Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Síða 9
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001
I>V
9
Fréttir
Tilboð SH og „innspýting í atvinnulífið“ á Akureyri vegna viðskiptanna með afurðir ÚA:
Gjaldþrot Kexverksmiðj-
unnar endapunkturinn
- félagið lofaði 80 störfum í bænum til frambúðar en þau eru nú öll á bak og burt
Höfuöstöðvar SH á Akureyri
Baráttan um völdin innan ÚA er eitt mesta deilumál á Akureyri í seinni tíö en þar
tókust á SH og íslenskar sjávarafurðir. SH haföi betur.
Sölumiðstöð
hraðfrystihús-
anna, sem lofaði í
ársbyrjun 1995 að
tryggja 80 störf til
frambúðar á Ak-
ureyri í skiptum
fyrir það að fá
áfram að versla
með afurðir Út-
gerðarfélags Ak-
ureyringa hf., hef-
ur nú lokið af-
skiptum sínum af
atvinnulífinu á
Akureyri sem
tengist þeim
samningi er gerð-
ur var og má segja
að gjaldþrot Kex-
verksmiðjunnar á
dögunum hafi ver-
ið endapunktur-
inn.
Baráttan um
völdin innan ÚA
og að fá viðskiptin
með afurðir fé-
lagsins eru eitt
mesta hita- og
deilumál sem upp
kom á Akureyri á
síðasta áratug en
þar tókust SH og íslenskar sjávaraf-
urðir á af fullum þunga.
Haustið 1994 kom upp sú hugmynd
að flytja viðskipti ÚA frá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna til íslenskra sjáv-
arafurða ef ÍS væri tilbúið að flytja
höfuðstöðvar sínar til Akureyrar. í
upphafi árs 1995 skýrði DV frá því að
SH hefði óskað eftir viðræðum við
Akureyrarbæ um hugsanleg kaup fyr-
irtækisins á eignarhlut Akureyrar-
bæjar í ÚA og að til viðræðu væri að
SH flytti hluta starfsemi sinnar til
Akureyrar.
Fleiri aðilar blönduðu sér í barátt-
una. Samherji, KEA og Lífeyrissjóður
Norðurlands lýstu yfir áhuga á hluta-
bréfakaupum í ÚA og í bréfi KEA
sagði m.a. að ef KEA fengi að kaupa
væri tryggt að ÍS flytti höfuðstöðvar
sínar norður.
„Ekki hægt að hafnau
Fljótlega varð aðalbitbeinið hver
fengi viðskipti með afurðir fyrirtæk-
isins. íslenskar sjávarafurðir sendu
„sendinefnd" til Akureyrar tO að
kynna sig og sin áform og beðið var
eftir tOboði SH. Þegar það kom þótti
það tOboð „sem ekki var hægt að
hafna". SH lofaði að tryggja 80 störf
tO frambúðar á Akureyri, 31 á skrif-
stofum fyrirtækisins, 38 vegna mn-
búðaverksmiðju sem standsetja átti á
Akureyri, 10 vegna aukinna umsvifa
Eimskips og þá ætlaði fyrirtækið að
kosta starf prófessors við Háskólann
á Akureyri.
Menn geta sjálfsagt togast eitthvað
á um það hvernig SH stóð að efndum
þessa tOboðs sem varð tO þess að fyr-
irtækið hélt viðskiptunum með afurð-
ir ÚA. Fyrirtækið opnaði skrO'stofu á
Akureyri en þar voru aldrei 30 störf.
Umbúðaverksmiðjan kom aldrei en
SH hafði á annan hátt afskipti af at-
vinnulífinu, s.s. í Slippstöðinni og við
stofnun AKO-plast-verksmiðjunnar.
SH lokaði síðan skrifstofum sínum á
Akureyri 1999, AKO-plast varð gjald-
þrota og nú á dögunum varð Kexverk-
smiöjan gjaldþrota en hún var dóttur-
fyrirtæki AKO-plasts. Nú, tæpum 7
árum eftir slaginn um ÚA, eru öll
störfin 80 sem SH lofaði í bænum tO
frambúðar á bak og burt og það er
jafnframt stórlega degið í efa að þau
hafi á nokkrum tímapunkti orðið 80
talsins. SennOega voru þau aldrei
nema um 40-50 þegar best lét.
