Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Síða 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002
DV
Neytendur
Könnun DV á verði matarkörfu:
Allt að 9% verðlækkun
- mest í Fjarðarkaupum og Nóatúni. Bónus þó enn með lægsta verðið
Miðað við könnun sem neytenda-
siðan gerði fyrir tæpum mánuði
hefur verð á matarkörfu lækkað að
meðaltali um 5,3% í 10 verslunum á
höfuðborgarsvæðinu þennan tæpa
mánuð sem liðinn er, en samsvar-
andi könnun var gerð í gær. Verð
körfunnar lækkaði í öllum verslun-
unum, allt að 9% þar sem mest var.
Farið var í Bónus í Kringlunni,
Samkaup í Hafnarfirði, 10-11 í Lág-
múla, Nýkaup í Kringlunni, Krón-
una vestur í bæ, 11-11 í Hafnarfirði,
Nóatún í JL-húsinu, Fjarðarkaup i
Hafnarfirði, Hagkaup í Skeifunni,og
Nettó í Mjódd.
Allt aö 9% lækkun
Eins og áður segir lækkaði verð
matarkörfunnar í öllum verslunun-
um, mest í Fjarðarkaupum í Hafnar-
firði og Nóatúni, eða um 9%. At-
hyglisvert er að þegar fyrri könnun-
in var gerð var þegar búið að lækka
allt verð í Fjarðarkaupum um 3%
og bætist lækkunin nú ofan á. Þess-
ar lækkanir gera það að verkum að
verð körfunnar í Fjarðarkaupum er
hið næstlægsta í þessari könnun en
yfírleitt hefur verslunin lent í 4.-5.
sæti. í Samkaupum og 11-11 lækkaði
verðið á körfunni um 7% og um 6%
í Nýkaupi. í Bónus og 10-11 mátti sjá
5% lækkun og 3% lækkun varð á
matarkörfunni í Hagkaupum. Krón-
an og Nettó reka svo lestina með
lækkun upp á 1%.
Verð körfu lægst í Bónus
Sem fyrr var verð matarkörfunn-
ar lægst í Bónus þar sem hún kost-
aði 5.832 kr og næstlægst í Fjaröar-
kaupum þar sem hún kostaði 6.351
kr. sem er um 9% hærra en verð
Bónuskörfunnar. Fjarðarkaup hef-
ur því skotið bæði Krónunni og
Nettó aftur fyrir
sig en þær versl-
anir hafa iðulega
mælst með lægra
verð en Fjarðar-
kaup. Krónan er
með þriðja
lægsta verðið i
könnuninni,
6.425 kr., og
Nettó var með
fjórða lægsta
verðið en þar
kostaði karfan
6.610 kr. í fimmta
sæti var síðan
Hagkaup með
körfu sem kost-
aði 7.292 kr.
Dýrustu mat-
arkörfuna að
þessu sinni var
að finna i Ný-
24/01 18/02 24/01 18/02 24/01 18/02 24/01 18/02 24/01 18/02 24/01 18/02 24/01 18/02 24/01 18/02 24/01 18/02 24/01 18/02
Fanta,21 199 199 229 229 203 189 229 229 192 192 221 221 229 229 221 221 191 185 229 229
Kötlu vanllludropar 54 54 82 79 52 52 83 73 52 52 73 71 83 73 72 72 49 49 79 73
Maxwell house kaffl 365 365 449 459 423 343 468 439 379 349 435 435 468 449 429 429 349 339 442 449
Kornax hvelti, 2 kg 86 86 97 94 85 85 97 94 83 83 92 91 97 94 95 93 75 79 96 93
Ora grænar baunlr, 1/2 dós 59 59 74 73 56 66 75 71 57 57 71 69 79 74 71 71 55 54 65 71
Cocoa Puffs,553 g 398 398 465 455 397 385 475 459 379 379 443 399 479 479 443 443 369 369 459 449
Heinz bakakir baunir, 1/2 dós 59 59 63 69 50 52 75 69 57 57 63 63 75 69 63 63 52 50 59 61
Ballerina kex 136 129 157 149 134 121 157 157 129 124 139 133 157 157 139 139 119 119 149 135
Prlngles kartöfiuflögur 195 195 216 239 189 189 249 210 179 189 219 219 249 249 219 209 169 169 245 235
Dansukker púHursykur 79 90 102 96 86 86 101 96 76 76 95 95 101 96 95 95 74 74 99 95
Royal lyftiduft, dós 249 249 299 259 289 246 299 239 241 239 288 288 299 239 317 288 229 229 289 249
