Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Side 4
18
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
Sport
DV
Bikarúrslitaleikur kvenna 2002: í B V-Grótta/KR 22-16 (11-6)
Leikstaóur: Laugardalshöll 16. febrúar. Stefán Amaldsson (7).
Dómarar (1-10): Gunnar Viðarsson og Gteöi leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 1000.
IBV 1 •rt 1 £ | 1 1
Útileikmenn: Skot/Mörk 9 m Víti Hrað. I á § Í
Theodora Visokaite 10/6 60% 5/2 3/2 4(1) 7 í 5 0
Ana Perez 10/6 60% 6/2 3/3 0 2 0 2 0
Dagný Skúladóttir 6/5 83% 4/3 1 3 í 2 0
Ingibjörg Jónsdóttir 5/3 60% KD 1 0 1 0
Andrea Atladóttir 6/2 33% 4/1 4(3) 2 1 0 0
Isabel Ortis 0 1 0 2 0
Elisa Sigurðardóttir 0 2 0 2 0
Þórsteina Sigbjörnsd.
Anlta Ýr Eyþórsd.
Hildur Siguröardóttir
Bjamý Þorvarðard.
Björg Ólöf Helgad.
Samtals 37/22 59% 15/5 3/3 7/5 3 14 0
Tilmót-
Markvarsla: Skot/Varin 9 m vm Hrað. Haldið íeria
Vigdis Sigurðardóttir 27/13 48% 10/6 2/1 8/3 0 0 4
Iris Sigurðardóttir 3/1 33% 2/1 0 0 0 1
Samtals markvarsla 30/14 47% 12/7 2/1 8/3 10(5) 18 5
0-1, 1-6, 2-6, (18 mín.), 2-8,
3-8, 3-9, 4-9, 4-10 (24 mín.),
6-10, (6-11), 6-14, (35 mín.),
8-14, 8-15, 10-15, 12-16, (45
mín.), 13-18,13-19,14-19,14-22
(27 mín.), 16-22.
Sóknarnýting:
Fyrri hálfleikur:
ÍBV (25/11, 8 tapaðir) . 44%
Grótta/KR (26/6, 11 tapaðir) . . 23%
Seinni hálfleikur:
ÍBV (29/11, 11 tapaðir) . 38%
Grótta/KR (29/10, 8 tapaðir) . . 34%
Samtals:
ÍBV (54/22, 19 tapaðir) . 41%
Grótta/KR (55/16, 19 tapaðir) . 29%
Maður leiksins:
Theodora Visokaite
1 Grótta/ l 1 1 | i 1 1
Útileikmenn: Skot/Mörk 9m Víö Hrað, 1 1 t 1 n i
Kristfn Þórðardóttir 8/5 63% 2/2 0 0 1 0 0
Ágústa Edda Bjömsd. 8/5 63% 3/2 1/0 2/2 2 1 0 1 0
Alla Gokorian 16/4 25% 14/3 1/0 1/1 8(1) 6 1 2 1
Eva Björk Hlöðversd. 2/1 50% 1/0 0 1 1 1 0
Amela Hegic 3/1 33% 1/0 1/1 1/0 1 5 0 2 0
Heiða Valgeirsdóttir 1/0 0% 1/0 0 3 0 0 0
Ragna Sigurðardóttir 1/0 0% 1/0 0 2 0 0 0
Brynja Jónsdóttir 0 0
Edda H. Kristinsdóttir 0 0
Guðrún Dóra Bjamad.
Hulda Sif Ásmundsd.
Samtals 39/16 41% 20/5 3/1 7/5 3 6 r
Tilmót-
Markvarsla: Skot/Varin 9 m vm Hrað. Haldið heria
Fanney Rúnarsdóttir 15/5 33% 3/2 3/0 4/1 0 0 i 3
Þóra Hllf Jónsdóttir 17/5 29% 6/2 3/1 0 0 3 0
Ásdís Kristjánsdóttir
Samtals markvarsla 32/10 31% 9/4 3/0 7/2 | 11 (1) 18 1 1 3
Tóku sér tak
- sagöi Vigdís Sigurðardóttir
Hinn frábæri mark-
vöröur ÍBV, Vigdís Sig-
urðardóttir, var að
hampa bikarnum í þriðja
skipti og annað árið í röð
sem leikmaður ÍBV en
1997 var það með Hauk-
um.
„Ég held að reynsla
okkar í erfiðum úrslita-
leikjum hafi hjálpað
mikið til við að landa
þessum titli og þá feng-
um við alvarlega áminn-
ingu í leiknum á móti
Haukum um daginn og
tókum okkur tak í fram-
haldi af því. Hins vegar
bjóst ég við mun erfíðari
leik en mér fannst vanta
ailan viija í þær og fljót-
lega varð ljóst hvorum
megin sigurinn myndi
lenda.
Stefna á fleiri titla
Það er alltaf jafn gam-
an að vinna titla og við
hlökkum til að fara heim
með bikarinn og slá upp
veislu með okkar frá-
bæru stuðningsmönnum
og svo höldum við bara
áfram og stefnum
ótrauðar að fleiri titlum
sem er alveg raunhæft sé
mið tekið af spila-
mennsku okkar í dag,“
sagði kampakát Vigdís í
leikslok en hún er einnig
kona þjálfarans. -SMS
Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV:
ta lífsins
- núna en ætla sér fleiri titla
Sigurkossinn. Vigdís Sigurðardóttir, markvörður IBV, og Erlingur
Richardsson þjálfari óska hvort öðru til hamignju með bikarsigurinn.
