Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Síða 1
Fram og Haukar leika til úrslita i SS-bikarnum ® 21 Cmer leystur undan samningi Körfuknattleiksdeild Grindavík- ur stendur í stórræðum þessa dag- ana en fyrir skömmu var Banda- ríkjamaðurinn Roni Bailey sendur heim vegna slæmrar fjár- hagsstöðu deildarinn- ar. Nú hefur sló- venski leikstjómand- inn Miha Cmer verið leystur undan samn- ingi. Cmer hefur leikið ágætlega með Grinda- vík í vetur og hefur gert 13,8 stig, gefið 6,3 stoðsendingar í leik og einnig ver- ið með fina hittni. Það er ljóst að Grindavíkurliðið hefur veikst þónokkuð aö undan- förnu og ekki bætti úr skák að Helgi Jónas Guðfinnsson fingur- brotnaði eins og áður hefur komið fram í DV. Það eru þó góðar fréttir að Pétur Guð- mundsson er að koma aftur inn í liðið eftir meiðsli. -Ben DV-Sport verðlaunaði í gær leikmenn og þjálfara sem þóttu hafa skarað fram úr í nóvember. Aö ofan eru Haukamennirnir Halldór Ingólfsson og Viggó Sigurðsson. Á myndinni til hliöar eru þau Ragnheiður Stephensen, Stjörnunni, og Siggeir Magnússon, þjálfari liðsins. Á bls. 24-25 og 26 er fjallað um viðurkenningarnar og spjallaö við þá sem hlutu þær. DV-myndir Pjetur Enska úrvalsdeildin: Tapleikur hjá Chelsea Chelsea, sem hefur átt góðu gengi að fagna að undanfórnu, tapaði á Stamford Bridge í Lundúnum fyrir Charlton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Það var Kevin Lisbie sem skoraði sigur- mark gestanna einni mínútu fyrir leikslok. Eiöur Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea en var skipt út af ellefu mínútum fyrir leikslok. West Ham og Aston Villa skildu jöfn, 1-1, á Upton Park í Lundúnum. Dion Dublin færði Aston Villa óska- byrjun þegar hann kom liðinu yfir á fyrstu minútu leiksins. West Ham gerði oft harða hríð að marki Aston Villa en það var ekki fyrr en á lokamínútu leiksins sem Jermain Defoe jafnaði metin fyrir heima- menn. Paolo Di Canio brenndi af vítaspyrnu í síðari hálfleik en liðs- menn Aston Villa geta öðru fremur þakkað markverði sínum, Peter Enckelman, fyrir stigið í leiknum. Hann stóð í markinu í stað Peter Schmeichel sem á við smá meiðsli að striða. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.