Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 10
26
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
Sport
Markvörður
Dana þótti
standa sig illa
DV, Stokkhólmi:
Michael Bruun Pedersen, hinn
snjalli markvöröur danska
landsliösins sem varöi svo frá-
bærlega gegn íslendingum í gær
náöi ekki aö festa sig í sessi hjá
þýska liðinu Lemgo þegar hann
var hjá félaginu.
Brugöu forráöamenn liðsins á
þaö ráð aö senda Danann til síns
heima og leikur hann í dag meö
danska liöinu Holstebro. Peder-
sen sannaði þaö i gær aö þar fer
afar snjall markvörður og undar-
legt að Lemgo skuli ekki hafa
not fyrir slíkan leikmann.
-SK/-JKS
Tókst í
6. tilraun
Dönum tókst í sjöttu tilraun
aö tryggja sér bronsverðlaun á
stórmóti í handknattleik meö því
að sigra íslendinga í gær.
Áður höfðu Danir gert fimm
tilraunir en alltaf tapað leik um
bronsverðlaunin.
-SK/-JKS
Bogdan
mætti
DV, Stokkhólmi:
Gamall og góður kunningi ís-
lensks handknattleiks, Pólverj-
inn Bogdan Kowalczyk, kom frá
Varsjá í Póllandi til Stokkhólms
til aö fylgjast með lokaleikjum
EM.
Bogdan þjálfaði íslenska liöið
sem kunnugt er til margra ára
og kom íslandi á kortið sem al-
vöru handknattleiksþjóð. Besti
árangur hans með liðið var 6.
sætið á HM í Sviss 1986 og sigur
í B-keppninni í Frakklandi 1989.
Alis voru fyrrverandi lands-
liðsþjálfarar íslenska liðsins
samankomnir í Stokkhólmi.
Bogdan, Jóhann Ingi Gunnars-
son, Þorbergur Aðalsteinsson og
Pólverjinn Janus Cherwinzky.
-SK/-JKS
Allt annað
líf eftir EM
DV, Stokkhólmi:
Gríðarlegur áhugi íslenskra
fyrirtækja og einstaklinga í fjár-
söfnun til handa landsliöinu og
HSÍ hefur á svipstundu gerbreytt
öllum fjárhag HSÍ.
Þegar fariö var utan til Svi-
þjóðar voru skuldir sambands-
ins 30-40 milljónir króna og að
auki 16 milljóna kostnaður sam-
bandsins vegna EM. Rausnarleg-
ur stuðningur ríkisins, 15 millj-
ónir króna, siéttaði nánast út
kostnaðinn við EM. Gera má ráö
fyrir að söfnunin á Rás 2 og
símasöfnunin (907-2800) hafi skil-
að HSÍ 25-30 milljónum króna.
Forráðamenn HSÍ ættu því aö
geta verið glaðir þegar þeir
mæta í vinnuna á morgun. Við
þeim blasir algjörlega ný staða
sem svo sannarlega opnar dyr að
glæsilegri framtíð.
-SK/-JKS
DV
Dagur Sigurösson brýst í gegnum vörn Dana. DV-mynd Pjetur Danir fagna sigri en Guömundur er ekki kátur. DV-mynd Pjetur
Mjög sterkar þjóðir fyrir neðan íslendinga á EM í Svíþjóð:
„Maður verður að
sætta sig við þetta“
- sagði Vladimir Maximov, þjálfari Rússa, í samtali við DV-Sport
DV, Stokkhólmi:
Rússar hrepptu fimmta sætið á
Evrópumótinu í handknattleik þegar
þeir sigruðu heimsmeistara Frakka,
31-28, í Globen í Stokkhólmi í gær.
Þetta er í fyrsta sinn á stórmóti í
handknattleik, síðan á HM i Sviss,
sem Rússar hafna neðar en íslending-
ar. Vladimir Maximov, þjálfari
Rússa, sagðist eftir leikinn alls ekki
vera sáttur með þessa útkomu, hann
hefði ætlað sér meira með liðið en
raunin varð á.
„Leikmenn liðsins er dreifðir um
alla Evrópu og ég hefði viljað fá
meiri tíma í undirbúning fyrir
keppnina. Maður verður að sætta sig
við þetta,“ sagði Maximov.
Kom mér ekki á óvart
Daniele Constantini, sem gerði
Frakka að stórveldi í handknattleik,
hætti með liðið eftir að það varð
heimsmeistari í París í fyrra. Hann
sagði að það hefði ekki komiö sér á
óvart að franska liðið hefði lenti í
sjötta sætinu hér á Evrópumótinu i
Svíþjóð.
„Eftir heimsmeistarakeppnina
mátti allt eins búast við niðursveiflu
hjá liðinu og það kom á daginn í
þessu móti. Nokkrir lykilmenn liðs-
ins náðu ekki að sýna sitt rétta and-
lit og liðið má bara alls ekki við því
að lykilleikmenn séu slakir. Richard
Richardson var til dæmis skugginn
af sjálfum sér í keppninni og það
kan'n ekki góðri lukku að stýra,"
sagði Constantini en hann vann við
lýsingar fyrir franska sjónvarpið á
Evrópumótinu. íslendingar gerðu
sem kunnugt er jafntefli við Frakka í
leik þar sem svissneskir dómarar
tóku sigur af okkar liði með mjög
áberandi hætti.
Þjálfari Spánar ánægöur með
sína menn
Cesar Ardiles, þjálfari spænska
landsliðsins, er ánægður með
frammistöðu síns liðs í keppninni.
Spánveijar lentu í 7. sæti eftir að
hafa unnið Tékka, 36-29, i leik um
sjöunda sætið. „Við erum að byggja
upp til framtíðar og ungu leik-
mennirnir, sem voru að stíga sín
fyrstu spor á stórmóti, lofa góða. Það
er bjart fram undan hjá okkur,“
sagði Ardiles. -JKS
Þaö var svo sem engin ástæöa fyrir leikmenn íslenska liösins til aö hengja haus eftir leikinn gegn Dönum Fjóröa sætiö á Evrópumótinu er án efa besti
árangur sem fslenskt landsliö í handknattleik hefur náö á stórmóti fyrr og síöar. 4. sætiö á ÓL í Barcelona 1992 var góöur árangur en Ólympíuleikar eru
nokkru minni mót en Evrópumót. DV-mynd Pjetur