Erlingur Richardsson tók
við liði ÍBV fyrir þessa leiktíð
og óhætt er að segja að byrj-
unin sé frábær og hann hafði
þetta að segja við DV i leiks-
lok eftir að hafa unnið titil í
fyrstu tilraun í Höllinni:
„Nú er maður ekki eins
brúnaþungur og þegar ég tal-
aði við þig eftir síöasta leik
en satt best að segja þá bjóst
ég viö miklu jafnari leik enda
tvö góð lið á ferð hér í dag. Ég
var hálfhræddur um að byrj-
un okkar væri aðeins of góð
en við sýndum ákaflega mik-
ið jafnvægi og hleyptum þeim
aldrei inn í leikinn og mér
fannst vera mikiH og góður
heildarsvipur á liðinu. Þessi
leikur er sá fyrsti í vetur sem
ég er virkilega ánægður með
spilamennsku liðsins í frá
upphafl og til enda og segja
má að hann hafl komið á hár-
réttum tíma. Markmiðið fyrir
leiktíðina var að ná í titil eða
titla og nú er þessi kominn í
hús og við höldum bara
áfram á þessari braut og njót-
um lífsins núna og komum af
krafti í það sem eftir er,“
sagði Erlingur Richardsson
að lokum. -SMS
ÍBV varð aöeins annað kvennafélagið í
sögunni sem nær að verja bikarmeistara-
titilinn sinn en Fram hefur sex sinnum
náð að verja bikarinn. Liðum hafði ekki
tekist að verja bikarinn í ellefú ár síðan
Fram vann bikarinn árin 1990 og 1991.
Sex marka sigur ÍBV á Gróttu/KR var
stærsti sigur kvennaliðs í bikarúrslitaleik
í sautján ár eða síðan Fram vann Val 21-14
árið 1985. Stærsti sigur í sögu bikarúrslita
kvenna er aftur á móti tíu
marka sigur Fram á ÍR, 19-9,
árið 1982.
í síðustu niu bikarúrslitaleikjum
kvenna hafði aðeins munað samtals sjö
mörkum eftir venjulegan leiktima en fimm
leikjanna höfðu verið framlengdir þar og
tveir þeir síðustu.
Eyjastúlkan Andrea Atladóttir varð
bikarmeistari í fyrsta sinn með sínu
heimafélagi en hún hafði áður orðið
bikarmeistari með Víkingi (1992) og
Haukum 1997 en hafði tapað sínum eina
bikarúrslitaleik með ÍBV en hann var árið
1994. Andrea var ekki byrjuð aö spila með
ÍBV í fyrra þegar liðið fagnaði
bikarmeistaratitlinum.
Amelu Hegic tókst ekki að verða
bikarmeistari með tveimur félögum tvö ár
í röð en hún varð meistari með ÍBV í fyrra
en lék með Gróttu/KR í ár. Amela hefur þó
ekki fundið sig í Höllinni í þessum tveimur
bikarúrslitaleikjum og hún hefur aðeins
nýtt 3 af 16 skotum sínum og tapað átta
boltum í Höllinni. -ÓÓJ
Bikarúrslit kvenna 2002
Ekki tih
búnar
Ágústa Edda Bjömsdóttir, fyrirliði
Gróttu/KR, átti bestan leik í sínu liði
og skoraði fimm mörk en varð að
sætta sig við siifrið í annað sinn á
tveimur árum.
„Þetta er mjög sárt því við ætluðum
okkur allt annað og ætluðum okkur
að hefna fyrir tapið fyrir tveimur
árum. Við vorum ekki tilbúnar
andlega í þennan leik. Við héldum í
við þær í seinni hálfleik og vorum að
minnka forskotið en það var bara
þessi herfilega byrjun sem tók of
mikla orku og hleypti þeim í of mikið
forskot sem er nánast voniaust að
vinna upp í leik eins og þessum á
móti jafnsterku liði og ÍBV. Við
vorum bara hreinlega of stressaðar og
vorum að kasta boltanum beint upp í
hendurnar á þeim. Það munaði líka
um minna að sterkir leikmenn eins og
Alla og Amela ná sér ekki á strik og
hungrið virtist ekki vera til staðar hjá
okkur og það er löngu ljóst að það er
viljinn sem vinnur svona leiki,“ sagði
Ágústa Edda i leikslok. -ÓÓJ
ur sigur
ea Atladóttir sem varð
1 með ÍBV í fyrsta sinn
Andrea Atladóttir er eldri en tvæ-
vetur í handboltanum og hún hefur
hampað ófáum titlunum í gegnum
tíðina en þetta var fyrsti bikarsigur
hennar með ÍBV en áður hafði hún
unnið með Vikingi og Haukum.
„Það er alltaf gaman að vinna til
verðlauna en þessi bikarsigur er sér-
staklega sætur því hann er sá fyrsti
sem ég vinn með mínu heimaliði.
Leikurinn þróaðist allt öðruvísi en
flestir ef ekki allir bjuggust við enda
náðu þær ekki að spila góða vörn og
að var alveg greinilegt frá upphafi að
stemningin var okkar megin. Það
hefði kannski verið skemmtilegra
fyrir áhorfendur að fá meiri spennu
en við hleyptum þeim einfaldlega
aldrei nálægt okkur og áttum einfald-
lega frábæran leik og núna höldum
við bara ótrauðar áfram og setjum
markið enn hærra,“ sagði Andrea
Atladóttir, hinn reynslumikli leik-
maður ÍBV, að leik loknum. -SMS
Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði IBV, lyftir hér bikarnum en þær Andrea Atladóttir og Vigdís Siguröardóttir fagna.