og fá
vissu um það hvað veldur ef ástandið er
ekki nógu gott. Er það vegna þess að
sendingin er ekki nógu sterk, er það
vegna þess að það vantar sendi eða er
það vegna þess að útkaflsaðilinn, þ.e.
Neyðarlínan, hefur ekki endurtekið
skilaboðin nógu oft? Þessum hlutum öll-
um þarf að svara,“ segir Tómas Búi.
-gk