Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 7
 23 MANUDAGUR 4. FEBRUAR 2002 Sport Sviar sprengdu strákana - íslenska liðið tapaði sínum fyrsta leik í Evrópumótinu með 11 marka mun í undanúrslitunum DV, Stokkhólmi: Sterkasta landslið okkar í hand- knattleik í mörg ár mætti ofjörlum sínum í undanúrslitum á Evrópumót- inu í Globen í Stokkhólmi á iaugar- dag. Svíar léku á heimavelli við hvern sinn fingur og gerðu út um leikinn á fyrstu tíu minútum síðari hálfleiks með geysilega öflugum varnarleik og vel útfærðum hraðaupphlaupum. Gentzel frábær í marki Svía Á sama tíma varði Peter Gentzel, markvörður Svía, allt sem á markið kom og Svíar fógnuðu í lokin ellefu marka sigri, 33-22. í hálfleik voru íslendingar vel inni i leiknum en Svíar leiddu þá, 14-12. Þetta var fyrsti tapleikur íslenska liðsins í mótinu og verst leikni leikurinn af hálfu liðsins. Þessum leik svipaði til annarra viðureigna liðanna á síð- ustu árum. Svíar'hafa kverkatak á íslenska landsliðinu og á þvi varð engin breyting nú þó vonir manna fyrir leikinn heföu verið í þá veru að það myndi breytast. Hin margumtalaða Sviagrýla er enn sprelilifandi. íslendingar voru með frumkvæðið framan af fyrri hálf- leik, vörnin var sterk og Guð- mundur varði oft vel. Um miöjan fyrri hálfleik var staðan, 6-5, fyrir íslendinga og voru þá Svíar i vand- ræðum í erflðleikum með sóknar- leik sinn. Flest mörk liðsins komu af línunni frá Magnus Wislander en ekkert mark hafði þá verið skorað utan af velli. Afdrifarík mistök Svíar náði betri tökum á leiknum eftir því sem á hálfleikinn leið en ís- lenska liðið fór illa með hraðaupp- hlaup og gerði sig sekt um nokkur afdrifarík mistök. Þetta nýttu Svíar sér og náðu fjögurra marka forystu, 8-12, og skoruðu íslendingar ekki mark í sex og hálfa mínútu. Á síð- ustu sjö mínútum fyrri hálfleiks léku íslendingar best í leiknum, skoruðu fjögur mörk í röð og náðu að jafna, 12-12. Þarna sýndu íslend- ingar mikinn styrk og voru á nýjan leik komnir aftur inn í leikinn en Svíar gerðu í kjölfarið tvö síðustu mörkin í hálfleiknum. Eins og áður sagði gerðu Svíar síðan út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks. íslendingar geröu að vísu fyrsta markið og staðan var 13-14. En þá gerðu Svíar fimm mörk í röð og kláruðu leikinn á þessum kafla. Eftir þetta var spumingin aðeins hversu stór sigur sænska liðsins yrði. Sóknarleikurinn var bitlaus í síðari hálfleik, allar hugmyndir vantaði í hann og leikmenn voru í raun alls ekki að sýna þá hliðar á sér sem einkenndu þá í fyrri leikj- um í mótinu. Meiösli tóku sig upp hjá Patreki Það var skarð fyrir skildi að Patrekur Jóhannesson gat lítið leik- ið i síðari hálfleik en meiðsli sem hann varð fyrir í Þjóðverjaleiknum tóku sig upp. Raunar var Patrekur ekki heill fyrir leikinn en ákvörðun var samt tekin um að láta hann leika, enda mikið í húfi. Ólafur Stefánsson var besti mað- ur íslenska liðsins í leiknum en hafði þó oft leikið betur í mótinu. Sigfús Sigurðsson skilaöi sinu en var stundum óheppinn með skot sín í fyrri hálfleik. Peter Gentzel var honum stundum erfiður í síðari hálfleik sem og öðrum leikmönnum. Guðmundur Hrafnkelsson varði ágætlega í fyrri hálfleik en var skipt út eftir 12 minútna leik í síðari hálf- leik. Bjarni Frostason tók við stöðu hans og var ekki öfundsverður af sínu hlutverki. Áhorfendamet í Globen Það kom að því að liðið tapaði leik í keppninni eftir að hafa leikið sex leiki án taps. Það verður ekki tekið af Svíum að þeir eiga á að skipa geysilega sterku liði sem eng- in þjóð stenst snúning í þeim ham sem liðið hrökk i í síðari hálfleik. Umhverfi leiksins var þeim allt í hag en 14.076 áhorfendur voru á leiknum, langflestir á bandi Svía, og hafa aldrei fleiri greitt aðgangseyri inn á handboltaleik í Globen í Stokkhólmi. -JKS . Lýsandi mynd fyrir leik laugardagsins: Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari á erfitt með að trúa því sem er aö gerast í honum. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.