Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 DV Fréttir Ríkisendurskoöun kannaöi samskipti Þjóðskjalasafns og Þjóðmenningarhúss: Forstóðumenn í verktaka- vinnu hvor hjá öðrum - stjórnir Þjóðmenningarhúss og Þjóðskjalasafns upplýstar Það verður borað Sturla Böðvarsson samgönguráðherra telur að framkvæmd- ir hefjist á haustmán- uðum við gerð jarð- ganga, þrátt fyrir að sala ríkisfyrirtækja hafi ekki gengið sam- kvæmt áætlunum, en framkvæmdimar átti að fjármagna með söluvirði fyrirtækjanna. - RÚV greindi frá. Ríkisendurskoð- un hefur lokið rannsókn á máli sem snýr að for- stöðumönnum Þjóðskjalasafns og Þjóðmenningar- húss og sent stjórnum stofnan- anna tveggja málið til umfjöllunar. Niðurstaðan er sú að Ólafúr Ásgeirs- son þjóðskjala- vörður og Guð- mundur Magnús- son, forstöðumað- ur Þjóðmenningar- húss, hafi skipst á verktakavinnu fyr- ir nokkrar milljón- ir króna. Heimild- ir DV herma að í öðru tilvikinu hafi verktakavinna forstöðumanns Þjóð- menningarhúss numið rúmum tveim- ur milljónum króna en í hinu hafi ver- ið um talsvert lægri upphæð að ræða eða um eina milljón króna. Ólafur Ásgeirsson segir i yfirlýsingu vegna málsins að Ríkisendurskoðun dragi ekki í efa þessi störf hafi verið unnin en stofnunin teiji að Kjaranefnd hefði átt að fjalla um störfm. „Þar sem um var að ræða fræðistörf í þágu stofn- unar sem heyrir undir annað ráðu- neyti og óskylt með öllu stjómunar- störfum mínum var það ekki gert,“ seg- ir í yfirlýsingunni. Hann segir jafn- framt að ofangreind störf hafi verið unnin utan vinnuskyldu hans í Þjóð- skjalasafni og tekið skuli fram að eng- ar greiðslur hafa verið þegnar fyrir stjómunarstörf, hvorki í Þjóðskjala- safhi né Þjóðmenningarhúsi. „En ég mun að sjálfsögðu taka mark á athuga- semdum Ríkisendurskoðunar," sagði Ólafur í samtali við DV, Hvað varðar þátt Guðmundar Magnússonar segir Ólafur í yfirlýs- ingu sinni að Guö- mundur hafi verið ráðinn skjalavörð- ur í Þjóðskjala- safni árið 1996. Hann hafi þá þegar hafist handa við rannsóknir á inn- siglum íslenskra fornbréfa. Þama sé um að ræða verk- efni sem Guð- mundur hafi átt ólokið á sínum gamla vinnustað. Ingvar Garðars- son, formaður stjórnar Þjóð- skjalasafhs, sagðist hafa fengið niður- stöðu Ríkisendurskoðunar í pósti fyrir tveimur dögum. „Við munum taka málið fyrir í stjóm á næstu vikum,“ sagði Ingvar en taldi ekki eðlilegt að tjá sig frekar um málið fyrr en hann hefði kynnt málið þar. Samkvæmt heimildum DV er um- ræddum forstöðumönnum óheimilt að taka að sér verktakavinnu utan stofn- ana sinna án samráðs við stjómir sín- ar. Jafhframt hefur DV heimildir fyrir því að Rikisendurskoðun hafi ekki talið ástæðu til lögreglurannsóknar á máli forstöðumannanna tveggja, sem telst að fullu upplýst en sent stjómum stofnanna tveggja málið til ákvörðun- ar. í samtali við DV sagði Guðmundur Magnússon að á ámnum 1995 tn 2000 þegar hann var starfsmaður í Þjóð- skjalasafninu hefði rannsókn íslenskra miðaldainnsigla verið meðal verkefna sinna þar. Hann hefði haldið þessari vinnu áfram í frítíma sínum eftir að hann tók við starfi forstöðumanns Þjóð- menningarhúss. Ríkisendurskoðun líti svo á að forstöðumenn rikisstofnana þurfi að fá sérstakt leyfi stjórnar stofn- unar sinnar og viðkomandi ráðuneytis fyrir vinnu af þessum toga. „Það hrein- lega hvarflaði ekki að mér að leyfi þyrfti fyrir þessari vinnu minni,“ segir Guð- mundur Magnússon. Hann segir málið nú hafa verið tekið fyrir í stjórn Þjóð- menningarhúss sem gefið hafi sér leyfi til að vinna umrædd störf. Ekki náðist í Salome Þorkelsdóttur, formann stjómar Þjóðmenningarhúss- ins. -rt/sbs