Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002
JÖ"V"
Fréttir
Ákæruvaldið um það hver olli dauða 9 mánaða drengs í daggæslu í Kópavogi:
Öðrum en dagföður
er ekki til að dreifa
- „meðvitað gáleysi“ en samt ekki ásetningur - engar sannanir, segir verjandi
Óþol dagfóður vegna margra bama
var orsök þess að hann missti stjóm á
sér og hristi 9 mánaða dreng sem hafði
verið óvær, með þeim afleiðingum að
bamið lést á sjúkrahúsi tveimur dögum
siðar. Hann sýndi af sér „meðvitað og
stórfellt gáleysi“ þó svo að ekki sé byggt
á því að brot hans hafi verið framið af
ásetningi.
Þetta er m.a. niðurstaða Sigríðar Jós-
efsdóttur saksóknara í máli ríkissak-
sóknara gegn 37 ára dagfóður sem gefið
er að sök manndráp af gáleysi með því
að hafa hrist litla drenginn svo harka-
lega á heimili dagfóðurins í Kópavogi í
maí sl. að bamið fékk svokallað Shaken
Baby-Syndrom með þeim afleiðingum
að það lést.
Öm Clausen, verjandi mannsins,
krefst þess að umbjóðandi hans verði
sýknaður. Og ástæðan er einfóld - það
séu hreinlega engar sannanir fyrir því
að ákærði hefði framið þann verknað
sem honum er gefinn að sök. Ákæm-
valdinu hafi alls ekki tekist að sýna
fram á með áþreifanlegum hætti að það
hefði verið ákærði sem framdi verknað-
inn.
Sé litið til þess hvaða sönnunargögn
ákæruvaldið hefur varðandi það að
einmitt þessi maður en ekki einhver
annar var að verki ber á það að líta að
engin ummerki á drengnum er hægt að
rekja beint til dagfóðurins og ekkert
vitni í málinu sá hann gera drengnum
neitt. Á hinn bóginn er óumdeilt að að-
eins hann og eiginkona hans, dagmóðir-
in, vom á staðnum | p. L
fyrir utan lítil böm. I iTiMÍfífrlíllilly.
Það sem þrir dóm- óttar Sveinsson
arar munu nú m.a.
leggjast undir feld með, þangað til 1.
mars þegar dómur verður kveðinn upp,
er hvort ákæravaldinu hafi tekist að
sýna fram á að litli drengurinn hlaut þá
áverka, sem drógu hann til dauða,
einmitt á þeim tíma sem hann var einn
með dagfoðumum eða með honum og
einnig dagmóðurinni. Það vom einmitt
býsna sterkir og ákveðnir vitnisburðir
sem fram komu fyrir dóminum í gær og
einnig á fóstudag um að bamið hefði
fengið áverkana eftir að foreldrar þess
komu með það í daggæsluna að morgni
2. maí á síðasta ári og áður en sjúkrabíll
sótti bamið síðdegis sama dag.
Þáttur réttarmeinafræðingsins
Þóra Steffensen réttarmeinafræðing-
ur, sem hefur víðtæka menntun og
reynslu hér heima og erlendis á sviði
réttarrannsókna, fullyrti fyrir dómi í
gær að bamið hefði ekki getað fengið
áverka í höfði með því að detta. Allt
benti til að barninu hefði verið slegið
utan í eitthvað eða það hrist harkalega.
En hve mikið þarf til að hrista bam
þannig að það fái blæðingar og bjúg við
heila, blæðingu umhverfis mænu i
augnbotnum og blæðingar á milli ytri
og innri heilahimnu?
Þóra sagði að rannsóknir siðustu ára
bendi í sjálfu sér ekki til að böm þurfi
að hrista svo mínútum skipti til að fá
þessa áverka. Slíkt geti varað í innan
við mínútu og konur geti gert slíkt á
sama hátt og karlmenn. Hins vegar
sagði hún að þeir áverkar sem umrædd-
ur drengur fékk hefðu verið það miklir
að útilokað væri annað en að hann hefði
fallið í ákveðið meðvitundarleysi senni-
lega sekúndum eftir að hann fékk þá.
