Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Page 18
34 Skoðun MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001 I>V t •> > Ofbeldisfullt þjóöfélag Ofbeldi fer vaxandi - fátt til úrbóta. Spurning dagsins Hverjar finnast þér bestu smákökurnar? Nína Daöadóttir, 6 ára: Piparkökur, ég ætla aö baka þær með mömmu fyrir jólin. Viktor Daöason, 8 ára: Piparkökur, ég ætla aö biöja mömmu aö baka þær fyrir jólin. Vignir Völuson bílstjóri: Sörur, þær eru alveg magnaöar, mamma bakar þær fyrir jólin. Arnar Snorri Jónsson bílstjóri: Lakkrístoppar, þeir eru langbestir. Þaö getur vel veriö aö ég baki bara sjálfur fyrir jólin. Anna Guðjónsdóttir, 11 ára: Súkkulaöibitakökur. Bergdís Bjarnadóttir, 12 ára: Piparkökur. aað fara í grafgötur um að hér á landi er ofbeldi að festa rætur umfram það sem gengur og ger- um okkar. Einkum GeirR. eykst ofbelcli un8' Andersén linga hér hröðum bim. skrifar: skrefum og það má ............... eflaust rekja til þess að hér hefur ekki skapast sú siðvenja að börn og unglingar beri virðingu fyrir fullorðnum. Það er t.d. fátítt að börn og unglingar heilsi fullorðnum að fyrra bragði og þau kunna heldur ekki að taka undir kveðju þótt þeim sé heilsað. Almennir og viðteknir mannasið- ir gilda heldur ekki í þjóðfélagi okk- ar miðað við það sem gerist og geng- ur í nágrannalöndum okkar í Evr- ópu eða í Vesturálfu. Misindismenn í erlendum stórborgum kunna að vera hinar geðþekkustu persónur í samskiptum og virða almennar kurteisisreglur þótt þeir séu svo harðsvíraðir og ofbeldisfullir á vett- vangi glæpa. Tíðar fréttir hér af alvarlegum árásum unglinga á jafnaldra, jafnt sem fullorðna, að tilefnislausu sýna að til viðbótar fákunnáttu í mann- legum og viðteknum samskiptum er þróunin alvarleg. Alvaran er líka sýnu meiri hér þegar við bætist að eðlislæg skemmdarfýsn er einnig til staðar - og skemmdarverk íslenskra unglinga eru mun tíðari hér en í öðrum löndum þar sem afbrotin snúast fyrst og fremst um að ásæl- ast eigur annarra og nálgast þær ólöglega. Og nú er svo komið (samkv. nýrri rannsókn) að íslenskar konur verða mun oftar fyrir ofbeldi en kynsystur þeirra í öðrum Evrópulöndum. Þar er því samband á milli unglingaof- Guðmundur Óskarsson skrifar: Það fer að verða áberandi hve mörg fyrirtæki eru sögð standa höll- um fæti og sum þegar orðin gjald- þrota, þau stóru ekki síður en hin minni. Fróðlegt er einnig að lesa um hvernig niðursveiflu þessara fyrirtækja ber að og hvernig síðan að henni er staðið á strandstað. Eitt fyrirtækið, Burnham International á íslandi hf., er eitt þeirra sem hafa orðið að skila rekstrarleyfi sínu hér á landi. Þeir 100 aðilar sem eru með fé í vörslu hjá þessu fyrirtæki (kannski 100 ríkustu og umfangs- mestu einstaklingamir i viðskipt- um á íslandi?) sitja nú með hendur í skauti og bíða nýrra veiðilendna á fjármálamarkaðinum. - Því „tapið „Fáir munu þess umkomnir að leggja fram tillögur til úr- bóta í hinu ofbeldisfulla þjóð- félagi okkar, enda verður ékk- ert úr neinum úrbótum fyrr en með gjörbreyttu skólakerfi og siðvœðingu sem hvergi verður þróuð nema inni á heimilunum sem dreifa börn- unum út í þjóðfélagið. “ beldisins (oftast karlkyns) sem virð- ist halda áfram fram eftir aldri og bitnar þá á konunum. Auðvitað er íslenska þjóðin yfir- þyrmandi frek að eðlisfari sem kem- ur fram i tilætlunarsemi, kröfugerð- um og málaferlum, tengdum ósk- hyggju um sífellt betri aðstæður, að- „Mestan kvíðboga ber ég þó fyrir vesalings „starfsfólkinu með reynsluna“ verði það hundelt til að leggja bróður- partinn af þriggja mánaða samningsbundnum uppsagn- arlaunum sínum (ríkis- tryggðum) í nýtt œvintýri með nýjum herrum og