Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2002, Síða 7
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002
23
I>V
Sport
Hann var að fá afhentan nýjan Pol-
aris Pro X 800 keppnissleða sem
hann er þegar búinn að prófa.
„Sleðinn lofar góðu og ég ætla að
veita strákunum í flokknum harða
keppni," segir Víðir.
Stefán Vignisson vann minnsta
flokkinn, Sport 500, í fyrra og ætlar
líka að flytja sig um set, þó „bara“
upp í Pro Stock. Hann er búinn að
stofna lið ásamt félögum sinum á
Egilsstöðum, sem heitir Team Egils-
staðir, og ætla þeir að sýna Eyja-
fjarðarstrákunum hvernig á að
keyra í vetur. Stefán vonast til að
endurtaka leikinn frá í fyrra og
sigra. „Hins vegar hefur snjóleysið
gefið fá tækifæri til æfinga sem er
afleitt." Hann getur þó sætt sig við
það þar sem hið sama hefur hrjáð
flesta hina líka.
Alþjóölegt mót hápunktur-
inn
Snocross International-keppnin í
Ólafsfirði verður haldin aftur í ár
og er hápunktur vetrarins. Þá er
búist við að þekktir keppendur úr
WSA-Snocrossinu erlendis komi og
keppi þar sem sú keppni gefur stig
til þátttökuréttar á X-games í
Bandaríkjunum. Á síðasta ári komu
keppendur frá Rússlandi, Noregi,
Bandaríkjunum og Kanada, m.a.
Dennis Eckstrom, Justin Tate, Noel
Kohanski, Chad Marsolek og Bjöm
Heggeli. Að svo stöddu er ekki vitað
hverjir koma til landsins en það má
telja nokkuð öruggt, eftir vel heppn-
að mót á síðasta ári, að fleiri erlend-
ir keppendur mæti á svæðið.
Keppnisdagatalið 2002:
Febrúar 1.-3. WSA íslandsmeist-
aramót á Dalvík
Febrúar 15. - 17. WSA íslands-
meistaramót á Húsavík
Mars 1.- 3. WSA íslandsmeistara-
mót í Reykjavík
Mars 15- 17. WSA íslandsmeist-
aramót á Mývatni
Mars 29. - 31. WSA íslandsmeist-
aramótið á Akureyri
Apríl 12. - 14. WSA Intemational
Snocross, Ólafsfirði
Apríl 26. - 28. WSA íslandsmeist-
aramót á Egilsstöðum
Stefán Vignisson vann Sport 500 flokkinn í fyrra meö tilþrifum eins og hér sést.
Halldór og Baldur koma samhliða inn til lendingar. DV-myndir ÞP
Snjókrossið byrjar um helgina:
Stefnir í
harða
baráttu
Snjókrossökumenn brosa nú sínu
breiðasta enda komið að fyrstu
keppni ársins. Keppnin verður
haldin á Dalvík þar sem heima-
menn hafá verið að hamstra snjó til
að nota í snjókrossbrautina. Ætlun-
in er að tryggja hverri keppni meiri
athygli meðal almennings en áður.
Daginn fyrir keppni verður efnt
til kynningar nærri keppnisstað á
keppendum og keppninni sjálfri.
Þar verða keppnissleðarnir til sýn-
is, kynning á helstu styrktaraðilun-
um, boðið upp á léttar veittngar,
tónlist og nýjungar í sportinu
kynntar. Á hverjum keppnisstað
verða m.a. heimamenn með sölu-
bása þar sem hægt verður að kaupa
allt milli himins og jarðar. Sjálfan
keppnisdaginn verður svo eitthvað
um uppákomur á keppnisstað,
áhorfendum til skemmtunar. Ýmis
önnur afþreying verður í boði fyrir
gesti keppninnar en í lok keppnis-
dags verður slegið upp teiti sem öll-
um sem vilja gefst kostur á að vera
með í. Lokapunktur hverrar keppni
er svo dansleikur að kvöldi keppn-
isdags þar sem landsþekktar hljóm-
sveitir leika fyrir dansi. í kringum
keppnina verður hægt að fylgjast
með öllu á nýjum vef, snocross.is
Mikil keppni fram undan í
Pro Open
Keppt er í fjórum flokkum I snjó-
krossi, Pro Open, Pro Stock, Sport
Open og Sport 500. Það er mikill
ávinningur að verða íslandsmeist-
ari og eiga þess kost að fara til
Bandaríkjanna og sýna sig og sanna
og jafnvel að komast í atvinnu-
mennskuna. Keppnin er haldin af
Sportferðum, vélsleðaklúbbunum á
hverjum stað og einnig koma að
keppninni um 15 sjálfboðaliðar.
Mikið hefur verið í gangi að undan-
förnu og menn að fá nýja sleða og
færa sig um flokk.
Alexander Kárason er íslands-
meistarinn í Pro Open og sá sem all-
ir vilja sigra þetta árið. Hann verð-
ur mönnum samt örugglega erfiður
sem áður enda segist hann vera að
græja nýja Skidoo-keppnissleðann
sinn og er klár í slaginn. „Við verð-
um með alvörulið í keppninni, 6 að-
stoðarmenn og trukk, en það skipt-
ir miklu máli til að ná árangri."
Lexi telur að brautin á Dalvik verði
teknísk og erfið og þar verði sauð-
irnir skildir frá höfrunum.
Halldór Óskarsson vann Pro
Stock-flokkinn í fyrra en ætlar nú
aö etja kappi við Lexa í Pro Open.
„Ég ætla að gera allt sem ég get til
að sigra Lexa í vetur og vona að það
gangi eftir,“ segir Halldór. Hann er
kominn með Lynx 800 keppnissleða
til þess og fékk sér einnig nýjan
Lynx 440 keppnissleða til að nota til
æflnga.
Víðir Garðarsson er núverandi
íslandsmeistari í Sport Open-flokki
en, eins og Halldór, ætlar hann að
færa sig upp í Pro Open-flokkinn.