Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Side 4
4
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
I>V
Fréttir
Ólga vegna meintra samstarfsörðugleika á vistheimilinu í Gunnarsholti:
Fimm starfsmönnum
sagt upp á föstudag
- skipulagsbreytingar, segir nýr forstöðumaöur
Fimm starfsmönnum á Vist-
heimilinu i Gunnarsholti á Rang-
árvöllum var sagt upp störfum á
föstudag. Tveir þeirra þurfa ekki
að vinna lögbundinn uppsagnar-
frest. Auk þessa hefur tveimur
starfsmönnum til viðbótar verið
sagt upp störfum á árinu. Að sögn
forstöðumannsins, Ingólfs Þorláks-
sonar, eru skipulagsbreytingar
ástæða uppsagnanna en níu og
hálft stöðugildi eru við heimilið.
Hann segir starfsmenn á tímabili
hafa verið sextán en aðeins heim-
ild fyrir níu.
Vistheimilið í Gunnarsholti er
hluti af geðsviði Landspítalans. Þar
eru í kringum þrjátíu vistmenn á
hverjum tíma. Starfsfólkið í Gunn-
arsholti sinnir almennum þjónustu-
störfum við vistmenn en læknar og
hjúkrunarfræðingar koma reglu-
lega úr Reykjavík austur. Áður-
Vistheimilið í Gunnarsholtl
Alls hefur sjö starfsmönnum verið sagt þar upp á árinu. Starfsfölk talar um sam-
skiptaöröugleika viö forstööumanninn, sem hann sjálfur kannast ekki viö.
nefndur forstöðumaður tók við þykir starfsmönnum samstarfið við
starflnu snemma á þessu ári og hann ekki hafa verið sem best.
„Það hefur viljað loða við að
ólga hafi verið í kringum þessa
starfsemi i gegnum árin, eins og
oft vOl raunar verða á þessum
kanti heilbrigðisþjónustunnar,"
sagði einn starfsmanna í Gunnars-
holti sem blaðið ræddi við. Ingólf-
ur Þorláksson sagði í samtali við
DV i gærkvöld að sér væri ókunn-
ugt um samskiptaörðugleika. Að-
spurður í hverju skipulagsbreyt-
ingar, sem uppsagnirnar grund-
vallast á, fælust kvaðst hann ekki
þurfa að svara blaðamanni þar
um.
Starfsfólkið fékk uppsagnarbréf-
in í hendur síðdegis á tostudag.
Það er í Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana og strax í dag ætlaði þaö
að setja sig I samband við félagið
og ræða þá stöðu sem upp er kom-
in i þess málum.
-sbs/ÓSB
Bærinn taki trén:
Of stór tré víða
til vandræða
Mikiö hefur verið um það að íbú-
ar í Hafnarfirði hafi gefið bænum
grenitré úr görðum sínum þetta
árið. Ástæðan er yfirleitt sú að
vegna hæðar hafa trén valdið
skugga i görðum og húsum. Lóðar-
eigendur hafa því haft samband við
garðyrkjustjóra og hann hefur farið
á staðinn og metið hvort eitthvað
getur komið í stað fellingar, t.d.
grisjun eða klipping. Einnig er met-
ið hvemig vaxtarlag trésins er og
hvort gott sé að komast að því.
Bærinn hefur siðan séð um að
fella trén og sett þau upp á fyrir
fram ákveðnum stöðum í bænum.
Það skal tekiö fram að þessi þjón-
usta er Hafnfirðingum að kostnað-
arlausu en þeir fá heldur ekki greitt
fyrir. Kveikt var á trjám við Hafnar-
borg 9. nóvember og á ljósalengjum,
ljósahornum og ljósastjömum fyrir
helgi. Kveikt verður á gjafatrjám
við Hafnarfjarðarkirkju og Flens-
borgarhöfn 8. desember en þau
koma frá vinabæjum, Frederiksberg
og Cuxhaven. -DVÓ/JGR
DV-MYND EINAR
Rithöfundar í hlutverki bóksala
Rithöfundar settu sig í spor bóksala á laugardag, afgreiddu bækur og hjálpuöu viöskiptavinum bókabúöar Máls og
menningar viö Laugaveg aö velja sér lesefni. Á myndinni spá þeir Arnaldur Indriðason, t.v., og Hrafn Jökulsson í bæk-
urnar meö viöskiptavini, rithöfundinum Gyröi Elíassyni sem er fyrir miöri mynd.
J&-.J ^
1 >, ifc ,{
% V
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.44 15.04
Sólarupprás á morgun 10.53 11.03
Siódegisflóö 20.03 00.36
Árdeglsflóð á morgun 08.24 12.47
Skýringair á ysáuríákimrn
Slydda fyrir austan síödegis
Fremur hæg suðlæg átt og stöku él en snýst
síðdegis í norðaustanátt með slyddu eða
snjókomu austan til. Hiti kringum frostmark
með suðausturströndinni en annars frost 0 til
5 stig.