„Þau hætta að gráta og beijast þegar
þau fá svona áverka og liggja með lokuð
augu eins og í svefni,“ sagði Þóra
Hver var dauðaorsökin?
Heili bama yngri en 2ja ára er vatns-
meiri og viðkvæmari en í þeim sem eldri
era. „Höfuðkúpan er mýkri og heldur
ekki eins vel að,“ sagði Þóra og benti á að
heili svo ungra bama sé þyngri hlutfalls-
lega og hálsvöðvar veikari.
Þóra sagði að ólíklegt sé að böm fái
Réttur er settur í Hafnarfirði
Dómurinn er fjölskipaöur. Þrír dómarar í Héraösdómi Reykjaness hafa tekiö máliö til dóms. Niöurstaöa
þeirra mun liggja fyrir 1. mars.
ákverka sem þessa eftir fall í heima-
húsi. Þegar hún var spurð nánar út í
hve mikið þurfi til að fá áverka sem
leiða til Shaken Baby-Syndrom sagði
hún að það þyrfti um þriggja metra fall
eða högg eins og í hörðum árekstri í bil.
„Það era þessir snúningskraftar sem
era svona hættuleg-
ir fyrir heila lítilla
blaöamaður bama,“ sagði Þóra.
Er Jónas Jó-
hannsson dómformaður spurði hvort
mögulegt væri að bamið hefði hlotið
ákverkana fyrir klukkan níu umrædd-
an morgun, það er áður en það kom í
daggæsluna, svaraði hún að slíkt væri
útilokað.
En hver var þá dauðaorsökin?"
spurði dómarinn.
Þóra sagði að tog sem varð í heila-
stofninum hefði valdið heilabjúg sem
lokaði fyrir blóðrás og það hefði orsak-
að heiladauða. Hristingur hefði valdið
heilaskemmdunum. Hún sagði að 60
prósent þeirra bama sem deyja af þess-
um orsökum séu drengir. Gerendur í
slíkum tilfellum era taldir vera 2,2 hjá
körlum á móti 1,0 hjá konum.
Þegar dómarinn hélt áfram að spyija
vildi hann fá svar um það hvenær bam-
ið hlaut áverkana. Þóra svaraði því þá
til að sekúndur hefðu liðið þar til það
féll í meðvitundarleysi.
Dagfaðirinn tvísaga
Sækjandinn í málinu, Sigríður Jós-
efsdóttir, sagði í ræðu sinni að dagfaðir-
inn, sem er ákærður fyrir að hafa vald-
ið baminu áverkunum, hefði vísvitandi
greint rangt frá við lögreglurannsókn.
Hann hefði fyrst sagt að 8-9 böm hefðu
verið á heimilinu en síðan hefði komið
á daginn að 21 bam var þar umræddan
dag. Sigríður sagði að maðurinn hefði
fyrst greint frá því að hann hefði hringt
á Neyðarlínuna 1-2 mínútum eftir að
ljóst varð að eitthvað alvarlegt væri að
drengnum. Síðan hefði sjúkraflutninga-
maður upplýst að einhver á staðnum
hefði sagt að um hálf klukkustund hefði
liðið. Auk þess hefði maðurinn fyrst
sagst hafa verið klukkustund í burtu
um morguninn en símaskráning hefði
sýnt að hann hefði verið um tvær
klukkustundir í burtu.
Sækjandinn sagði að maðurinn hefði
sýnt af sér „meðvitað og stórfellt gá-
leysi“ en það hefði ekki verið af ásetn-
ingi. Hún sagði að ákærði gæti hafa haft
hugboð um hvað verknaðurinn myndi
hafa í för með sér. En með gáleysinu sé
þeim skilyrðum fullnægt sem gera þarf
til að maðurinn fái refsingu.
