Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002 19 DV Sport Dagný Skúladóttir, ÍBV: Fyrsti titillinn „Þetta er fyrsti titiUinn á ferlinum, ég hef unnið nokkra í yngri flokkum en þetta sá fyrsti stóri,“ sagði Dagný Skúladóttir leikmaður ÍBV, sem var eitt stórt bros í leikslok. „Við komum vel undirbúnar tO þessa leiks, spiluðum föst leikkerfi og þau gengu upp. Það kom mér á óvart að þær skyldu ekki breyta vöminni sinni i seinni hálfleik því við bjuggumst við því. Það er rosalega gaman að spila með þessu liði og það er ótrúlegt hvað okkur hefur tekist að mynda sterkt lið miðað við það að það hafa orðið miklar breytingar á hópnum milli ára og útlendingamir komu rétt fyrir mót. Að ná bikarnum hérna í dag sýnir kannski best hvað Erlingur er góður þjálfari. Við lögðum upp númer eitt, tvö og þrjú að stoppa Öllu og náðum að gera það vel. Það voru allar að spila vel og þetta er frábært," sagði Dagný. -ÓÓJ Ana Perez, annar spænski leikmaöur- inn í liöi ÍBV, sést hér fagna sigri í leiks- lok í miöjum hópi Eyjastúlkna. Ana lék mjög vel í leiknum. DV-mynd E.ÓI. 'máfnitw Tölurnar tala 8Stangar- (7) og sláarskot (1) Gróttu/KR-liösins í leiknum og eitt aö auki þar sem Vigdís markvörður IBV varði boltann í stöng. Það gekk ekkert upp í sókninni hjá liðinu og Alla Gokorian átti meðal annars sex af þessum átta skotum sem skullu á slagverkinu í leiknum en Kristin Þórðardóttir átti hin tvö. 16:30 Timinn á milli fyrsta (1:10) og annars marks (17:40) Gróttu/KR-liðsins í leiknum talinn í mínútum og sekúndum. ÍBV gerði á sama tíma sex mörk. Ágústa Edda Bjömsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins úr hraðaupphlaupi en síðan misnotaði liðið tólf sóknir í röð. Fimm sóknanna enduðu með því að liðið tapaði boltanum, fjórum sinn- um varði Vigdís Sigurðardðttir í markinu og þrisvar sinnum hittu þær ekki markið. Það var Kristín Þórðardóttir sem braut isinn þegar hún braust inn úr hægra hominu en hún hafði komið fyrst inn á tveimur og hálfri mínútu áður. fM gm Stolnir boltar hjá 1 4 Eyjaliöinu í leiknum sem skiluðu sjö mörkum í næstu sókn, þar af fjórum eftir hraðaupphlaup. Mörk sem Theodora mm Visokaite hjá ÍBV kom að i [ fyrri hálfleik í leiknum einu m fleira en Gróttu/KR-liðið skoraði til samans. Visokaite skoraði fjögur mörk', gaf 2 stoðsendingar og fiskaði eitt víti sem gaf mark í hálfleiknum og kom að sjö af fyrstu níu mörkum ÍBV í leiknum. -ÓÓJ Eyjastúlkur urðu bikarmeistarar annað árið í röð í handbolta kvenna með öruggum sex marka sigri, 22-16, á Gróttu/KR á laugardag en Vestur- bæjarliðið þurfti að sætta sig við silfrið í annað sinn á tveimur árum. Þetta var jafnframt stærsti sigur liðs í bikarúrslitaleik kvenna í sautján ár og ólíkt spennuþrungnum leikjum undanfarmna ára var nokkuð ljóst ffá upphafi leiks hvort liðið var á leið upp á pall að hampa bikarnum. ÍBV-liðið lagði grunninn að sigri sínum með frábærri vöm og hún var sérstaklega sterk í upphafi leiks. Eftir að Grótta/KR haföi skorað fyrsta mark leiksins úr hraðaupphlaupi, leið alls 16 og hálf mínúta þar til stúlkumar skoruðu aftur. Á sama tíma gerðu Eyjastúlkur sex mörk