Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Page 8
22
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
Stjarnan-ÍR 28-10
0-1, 2-2, 2-2, 6-2, 6-3, 9 3, 9-4, KM,
(13-5), 14-5, 14-6, 17-6, 17-8, 21-8, 21-9,
24-9, 24-10, 28-10.
Ktiarnan:
Mörk/víti (skot/vtti): Björk Gunnarsdótt-
ir 11 (12), Rakel Dögg Bragadóttir 9/5
(12/7), Elsa Rut Óðinsdóttir 2 (2), Ama
Gunnarsdóttir 2 (4), Helga Sigurðardóttir 2
(5), Thelma Snorradóttir 1 (1), Ema Har-
aldsdóttir 1 (1), Lilja Lind Pálsdóttir (1),
Harpa Sif Eyjólfsdóttir (1).
Stoösendingar: Rakel Dögg 9, Ama 5,
Helga S. 2, Lilja 2, Elsa Rut 2, Björk 1,
Anna Hjörleifsdóttir 1, Harpa Sif 1.
Stolnir boltar: Rakel Dögg 5, Elsa Rut 3,
Helga S. 2, Harpa Sif 2, Lilja, Helga Daní-
elsdóttir.
Hraöaupphlaupsmörk: 11 (Björk 8, Helga
S. 1, Elsa Rut 1, Thelma 1).
Viti: Skorað úr 5 af 7.
Fiskuö viti: Rakel Dögg 2, Björk 2, Helga
S 2, Elsa Rut.
Varin skot: Anna Hjörleifsdóttir 8/1 (18/4,
44%).
Uk
Mörk/víti (skot/vlti): Elín Ýr Ólafsdóttir
3/2 (5/2), Hanna Skúladóttir 3 (5), Rebekka
Rut Skúladóttir 2 (3), Hildur Björk Sigurð-
ardóttir 2/1 (7/2), María Þorsteinsdóttir
(1), Sólrún Sigurbjarnardóttir (1), Eva
Finnbogadóttir (1).
Stoösendingar: Elín Ýr 2, Kristín Collins
3, María 1, Eva 1.
Stolnir boltar: Kristín 2.
Hraöaupphlaupsmörk: 0.
Viti: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuó viti: Sif Ómarsdóttir 2, Hildur
Björk, Hanna.
Varin skot: Árdís Henrysdóttir 3 (20/3,
15%), Guðrún Una Hafsteinsdóttir 5/1
(16/3,, 31%).
Maöur leiksins: Rakel Dögg
Bragadóttir, Stjörnunni
KA-Grótta 23-15
0-1, 3-1, 3-2, 6-2, 7-3, 7-5, 8-5, 8-6,
(11-6), 11-8, 13-8, 13-10, 17-10, 17-12,
18-12,18-13, 20-13, 21-14, 23-15.
KA:
Mörk/víti (skot/víti): Ásdís Sigurðard. 9
(14), Inga Dís Sigurðardóttir 7/2 (17/2),
Katrín Andrésdóttir 3 (5), Martha
Hermannsdóttir 2 (4), Erla Tryggvadóttir 1
(1), Sandra Jóhannesdóttir 1 (2), Þórhildur
Bjömsdóttir 1.
Stoðsendingar: Martha 5, Ásdís 3, Inga
Dís 3, Elísabet Amarsdóttir 1.
Stolnir boltar: Elísabet 2, Anna Teresa
Morales 2, Ásdís 2, Inga Dís
Hraóaupphlaupsmörk: 2 (Ásdís, Katrín).
Viti: Skorað úr 2 af 2.
Fiskuö viti: Martha, Ásdis.
Varin skot: Elisabet Malmberg
Amardóttir 19/2 (34/8, 56%).
Grótta:
Mörk/viti (skot/viti); Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir 9/6 (14/8), Hera
Bragadóttir 2 (2), Gerður Rún Einarsdóttir
2 (9/1), Amdís María Erlingsdóttir 1 (2),
Eva Margrét Kristinsdóttir 1 (8), Anna
María HaUdórsdóttir (2), Eva
Kristinsdóttir (1).
Stoðsendingar: Eva Margrét 4,
Ragnheiður Guðrún Magnúsdóttir,
Gerður.
Stolnir boltar: Anna Úrsúla, Anna María.
Hraöuupphlaupsmörk: 0.
Viti: Skoraö úr 6 af 9.
Fiskuö viti: Arrna Úrsúla 3, Anna María 2,
Hera 2, Eva K. 1, Ragnheiður.
Varin skot: Hildur Gísladóttir 2 (13/1,
15%), Ása Rún Ingimarsdóttir 10 (22/1,
45%).
Sport
DV
Loksi ns KA
Auðveldur
Stjörnusigur
Hér til hægri sjást nýkrýndir bikar-
meistarar Stjörnunnar fagna sigri í 4.
flokki kvenna en hér til vinstri lyftir
KA-stúlkan Martha Hermannsdóttir
bikarnum í unglingaflokki.