Guömundur Magnússon. Salome Þorkelsdóttir. Ólafur Ásgeirsson. Ingvar Garðarsson. Þjóömenningarhusiö Þjóðskjalavörður tók að sér verktakavinnu. feíffi^ Þjooskjalahusiö Forstöðumaður Þjóðmenningarhússins annaðist verktakavinnu. Frpmsóknarf lokkurinn: Oskar hættur við framboð Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins á Reykjavíkur- listanum, hefur dregið sig út úr þeim hópi sem gefur kost á sér í skoðana- könnun flokksins í Reykjavík. Óskar kærði í síðustu viku þær aðferðir sem notaðar vora til að velja fulltrúa á kjörskrá flokks- ins og eins að ekki hafi verið staðið löglega að ákvörð- un um það hvem- ig flokkurinn ætlar að velja fulltrúa sína á Reykjavíkurlistann. Málið var fyrst tekið fýrir i kjömefhd flokksins, sem ekki taldi sig hafa umboð til að íjalla um það, og fór þá kæran til laga- nefndar flokksins sem úrskurðaði á sunnudag að könnunin skyldi fara fram eins og ráðgert hafði verið. „Auðvitað er þessi niðurstaða laga- nefndar mikil vonbrigði, ekki sist í ljósi þess að ég tel laganefndina ekki hafa haft forsendur til að komast að niðurstöðu þar sem hún hafi ekki ákveðin grandvallargögn í málinu undir höndum - en það er bréf frá þremur stjómarmönnum í Félagi ungra framsóknarmanna í suðurkjör- dæmi til kjömefndarinnar, þar sem þeir tala um aö löglegur listi fyrir að- alfulltrúa á kjördæmaþing liggi ekki fyrir,“ segir Óskar Bergsson. Nokkur kurr hefur verið meðal framsóknar- manna í Reykjavík vegna þess hversu lokuð skoðanakönnunin um næstu helgi verður, en á kjörskrá era einung- is þeir sem era fúlltrúar á kjördæmis- þingi flokksins. -BG Óskar Bergsson. Átök í kringum Kaupfélag Hrútfirðinga á Borðeyri: Fyrrverandi veitingamaður á Brú kærður fyrir árás - stjórnin reynir að koma á mig höggi, segir veitingamaðurinn Úr Hrútafiröl Handalögmál í hreppnum. Mikill kurr er nú meðal bænda í Strándasýslu vegna stöðu Kaupfélags Hrútfirðinga á Borðeyri. Staða kaupfélagsins er sögö slæm og sumir bænd- ur óttast um tugi milljóna króna innlegg sín hjá fé- laginu. Hart hefur verið tekist á innan sveitar og jafnvel komið til handalög- mála vegna brottvikningar veitingamannsins í veit- ingaskálanum Brú i Hrútafirði. Bjami G. Stefánsson, sýslumaður á Hólmavík, staðfesti í samtali við DV að fyrir liggi kæra um líkams- árás sem átti sér stað í Bæjarhreppi. Hann segir málið nú í rannsókn. Samkvæmt heimildum DV var það stjómarformaður í kaupfélag- inu sem kærði fyrrum veitinga- mann á veitingaskálanum Brú. Hafði komið til handalögmála þeirra á milli í kjölfar uppsagnar veitingamannsins. Mun þetta hafa átt sér stað þegar stjórnarformaður- inn, Jósep Rósinkarsson, bóndi á Fjaröarhomi, átti leið í veitinga- skálann Brú. Jósep staðfesti þetta í samtali við DV. Hann segir að atburðurinn hafi átt sér stað í fyrri viku. Segir hann að Bjami Rafn Ingvason, fyrrver- andi kokkur, hafi ráðist á sig. Taldi hann líklegt að það tengdist upp- sögn Bjama. „Hann var látinn fara vegna þess að hann braut af sér í starfl, eins og ég hef áður látið hafa eftir mér í DV,“ sagði Jósep. Hann staðfesti einnig að kurr væri i sveitinni um málefni kaupfélagsins. Hann vildi þó ekki meina að staða félagsins væri slæm eða að kaupfélagið væri að komast í þrot. Þoldu ekki gagnrýni Bjami Rafn Ingvason segist ekki kannast við neina kæru. Það hafi ekkert verið haft samband við sig. „Við Jósep höfum voðalega lítið hist og hann forðast mig eins og heitan eldinn. Ég var látinn fara í desember og stjórnarmenn hafa reynt að koma á mig höggi. Menn þoldu það ekki að ég gagnrýndi þá beint. Ég vildi fá peninga úr þessum rekstri til viðhalds á skálanum. Þeir hafa