Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Side 4
22 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001 Sport Linda með a ny - í fyrsta sinn í rúman 21 mánuð í tveimur öruggum sigrum KR-stúlkna á ísafirði um helgina Linda Stefánsdóttir lék fyrstu körfuboltaleiki sína í rúman 21 mán- uð þegar KR fór í góða ferð til ísafjarð- ar um helgina og vann tvo örugga sigra. Linda sleit krossbönd í hné í leik 24. febrúar 2000 og virtist það ætla að enda feril hennar en með harðfylgni eins og henni er einni lag- ið er hún komin aftur í slaginn og er það KR-liðinu mikill styrkur. Það er ótrúlegt hvað kvennalið KFÍ tók miklum stakkaskiptum á einni viku því eftir hörkuleik við Keflavík í undanúrslitum Kjöísbikarsins, þar sem liðið lék vel og hefði allt eins get- að farið með sigur af hólmi, var það ekki svipur hjá sjón og virtist hrein- lega vera sem algjört áhugaleysi hefði gripið um sig þegar KR-ingar komu í heimsókn og spiluðu tvo leiki í deild- innium helgina. Fyrri leikurinn fór reyndar vel af stað fyrir heimastúlkur og þær náðu strax góðu forskoti. Liðið nýtti þá styrk sinn vel og sótti grimmt undir körfu KR-inga sem eru töluvert lægri í loftinu en KFÍ- liðið. En gestirnir tók þá við sér, þær geisiuðu af sjáifstrausti og léku hver aðra vel uppi og settu skotin sín niður. Lokatölurnar urðu ótrú- legar, 40-72 fyrir KR. Gréta María átti mjög góðan leik og réðu heimastúlkur illa við hana. Sömuleiðis voru þær Hildur og Helga góðar. Linda Stefánsdóttir átti góða innkomu fyrir KR eftir erfið meiðsl og þegar hún verður komin í betra form á hún eftir að styrkja KR-liðið mikið í vetur. Hjá KFÍ var enginn sem stóð upp úr. Eftir útreið fyrri leiksins var ljóst að eitthvað mik- ið varð að gerast í herbúðum KFÍ ef sagan ætti ekki að endur- taka sig í síðari leik liðanna. Tvær ungar og efnilegar stúlkur, Berglind Karen Ingvarsdóttir og Sara Pálmadótt- ir, komu inn i byrjunarlið KFÍ í fyrsta skiptið í vetur og stóðu sig feikivel. KR-liðið hélt uppteknum hætti og hóf leikinn eins og þær luku fyrri leiknum daginn áður og unnu 45-61. Helga átti prýöisleik fyrir KR- liðið og það sama má segja um Hildi ogKristínuog Hafdís Gunnars kunni vel við sig á gamla heimavellinum en Gréta hafði hægar um sig en daginn áður. Annars var það mjög sterk liðs- heild sem dreif KR-liðið áfram í þess- um leikjum og brá oft fyrir glæsileg- um samieik. Hjá KFÍ átti enginn góðan dag þegar á heiidina er litið en plúsinn þó sá að varnarleikurinn var mun betri en í fyrri leiknum en trúna vantaði i sókninni. . Hlutskipti KFÍ-liðsins er það nú að berjast i botninum ásamt Njarðvíkur- stúlkum og það er nokkuð sem ekki var stefnt að í upphafi keppnistíma- biisins. KR-stúlkur eiga eftir að styrkjast með tilkomu Lindu og síðan Guðbjargar og eru allt eins liklegar til að gera harða atlögu að titilvörnum sínum í vetur. Vert er í lokin að minnast á frábæra frammistöðu dóm- aranna, þeirra Sigmundar Más Her- bertssonar og Jóns Halldórs Eðvalds- sonar. 