Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Síða 12
12
Utlönd
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
I>V
Innifalið:
Myndataka afbömunum þínum og
40 jólakort.
Verð 8.000
Hægt að panta stækkanir af myndunum.
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020
Nýtt á íslandi!
Fyrsta sendingin af
OPTIMUM
vélunum er komin
OPTIMUM borvélar
OPTIMUM rennibekkir
OPTIMUM bandsagir
OPTIMUM borfræsivélar
og fylgihlutir
Gæðavörur sem létta mönnum lífið!
OPTIMUM, stærsta
vélasala Evrópu á þessu
sviði, valdi Fossberg sem
umboðsaðila sinn á
FOSSBERG
stórmarkaður iðnaðarmannsins
Islandi.
Suðurlandsbraut 14 - Sími 5757600
Innihald í 100 g af
Parmigiano-Reggiano
Vítamín A pg 270
B-carotene pg 107
Vítamín B1 pg 440
Vítamín B2 pg 370
Vítamín B6 gg 110
Vítamín B12 pg 4,2
Vítamín PP pg 55
Pantothenic acid pg 320
Biotin g 23
Choline (mg/100 g) pg 40
Umboðsaðili:
Kísill ehf
sími 551 5960
zanelli
Dreifing:
Osta- og smjörsalan sf
sími 569 1600
Af tilefni útgáfu þriggia nýrra bóka um
hin sívinsælu
BJÓÐA ÞAU í
ÚTGÁFUPARTÍ
að Stangarhyl 4
ftmm
Partíbókin
Bráðsmellin og bráðnauðsynleg
Sídasta náttfatapartíið
Sjötta bókin um Evu og Adam
Félagar mínir
Bókin sem er flett aftur og aftur
ión Jósep söngvari
úr hljómsveitinni í svörtum fötum
áritar vinningsbækur og stjórnar partíinu
Allir aðdáendur EVU og ADAMS velkomnir
- góðar bækur fýrir gott fólk
Aðalráðgjafi Mullah
Omars hefur hlaupist
undan merkjum
— samkvæmt óstaðfestum fréttum
Bandaríkjaher hélt uppi miklum
loftárásum á Kandahar, síðasta vígi
talibana í Afganistan, í gærdag.
Talsmenn hersins gáfu i skyn að
átökin um borgina væru á lokastigi
og stæðu ekki mikið lengur. Colin
Powell, utanrikisráðherra Banda-
ríkjanna, lýsti yfir að talið væri að
Osama bin Laden feldi sig einhvers
staðar í suðausturhluta Afganistan
þar sem sérsveitarmenn úr breska
og bandaríska hemum leita hans nú
i hellakerfum á þeim slóðum. Óstað-
festar fréttir sögðu í gær að aðalráð-
gjafi Mullah Omars, leiðtoga tali-
bana, auk héraðsstjóra Kandahars
heföi geflð sig fram við hersveitir
óvinveittar talibönum.
Viðræður fulltrúa þjóðarbrota i
Afganistan um væntanlega sam-
steypustjóm eftir að talibönum hef-
ur verið komiö frá völdum héldu
áfram i Bonn í Þýskalandi í gær.
Bænastund milli stríða
Bandarískir hermenn hlýða hér á
messu i suðurhluta Afganistan.
Fórnarlamba sprengjuárásar minnst
ísraelsk kona kveikir hér á kerti til að minnast þeirra sem féllu i sjálfsmorðs-
sprengiuárás í kaffíhúsahverfí í Jerúsalem á laugardagskvöldið. Tvær slíkar
áráslr voru gerðar í ísrael um helgina.
Fæðing hja japönsku
keisarafjölskyldunni
Stoltur faðir
Naruhito krónprins brosir hér til Ijós-
myndara eftir að tilkynnt hafði verið
um fæöinguna.
Japanska þjóðin fagnaði i gærdag
þegar tilkynnt var að Masako, krón-
prinsessa Japan, hefði alið stúlku-
barn. Lengi hefur verið beðið eftir
því að krónprinsessan og Naruhito
krónprins eignuðust erfingja. Sú
staðreynd að um stúlkubam er að
ræða flækir hins vegar málin litið
eitt.
Samkvæmt lögum geta aðeins
karlkyns meðlimir keisaraflölskyld-
unnar erft keisaratignina. Börn nú-
verandi keisara hafa hins vegar að-
eins alið af sér stúlkuböm. Þetta
hefur ýtt undir þá umræðu að
breyta þurfi lögunum svo keisara-
flölskyldan leggist ekki af.
Átta keisaraynjur hafa stjórnað
Japan í gegnum tíðina og ríkti sú
síðasta á áflándu öld. Keisaraættin
er talin vera komin frá sólgyðjunni
Amaterasu.
Stuttar fréttir
Blaðamaður látinn laus
Talibanar létu í
gær lausan kanadiska
blaðamanninn Ken
Hechtman sem hvarf
við landamæri Afgan-
istans og Pakistans í
síöustu viku.
Eldflaugavarnir prófaðar
Samkvæmt upplýsingum frá höf-
uðstöðvum Bandaríkjahers í Penta-
gon átti að fara fram prófun á eld-
flaugavarnakerfinu umdeilda sem
Bandarikin vilja koma sér upp.
Prófanirnar áttu að fara fram á
laugardag en var frestað vegna veð-
urs.
Þjóðernissinnar tapa
Lýðræðislegi framfaraflokkurinn
vann sigur í þingkosningum í Tæv-
an á meðan Þjóðernisflokkurinn
tapaði miklu fylgi.
Dýrkeypt gjaldþrot
Gjaldþrot orkusölufyrirtækisins
Enron mun kosta tryggingafélög í
Bandaríkjunum um 110 milljarða
króna. Þetta er annað áfall fyrir
tryggingafélög þar sem hryðju-
verkaárásirnar í New York 11. sept-
ember voru þeim þungbær.
Fyrsti fallni kominn heim
Jarðneskar leifar Johnnys Mich-
aels Spanns, fyrsta bandaríska her-
mannsins sem fellur í stríðinu í
Afganistan, voru fluttar til Banda-
ríkjanna í gær.
Innrásar minnst á Kúbu
Fidel Castro, for-
seti Kúbu, var við-
staddur hátíðahöld
i gær til að minn-
ast þess að 45 ár
eru síðan hann og
byltingarfélagar
hans réðust inn í
Kúbu.
Endurskipulagning gengur ilia
Evrópusambandinu mun ekki
takast að endurskipuleggja flárhags-
mál sín fyrir árið 2005, eins og áætl-
að er. Þetta kemur fram í skýrslu
sem gerð var fyrir sambandið. Þar
segir að harðari aögerðir þurfi svo
áætlunin standi.
Skattur fyrir heilsugæslu
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, lýsti því yfir
í gær að hann
styddi hækkun
skatta til að borga
fyrir endurbætur á
heilbrigðisþjónustu
í Bretlandi. Rétt
rúmlega helmingur
landa hans eru sammála honum
samkvæmt skoðanakönnunum.
Vilja meiri rannsóknir
Margir bandarískir vísindamenn
vilja að Bandaríkin flármagni stofn-
frumurannsóknir í stað þess að for-
dæma þær þar sem rannsóknir
þessar eigi eftir að gefa mikið af sér
í meðferð margra sjúkdóma.
Mannskaöi í flugslysi
Óttast er að allt að átján manns
hafi farist þegar rússnesk flutninga-
vél af gerðinni 11-76 hrapaði í Síber-
íu. Flugstjórinn hafði tilkynnt um
eld um borð og ætlaði að nauðlenda
á nærstöddum ílugvelli.