Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Blaðsíða 22
o* Nonni Ouest að meika það Það er ekki að spyrja að áhrifamætti Fókuss. Eftir að við settum hárgreiðslutöffarann Nonna Quest á forsfðuna hjá okkur nú fyrir áramótin ákvað Vogue einnig að mynda kappann. Afrakstur'mn er að finna f nýjustu útgáfu rúss- neska Vogue sem selt er f Eymundsson. Þess má geta að Nonni hefur verið að gera það gott sem klippari á einni af aðalhárgreiðslustofum Moskvu en hann hefur verið hér heima á fslandi fsmáfrfi fkringum áramótin. Ensími, Maus og Naglbítar vakna 200.000 naglbftar virðast eitthvað vera að vakna til Iffs- ins eftir langa hvfid. Hvort sjónvarpsfrægð Villa er þar um að kenna skal ekki fullyrt en aðdáendur geta hlakkað til þvf á heimasfðu þeirra er annasömu ári lofað. Ekki fæst staðfest að ný plata komi út en eitthvað af nýju efni hef- ur verið kreist út. Þeir sem fyrstir fá að heyra f Naglbftun- um á nýju ári eru íslendingar búsettir f Múnchen, en sveit- in spilar á skemmtun íslendingafélagsins þar 22. febrúar. Og liðsmenn Ensfma segja á sinni heimasfðu að vinna við upptökur á nýrri plötu hafi hafist á sfðasta mánudags- kvöld. Þá luku þeir við að setja upp hljóðverið sitt sem hefur verið nefnt Stúdfó Ástarsorg. Það má þvf fastlega gera ráð fyrir nýju efni frá drengjunum á árinu og reynd- ar fæst forsmekkurinn á nýja Gemsa-disknum sem vænt- anlegur er fverslanir. Mausarar eru reyndar f svipuðum sporum þessa dagana. Þeir eiga eitt lag f Gemsum og á www.maus.is má sjá frétt um það að sveitin ætlarað gefa útsmáskffu ftakmörkuðu upplagi f byrjun febrúar. Aðeins verða framleidd 250 núm- eruð eintök sem seld verða f sérvöldum plötuverslunum og á tónleikum Maus. Lagið „Nánast ólögleg" er pródúser- að af Bibba Curver og fjallar texti lagsins um samstarfs- slit sveitarinnar við Skffuna - er „eins konar sjálfstæðis- yfirlýsing sveitarinnar", eins og segir á sfðunni. Þá er á skífunni að finna útgáfu Maus á Þeysaralaginu „Bás 12“ en Þeyr var f miklu uppáhaldi Mausara þegar þeir voru að- eins yngri. Maus lofar annars nýrri plötu á árinu þannig að það er um að gera að fylgjast með. Rakel Sif í Buttercup Hin unga og efnilega söngkona, Rakel Sif Sigurðardóttir, er nýjasta viðbótin við sveitaballasveit'ina Buttercup. Eins og kunnugt er hvarf íris Kristinsdóttir á braut seint á sfð- asta ári þegar trommarinn Egill Rafnsson var rekinn úr bandinu eftir að upp komst um sam- drátt þeirra. Sætti íris sig illa við þá meðferð og hafa þau skötu- hjúin nú stofnað nýja sveit, Ber. Rakel Sif gat sér gott orð sfðasta vetur og sumar f Verslósýning- unni Wake Me Up þar sem hún söng meðal annars lagið Sól- in er komin (l’m Walking on Sunshine) sem fékk nokkra spilun f útvarpi. Verður gaman að sjá hvernig Verslómeyjunni tekst að spjara sig á fjöl- mörgum sveitaböllum sumarsins en frumraunin var þreytt f Eldhúspartfi á Astro f gærkvöld. Það verða fjórar flottar sem sjá um að kenna ungum stúlkum hvernig þær eigi að haga sér sem módel í Betrunarhúsinu á næstunni. Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur fengið þær Chloe, Kollu og Karlottu í lið með sér til að ieiðbeina á glænýju fyrir- sætunámskeiði. Kenno ungum stelpum a5 vera flottar „Við erum ekki að sækjast eftir einhverjum ákveðnum týpum, við viljum bara sjá sem flestar stelpur. Þetta er mjög góður undirbúningur fyrir framtíðina hjá ungum stelpum. Bæði fá þær innsýn í hvernig það er að vera fyr- irsæta og svo eru ýmsir fræðandi fyrirlestrar. Þetta er nokkuð sem allar stelpur verða að prófa,“ segir Asdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta sem stendur fyrir módelnám- skeiði fyrir ungar stelpur sem hefst á sunnudaginn. Fermincaraldur oc upp úr „Þetta er ætlað fyrir ungar dömur sem vilja vera mód- el eða vilja kynnast þessum heimi. Við