Nesqulck, 500 g áfylllng 289 269 310 329 286 256 343 343 279 259 313 313 343 349 313 313 259 249 339 325
Rltz kex 85 80 109 105 93 77 109 90 99 77 97 97 109 109 97 97 75 69 109 99
Maraþon color, þvottaefnl 599 579 797 689 668 571 699 689 598 579 695 675 752 689 687 677 559 549 752 689
Biotex blettaspray, 245 275 309 298 280 231 309 309 238 249 279 279 309 309 289 279 229 229 299 289
Smjörvl 159 159 189 189 164 172 185 185 159 158 166 166 189 189 169 166 157 155 189 189
Camembert ostur 249 249 299 299 241 232 269 295 244 244 248 248 299 299 264 249 199 225 299 249
Léttmjólk, 11 77 77 86 86 80 77 85 85 77 76 84 84 59 86 85 84 76 76 86 86
SS pylsur, 1 kg 828 828 828 828 803 803 828 828 745 828 828 828 828 828 828 828 745 745 828 828
Feta ostur í kryddolfu 299 299 355 329 290 242 329 349 298 298 340 283 355 355 328 328 279 245 355 285
1 kg appelsínur 149 159 229 229 174 145 219 198 148 155 195 185 229 199 229 174 129 129 229 198
lkgkiwl 289 289 369 358 315 315 359 357 259 275 349 349 369 358 369 349 239 239 369 358
1 kg bananar 198 192 259 169 192 192 252 244 189 189 248 242 259 252 248 243 185 179 259 244
1 kg perur 189 209 289 258 239 232 279 255 215 231 259 245 289 257 269 185 185 181 289 255
1 kg hvítkól 155 159 198 192 133 133 198 178 145 145 189 176 199 189 194 179 119 119 198 178
1 kg sítrónur 192 183 249 209 172 172 239 198 179 178 209 184 249 209 249 189 149 139 249 189
1 kg gúrkur 519 448 598 559 512 445 578 559 499 419 559 557 599 559 599 559 439 359 598 559
1 kg kfnakál 298 273 448 328 319 242 378 319 268 268 348 297 449 329 449 297 378 229 448 299
Samtals 6698 6610 8154 7655 6925 6351 7966 7617 6463 6425 7545 7292 8201 7773 7830 7319 6132 5832 8106 7458
Breyting frá könnun 24Jan 2002 -1% -7% -9% •5% -1% -3% -6% -7% -5% -9%
kaupi þar sem hún kostaði 8.201 kr.
sem er 33% hærra verð en í Bónus
þar sem hún var ódýrust. 11-11 var
með næstdýrustu körfuna á 7.655
kr. og þar á eftir var 10-11 með 38
kr. dýrari körfu, eða á 7.617 kr.
Nóatún er með körfu sem kostar
7.458 kr. og er því fjórða dýrasta
karfan þar. Hjá Samkaupum kost-
aði matarkarfan hins vegar 7.319
kr. og er hún því fimmta dýrasta
karfan, eða sjötta ódýrasta, eftir því
hvernig á málin er litið.
Verðkönnun í stórmörkuðum
Á innkaupalistanum voru 32
vörutegundir en þegar upp var
staðið enduðu 28 þeirra í körfunni
að þessu sinni. Verðið á þeim var
svo borið saman við hvað þær kost-
uðu þann 24. janúar sl.
Ef vörutegund fékkst ekki í fleiri
en einni verslun var hún ekki höfð
með í könnuninni. Væri hún hins
vegar til i öllum verslunum nema
einni var notað reiknað meðalverð.
Slíkt var gert í alls 9 skipti í könn-
uninni í gær og má sjá reiknað
meðalverð i töflunni hér á síðunni.
Athuga ber að reiknað meðalverð
getur hækkað verð hjá þeim versl-
unum þar sem verðið er lægst og
lækkaö hjá þeim sem verðið er
hæst. Eins er rétt að taka fram að
hér er eingöngu verið að bera sam-
an verð en ekki er lagt mat á vöru-
val verslana, umhverfi þeirra, þjón-
ustu eða annað sem getur haft áhrif
á verðmyndun í þeim. -ÓSB
DV MYND: E.ÓL
Minna úr buddunni
Hvort viöskiptavinir þessarar verslunar hafi fundið fyrir
verölækkunum á matvöru skal ósagt látiö en matarinn-
kaupin eru stór útgjaldaliður á flestum heimilum.
