Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Blaðsíða 28
44
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
Tilvera
T I R V 1 N N U
Ljósið og birtan
Þóröur Hall myndlistarmaður
hefur opnað sýningu verka
sinna í Hallgrímskirkju. Hann
sækir myndefni sitt í íslenskt
landslag, án beinnar skír-
skotunar til kennileita eða
ákveðinna staða. Á myndum
þessarar sýningar kveðst hann
vinna með Ijósið og birtxma í
huglægri og hljóðri náttúru.
Krár
■ MANNAKORN A GAUKNUM Hin
' gamalkunna hljómsveit, Mannakorn,
meö þá Pálma Gunn og Magga Ei-
ríks í fararbroddi, spilar á tónleikum
á Gauki á Stöng.
Klassík
■ GITARTÓNÁR í LÍSTÁKLUBBNUM
I Listakiúbbi Leikhúskjallarans leikur
Guitar Islancio af nýútkomnum diski
tríósins, Guitar Islancio 3. Trióið
skipa þeir Björn Thoroddsen,
Gunnar Þóröarson og Jón Rafnsson.
Dagskráin hefst. kl. 20.30.
, Fundir
■ SPJALLAÐ UM TONLIST Kl. 20
veröur haldið námskeiöiö Hvaö ertu
tónlist? á vegum Endurmenntunar
Hl, í samvinnu viö Salinn í Kópavogi.
Jónas Ingimundarson fjallar um
valsa Chopins.
■ JÓLAFUNDUR Aelow. kristileg
samtök kvenna, halda árlegan jóla-
fund kl. 20 í Kristniboössalnum,
Háaleitisbraut 58. Allir velkomnir.
■ FERÐA-OG FLÖKKUSAGNIR
Bjartur stendur fyrir feröa-og
flökkusagnakvöldi á Súfistanum í
kvöld. Sigfús Bjartmars, Rakel
Pálsdóttir, Gísli Marteinn
Baldursson, Hafiiöi Kristjánsson og
Sigurður Atlason segja sögur.
■ ÁHRIFARÍKUR LESTUR Anna
* Hildur Hildlbrandsdóttir les úr bók
sinni um réttarsálfræöinginn Gísla.
H. Guðjónsson í Hlaðvarpanum í
kvöld kl. 20.30.
■ FÉLAG UM LÝÐHEILSU
Stofnfundur félags um lýöheilsu
verður kl. 17 í dag í fundarsal
Heilsuverndarstöövar Reykjavíkur.
Bíó
■ RÁFEINP. ÉGÍLSSTÓDUM föoi>
ræman Moulin Rouge meö gellunni
Nicole Kidman í einu aðalhlutverka
er sýnd í Rafeind kl. 20.
Sýningar_____________________
Kí ALVÖRUFÓLK Landssamtökin
Þroskahjálp standa fyrir sögu-
sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur um líf
> fólks með þroskahömlun í tilefni 25
ára afmælis samtakanna.
■ 27 LISTAMENN HJÁ SÆVARI
Nemendur Listaháskóla Islands
hafa opnað sýningu á verkum sínum
í galleriinu hjá Sævari Karli Þemað
er Málverkiö eftir málverkið.
■ STEINUNN í SM'IÐUM OG
SKARTI Myndlistarkonan Steinunn
Einarsdóttir hefur opnaö sýningu í
Gallerí Smíðar og skart, Skólavöröu-
stíg 16.
■ ÞÓROPPUR í JL-HÚSINU Þórodd-
ur Bjarnason sýnir Ijósmyndir,
textaverk og myndband í Reykjavík-
* ur- Akademíunni, í JL-húsinu.
Happdrætti
Bókatíðinda
Vinningsnúmer 3. desember:
2S274
i Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Presturinn tekur lagið
Séra Pétur Þorsteinsson lét ekki gifsaöa hægri hönd aftra sér frá þvi aö gleöja bæöi böm og fulloröna meö gítarslætti og söng.