nýj- um kennitölum. “ liggur hjá okkur hluthöfum", segir svo verðbréfamiðlarinn í New York, helsti talsmaðurinn. - Og kúnnarn- ir eiga allt sitt áfram! Mér finnst þetta ekki trúverðugar yfirlýsingar. Samvinnuferðir-Landsýn, ein öfl- búnað og bætur á bætur ofan. Glöggt má sjá þessa frekju birtast í nýsettum lögum (sumir segja ólög- um) um fæðingarorlof foreldra. Fáir munu þess umkomnir að leggja fram tillögu til úrbóta í hinu ofbeldisfulla þjóðfélagi okkar, enda um engar úrbætur að ræða nema með gjörbreyttu skólakerfi og sið- væðingu sem hvergi verður þróuð nema inni á heimilunum sem dreifa börnunum út í þjóðfélagið. Agi, þegnskylda og spurningarnar: hvað á landið að gera fyrir þig eða hvað vilt þú gera fyrir landið? eru svo markmið sem ekki verða sett án samstöðu þjóðarinnar. Þau geta svo auðveldlega tengst hápólitískum málum eins og ESB-umræðunni, kvótakerfinu eða hvort við viljum lifa sem menn eða dýr. Augljóst er að þar verðum við að velja. ugasta ferðaskrifstofan hér, þoldi ekki versnandi ytri aðstæður og er nú öll, að sinni - nema aðrir og filefldir fjármálajöfrar eins og fjár- festingafélagið Gilding ehf., sem lagði 150 milljónir króna í fyrirtæk- ið í ársbyrjun, geti bjargað málun- um. Eitthvað minnir mig að einmitt þessu fyrirtæki, Gildingu ehf., hafi verið farið að förlast fjárhagslega ef marka má fréttir sem lesa mátti þar að lútandi fyrir ekki svo löngu. Mestan kvíðboga ber ég þó fyrir vesalings „starfsfólkinu með reynsl- una“ verði það platað til að leggja bróðurpartinn af þriggja mánaða samningsbundnum uppsagnarlaun- um sínum (ríkistryggðum) i nýtt ævintýri með nýjum herrum og nýj- um kennitölum. Hluthafar hlæja ekki lengur Garri Inga Jóna braggast Garri hefur verið að velta fyrir sér mikilvægi þess að einungis Inga Jóna Þórðardóttir ein og enginn annar úr minnihlutanum tók þátt í um- ræðunni við framlagningu fjárhagsáætlunar í síðustu viku. Af hverju töluðu strákarnir í borg- arstjómarflokknum ekkert? Vildi Inga Jóna ekki að þeir dræpu umræðunni á dreif eða hafa þeir bara ekkert vit á fjármálum borgarinnar?! Og ef Inga Jóna vildi ekki að þeir töluðu líka er það þá ekki nokkuð merkilegt að hún hafi haft stöðu til að banna þeim það - sérstaklega í ljósi um- ræðunnar um að hún njóti ekki óskoraðs fylgis sem leiðtogi?! Þessar og raunar miklu fleiri spurningar hafa verið á sveimi allan seinnihluta síðustu viku og um helgina, ekki eingöngu með- al stjómmálaáhugamanna eins og Garra heldur líka meöal sjálfstæðismanna sjálfra sem nú velta fyrir sér hver staðan sé í leiötogamálum flokks- ins síns í Reykjavík. Styrkir stöðu sína Óhjákvæmilega þykir þessi uppákoma benda til þess að Inga Jóna sé að styrkja sig innan borgarstjórnarflokksins. Því þó svo aö umræðan um fjárhagsáætlun sé kannski ekki skemmtileg- asta eða vinsælasta umræðan á sviði borgarmála þá fylgir henni talsverð þungavigt. Oddviti sem ekki er með fjármálaumræðuna á hreinu og ræð- ur ekki við að taka þátt í henni er i raun enginn oddviti. Þess vegna er það í raun veikleikamerki að menn eins og t.d. Júlíus Vífill Ingvarsson, sem margir vilja að verði næsti oddviti, skuli ekki blanda sér í fjáhagsáætlunarumræðuna með einhverjum áberandi hætti. Ef hann, eða einhver annar i borgarstjómarflokknum, á að koma til greina sem foringi verður hann að sýna að hann sé góður kappræðumaður á þessu sviði. Björn þegir En það er fleira en bara þetta sem spekúlant- amir hafa til marks um að Inga Jóna sé að styrkja sig í sessi. Nú hefur liðið enn ein helgin þar sem Björn Bjarnason lætur hjá líða að gefa til kynna í pistli á heimasíðu sinni hvort hann ætlar í borgarmálin eða ekki. Tíminn fer einfald- lega að