^ViNDÁTT 10V-HITI *3l -10° ^VINDSTYRKUR Vcdact i matrian í seUMu i HEIÐSKÍRT
*> O O
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
í? W Q
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJQKOMA
U "P =====
ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞQKA
Allt eftír
Jb'uú jjJJ
Skemmtilegt á snjóþotu
Það hefur heldur betur snjóaö á
suövesturhorni landsins undanfarna
daga. Og þrátt fyrir aö fullorðna fólkinu
leiöist snjóþyngslin eru börn
himinlifandi með ofankomuna enda
fátt skemmtilegra en láta draga sig
um bæinn á sjóþotu.
El og vægt frost sunnan og vestan til
Vestlæg átt, víöa 10 til 15 m/s. Slydda eða snjókoma fram eftir degi
norðaustanlands en él og vægt frost sunnan og vestan til.
Fímmtiíd;
Vindur:
5-10 m/a'
Hiti 0°til -2°
Vindur:
5-10
m/a
Hiti 0° til -2
Hiti 0°t*S
Suövestanátt og él sunnan
og vestan tll. Hlti í
kringum frostmark.
Suövestanátt og él sunnan
og vestan til. Hitl í
kringum frostmark.
Suövestanátt og él sunnan
og vestan til. Hitl í
kringum frostmark.
Baráttufundur:
Biðlundin
á þrotum
í kvöld verður haldinn bar-
áttufundur í Ráðhúsinu undir yfir-
skriftinni Biðlundin á þrotum.
„Þetta er bar-
áttufundur um
það ástand sem
er í málefnum
fatlaðra og
biðlistavand-
ann,“ segir Frið-
rik Sigurðsson,
framkvæmda-
stjóri landssam-
takanna Þroska-
hjálpar, sem
standa fyrir fund-
inum i samvinnu við önnur hags-
munasamtök fatlaðra og launþega-
samtök. „Nú er verið að afgreiða
íjárlög fyrir árið 2002 og ef frum-
varpið verður óbreytt að lögum eru
allar líkur á því að biðlistarnir
muni lengjast enn meira.“
Á fundinum verða flutt nokkur
stutt ávörp og meðal þeirra sem
taka til máls eru Garðar Sverrisson,
formaður Öryrkjabandalagsins, Sól-
veig Steinsson, formaður Þroska-
þjálfafélags íslands, Stefán Hreið-
arsson, forstöðumaður Greiningar-
stöðvarinnar, Vilmundur Gíslason,
framkvæmdastjóri Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra, ína Valsdóttir,
formaður Átaks, HaUdór Bjarnason,
formaður Landssamtakanna
Þroskahjálpar og Steinar Jónasson
sem er faðir drengs á biðlista. Sigur-
steinn Másson verður fundarstjóri
og Bjartmar Guðlaugsson skemmtir
gestum fundarins sem hefst klukk-
an átta. -ÓSB
Útskrifuð af
gjörgæslu
Konan sem slasaðist alvarlega í
bílslysi skammt suður af Kúagerði
á Reykjanesbraut aðfaranótt laug-
ardags var útskrifuð af gjörgæslu-
deild Landspítala - háskólasjúkra-
húss í Fossvogi í gær. Líðan kon-
unnar er eftir atvikum góð, sam-
kvæmt upplýsingum frá gjörgæslu-
deild, og er hún nú á almennri
deild.
Slysið varð um klukkan hálffimm
aðfaranótt laugardagsins og með
þeim hætti að tvær bifreiðir rákust
saman en þeim var ekið úr gagn-
stæðum áttum. Konan sem slasaðist
var ökumaður annarrar bifreiðar-
innar en ökumaður hinnar, kona
um fertug, lést í slysinu. Talið er aö
hún hafi látist samstundis. Öku-
mennirnir voru báðir einir í bilun-
um. -MA
Jbúiíú JiL O : j ýýbi
AKUREYRI alskýjaö -2
bergsstaðir skýjaö -3
BOLUNGARVÍK skýjaö -3
EGILSSTAÐIR snjókoma -2
kirkjubæjarkl. skúrir 2
KEFLAVÍK haglél -1
RAUFARHÖFN alskýjaö 1
REYKJAVÍK snjókoma -1
STÓRHÖFÐI snjóél 1
BERGEN hálfskýjað 5
HELSINKI þokumóöa -3
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 4
ÓSLÓ skýjaö 2
STOKKHÓLMUR slydda 4
ÞÓRSHÖFN skúrir 7
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 2
ALGARVE léttskýjaö 14
AMSTERDAM skýjaö 9
BARCELONA mistur 12
BERLÍN þokumóöa 0
CHICAGO þokumóöa 2
DUBLIN skýjaö 8
HALIFAX alskýjað 6
FRANKFURT súld 9
HAMBORG þokumóða 6
JAN MAYEN léttskýjaö 1
LONDON mistur 5
LÚXEMBORG þokumóöa 9
MALLORCA skýjaö 18
MONTREAL 6
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -18
NEWYORK alskýjað 10
ORLANDO þokumóöa 17
PARÍS þokumóöa 8
VÍN þokumóöa -2
WASHINGTON skýjað 7
WINNIPEG skýjaö 7
■■;n™jm,ifjmiiwi.',ii:ia'H»ni:i4óiiiiHM;i.