Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Síða 16
32 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 > -» „Við getum verið geysilega stolt af liðinu en auðvitað eru það vonbrigði að sigra ekki í leiknum gegn Dönum. Við gáfum alit í þennan leik, það dugði bara ekki og þetta féll einfaldlega ekki okkar megin. Það voru samverkandi þættir sem ollu þessari þróun í leiknum. Ég var óánægður með margar brottvísanir og mjög snemma var farið að tína lykilmenn út af. Þetta gerði okkur mjög erfitt fyrir og þar fyrir utan misnotuðum við allt of mörk dauðafæri og það gengur bara ekki í svona leikjum," sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari við DV eftir leikinn Guðmundur sagðist vilja þakka allan þann stuðning og samhug sem þeir hefðu fundið fyrir. „Ég get sagt við islensku þjóðina að við gerðum það sem við gátum og við stefnum að því að gera enn betur. Það hefur verið frábært að vinna með þessum hópi og sjá hvað strákarnir hafa verið tilbúnir að leggja á sig. Það hefur verið gaman að sjá að við eigum stað í hjarta þjóðarinnar og það er stórkostleg tilfmning. - Þetta mót hlýtur að verða liðinu ómetanlega reynsla inn í fram- tíðina? „Maður lærir mikið og ekki hvað síst strákarnir sjálflr. Við vorum að gera hér hluti sem við kannski bjuggumst ekki við fyrirfram. Við sjáum hvað við getum ef rétt er staðið að málum en við verðum að passa að fara ekki fram úr okkur. Þjóðir fyrir neðan okkur í mótinu eru Rússar, Spánverjar, Frakkar og Júgóslavar sem eru allt frábærar handboltaþjóðir. Við verðum að átta okkur á því að þetta gekk vel núna og markmiðin eru alltaf að vera inni á stórmótum og síðan að vera á meðal 8-10 bestu þjóða. Við megum samt ekki fara á flug og gleyma raunveruleikanum. - Liðið var skugginn af sjálfu sér ef leikimir hér eru skoðaðir miðað við þá sem liðið var að leika í Skövde og Vásterás? „Það eru nokkrar ástæður fyrir því en við söknuðum Patreks mjög mikið í leiknum við Svía og Dani. Það er mitt mat þó aðrir hafi komið og staðið sig vel. í siðustu tveimur leikjunum gerist það að við erum að misnota allt of mikið af dauðafærum. Það fer líklega saman við þreytu enda reyndu riðlarnir á undan mikið á mannskapinn Síðan þróast málin þannig að við lendum í Stokkhólmi á móti liðum sem hafa á að skipa frábærum markvöröum," sagði Guðmundur. „Erum aö gera hluti sem menn bjuggust ekki við“ - sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari eftir erfitt mót í Svíþjóð Lokastaðan á EM Undanúrslit Svíþjóð-Ísland .......... 33-22 Danmörk-Þýskaland..........23-28 Úrslitaleikur: Svíþjóð-Þýskaland .........33-31 eftir framlengingu, 26-26 í leikslok. Mörk Svía: Stefan Lövgren 8/5, Staffan Olsson 7, Johan Petterson 6, Ljubomir Vranjes 4, Martin Frandesjö 4, Magnus Wislander 3, Magnus Andersson 1. Varin skot: Peter Gentzel 13, Tomas Svensson 8. Mörk Þjóðverja: Mark Dragunski 6, Stefan Kretzschamr 6/1, Daniel Stephan 6, Volker Zerbe 4, Markus Baur 3/1, Christian Schwarzer 3, Florian Kehrmann 2, Frank von Behren 1. Varin skot: Henning Fritz 13/1. Leikur um 3. sæti Ísland-Danmörk.............22-29 Leikur um 5. sæti Rússland-Frakkland.........31-28 Leikur um 7. sæti Tékkland-Spánn.............29-36 Leikur um 9. sæti Portúgal-Júgóslavía........31-25 Leikur um 11. sæti Úkraina-Slóvenía...........34-29 Markahæstir á mótinu: 1. Ólafur Stefánsson, íslandi . 58/18 2. Stefan Lövgren, Svíþjóð . . 57/23 3. Yuriy Kostetskiy, Úkraínu 52/27 4. Nedeljko Jovanovic, Júgósl. 46/16 5. Jan Filip, Tékklandi.....44/9 6. Lars Christiansen, Danmörk 43/6 7. Johan Pettersson, Svíþjóö .. 36/2 8. Patrekur Jóhannesson, íslandi 35/5 8. Renato Vugrinec, Slóveníu . . 35 10. Daniel Stephan, Þýskalandi 33/7 11. Stefan Kretzschmar, Þýskal. 32/8 11. Ales Pajovic, Slóveníu .... 32/5 13. Sigfús Sigurðsson, islandi . . 31 13. Alexei Rastvortsev, Rússlandi 31 13. Eduardo Coehlho, Portúgal. 31/11 Flestar stoösendingar: 1. Daniel Stephan, Þýskalandi . . 43 2. Ólafur Stefánsson, íslandi ... 37 2. Alexandr Radcenko, Tékklandi 37 4. Ljubomir Vranjes, Svíþjóð ... 35 5. Stefan Lövgren, Svíþjóð .... 35 Flestir stolnir boltar: 1. Patrekur Jóhannesson, islandi 13 2. Andrej Kastelic, Slóveníu ... 12 3. Bertrand Gille, Frakklandi . . 11 4. Florian Kehrmann, Þýskalandi 9 5. Oliver Girault, Frakklandi ... 8 Flest varin skot í vörn: 1. Lars Kogh Jeppesen, Danm. . . 21 2. Ola Lindgren, Svíþjóð ....19 3. Sigfús Sigurðsson, íslandi ... 17 4. Mateo Garralda, Spáni.....14 4. Klaus-Dieter Petersen, Þýskal. 14 Tölfrœói þessi er frá mótshöldurum á Evrópumótinu í Svíþjóð en rétta tölfræði íslensku strákanna má finna á blaðsíöum 18 og 19 í DV-Sport í dag. DV-Sport tók saman nákvæma tölfræði á mótinu. -ÓÓJ J íslenska liöiö fékk viðurkenningu í mótslok fyrir fjóröa sætiö á mótinu. Hér sjást íslensku leikmennirnir í Globen í gær. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.