Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Blaðsíða 9
Jólaskvapið plagar landslýð nú sem fyrri ár og margir sem grípa til þeirra örþrifaráða að hendast í næstu líkamsræktarstöð og kaupa eitt stykki árskort. „Góðærið" hans Dabba kóngs seinustu ár hefur gert flestum kleift að bæta einu slíku á kreditkortareikninginn. Nú eru hins vegar þrengingar í þjóðfé- laginu og fólk vill frekar hafa efni á heimsókn til læknis en borga kort sem hvort eð er verður ekki notað nema í tvær til sex vikur. Fókus velti fyrir sér ódýrum valkostum til að losna við mörinn. Joloskvopið burt á ódýran hótt Núðlusúpukúrinn. Þetta kannast þeir við sem hafa verið á námslán- um, atvinnuleysisbótum eða lágmarkslaunum. Bragðmiklar súpur með smá-næringargildi og mátulega seðjandi núðlum. Þegar gera á vel við sig er hægt að elda tvo pakka í einu. Tekur nokkra mán- uði en svínvirkar. Kynlífskúrinn. Þessi aðferð er sérstaklega hentug fyrir pör. Kynlíf er einstaklega fín og ánægjuleg líkamsrækt og ef vel er framkvæmt þá er jafnvel hægt að ná teygjum um leið og tekið er á því. Ekki er vitlaust að verða sér út um stellingabók svo hægt sé að þjálfa sem flesta vöðva" líkarhans. Ef áhugaleysi er til staðar þá má alltaf redda sér víagra. Munið: A.m.k. dráttur á dag kemur línum í lag. >v Mecrunarbjórs- KÚRINN. Þeir sem þykir ölið gott geta létt á samviskunni með drykkju á svoköll- uðum léttum bjór. Hann er auðþekkj- anlegur af viðskeyt- inu light á eftir teg- undárheitinu. Fitukúrinn. Eini aðlaðandi megrunarkúr- inn sem ffam hefur komið. Það muna allir hvað Dabbi kóngur grenntist. Hann er reyndar orð- inn búsældarlegur aftur en skítt með það. Þetta er allavega skammtíma skyndilausn sem bragð er af. Svo er kjöt líka oft hlutfallslega ódýrara en græn- meti. Slagsmálakúrinn. Þetta er sársaukafull aðferð en árangursrík. Málið er að snapa sér slagsmál við fullt vöðva- búnt eða hóp unglinga í miðbænum. Avallt skal reyna að hjálpa til við að hnefar lendi á við- kvæmum stöðum kjálkans þar sem samanvír- aður munnur er jú vænlegur til minnkandi áts. Ef vel er að staðið er jafnvel hægt að láta dæm- ið líta út eins og maður sé saklaust fórnarlamb og fá þannig pening í formi skaðabóta sem bónus. Munið að taka aðeins á móti þar sem það eyðir líka kaloríum og styrkir vöðva. Stresskúrinn. Með því að mikla öll vandamál fyrir sér og leggja sjálfan sig undir óþarfa pressu þá má koma af stað ágætis maga- sári sem aftur getur leitt til þó nokkurr- ar megrunar. Hafa ber í huga að fylgjast verður með mataræðinu því sumir hneigjast til átu og því verður að skipu- leggja þennan kúr vel, helst með aðstoð vinar. Streita veldur einnig spennu í vöðvum sem er líkamsrækt og því gott að muna að teygja vel á í lok hvers dags. Eignast-barn-kúrinn. Þetta er nokkurs konar framlenging á kynlífskúm- um með „dashi“ af stresskúrnum. Einn munn- ur í viðbót þýðir að minna er fyrir þá sem fyrir eru. Alveg fullkomið. Minna át eftir líkamleg átök. Gallinn er aukin útgjöld en á móti kemur sólargeisli í lífið. Steinsmugukúrinn. Tvö afbrigði eru til af þessu kúr. Annars vegar er það kyrrsetuaf- brigðið sem byggist upp á því að keyra út í búð og kaupa ferskan kjúkling og éta hann illa eldaðan. Hins vegar er það útiveruaf- brigðið. Hann byggist upp á mávaskyttiríi sem býður upp á garanteraða salmonellu- sýkingu og holla útiveru, allt í sama pakka. Sama hvort afbrigðið er notað þá er krónísk skita garanteruð grenningaraðferð. Seinna afbrigðið er þó mun líklegra til ár- angurs. Pappírskúrinn. Þessi er ætlaður til að uppfylla bita- á-milli-mála þörfina. Pappír er þeim eiginleikum gæddur að vera ger- sneyddur öllu næringargildi á meðan hann er stútfullur af trefjum sem gera góðar hægðir. Þægilegast er að bleyta pappírinn upp í vatni, tæta í mjóar ræmur og neyta hans svoleiðis. Muna að kyngja litlu magni í einu til að draga úr hættu á að pappírinn þjappist saman og stífli garnir. Skítsama-kúrinn. Þetta er í rauninni enginn