KA-stúlkur urðu bikarmeistarar í
unglingaflokki kvenna í handbolta eft-
ir 23-15 sigur á Gróttu í úrslitaleikn-
um i Höllinni í gær.
KA-liðið vann þama sinn fyrsta tit-
il í kvennaflokki frá upphafi en biðin
eftir honum hafði verið löng, ekki síst
fyrir þær stelpur sem fógnuðu bikam-
um í Höllinni í gær því þær höfðu
komist í sex úrslitaleiki á undanföm-
um árum en alltaf þurft að sætta sig
við silfrið. Það var aftur á móti ljóst
frá upphafi að ekkert silfur var á
dagskránni hjá þessu sterka KA-liði
en flestar stelpnanna spila einnig lyk-
ilhlutverk með meistaraflokki liðsins.
Elisabet Malmberg Arnardóttir
markvörður KA, sem er á yngsta ári,
átti mjög góðan leik og varði 19 skot
og eins vom þær Inga Dís Sigurðar-
dóttir og Ásdís Sigurðardóttir áber-
andi hvor í sínum hálfleiknum. Inga
Dís gerði 5 af sjö mörkum sinum fyr-
ir hlé en Ásdís skoraði 6 af níu mörk-
um sínum í seinni hálfleik.
Martha Hermannsdóttir, fyrirliði
KA-liðsins, var líka sátt í leikslok.
Ótrúlega gaman
„Við vorum komin meö sex silfur
en nú er gullið loksins komið. Við
ákváðum að hafa gaman af þessu og
njóta þess að spfla og við gerðum það
og þetta var alveg ótrúlega gaman.
Við vorum farin að halda að það væru
einhver álög á okkur og að við gætum
bara ekki unnið. Við erum reynslunni
ríkari á öllum þessum úrslitaleikjum
og það skilaði okkur gullinu núna.
Hlynur þjálfari stappaði í okkur stál-
inu og ræðan hans fyrir leikinn var
svo dramatísk að ég held að hann hafl
bara loksins sannfært okkur með
henni að við gætum unnið þetta. Nú
ætlum við bara að vinna það sem eft-
ir er, við erum búnar að kynnast því
hvemig er að fá að handleika gullið
og það er ekki möguleiki að við ætlum
að fá fleiri silfur," sagði Martha í
viðtali við DV-Sport eftir leik.
Hjá Gróttu/KR lék Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir best og eins átti Ása
Rún Ingimarsdóttir góða innkomu í
markið í seinni hálfleik. -ÓÓJ
Stjaman hafði mikla yfirburði
gegn ÍR í úrslitaleik 4. flokks
kvenna. Stjaman sigraði með 18
marka mun, 28-10. Fyrirfram var
búist við öruggum sigri Stjömunn-
ar en þær lögðu Fram í undanúrslit-
um en sá leikur var að mati flestra
úrslitaleikurinn.
Stjarnan lék við hvem sinn fmg-
ur í leiknum enda getumunurinn
mikill. Tveir leikmenn fóm á kost-
um, þær Björk Gunnarsdóttir og
Rakel Dögg Bragadóttir, en þær
skoruðu 20 mörk af 28 mörkum liðs-
ins.
Rakel er fyrirliði liðsins og var
sátt viö sigurinn en hún er sjálf að
koma úr meiðslum þó svo að það sé
ekki að sjá á leik hennar.
Ætlar sér í atvinnumennsku
„Við lögðum allt í þetta og undir-
bjuggum okkur vel fyrir leikinn.
Við pössuðum okkur á þvi að slaka
ekki á þrátt fyrir að vera komnar
með þægilegt forskot. Við unnum
bæði íslandsmótið og bikarinn í
fyrra og emm nánast með sama lið
núna í ár. Fram er okkar helsti and-
stæðingur og eina liðið sem við höf-
um tapað fyrir í vetur. Önnur lið
höfum við unnið nokkuð sannfær-
andi.“
Rakel er einnig í fótboltanum en
hefur ekki leikið í vetur vegna bein-
himnubólgu. „Ég hef hvorki æft
handbolta né fótbolta síðan í nóvem-
ber vegna meiðsla en hef verið á
tækniæfingum í handboltanum og
síðan hjólað mikið. Ég hugsa að ég
taki handboltann fram yfir fótbolt-
ann seinna meir. Markmiöið er að
komast í atvinnumennsku þegar
þar að kemur en fyrst stefni ég á að
komast í meistaraflokk Stjörnunnar
og síðan í landsliðið," sagði Rakel í
samtali DV-Sport. -Ben
Björk Gunnarsdóttir og Rakel Dögg Bragadóttir fyrirliöi skoruöu saman 20
mörk fyrir Stjörnuna í bikarúrslitaleik 4. flokks kvenna eða tvöfalt fleiri en
allt liö ÍR til samans. DV-mynd Óskar
Maöur leiksins: Elisabet
Malmberg Arnardóttir, KA
Hér til vinstri eru samankomnar
bikarmeistarar KA í unglingaflokki
ásamt þjálfara sínum, Hlyni
Jóhannssyni, og eins og sjá má
skein ánægjan úr hverju andliti.
DV-mynd Óskar