Hátíð í háloftunum
í gær stóð Fyrstaflugfélagið, félag
áhugamanna um flugmál, fyrir jóla-
skemmtun í einni af risaþotum Atl-
anta-flugfélagsins. Gunnar Þorsteins-
son, formaður félagsins, segir að með
þessari ferð hafi flugáhugamenn viljað
hressa upp á ímynd flugsins eftir áfóll
undanfarinna missera. „Því tókum við
á leigu stærstu þotu þjóðarinnar og
buðum fólki að lyfta sér upp í tilefni af
jólahátíðinni."
Brottför var ffá Keflavíkurflugvelli
og var flogið yflr ísland í átt að heim-
skautsbaug og fengu farþegar frábært
útsýnisflug yfir Akureyri og Grímsey,
svo nokkuð sé nefnt. ETogið var yfir
norðurheimskautsbauginn og af þvi
tilefni var nef farþega málað blátt.
Flugstjóri var sjálfur Amgrimur Jó-
hannsson en auk hans voru jólasvein-
ar og harmoníkuleikari með í för og
héldu þeir uppi fjörinu um borð með
hljóðfæraslætti og söng. Fyrir flugferð-
ina var smáathöfn í Leifsstöð þar sem
fluttur vaf pistill um áhugaverð atriði
í sambandi við flugvélina og séra Pét-
ur Þorsteinsson flutti jólahugvekju.
Þeim til aðstoðar voru Grýla og
Leppalúði sem voru í jólaskapi og gáfu
bömunum sælgæti. -ÓSB
Kátir krakkar á flugi
Eins og sjá má á andlitum barn-
anna voru þau hæstánægö meö
veruna um borö i risaþotunni enda
veitingarnar hvergi sparaöar og
jólasveinar á ferð. Einnig voru þau
leyst út meö gjöfum.
Hvar er hreindýrasleöinn þlnn?
Aö því gæti þessi snót veriö aö spyrja jólasveininn enda eru
risaþotur ekki algengasti feröamáti sveinanna.
Þeir virtust samt kunna vel viö þennan farkost og léku á als
oddi alla feröina.
Með fulla körfu af nammi
Þau Grýia og Leppaiúöi gátu meö engu móti komiö öllu því sælgæti sem dreift var í pok-
ana sína og fengu því þessa handhægu innkaupakerru undirgottiö. Eins og nærri má
geta er þaö lýjandi starfaö útbýta nammi til barna og var Leppalúði aö niöurlotum kom-
inn þegarþessi mynd var tekin.
Bíógagnrýni
Sam-bíóin/Háskólabíó - Harry Potter og viskusteínninn: ★ ★★
Galdurinn við Harry
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Óvænt sjón í Hogwarts-skólanum
Aöalpersónunum Harry, Hermoine og Ron er brugöiö eins og sjá má.
Það var aldrei spurning um „hvort“
heldur bara „hvenær“ kvikmynd yrði
gerð um Harry Potter. Potter er, eins
og við vitum öU, fyrirbæri ólíkt öðrum
sem við höfúm séö - bækumar era svo
vinsælar að það er bókstaflega engu
líkt. Töfraheimur J.K. Rowling höfðar
nánast jafn sterkt til fuílorðinna og
bama. Enda er heimur hennar sérstak-
lega vel skapaður og byggður lifandi
og trúverðugum persónum - þrátt fyr-
ir yfimáttúrulega hæfileika þeirra.
Bækumar era sérlega góð blanda af
spennu, drama og húmor og Harry
sjálfur sú tegund af hetju sem er auð-
veldast að elska. Hann er munaðarlaus
og átti ástlausa og leiðinlega æsku hjá
verulega andstyggilegum ættingjum.
En hann missir aldrei kjarkinn og
verður aldrei skítlegur sjálfur. Á 11
ára afmælinu fær hann uppreisn æra,
kemst að því að hann er frægur í
heimi töframanna og er boðin skóla-
vist við Hogwarts-galdraskólann.