7. desember KFÍ-KR. 40-72 (24-41) Stig KFI: Kathrjm Otwell 17 (9 frák.), Tinna Sigmundsdóttir 13, Fjóla Eiríksdóttir 4, Sigríður Guðjónsdóttir 2, Sesselja Guð- jónsdóttir 2, Stefanía Ásmundsdóttir 2. Stig KR: Gréta María Grétarsdóttir 22 (8 fráköst, 4 stolnir), Hildur Sigurðardóttir 16 (6 fráköst, 5 stoðsendingar, 8 stolnir), Helga Þorvaldsdóttir 15, Kristín Björk Jónsdóttir 8, Hafdís Gunnarsdóttir 6, Lilja Oddsdóttir 3, Linda Stefánsdóttir 2. 8. desember KFÍ-KR. 45-61 (21-31) Stig KFI: Otwell 13 (7 stolnir), Tinna 11, Fjóla 11, Anna Sigurlaugsdóttir 4, Sara Pálmadóttir 2, Helga Ingimarsdóttir 2, Stef- anía Ásmundsdóttir 2. Stig KR: Helga 18 (7 fráköst), Hildur 12 (4 stolnir), Kristín 11 ( 4 stolnir), Hafdís 9, Gréta María 7 (12 fráköst, 5 stolnir), Linda 4. -isa Linda Stefánsdóttir lék fyrstu leiki sina í rúman 21 mánuð á ísafirði um helgina. Þrír - hjá Keflavík sem • • ro undir í 37 mín Keflavíkurstúlkur unnu þriðja deild- arsigur sinn i röð i kvennakörfunni í Njarðvík á laugardag en komust heldur betur í hann krappan og voru undir fyrstu 37 mínútur leiksins. Keflavíkur- liðið komst loks á skrið í síðasta leik- hlutanum sem þær unnu 25-8 og tryggðu sér átta stiga sigur, 68-76. Hér munaði mest um góða vörn Keflavíkur- liðsins en Njarðvíkurstúlkur misnot- uðu 17 af 18 skotum sinum í leikhlutan- um, auk þess sem Keflavíkurstúlkurnar stálu þá fjórum sinnum af þeim boltan- um. Það var hart barist í þessum leik og ekkert gefið eftir í baráttu nágrannalið- anna, auk þess sem tveir leikmenn Njarðvíkurliðsins, Guðrún Ósk Karlsdóttir og Bára Lúðvíksdóttir, komu úr Keflavík fyrir þetta tímabil og voru báðar staðráðnar i að sanna sig gegn gömlu félögunum. Njarðvíkurliðið byrjaði leikinn líka vel, komst í 7-0 og leiddi 19-11 eftir fyrsta leikhluta. Það virtist vera sem Keflavík væri búið að koma sér inn í leikinn með því að minnka muninn í 41-39 i hálfleik en heimastúlkumar voru komnar aftur níu stig yfir við lok þriðja leikhluta. Kristín Blöndal, fyrirliði Keflavíkur- liðsins, tók af skarið í leiknum og var allt í öllu þegar Keflavíkurliðið komst á skrið í síðasta leikhlutanum ,en hún skoraði 8 stig og gaf 3 stoðsendingar þegar Keflavík breytti stöðunni úr 60-51 i 65-72. Auk Kristínar var Birna Valgarðsdóttir sterk að vanda. Hún hefur oft hitt betur en ógnar allan tímann og þrjár körfur hennar i síðasta leikhlutanum komu á mikilvægum timapunktum. Erla Þorsteinsdóttir var einnig áberandi á mörgum stöðum. Líkt og Birna hefur hún hitt betur en 17 stig, 18 fráköst, 6 stoðsendingar og 4 varin skot segja sina sögu, auk þess að hún setti niður öll sjö víti sín en Erla hefur nú nýtt 19 víti i röð. Erla háði mikið einvígi við Helgu Jónasdóttur hjá Njarðvík og báðar enduðu þær með 18 fráköst. Njarðvíkurliðið var nálægt óvæntum sigri í þessum leik og það þrátt fyrir að það léki án tveggja lykilmanna, þeirra Evu Stefánsdóttur og Pálínu Gunnarsdóttur. Ekkert Bð í deildinni fær meiri framlög frá bekknum og breiddin gæti farið að skila sigrum haldi þær áfram á sömu braut. Díana Jónsdóttir, Guðrún Ósk, Bára og Helga léku allar mjög vel í leiknum. Stig Njarðvíkur: Díana Jónsdóttir 17, Bára Lúðvíksdóttir 14 (hitti 8 af 9 vítum), Guðrún Ósk Karisdóttir 12 (16 fráköst, 3 var- in skot), Helga Jónasdóttir 7 (18 fráköst, 6 varin skot), Arndís Sigurðardóttir 5, Rann- veig Randversdóttir 5, Sæunn Sæmundsdótt- ir 4, Ásta Óskarsdóttir 2, Auður Jónsdóttir 2. Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 23 (5 stolnir), Kristín Blöndal 22 (7 stoðsending- ar), Erla Þorsteinsdóttir 17 (18 fráköst, 7 í sókn, 6 stoðsendingar, 4 varin skot), Svava Ósk Stefánsdóttir 8, María Anna Guðmunds- dóttir 2 (6 stoðs. á 16 mín.), Gréta Guðbrands- dóttir 2, Theódóra Káradóttir 2. -ÓÓJ Í var þó Dagur markvarðanna - þegar ÍBV vann Val, 2Q-17, á heimavelli i Eyjum 1 Eyjum tóku heimastúlkur í ÍBV á móti Val en þessi tvö lið áttust einmitt við í átta liða úrslitum bikar- keppninnar fyrir tæpum mánuði og þá voru Eyjastúlkur ekki í vandræð- um með gestina. í þetta sinn var hins vegar viðureignin jafnari, kannski helst vegna þess að í marki Vals stóð Berglind Hansdóttir sem varði 29 skot í leiknum, þar af sex víti en hinum megin á vellinum var Vigdís Sigurðardóttir líka í bana- stuði, varði 25 skot, þar af þrjú víti. En ÍBV sigraði í leiknum, 20-17, og kom sér þar með í efsta sæti Esso- deildarinnar. Valsstúlkur voru greinilega minnugar siðustu viðureignar lið- anna enda voru þær mun beittari á upphafsmínútunum og náðu m.a. tveggja marka forystu, 2-4. Berglind tók strax til sinna ráða og varði vel frá upphafi leiks en hún kom þó ekki í veg fyrir að ÍBV næði forustunni fyrir leikhlé. Liðin spiluðu bæði 5-1 vörn þar sem tvíburasystumar Dag- ný og Drífa Skúladætur voru báðar í sama hlutverki hvor sínum megin á vellinum og tókst báðum að valda nokkrum usla í sóknarleik andstæð- ingsins. Staðan í hálfleik var 11-8. Það leit lengi vel út fyrir að seinni hálfleikur ætlaði að verða spenn- andi. Valsstúlkur byrjuðu ágætlega en sóknarleikur liðsins var ekki upp á marga fiska og því náðu þær ekki að nýta sér góða markvörslu Berg- lindar. Reyndar voru Eyjastúlkur ekki að spila sinn besta leik en þær hafa á að skipa sterkari einstakling- um en það var einmitt einstaklings- framtakið sem var ráðandi hjá báð- um liðum. ÍBV gat haldið Valsstúlk- um tveimur til þremur mörkum frá sér án mikillar fyrirhafnar og leikur- inn endaði með 3ja marka sigri ÍBV. Vigdís Sigurðardóttir sagði eftir leikinn að það væri erfitt fyrir liðin að fá svona löng hlé á milli leikja. „Ég hafði trú á því að við ynnum vinna leikinn allan tímann en samt náðum við aldrei að hrista þær al- mennilega af okkur. Við náðum þriggja marka forystu og héldum því nánast allan seinni hálfleikinn. Við erum ekki búnar að spila í mánuð og það var dálítið erfitt að ná upp stemningu en svo kemur aftur mán- aðarhlé núna og það kemur sér mjög illa fyrir liðin í deildinni." Berglind Hansdóttir sagði að leik- menn Vals hefðu alls ekki vilja end- urtaka leikinn í bikarkeppninni. „Það er alltaf svekkjandi að tapa, sama hversu vel maður