Allt meira og minna svik
Eftir að SH hafði lokað skrifstofu
sinni á Akureyri snemma árs 1999
samþykkti bæjarráð ályktun og átaldi
vinnubrögð SH í ÚA-málinu harðlega.
í samþykkt bæjarráðsins sagði hrein-
lega að þau væru SH lítt tO sóma og
ekki tO þess faOin að vekja áhuga á
samskiptum við félagið.
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur voru í meirihluta í bæjar-
stjórn árið 1995, þegar samið var við
SH. Hart var tekist á um málið innan
meirihlutans sem riðaði til falls.
Framsóknarmenn vOdu að íslenskar
sjávarafurðir fengju viðskiptin við
ÚA en bæjarfuOtrúi kratanna studdi
að tilboði SH væri tekið. Hann túlk-
aði þar eindreginn vilja meirihluta
stjómar ÚA að hagsmunir fyrirtækis-
ins einir ættu að ráða ferðinni.
Svo fór að framsóknarmenn gáfu
sig en það var lítO hrifning í orðum
Jakobs Bjömssonar, sem var bæjar-
stjóri árið 1995, þegar SH hafði lokað
skrifstofu sinni árið 1999: „Það stend-
ur lítið eftir af loforðum. Störfm 31
hjá SH era farin suður, umbúðamið-
stöðin kom aldrei tO bæjarins og að-
eins einhver hluti þeirra 38 starfa
sem áttu að tengjast henni, störfin hjá
Eimskip gætu hafa komið tO hvort
sem var vegna breyttra siglinga Eim-
skips. Þetta eru því ekkert annað en
hrein og klár svik. Það skiptir engu
máli þótt stjórn SH segi að innan fé-
lagsins hafi orðið ýmsar breytingar.
Það sem lofað var á sínum tíma hefur
verið meira og minna svikið,“ sagði
Jakob Björnsson sem var bæjarstjóri
á Akureyri þegar samningurinn við
SH var gerður árið 1995. -gk
Jakob
Björnsson
„Þetta eru ekk-
ert annaö en
hrein og klár
svik. “
Jón Ingvarsson
Hann var stjórn-
arformaöur SH
áriö 1995 en er
nú varaformaöur
stjórnar ÚA.
Ríkið
greiðir mest
til ríkisins
- í opinber gjöld
Launaafgreiðsla Ríkisbókhalds er
hæsti greiðandi opinberra gjalda í
Reykjavík þetta árið skv. álagning-
arskrá Skattstjórans í Reykjavík
yfir lögaðOa sem lögð var fram í
gær. Úr ranni launaskrifstofunnar
eru greiddir tæpir 2,4 milljarðar kr.
í opinber gjöld. Reykjavíkurborg er
í öðru sæti á listanum og greiðir
rétt um 950 millj. kr. Flugleiðir
greiða 350 mOlj. kr., Landssíminn
274 miHj. kr. og Greiðslumiðlun -
Visa ísland greiðir 268 millj. kr.
Þá greiðir Visa hæstan tekjuskatt
í Reykjavík, eða 239,2 mOlj. kr.,
Húsasmiðjan greiðir 133,1 mOlj. kr.,
Olíufélagið 131,2 mOlj. kr„ Skeljung-
ur 118,2 mOlj. kr. og VifilfeU 107,4
mOlj. kr.