ætlum að kenna þeim að vera flottar, hvernig þær eiga að labba, haga sér og hafa gott sjálfsálit," segir Ásdís sem kennir sjálf á námskeiðinu ásamt ungfrú Island.is, Kolbrúnu Pálínu, ofurskutlunni Chloe Opheliu og módelinu Karlottu. „Kolla kennir sjálfsstyrkingarnámskeið og framkomu og hún kennir líka förðun. Svo kemur Unnar Karlsson til okkar og verður með fyrirlestur um átröskun og annað tengt næringarfræði. Þá verður fyrirlestur frá Áfepgis- og tóbaksvarnanefnd, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ásdfs. Námskeiðið er ætlað^ öllum stúlkum sem fæddar eru 1988 eða síðar og segir Ásdís að þær sem þegar hafa skráð sig séu á mjög fjölbreyttum aldri. Allar nánari upplýsing- ar um námskeiðið og skráningu má fá á www.model.is en íil að gefa nánari hugmynd um það má nefna að stelpurn- ar fá æfingu fyrir tískusýningu sem haldin verður í lok námskeiðsins. Sýningin verður tekin upp af kvikmynda- fólki og þegar farið verður út að borða í lokahófinu fá stelpurnar að sjá afraksturinn á risaskjá. Stelpurnar líta upp til okkar En hver er ástæðan fyrir því að þær ráðast íþetta? Er ekki nóg af svona námskeiðum fyrir? „Þessi módelnámskeið sem eru í gangi eru oft haldin af einhverjum sem stelpurnar vita ekkert hver er. Þær vita aftur á móti hverjar við erum og lfta upp til okkar og þarna fá þær tækifæri til að kynnast okkur og umgang- ast,“ segir Ásdfs sem átti hugmyndina að námskeiðinu. Hún segir að ef vel gangi muni þær kannski fara út á land f framtíðinni og halda helgarnámskeið. Framtíðin sé samt alveg óráðin. „Við erum bara að spila af fingrum fram, ég veit ekki hvort það verður einhver módelskrifstofa úr þessu. V0 sjáum bara til hvernig þetta heppnast." Þær Karlotta, Ásdís Rán, Kolbrún Pálfna og Chloe Ophelia ætla að miðia af reynslu sinni til ungra stúlkna á fyrirsætu- námskeiði frá og með sunnudeginum. erjir ^erða hvar? Of blankur til að gera nokkuð „Eg er að vinna á Kópavogshæli með skólanum en er í fríi þessa helgi. Þrátt fyrir það þá býst ég við að ég geri mest lítið um helgina þar sem ég er alltof „broke" til þess að geta gert nokkuð. Fyrir utan það að reyna að njóta þess að vera blankur þá er þessi venjulegi heima- lærdómur það eina sem er planað fyrir helg- ina en hann verður tekinn á sunnu daginn.“ Hermann H. Hermannsson, nemi í Borg- arholtsskóla Menninc oc djamm „Því miður þarf ég að vinna að hluta til þessa helgi en ég ætla samt að reyna að hafa það gott í dag. Eg ætla að byrja á því að fara út að borða með vinkonum mínum á Italíu og svo ætlum við að fara í leikhús. Þaðan verður eflaust haldið í partí heim til vinkonu minnar þar sem við munum koma okkur í rétta gír- inn fyrir kvöldið. Svo verður bara farið í bæinn þar sem verður djammað fram á rauðanótt. Mér finnst lík- legt að Vegamót verði fyrir valinu ffekar en einhver annar staður. Afgangurinn af helginni verður svo notaður í vinnu, lærdóm og afslöppun.“ Guðrún Berg' mann, nemi í Borgarholts- skóla fókus 25. janúar 2002 Gaukurinn að venju „Föstudagskvöldinu verður mjög líklega eytt á Gauknum eins og venjulega og djammað eitthvað fram eftir. Ég er ekki mjög mikið fyrir að gera hluti f dagsljósi um helgar og laugardagurinn verður þar engin undantekning. Tæmar verða settar upp í loft og kærustunni strokið. Það gæti vel verið að við leigðum okkur vídeóspólu líka. Laugardagskvöldið verður síðan líklega endurtekning á föstudagskvöldinu, þ.e. eytt á Gauknum. Sunnudagurinn fer síðan í það sama og laugardagur, tær upp og strjúka kærustu, þar sem ekkert er í Háskólabíói sem við viljum sjá. Bíðum hins vegar spennt eftir Gemsunum hans Mikaels Torfason- ar sem frumsýndir verða um 1. febr- úar.“ Olgeir Sveinn Friðriksson, nemi í Borgarholtsskóla og bassaleikari Út- rásar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.