Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Side 1
* MANUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 keppni i hverju orði Simi: 550 5000 • Rafpostur: dvsport@dv.is www.dvsport.is Erfiðasta mót sem ég hef tekið þátt í DV, Stokkhólmi: „Það er auðvitað slæmt að horfa á eftir verðlaunum og við fáum ekki oft tækifæri til þess. Við verðum að taka þessu eins og menn og við getum verið stoltir af liðinu. Þetta eru engin endalok að fá ekki verðlaun um hálsinn en ég er stoltur af strákunum. Við erum bara því miður að fara geysilega illa með okkar skot í síðustu tveimur leikjum mótsins. Með þessa nýtingu að leiðarljósi á móti markvörðunum gengur þetta bara ekki upp,“ sagði Einar Þorvarðarson, aðstoðarþjálf- ari og framkvæmdastjóri HSÍ, eftir leikinn Einar sagði ýmsar aðstæður þar að baki og þreytuna ekki síst. Þetta eru bara þættir sem við þurfum að vinna okkur í gegnum og kort- leggja betur andstæðinginn. „Við höfum verið óheppnir með meiðsli í þessu og það hafa svo sem önnur lið verið líka. Þetta var geysilega erfltt mót, erfiðasta mót sem ég hef farið í,“ sagði Einar Þorvarðarson. -JKS EM í Svíþjóð lokið: Ólafur einn markahæstur - og einnig í úrvalsliði mótsins valslið keppninnar, „All star Team“. Þetta er mikill heiður fyrir Ólaf en valið kemur engum á því hann hefur leikið frábærlega í keppninni. Mark- vörður liðsins er Peter Gentzel, Sví- þjóð, hægri hornið féll í skaut Dan- ans Lars Christansen, í hægra hornið var valinn Rússinn Denis Krivos- hlykov, Stefan Lövgren, Sviþjóð, í skyttuna vinstra meginn, ðlafur hægra megin, og á línuna var valinn Svíinn Magnus Wislander. Besti maður mótsins var valinn Magnus Wislander, linumaður sænska liðsins. -JKS DV, Stokkhólmi: Ólafur Stefánsson. varð marka- hæsti leikmaður Evrópumótsins hér í Svíþjóð. Ólafur skoraði 58 mörk í leikjum íslenska liðsins. Annar markahæsti leikmaður mótsins varð Svíinn Stefan Lövgren en hann skoraði 57 mörk. Mótshald- arar sögðu þá báða hafa skorað 57 mörk en rétt er að Ólafur skoraði 58 mörk í keppninni. Þegar Evrópukeppninni lauk í Stokkhólmi í gær kom í ljós að Ólaf- ur Stefánsson hafði verið valinn í úr- Svíar urðu Evrópumeistarar 2002 Svíar sigruðu Þjóðverja í úrslitaleik EM í gær eftir framlengingu, 33-31. Þjóöverjar voru hársbreidd frá sigri en Svíar jöfnuðu á síðustu sekúndum leiksins. Þjóðverjar skoruðu síöan mark um leið og flautan gall en það var dæmt af. Sjá nánar um leikinn og lokatöiur frá mótinu á bls. 32. Intersport er stærsta sportvöruverslun landsins. Þar finnur þú allt sem þú þarft til að stunda sportlegan Kfsstíl og getur treyst því að finna öll heilstu vörumerkin á einum stað og alltaf það nýjasta á markaðinum hverju sinni. ^^F^EDDy CASALL Rccbdk Á GtÍTGl röhnibch aaidas BCTT£R BODICS ^ www.intersport.is VINTERSPORT Bíldshöfða • 510 8020 Smáralind • 5108030 100% SPORT Kynntu þér klúbbinn!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.