Lögaðilar á skrá Skattstjórans í
Reykjavík þetta árið voru aUs 7.418
taisins. Þeim ber samanlagt að
greiða 6,2 miUjarða kr. í tekjuskatt,
1,2 miUjarða kr. í eignaskatt og 11,2
mOljarða kr. í tryggingargjald. Sér-
stakur eignaskattur á lögaðila í
Reykjavík nemur 255,7 mOlj. kr„
fjármagnstekjuskattur 61,5 miilj.
kr„ iðnaðarmálagjald 104,2 mOlj. kr.
og þeir sextán lögaðOar í Reykjavík
sem ber að greiða búnaðarmálagjald
þurfa að reiða út 27,9 mOlj. kr.-sbs
Stjórnarandstaðan ánægð með tillögu frjálslyndra um Ríkisútvarpið:
Bylting á rekstri RÚV
-15 manna akademía leysi núverandi útvarpsráð af hólmi
Utvarpshúsiö vlö Efstaleiti
Sverrir vill aö RÚV hætti aö flytja viöskiptaauglýsingar í samkeppni viö aöra
miöla en sinni áfram tilkynningum.
Sverrir Hermannsson, formaður
frjálslyndra, endurflutti þingsálykt-
unartiUögu á Alþingi í fyrradag um
að nefnd yrði sett á stofn til að end-
urskoða rekstur Ríkisútvarpsins.
í greinargerð með tOlögunni eru
12 atriði um
breytingar þar
sem m.a. segir að
RÚV verði að
vera áfram í þjóð-
areign. Markaðs-
lausnir eigi ekki
við. RÚV uppfyUi
menningarlegt
gat sem aðrir fjöl-
miðlar sinni ekki.
Sverrir vOl að
horfið verði frá
hugmyndum um
sölu á Rás 2 og
RÚV verði ijár-
magnað að fidlu á
fjárlögum ár
hvert. Stofnunin
hætti að flytja
viðskiptaaugiýs-
ingar í sam-
keppni við aöra
miðla en sinni
áfram tilkynning-
um. Dagskrár-
stefnan verði laus
undan markaðsá-
hrOum og ný
skipan RÚV sjái
til þess að það
verði raunveru-
lega sjálfstætt í
stað tengsla við
flokkapólitík nú.
Sverrir telur
rétt að skipan og hlutverki útvarps-
ráðs verði gjörbreytt frá þvi sem nú
er. Hann leggur tO að 15 manna aka-
demía verði valin úr þverskurði
samfélagsins, s.s. frá menningar-
stofnunum, af landsbyggðinni og úr
starfsmannasamtökum RÚV. Seta í
slíku ráði væri viðurkenningar-
staða og ráðning útvarpsstjóra væri
í höndum nýja ráðsins. Útvarps-
stjóri bæri ábyrgð á fjármálum og
ráðningum starfsmanna en akadem-
ían gæti rekið hann ef hann stæði
sig ekki.
Ögmundur Jónasson (VG) sagöist
sammála megininntaki þingsálykt-
unartiUögunnar en varaði við því
að auglýsingatekjur yrðu skertar.
Þá lýsti hann efasemdum um að
færa tekjustofninn alfarið inn í rík-
issjóð.
Össur Skarphéðinsson tók undir
með Ögmundi um að megindrættir
þingsályktunartillögunnar væru
honum að skapi. RÚV stæði í
flokkspólitískum skugga og manna-
ráðningar bæru þess merki.
Stjórnarþingmenn tjáðu sig lítið
um málið en Halldór Blöndal þing-
forseti (D) rifjaði upp hve erfitt
hefði verið á sínum tíma að sam-
þykkja frjálsan rekstur útvarps.
HaOdór sagðist sjálfur styðja hluta-
félagsvæðingu RÚV. Ríkisrekstur
væri of svOaseinn fjármáfalega og
þá væru líkur á að aukið tiOit yrði
tekið tO hlustenda ef stofnunin yrði
hlutafélagsvædd. Hringlandaháttur-
inn og kæruleysið gagnvart lands-
byggðinni - t.d. með fyrirhuguðum
niðurskurði á morgunútsendingum
svæðisstöðvanna sem þó gekk tO
baka - væri einnig dæmi um ágaU-
ana á núverandi ríkisrekstri. -BÞ
Sverrir Her-
mannsson.
Ögmundur
Jónasson.
Halldór
Blöndal.