Hann er hugrakkur, heiðarlegur og
hógvær en alls ekki yfir það hafmn að
gera mistök.
Kvikmyndin um Harry Potter mun
ekki valda aðdáendum bókanna von-
brigðum. Leikstjórinn Chris Columbus
(Mrs. Doubtfire) fylgir bókinni síðu
fyrir síðu (enda er hún helst til löng)
og er henni fúllkomlega trúr. Kvik-
myndin er að vísu ekki eins fyndin og
bókin en andinn er hinn sami og dett-
ur sem betur fer aldrei ofan í væmni.
Sviðsmyndin hefúr tekist afskaplega
vel, Hogwarts-skólinn er mátulega
ótrúlegur í útliti, blanda af galdrakast-
ala og virðulegu ensku skólasetri,
draugalegur en samt hlýlegur. Tónlist
John Williams klæðir líka myndina
vel þótt mér fmnist hann aðeins fara
yfir strikið stundum - fólk má vart
hreyfa sig án þess að yfir mann hrynji
heilar sinfóníur. Allar óvenjulegar ver-
ur eins og þríhöfða hundar, kentárar,
draugar og tröll eru lika sannfærandi.
Þijú stórkostleg atriði eiga eftir að
lifa með manni lengi: Barátta Harrys,
Rons og Hermione við tröOið stóra sem
er bæði fyndin og óttaleg. Quidditch-
leikurinn sem er alveg frábær, spenn-
andi og óvæntur eins og hann er nátt-
úrlega í bókinni líka. Og lokaatriðið
þar sem Harry tekst á við - þið vitið
hvem - nafh hans segir maður ekki
upphátt. Sérstaklega er skákatriðið
magnað.
Kvikmyndin um Harry Potter er
líka sérdeflis vel mönnuð. Krökkunum
þremur, Daniel Radcliffe (Harry),
Rupert Grint (Ron) og Emmu Watson
(Hermione) tekst vel að koma þessum
heimsþekktu persónum tO skOa og
ensku stórleikaramir, sem skipa öO
önnur bitastæð hlutverk, eru afbragðs-
góöir. Richard Harris, sem skólastjór-
inn, prófessor Dumbledore, er mátu-
lega guðdómlegur en með blik í auga
og enginn hefði getað fyOt jafn
skemmtOega út í persónu prófessors
McGonagaO og Maggie Smith (minnir
jafnvel örlítið á annan kennara, miss
Jean Brody). Alan Rickman býr tO
óttalegan prófessor Snape fyrirhafnar-
laust og mest með því að læða setning-
um út úr sér þannig að íylgdarkonur
mínar tvær kipptust við í hvert skipti
sem hann birtist á tjaldinu. Og áð lok-
um er Robbie Coltrane algjört æði í
hlutverki hins góðhjartaða en dulítið
heimska Hagrids sem meira en nokk-
ur annar heldur uppi húmomum.
Mér segir svo hugur að bækumar um
Harry, eigi eftir að lifa jafn vel og lengi
og höfundarverk Blyton, ToOciens og
Lewis og ég hef trú á því að myndin eigi
eftir að lifa lengi líka, a.m.k. sýndist
mér að fylgdarstúlkum mínum liði helst
eins og mér leið 12 ára eftir að hafa séð
fyrstu Starwars myndina - og enn era
nýjar kynslóðir að horfa á hana.
Leikstjóri: Chris Columbus. Handrit: Steve
Kloves, byggt á skáldsögu J.K. Rowling. Kvik-
myndataka: John Seale. Tónlist: John Williams.
Aöalleikarar: Daniel Radcliffe, Rupert Grint,
Emma Watson, Richard Harris, Robbie Coltrane,
Alan Rickman, Maggie Smith, lan Hart, John
Cleese o.fl.