Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Blaðsíða 6
26 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 DV Þjálfari nóvembermánaðar í 1. deild kvenna: Kvennakarfan í örum vexti - segir ívar Ásgrímsson, þjálfari ÍS ívar Ásgrímsson, þjálfari kvennaliðs ÍS í körfuknattleik, er þjálfari nóvemþermánaðr. Undir hans stjórn hefur liðinu vegnað vel í deildinni og er sem stendur í öðru sæti, tveimur stigum eftir Grindvíkingum. ívar sagðist í samtali við DV vera ánægður með ganginn á liðinu og hann væri viss um að eftir sem á liði myndi liðið bæta við og markvisst væri unnið að því að bæta fyrir það sem betur mætti fara í leik liðsins. „Við getum sagt að liðið sé á góðu róli en ég er viss um að desember á eftir að reynast liðinu erfiöur. Það eru um 85% leikmanna í háskólanum og nú fer í hönd próftími hjá flestum stúlknanna. Það sem skiptir þó mestu máli í þessu öllu saman er að í liðinu eru margir góðir leikmenn og mannskapurinn mun gera allt til að komast vel frá álaginu í þessu mánuði. Liðið hefur aðeins tapað einum leik til þessa en ég er bjartsýnn á framhaldið. Liðið á eftir að verða betra eftir því sem lengra sækir inn í mótið. Við erum að vinna í okkar málum til að gera okkar leik betri og því miðar vel áfram,“ sagði ívar. Hann sagði að það hefði verið mikill styrkur að fá Öldu Leif Jónsdóttur en hún gerir mikið fyrir liðið. Þarna væri á ferð sterkur leikmaður sem skipti liðið miklu máli. Aðspurður hvaða lið myndu berjast um titilinn I vetur sagði ívar að auk ÍS og Grindavíkur heföi hann trú á KR-ingum og eins Keílvíkingum. Sín tilfinning væri sú að KR og Keflavík myndu eflaust styrkja sig með erlendum leikmönnum og fyrir vikið myndi leikur umræddra liða örugglega breytast. „Mér finnst kvennakarfan betri í vetur en ég átti von á. í deildinni eru margir sterkir leikmenn. Deildin er góð að mínu mati og ég held að það sé óhætt að fullyrða að kvennakarfan hér á landi sé í vexti og betri en áður. Ég get bent á því til stuðnings að stigaskor í fjórum leikjum hefur fari yfir 80 stig hjá báðum liðum. Þetta er nokkuð sem maður hefur ekki séð lengi,“ sagði ívar Ásgrímsson. -JKS Ungar og efnilegar stelpur að koma upp Alda Leif Jónsdóttir lék vel fyrir ÍS í nóvember. Hún var stigahæst og nýting hennar í vítaskotum og þrigga stiga skotum var mjög góö. DV-myndir Hari - segir Alda Leif Jónsdóttir, leikmaður nóvembermánaðar „Þessi útnefning kom mér skemmtilega á óvart. Það sem af er er þetta búið að vera skemmtilegt og mótið á ábyggilega eftir að verða jafnt og skemmtilegt fram í síðustu umferð. Hvað sjálfa mig snertir er ég í ágætu formi en auðvitað á ég mína slæmu daga,“ sagði Alda Leif Jónsdóttir, leik- maður nóvembermánaðar í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Alda Leif leikur með íþróttafélagi Stúdenta og er einn lykilmaður liðsins. Alda Leif segir leikmannahópinn góðan og liðið sé að leika eins og hún átti von á fyrir tímbilið. Hún segir