Byggðavandinn:
Gagnslausar
aðgerðir
Árni Steinar
Jóhannsson þing-
maður (VG)
deildi á ríkis-
stjórnina í gær
vegna fólksflótta
af landsbyggð-
inni. Utandag-
skrárumræða fór
fram um skýrslu
Byggðastofnunar
og var Árni
Steinar málshefj-
andi. Hann lýsti
eftir aðgerðum
byggðamálaráð-
herra og gagn-
rýndi m.a. hve
lítið ríkið hefði
gert til að stofna
tU opinberra
starfa úti á landi.
Hann taldi bága
stöðu landsbyggðarhluta að hluta
tilkomna vegna einkavæðingar-
áráttu ríkisstjórnarinnar.
Valgerður Sverrisdóttir (B) byggða-
málaráðherra tók undir með að
margt mætti betur gera en fjölmargt
jákvætt hefði unnist í málaflokknum.
Einar K. Guðfinnsson (D) sagði að
gengið væri á svig við markmið
byggðaáætlunar með núverandi sjáv-
arútvegsstefnu. Hjálmar Ámason (B)
sagði: „Aðgerðir hafa ekkert dugað,
tölur sýna það, enda er málið flókið
og margþætt." -BÞ
Kvenréttindafélag íslands:
Vilja fleiri konur
í sveitarstjórnir
Stjórn Kvenréttindafélags Islands
hvetur konur til að bjóða sig fram í
kosningunum til sveitarstjórna á
komandi vori og láta þannig málefni
samfélagsins til sín taka. Samkvæmt
úrslitum síðustu sveitarstjórnarkosn-
inga var hlutur kvenna í sveitar-
stjórnum aðeins 29%. Af 124 sveitarfé-
iögum er hlutfaOið þannig aö 16 sveit-
arstjórnir era eingöngu skipaðar
körlum og í 56 sveitarstjómum á að-
eins ein kona sæti.
Félagið telur að jafn hlutur kynja
við ákvörðunartöku í þjóðfélaginu sé
eitt af grundavaUaratriðum lýðræðis.
Konur þurfi því að hasla sér völl á
því sviði tO jafns við karfa og megi
ekki hika við að gefa kost á sér. Auka
þurfi hlut þeirra á framboðslistum og
þar með einnig í nefndum og ráðum
sveitarfélaga. Stjórnmálaflokkum
beri að gæta fyllsta jafnræðis kynj-
anna við röðun fólks á framboðslista
tO að þessu markmiði verði náð.-MA
Norðlenska
skipt upp í
tvö svið
Sigmundur Einar Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri Matbæjar ehf„ hefur
verið ráðhin framkvæmdastjóri Norð-
lenska ehf. Hjá félaginu verða starf-
andi tveir framkvæmdastjórar en fyrir
er starfandi Jón Helgi Björnsson. Á
næstu vikum er fyrirhugað að skipta
félaginu í tvö meginsvið. Annars vegar
svið er lýtur að vinnslu og hins vegar
svið er lýtur að slátrun. Mun nýtt
skipurit verða kynnt í framhafdi af
þessari skiptingu. Ákveðið hefúr verið
að Sigmundur muni sinna fram-
kvæmdastjóm á sviði vinnslu en Jón
Helgi á sviði slátrunar.
Norðlenska ehf. varð tO við sam-
rana Kjötiðju K.Þ. og Kjötiðnaðar-
stöðvar KEA á miðju ári 2000. I árs-
byrjun sameinaðist Nýja bautabúrið
hf. félaginu auk þess sem Norðlenska
keypti kjötvinnslur Kjötumboðsnis hf.
(áður Goði hf.) í júlíbyijun. Umfang fé-
lagsOis hefur vaxið mikið frá stofnun
þess og er áæUuð ársvelta félagsOis
tæpir 3 mOIjarðar króna.
Félagið starfrækir fjórar kjötvinnsl-
ur á Húsavík, Akureyri, Borgamesi og
í Reykjavík auk þess að reka sláturhús
á Húsavík, á Akureyri og í Borgamesi.
Á þriðja hundrað stöðugOdi era hjá
Norðlenska. -BG
Valgerður
Sverrisdóttir.