Hvað varðar dómafordæmi er litlu til
DV-MYNDIR GVA
Vitniö - réttarmeinafræöingurinn meö gögn sín
Þóra Steffensen var hátt í 2 klukkustundir í vitnastúku aö bera vitni. Sak-
sóknari, dómarar og verjendur lögöu allir fyrir hana spurningar.
að dreifa í þeim efnum. Sækjandinn
sagði að í dómi frá 1964 hefði maður ver-
ið dæmdur fyrir að slá höfði bams utan
í vegg. Sá maður hlaut 2ja ára óskilorðs-
bundið fangelsi.
Sigríður sagði að verði ákærði sak-
felldur telji hún rétt að refsing manns-
ins fyrir brot gegn 215. grein hegningar-
laganna fyrir manndráp af gáleysi verði
óskilorðsbundið.
í málinu leggja foreldrar litla drengs-
ins fram samtals 10 milljóna króna
skaðabótakröfu á hendur ákærða. Hann
og eiginkonan eru einnig ákærð fyrir
brot á hegningarlögum með því að hafa
haft mörg böm í daggæslu umfram
heimildir bæjaryfirvalda. Verjendur
fólksins fara báðir fram á sýknu í þvi
sambandi.
/£ sQ'JttfíóW
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 18,14 18,19
Sólarupprás á morgun 09,07 09,10
Síödegisflóð 23,03 03,42
Árdeglsflófi á morgun 04,24 08,57
Veöríö í kvöld
©
Búist er við stormi
Meira en 20 m/s sunnanlands í
dag. Gengur í austan 18-23 m/s
með snjókomu og skafrenninngi
sunnanlands fyrir hádegi og þykknar
upp norðan til. Dregur heldur úr
vindi sunnan til í kvöld og lægir um
land allt í nótt.
Frost áfram
Suðvestan og vestan 8-13 m/s og
snjókoma eða él, einkum
vestanlands á morgun. Frost 0 til 8
stig að deginum, minnst syðst.
Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur
Hiti 0' Hiti 0“ Hiti 0"
til -8' til -8° til -8’
Vindun Vindur: Vindur:
8-13»'» 8-13 "V* 8-13’"/»
«- 4» 4*
Austlæg átt, Noröanétt meö Noröanátt meö
10-15 m/s og snjókomu eöa snjókomu eöa
dálitil snjókoma iljagangl noröan éljagangl noröan
sunnanlands, en II- Talsvert frost tll. Talsvert frost
hægari og él um mest allt um mest altt
fyrir noröan. land. land.
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassvifiri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
Veöriö
AKUREYRI léttskýjaö -9
BERGSSTAÐIR léttskýjaö -14
BOLUNGARVlK léttskýjaö -7
EGILSSTAÐIR léttskýjaö -9
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö -5
KEFLAVÍK skýjað -3
RAUFARHÖFN alskýjað -6
REYKJAVÍK skýjað -5
STÓRHÖFÐI skafrenningur -1
BERGEN snjóél -2
HELSINKI haglél 1
KAUPMANNAHÖFN rigning 2
ÓSLÓ skýjaö 0
STOKKHÓLMUR 0
ÞÓRSHÖFN skýjað -1
ÞRÁNDHEIMUR snjóél 0
ALGARVE léttskýjaö 6
AMSTERDAM rigning 8
BARCELONA mistur 5
BERLÍN léttskýjað 3
CHICAGO alskýjað 8
DUBLIN hálfskýjaö 7
HALIFAX slyddduél -8
FRANKFURT skýjaö 2
HAMBORG rigning 3
JAN MAYEN heiðskýrt -8
LONDON skýjaö 8
LÚXEMBORG þokumóöa 1
MALLORCA léttskýjaö 3
MONTREAL heiöskýrt -8
NARSSARSSUAQ heiðskýrt -12
NEW YORK heiöskýrt 2
ORLANDO léttskýjaö 9
PARÍS skýjaö 3
VÍN skýjaö 4
WASHINGTON heiöskírt -6
WINNIPEG léttskýjaö -8