gleðilegt að sjá að nokkrar ungar og efnilegar stelpur séu að koma upp og þá alveg sérstaklega hjá Keflvíkingum og Grindvíkingum. Þetta sé bráðnauð- synleg þróun til að halda kvennakörf- unni gangandi. Úrslit munu ekki ráöast fyrr en í lokin „Það hefur sýnt sig að heimaleik- arnir eru drjúgir hjá öllum liðum i deildinni en ég er klár á því að úrslit á mótinu koma ekki til með að ráðast fyrr en i lokin,“ sagði Alda Leif Jóns- dóttir. Alda Leif skoraði 22,6 stig að meðal- tali í flmm leikjum mánaðarins, þar af voru þrir þeirra gegn toppliðinu og nýkrýndum Kjörísbikarmeisturum Grindavíkur. Stigahæst í nóvember Alda Leif var stigahæst allra leik- manna i nóvember og leiddi alls fimm tölfræðiþætti af níu því engin hitti betur úr þriggja stiga skotunum (44,4%) eða vítunum (93,1%), átti fleiri stoösendingar á hvern tapaðan bolta (2,00) eða varði fleiri skot (4,8) auk þess sem 52% skotnýting og 5,6 stoðsendingar í leik skiluðu henni inn á topp þrjú á þeim listum. -JKS Keflavíkurstúlkur stöðvuðu fimm leikja sigurgöngu Stúdína í 1. deild kvenna í körfubolta með 70-66 sigri í Keflavík í gær en með sigri hefði ÍS far- ið á topp deildarinnar. Lið Keflavíkur hafði yfir, 31-28, í leikhléi og var kom- ið með niu stiga forustu, 63-54, þegar fjórar mínútur voru eftir. ÍS minnkaði muninn en komst þó ekki nær en fjög- ur stig. Keflavík hefur nú á einni viku unnið tvö efstu liðin og með því stimpl- að sig af fullum krafti inn í toppbarátt- una í deildinni. 35 sinnum á vítalínunni Keflavík vann leikinn á vítalínunni, bæði með því að komast þangað 35 sinnum (22 sinnum oftar en ÍS), koma leikmönnum Stúdína í villuvandræði (fjórar með 4 villur eða meira) og síðast en ekki síst með þvi að nýta 80% vít- anna en alls skoraði Keflavík 28 stig úr vítum í leiknum. Hér fóru Birna Valgarðsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir í fararbroddi en 17 sinnum brutu Stúdínur á þeim og þær settu saman niður 22 af 27 vítum sín- um. Erla klikkaði á fyrsta víti sínu en setti síðan 12 síðustu niður. Báðar voru þær duglegar að keyra inn að körfunni og þau stig sem komu ekki af vítalin- unni komu úr og við teiginn. Birna skoraði 12 af sínum stigum í þriðja leikhluta þar sem Keflavik náði undir- tökunum í leiknum eftir mjög jafnan fyrri hálfleik. Hjá ÍS skoraði Alda Leif Jónsdóttir yfir 20 stig fimmta leikinn í röð en hana vantaði meiri stuðning í sókninni. Stella Rún Kristjánsdóttir skoraði líka góðar körfur í seinni hálfleik. Hafdis Helgadóttir og Lovísa Guðmundsdóttir börðust vel í vörninni en hittu ekki vel og voru báðar í villuvandræðum þökk sér áræðni Birnu og Erlu. Auk Birnu og Erlu lék Svava Ósk Stefánsdóttir mikilvægt hlutverki i lokin auk þess að taka 13 fráköst og önnur ung stúlka, María Anna Guð- mundsdóttir ætti með frammistöðu sinni í þessum leik að sýna fram á góða lausn á leikstjórnendavandræðum liðs- ins. Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 27, Erla Þorsteinsdóttir 24 (hitti úr 12 af 13 vít- um, 11 fráköst), Svava Ósk Stefánsdóttir 9 (13 fráköst, 3 varin skot), Kristín Blöndal 6 (4 stoðsendingar), María Anna Guðmundsdóttir 2 (5 stoðsendingar á 22 mín.), Guðrún Guð- mundsdóttir 2 (6 fráköst á 18 mín.). Stig IS: Alda Leif Jónsdóttir 26 (hitti 9 af 16 skotum og öllum 7 vítum sínum, 9 fráköst, 5 stoðsendingar, 5 stolnir), Þórunn Bjarna- dóttir 11 (5 stoðsendingar), Stella Rún Krist- jánsdóttir 10 (öll í seinni hálfleik), Lovísa Guðmundsdóttir 10 (12 fráköst, 4 stoðsend- ingar), Hafdís Helgadóttir 6 (10 fráköst), Cecilia Larsson 3. KR vann Njarðvík 66-58 í KR-húsinu í vesturbæ þar sem Helgurnar í báðum liðum fóru fyrir sínum liðum. Helga Þorvaldsdóttir skoraði 12 af 23 stigum sinum í fyrsta leikhluta þar sem KR náði upp 18-9 forustu sem þær héldu út leikinn. KR hafði yfir 29-22 i hálfleik og 50-41 eftir þriðja leikhluta. Helga tók auk þess átta fráköst, stal 7 boltum og gaf 5 stoðsendingar en nafna hennar Jónasdóttir i Njarðvikurliðinu skoraði 19 stig og tók 16 fráköst á aðeins 21 mínútu en hún setti einmitt frákasta- met í fyrsta leik liðanna í vetur sem fram fór í Njarðvík. Stig KR: Helga Þorvaldsdóttir 23 (8 frá- köst, 7 stolnir, 5 stoðsendingar), Gréta María Grétarsdóttir 16 (8 fráköst, 5 í sókn), Hildur Sigurðardóttir 14 (6 fráköst, 4 stoðsendingar), Kristín Björk Jónsdóttir 7, Hafdís Gunnars- dóttir 4 (10 fráköst, 5 í sókn), Sigurbjörg Þor- steinsdóttir 2. Stig Njarðvíkur: Helga Jónasdóttir 19 (hitti úr 7 af 13 skotum, 16 fráköst, 10 i sókn á 21 mín.), Eva Stefánsdóttir 11 (6 fráköst), Guðrún Ósk Karlsdóttir 8, Auður Jónsdóttir 7, Rannveig Randversdóttir 6 (9 fráköst), Díana Jónsdóttir 3, Bára Lúðvíksdóttir 2,Sig- urlaug Guðmundsdóttir 2. -ÓÓJ Birna Valgarösdóttir úr Keflavík, aö ofan, og Helga Þorvaldsdóttir úr KR áttu báðar góðan leik í sigurleikjum sinna liöa í gærkvöldi. © % ## KR vann Njarðvík 1. DEILD KVENNA Grindavík 8 6 2 564-540 12 ÍS 7 5 2 527-395 10 Keflavík 7 4 3 463-444 8 KR 6 3 3 377-373 6 KFÍ 4 1 3 271-283 2 Njarðvik 8 1 7 449-616 2 Stigahæstar: Birna Valgarðsdóttir, Keflavík . 22,9 Jessica Gaspar, Grindavík .... 22,0 Kathryn Otwell, KFÍ............22,0 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . . 19,7 Alda Leif Jónsdóttir, IS.......18,7 Hildur Sigurðardóttir, KR......17,5 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS .... 17,4 Gréta María Grétarsdóttir, KR . 15,2 Helga Þorvaldsdóttir, KR ......15,0 Sólveig Gunnlaugsdóttir, Grindav. 12,1 Næstu leikir: KFI-KR ........ KFÍ-KR.......... Njarðvík-Keflavík KR-Grindavík . . Keflavík-KFÍ . . . Keflavík-KFÍ . . . Grindav.-Njaröv. . .. fos. 7. desember . lau. 8. desember . lau. 8. desember . þri. 11. desember . fös. 14. desember . lau. 15. desember lau. 15. desember 1. deild kvenna í körfubolta í gær: Aræði Birnu og Erlu - stöðvaði sigurgöngu ÍS - Helgurnar í stuði í vesturbænum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.