hins vegar notað pen- ingana sem komu inn úr rekstrinum til að greiða nið- ur vörur til bændanna. Þeir nota peningana frá skálan- um nú á svipaðan hátt og var gert með sláturhúsið, sem nú er búið að leggja af. Á meðan er allt viðhald og uppbygging á skálanum lát- ið sitja á hakanum." Það segir sína sögu um al- varleika málsins að bændur í sveitinni eru margir hverjir hætt- ir viðskiptum við kaupfélagið og keyra fremur um langan veg á Hvammstanga eða í önnur byggðar- lög til að kaupa inn nauðsynjavör- ur. Tveir kaupfélagsstjórar Kaupfé- lags Hrútfirðinga hafa látið af störf- um á síðustu vikum og misserum. Það eru Máni Laxdal og Guðrún Jó- hannsdóttir, sem hætti nú eftir ára- mótin. í dag er Karl Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Fossvarar ehf. á Hvammstanga, starfandi kaupfé- lagsstjóri. Hann segist hafa tekið að sér að ganga frá reikningum sem lagðir verða fyrir fulltrúaráðsfund nú i mars og síðan aðalfund kaupfé- lagsins í framhaldi af því. Hann vildi ekkert tjá sig um stöðu félags- ins að svo stöddu, enda hefði hann enn ekki heildaryfirsýn yfir hana. -HKr. Útburöarbeiöni Eigendur hússins sem kvennaat- hvarfið er í hafa lagt fram beiðni um að það verði borið út. Útburðarbeiðnin barst Sýslumannsembættinu í Reykja- vík fyrir helgi. Ef málinu verður ekki frestað áður boðar sýslumannsembætt- ið til fyrirtöku. Ef samkomulag næst ekki um afhendingartíma verður at- hvarfið borið út. Snjóflóð í Hlíöarfjalli Tvö snjóflóö hafa fallið í dal norðan Hlíðarhryggs í Hlíðarfjalli í þessum mánuði. Eitt flóðið féll fyrr í mánuðin- um og hitt í síðustu viku. Á sama tima féll krap og blautur snjór við svokall- aþa, stromplyftu, sem er efsta lyftan í fjallinu, en engar skemmdir urðu á lyftunni. Engin hætta steðjaði að skíðafólki þegar snjóflóðin féllu. Betri lífeyriskjör Geir H. Haarde ijármálaráðherra segir að það sé ekk- ert nýtt að munur sé á lífeyrisréttindum opinberra starfs- manna og starfsfólks á almennum vinnu- markaði. Sá munur hafi verið fyrir hendi í áratugi og á fleiri sviðum eins og betra fæðingaror- lof kvenna í ríkisþjónustu. Stökkbreyting í genum fslenskir læknar og vísindamenn hafa fundið nýja stökkbreytingu í gen- um sem taka þátt í sykurefnaskiptum. Þekktar era stökkbreytingar í fimm genum sem geta valdið ættlægri og arf- gengri sykursýki og fannst sjötta gerð- in í íslensku rannsókninni. - Mbl. greindi frá. Ráðist á konu Kona var flutt á slysadeild í gær- kvöld eftir að hún varð fyrir egg- vopni á heimili sínu í Grafarvogi. Atburöurinn átti sér stað um níu- leytið og var fyrrum sambýlismaður konunnar í heimsókn. Hann hugöist skaða sjálfan sig með eggvopni og reyndi konan að hindra það með fyrrgreindum afleiðingum. Hún er ekki mikið slösuð. Maðurinn, sem talið er að eigi við geðræn vanda- mál að stríða, dvelur á Landspítal- anum. Stökkbreytt flensa Búast má við að nýr stofn inflúensu komi upp í heimin- um í nánustu fram- tíð. Slíkt mun að öll- um líkindum hafa þær afleiðingar að mun fleiri veikjast en í dag þegar flensu slær niður. Haraldur Briem sóttvama- læknir segir að slík stökkbreyting geti orðið á næstu mánuðum, árum eða áratugum. - RÚV greindi frá. 10 ára fangelsi Fyrrverandi sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Ólafsfjarðar var í gær dæmdur í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða sparisjóðnum 21 milljón kr. í skaðabætur. í ákæra efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra var hann sakaður um stórfelld mnboðs- svik, bókhaldsbrot og brot á lögum um ársreikninga. - Mbl. greindi frá. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.