og náðu strax upp fimm marka mun sem reyndist Gróttu/KR-liðinu alltof erfið- ur til að vinna upp þær 43 mínútur sem eftir lifðu af l'eiknum. Gróttu/KR-liðið átti reyndar góðan kafla í seinni hálfleik en hann kom alltof seint. ÍBV-liöið hafði þá gert þrjú fyrstu mörk hálfleiksins og var komið í 6-14 en sex Gróttu/KR-mörk gegn 2 frá ÍBV komu muninum niður í 4 mörk en nær komust þær ekki. Misnotuöu 14 af 19 skotum Það var mikill munur á erlendum leikmönnum liðanna i þessum leik. Á meðan þær Theodora Visokaite og Ana Perez voru allt 1 öllu í sóknarleik ÍBV og gerðu saman 12 mörk úr 20 skotum, misnotuðu þær Alla Gokori- an og Amela Hegic hjá Gróttu/KR 14 af 19 skotum sínum og töpuðu saman 11 boltum. Theodora átti sérstaklega góðan fyrri hálfleik þegar hún kom að flestum mörkum Eyjaliðsins. Alla komst ekki á blað fyrr en eftir 28 og hálfa mínútu og haföi þó misnot- að fimm fyrstu skotin sín og tapað fjórum boltum. Þetta var þvi ekki sami leikmaður og skoraði 11 mörk úr 14 skotum i bikarúrslitaleiknum fyrir tveimur árum. Það má segja að Erlingur Richards- son og grimmar Eyjastúlkur hafi lesið sóknarleik Gróttu/KR-liðsins og læst í framhaldi af þvi vöminni. Þetta var sérstaklega áberandi í hraðaupp- hlaupum þar sem Gróttu/KR-liðið tap- aði mörgum boltum af þeim 18 sem liðið tapaði í leiknum. Fyrir frábærum varnarleik fóru þær Ingibjörg Jónsdóttir fyrirliði og Dagný Skúladóttir sem áttu báðar mjög góðan dag. Dagný truflaði flestar sendingar til og frá Öllu sem fram- liggjandi vamarmaður og Ingibjörg gaf ekkert eftir sem miðpunktur vam- arinnar. Bæði Ingibjörg og Dagný gerðu síðan mikilvæg mörk og nutu þar góðrar samvinnu við Andreu Atladóttur sem átti þrjár glæsilegar línusendingar inn á þær í leiknum. Ingibjörg missti af öllu síðasta tímabili en nú var hún með og tók við bikamum í leikslok. Erum meö frábært liö „Það er mun skemmtilegra að fá að vera með. Við komum rosalega vel stemmdar til leiks, það gekk allt upp hjá okkur á meðan ekkert gekk upp hjá þeim og við vorum grimmari en þær. Ég persónulega bjóst við mun meiri mótspyrnu en mér fannst þær vera hræddar og svo náðum við rosalegri vörn til að byrja með. Liðsheildin hjá okkur kláraði þetta og við erum með frábært lið á góðum degi. Ég ætla að vona að þessi sigurhátíð okkar hér í Höllinni sé komin til að vera en þetta er rosaleg lyftistöng fyrir Eyjarnar. Erlingur er mjög skipulagður og vann sína heimavinnu ásamt okkur hinum og sú mikla vinna skilaði sér í þessum leik,“ sagði Ingibjörg í leikslok. Hjá Gróttu/KR léku þær Ágústa Edda Bjömsdóttir og Kristín Þórðar- dóttir vel en þær voru líka þær einu í liðinu sem voru tilbúnar. Fanney Rúnarsdóttir fann sig heldur ekki í markinu og var augljóst að meiðslin hrjáðu hana mikið. -ÓÓJ Hér aö ofan er Erlingur Richardsson, þjálfari Eyjaliösins, tolleraður af leikmönnum sjnum í leikslok en hér til vinstri er síðan allur hópur nýkrýndra bikarmeistara ÍBV samankominn meö bikarinn. DV-myndir E.ÓI. Lesið og læst - Eyjastúlkur urðu bikarmeistarar annað árið i röð eftir öruggan sigur á Gróttu/KR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.