kúr heldur byggist hann upp á því að gefa skít í allt heilsuþvaður í lík- amsræktarfrömuðum, læknum og næringarfræðingum og étá það sem mann lystir, hreyfa sig þegar mann langar og sjá svo til. Því eins og allir vita þá er kjörþyngd ekkert annað en sú þyngd sem manni líður vel með utan á sér. Að ganga um og skjóta menn og skepnur með góðu úrvali af vopnum er ekki viðurkennt áhugamál hjá einu einasta menningarsamfélagi. Það telst hins vegar hið mesta sport hjá mönnum á öllum aldri sem finnast tölvuleikir skemmtilegir og síðustu þrjú ár hafa landslið með þeim bestu í faginu verið valin til að koma fram fyrir hönd íslensku þjóðarinnar á þeim vettvangi. Eru eins og fólk er flest llluti landsliðsins stillir sér hér upp við drápsgræjurnar sínar. þeim finnst Lundúnaferð alveg feikinóg til að sækjast eftir. Yngvi bendir þó á að atvinnumennskan sé að festa sig í sessi í tölvulcikjaheiminum. „Það eru um fimm spilarar í heiminum sem gera lítið annað en að ferðast um og spila á mótum þar sem peningaverðlaun eru í boði. Einum þeirra tókst að vinna þrjú mót og hafði 80.000 dollara (ca 8.152.800 ískr.) upp úr krafs- inu sem eru ágætar árstekjur.“ Yngvi telur líklegt að peningar „Það’er búið að skipta þeim Evrópulöndum sem hafa nógu góða nettengingu niður í riðla og við erum í riðli með Skandinavíuþjóðunum og Rúss- landi sem er talinn vera langsterkasti riðillinn,“ segir Yngvi Freyr Einarsson, einn af þeim tíu „blóðþyrstu“ mönnum sem skipa íslenska landslið- ið í Quake sem nú er að taka þátt í Evrópumótinu í samnefndum leik. Leikurinn gengur út á að reyna að ná fána andstæðinganna og eru spilaðir þrír leikir í hverri viðureign. Tvö efstu liðin komast svo upp og spila f útslátt- arkeppni. Yngvi er bjartsýnn þótt landsliðið hafi tapað fyrsta leiknum á móti Danmörku í síðustu viku. „Danmörk er sterkasta liðið f riðlinum og við töpuðum leiknum 2-1 sem er framför frá þvf í fyrra, þegar við töpuðum 3-0. Þessi úrslit gefa okk- ur vonir um að við náum allavega öðru sætinu." Þetta er þriðja árið sem landslið í Quake er sett saman. Yngvi segir að fyrsta árið hafi árangurinn ekki verið beisinn þar sem tengingin til Evrópu hafi verið léleg vegna þess að ekki var beint sam- band þangað. Nú sé Íslandssími hins vegar búinn að koma upp beinu sambandi þangað sem sé allt annað líf. RÚMAR 8 MILLJÓNIR Á EINU ÁRI Sigur í Evrópumótinu gefur ekkert af sér nema heiðurinn og ókeypis ferð til London til að spila úrslitaleikinn. Það má skilja sem svo að ungmennafélagsandinn góði, að vera með en ekki endilega sigra, lifi góðu lífi hjá Yngva og félögum þvf í keppnum í tölvuleikjum eigi eftir að aukast. „Það er talið að tölvuleikjaspilurum fjölgi um 50% á sex mánaða fresti þannig að markaðurinn stækkar alltaf." Finnur fyrir fordómum Nú virðist það viðtekin skoðun margra íslenskra smáborgara að þeir sem stunda tölvuleiki af hvað mestum móð séu upp til hópa bólugrafnir ung- lingar sem geri lítið annað en að hanga yfir tölv- unni og næra kroppinn á pitsum og kóka-kóla. Yngvi segist ekki hafa farið varhluta af þeim for- dómum sem hann segir þó alls ekki eiga við rök að styðjast. „Þeir sem eru hvað virkastir í Quake- samfélaginu eru langflestir frá 17 ára og upp úr. Þar að auki þá er það útbreiddur misskilningur að við gerum lítið annað en að hanga fyrir framan tölvuna," segir Yngvi. Hann tiltekur sérstaklega viðtal sem birtist við hann hér f Fókus fyrir tveim árum, þegar hann var sextán ára. Þá viðurkenndi hann að hann ætti ekki kærustu og var það dregið upp í millifyrirsögn eins og það væri eitthvað skrýtið fyrir dreng á hans aldri að eiga ekki kærustu. Yngvi viðurkennir að svo sé enn en segir þó þau mál í vinnslu, eins og hjá öðrum drengjum sem ein- hleypir eru. Að lokum segir Yngvi að flestir séu tölvuleikja- spilarar nú eðlilegir menn sem séu í skóla, fari í líkamsrækt og geri það sem annað fólk geri. 25. janúar 2002 f ó k u s 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.