vera knappur fyrir Björn ef hann á ann- að borð ætlar að hjóla í Ingu Jónu og keppa við hana um forystusætið. En Björn bara biður og bíður á meðan Inga Jóna treystir stöðu sína með ýmsum hætti. Er nú svo komið að Garra sýnist sífellt líklegra að Björn haldi sig í landsmálun- um sem aftur verður vatn á myllu Ingu Jónu. Þá getur hún sagt við strákana í borgarstjómar- flokknum að þeir eigi nú lítinn séns úr því að sjálfur Bjöm Bjamason hafi ekki þorað að leggja í hana! Það stefnir því í nokkuð bjartari tíma hjá oddvita sjálfstæðismanna í borginni og Inga Jóna getur hæglega fengið lánuð hin fleygu orð Jóhönnu Slgurðardóttur og sagt: Minn timi mun koma! CMfl Á prestastefnu þjóökirkjunnar íslam í bland? Þjóökirkjan og íslam Guðrún Jónsdóttir skrifar: Mig langar með þessum skrifum að gagnrýna stefnu þjóðkirkjunnar sem virðist ganga út á það þessa dagana að boða og kynna íslam fyrir landsmönn- um. Ef prestar landsins gengju jafn hart fram í að kynna og boða kristni og siðvæðingu meðal þjóðarinnar, væri án efa minni flótti fólks úr þjóð- kirkjunni. Þú skalt ekki aðra guði hafa, er eitt af því sem Drottinn sjálf- ur kenndi okkur með boðorðunum tíu. Mitt ráð til presta landsins er að þeir byrji á að virða það góða boðorð. Umburðarlyndi er ekki gott í óhófi. í fótspor fréttamanna Hallgrímur Sveinsson skrifar frá Hrafnseyri: Einn fagran morgun vaknar maður upp við það, að Fréttastofa útvarps segir hugljúfa frétt af andamömmu í Vancouver í Kanada. Hún missti ung- ana sína niður í holræsi borgarinnar, og í öngum sínum sneri hún sér til næsta lögreglumanns og bað hann ásjár með því að toga í buxnaskálm hans og leiða hann með sér þangað sem nýfæddir ungar hennar börðust um í straumkastinu. Lögregluþjónn- inn bjargaði ungunum að sjálfsögðu fyrir mömmuna og allt fór vel. - Svona fréttir sem ylja fólki um hjarta- rætur koma alltaf öðru hvoru bæði í útvarpi og sjónvarpi, en að margra mati alltof sjaldan. Mannlífsfréttir sem þar virðast í öndvegi og hafa ver- ið lengi eru fyrst og fremst frásagnir af því sem miður fer, að ekki sé nú tal- að um hina sígildu umfjöllun um pen- inga. - Mætti ég biðja um aðeins minna af slíku tagi og koma með fleiri góðar mannlifsfréttir. A lestarstöðinni Eftirsóttur og þægilegur ferðamáti. Ferðaskrifstofuraunir Vilhjálmur Vilhjálmsson skrifar: Manni dettur nú í hug þegar ferða- skrifstofur eiga í bágindum, og á ég þá ekki bara við Samvinnuferðir- Landsýn, heldur ferðaskrifstofur yf- irleitt, svo og Flugleiðir sem iíka selja fólki farmiða til útlanda , hvort ekki sé um sjálfskaparvíti að ræða hjá þessum aðilum að einhverju leyti. Nú auglýsa þessar skrifstofur mikið þjónustu sína, m.a. ráðgjöf og pöntun, sérhæft starfslið og hag- kvæmasta fáanlegt flugverð og far- seðla með öllum helstu flugfélögum heims. Svona upptalningu sá ég einmitt í auglýsingu frá Ferðaskrif- stofu íslands (undir yfirskriftinni Viðskiptaferðir - þjónusta um allan heim). Þarna var ekki minnst á ferð- ir með járnbrautarlestum, eins og þær eru þó orðnar vinsælar meðal farþega, einnig af íslendingum á ferð- um í Evrópu. Þegar ég hef spurt um þennan þátt ferðaþjónustu hér á landi eru svörin oftast á sömu leið: því miður, við höfum engar upplýs- ingar um svoleiðis, það er svo erfitt að nálgast þær! - Ég spyr á móti: Vinnur fólkið ekki með tölvur? Og svo hitt, að flugið er ekki beinlínis eftirsótt í dag, og lestirnar eru mun fljótari í fórum en flugvélin, þegar allt er reiknað, og ólíkt þægilegri. ■KCTHM Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn 7 síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattirtil að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.