Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Side 11
27
Liverpool-varatreyjan
loksins komin.
Stærðir: S-XXL
Tryggðu þér eintak.
Verð kr. 6.490
(adsbctg
pvérpool
treyjur
_
F
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
Sport
DV
Skorum á
Landssíma
og Orkuveitu
Tíu þekktir handknattleiksmenn,
núverandi og fyrrverandi, hafa sent
frá sér áskorun vegna söfnunar sem
er í gangi til stuðnings HSÍ.
I áskorun kappanna segir: „Und-
anfarna daga hefur lið íslendinga í
handknattleik sýnt svo ekki verður
um villst að það er á heimsmæli-
kvarða. Þar viljum við vera og að
okkar mati eiga keppnismenn okkar
ekki sífellt að þurfa að standa í
skugga féleysis og skorts á aðbúnaði
og vera þannig eftirbátar annarra
þjóða. Við undirritaðir handknatt-
leiksmenn skorum hér með á stór-
fyrirtækin Landssímann og Orku-
veitu Reykjavíkur að styrkja HSl
með myndarlegu fjárframlagi svo
handknattleikslið íslands geti staðið
jafnfætis félögum sínum í nágranna-
löndum okkar.“ Undir þetta skrifa
Atli Hilmarsson, Geir Sveinsson,
Júlíus Jónasson, Kristján Sig-
mundsson, Páll Björgvinsson, Stefán
Gunnarsson, Stefán Halldórsson,
Valdimar Grímsson, Þorbergur Að-
alsteinsson og Þorbjöm Jensson.
Liverpool-meistaratreyjan
Stærðir: S-XXL
Verð kr. 6.990
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • simi 588 1560
www.joiutherji.is
Geir Sveinsson.
íslenska landsiiðiö var vel stutt gegn Svíum í Globen-höllinni í Stokkhólmi.
DV-mynd Pjetur
Guðmundur með góðan
efnivið í höndunum
Mats Olson er á myndinni til vinstri
en hér að ofan er Dagur Sigurðsson
kominn í gegnum sænsku vörnina
og lætur vaða að markinu.
DV-myndir Pjetur
DV, Stokkhólm:
Mats Olsson, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður Svía í handknattleik
og nú aðstoðarþjálfari portúgalska
landsliðsins, þekkir íslenska liðið
mjög vel en eftir að hann hætti hand-
boltaiðkun hefur hann fylgst með öll-
um stórmótum 1 handknattleik.
Hann sagði að sér hefði komið á
óvart að íslenska liöið hefði ekki
haldið dampi en það hefði leikið sér-
lega vel í keppninni. Sænska liðið er
bara erfitt viðureignar og ekki sist
hér á heimavelli í Svíþjóð.
„íslenska liðið er komið í fremstu
röð, Guðmundur þjálfari er með góð-
an efnivið í höndunum og það verð-
ur spennandi að fylgjast með þessu
liði á næstu árum. Islenska liðið
gerði nokkur dýrkeypt mistök, illa
var farið með tækifærin en það geta
bara lið ekki leyft sér gegn sænska
liðinu. Sænska liðið náði að leika á
sínum fulla styrk í síðari hálfleik en
það var ekki að leika neitt sannfær-
andi framan af fyrri hálfleik.
Gleður hjartaö að sjá Sigfús
Það gleður mitt hjarta að sjá Sig-
fús Sigurðsson jafnsterkan og hann
er orðinn. Ég var framkvæmdastjóri
TekaSantander þegar hann var hjá
okkur. Hann lenti þar í vandræðum
en að sjá hann í dag í þessu formi er
mikið gleðiefni. Ef Sigfús heldur
áfram á sömu braut á hann eftir að
ná langt og það verður gaman að sjá
hann leika í þýsku deildinni á næsta
tímabili," sagði Mats Olson. Hann
sagði það ennfremur gríðarlegan
kost fyrir landsliðið að vera búið að
fá Sigfús í vörnina en þar skilar
hann ekki síður mikilvægu hlut-
verki.
Olson sagðist vera þokkalegur
ánægður með frammistöðu portú-
galska liðsins í keppninni. Það yrði
unnið mikið með þetta lið á þessu
ári og markmiðið að það mæti sterkt
til leiks á HM í Portúgal á næsta ári.
Auk þess að vera aðstoðarþjálfari
portúgalska landsliðsins er Olsson
þjálfari tveggja unglingalandsliða og
sér einnig alfarið um markmanns-
þjálfun landsliðsins en hann lék á
fjórða hundrað leiki með Svíum og
var lengi besti markvörður heims.
„Ég er ekki fluttur til Portúgals.
Eiginkona mín er spænsk og fjöl-
skyldan býr áfram á Spáni. Ég fer
reglulega til Portúgals til að fylgjast
með leikmönnum og er þá nokkrar
vikur í einu. Ég er með samning við
portúgalska handknattleikssam-
bandið fram yfir HM. Ég veit ekki
hvað tekur við þá en það verður þó
örugglega á handboltasviðinu þar
sem ég uni mér vel. Samstarf okkar
Javiers Questa landsliðsþjálfara
gengur vel og það er gott að vinna
með honum,“ sagði Olsson í viðtali
við DV-Sport eftir viðureign Svía og
íslendinga á laugardaginn.
-JKS