stendur sig. Við gerum of mikið af mistökum í sóknarleiknum og töpum hreinlega á því. Við töpuðum stórt hérna síðast en komum mikið betur stemmdar til leiks núna og stöndum okkur ágæt- lega þrátt fyrir tapið. Það komu bara kaflar þar sem við missum boltann og fáum hraðaupphlaup í bakið 1 staðinn og þar skilur liðin að,“ -jgi 1. DEILD KVENNA Grindavík 8 6 2 564-540 12 Is 7 5 2 527-395 10 Keflavík 7 4 3 463-444 8 KR 6 3 3 377-373 6 KFÍ 4 1 3 271-283 2 Njarðvík 8 1 7 449-616 2 Stigahæstar: Birna Valgarðsdóttir, Keflavík . 22,9 Jessica Gaspar, Grindavík .... 22,0 Kathryn Otwell, KFÍ.............19,7 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavik . . 19,4 Alda Leif Jónsdóttir, ÍS........18,7 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS .... 17,4 Hildur Sigurðardóttir, KR.......16,6 Helga Þorvaldsdóttir, KR .......15,4 Gréta María Grétarsdóttir, KR . 15,0 Sólveig Gunnlaugsd., Grindav. . 12,1 Flest fráköst: Jessica Gaspar, Grindavík .... 13,2 Helga Jónasdóttir, Njarðvík . . . 12,8 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . . 12,5 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS........9,4 Gréta María Grétarsdóttir, KR . . 9,3 Flestar stoðsendingar: Alda Leif Jónsdóttir, ÍS ........5,9 Kristín Blöndal, Keflavík ........5,4 Jessica Gaspar, Grindavík ........5,0 Tinna Sigmundsdóttir, KFÍ........3,7 Lovísa Guömundsdóttir, ÍS........9,4 Flestir stolnir boltar: Jessica Gaspar, Grindavík ........6,8 Kathryn Otwell, KFÍ...............4,2 Hildur Siguröardóttir, KR........4,0 Gréta María Grétarsdóttir, KR . . 3,9 Alda Leif Jónsdóttir, IS .........3,4 Flest varin skot: Alda Leif Jónsdóttir, ÍS .........4,0 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS........3,9 Helga Jónasdóttir, Njarðvík .... 2,4 Birna Valgarösdóttir, Keflavik . . 2,1 Fjóla Eiríksdóttir, KFÍ .........2,0 ÍBV-Valur 20-17 0-1, 2-4, 5-5, 9-7 (11-8), 11-9, 15-11, 17-13, 19-15, 20-17. ÍBV: Mörk/viti (skot/viti): Dagný Skúladóttir 5 (6/1), Ana Pérez 3/2 (13/4), Milana Mileuzic 3/1 (7/2), Theodora Visockaite 2 (8/2), Andrea Atladóttir 2 (4), Aníta Ýr Eyþórsdóttir 2 (3), Ingibjörg Jónsdóttir 2 (2), Isabel Ortiz 1/1 (1/1). Hraóaupphlaupsmörk: 2 (Dagný, Ingibjörg) Viti: Skorað úr 4 af 10. Fiskuð viti: Aníta 6, Dagný 2, Theodora, Milana. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 25/3 (42/10, hélt 14, 60%). Brottvisanir: 0 mínútur. Valur: Mörk/viti (skot/viti): Drífa Skúladóttir 7/6 (11/8), Hrafnhildur Skúladóttir 5/1 (11/2), Hafrún Kristjánsdóttir 2 (4), Elfa Björk Hreggviðsdóttir 2 (3), Ámý B. ísberg 1 (5), Marin S. Madsen (2). Hraóaupphlaupsmörk: 1 (Elfa) Vítú Skorað úr 7 af 10. Fiskuó viti: Marin 5, Hrafnhildur 2, Elfa 2, Hafrún Varin skot: Berglind Hansdóttir 29/6 (49/10, hélt 16, 59%). Brottvisanir: 2 minútur. Dómarar (1-10): Jónas Erlingsson og Vilbergur Sverrisson (5). Gæói leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 120. Maður leiksins: Berglind íris Hansdóttir, Val

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.