Fréttatilkynning:
Breytt sorphirða
í Reykjavík
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkurborgar hefur samþykkt
að taka upp svokallað tíðni/rúm-
málskerfi sem innsöfnunaraðferð
sorps 1 borginni. Framkvæmd þessa
kerfis felst í því að á öll sorpílát
verður sett örflaga ásamt strika-
merki sem innihalda tölulegar upp-
lýsingar sem tengja sorpílát við til-
tekna húseign.
Á sorpUátið verður sett merki
sem íbúar nota tU að gefa tU kynna
hvort þeir óska eftir losun sorpi-
látsins. Þannig verður hægt að
fylgjast með og skrá hversu oft
sorpUát eru tæmd fyrir tUtekna
húseign og mun fjöldi tæminga
hafa áhrif á sorphirðugjaldið. Sem
fyrr verður farið vikulega um öU
hverfi Reykjavíkur en aðeins þær
tunnur tæmdar sem gefið er tU
kynna að skuli tæmdar.
HreinsunardeUd Reykjavíkur-
borgar hefur undanfarin tvö ár
staðið fyrir tilraunaverkefnum um
breytta og hagkvæmari sorphirðu í
borginni. Þrjár aðferðir voru reynd-
ar; vigtun sorps, hirðing á 10 daga
fresti og tíðni/rúmmálskerfið. Nið-
urstaðan var sú að tíðni/rúmmáls-
kerflð kom best út og skU af dag-
blöðum og femum tU endurvinnslu
jukust mest á grenndarstöðvum þar
sem tilraunm með þetta kerfi átti
sér stað. í Breiðholtshverfi þar sem
tUraunin með það átti sér stað nam
aukningin 47% á meðan aúkningin
var um 4% í borginni aUri. Fjöldi
tæminga sorpUáta minnkaði einnig
um 20%.
Framkvæmd þessa nýja kerfls
mun hefjast í Breiðholtshverfi hinn
1. mars næstkomandi en stefnt er
að þvi að það verði komið tU fram-
kvæmdar í öUiun hverfum Reykja-
víkurborgar í lok þessa árs.
Ökutæk j atryggingar:
Hærri afslættir veittir
ÖU tryggingafélögin hafa hækkað
afslætti af iðgjöldum ökutækja-
trygginga einstaklinga og leggja
þannig sitt af mörkum tU að halda
verðbólgunni í skefjum en fuUtrúar
frá ASÍ hafa heimsótt þau undan-
farna daga.
Hjá VÍS lækkuðu iðgjöld öku-
tækjatrygginga og fjölskyldutrygg-
inga hinn 4. febrúar sl. og segir Egg-
ert A. Sverrisson, framkvæmda-
stjóri einstaklingstrygginga, að
lækkunin hafi falist í hærri afslætti.
„Við héldum gjaldskránni óbreyttri
en breyttum föstum afsláttarkjörum
sem ákveðnar tryggingar, eins og
fjölskyldutryggingar, veita þeim
sem eru með ökutækjatryggingar.
HeUdaráhrifin eru 3,7% lækkun á
iðgjöldum ökutækjatrygginga.“
Sem dæmi má nefha að afsláttur
af ökutækjatryggingu sem aðUd að
F+ tryggingu veitir hækkar úr 15%
í 17% og aðUd að Kjama veitir nú
14% afslátt af ökutækjatryggingu í
stað 10% áður. Auk þess hækkar
hæsti bónus í kaskótryggingu um 5
prósentustig og þeir sem tryggja
fleiri en einn bU fá hærri afslátt á
fjölskyldutryggingu, 25% í stað 20%
áður. Óbreytt gjaldskrá gUdir fyrir
þá sem ekki eru með fjölskyldu-
tryggingu.
Við áttum nýverið fund með for-
svarsmönnum ASÍ,“ segir Guð-
mundur Jónsson, aðstoðarmaður
framkvæmdastjóra Sjóvár-Al-
mennra. „Þá greindum viö þeim frá
því sem við höfum verið að gera en
Dýrt að tryggja
Mörgum bíleigandanum hefur þótt iögjöld ökutækjatrygginga þungur baggi aö
bera. Nú hafa tryggingafélögin aukiö ýmsa þá afslætti sem viöskiptavinunum
standa til boöa.
við endurskoðum okkar iðgjöld
reglulega. í janúar leiddi sú endur-
skoðun tU þess að við lækkuðum
ábyrgðar- og kaskótryggingar öku-
tækja einstaklinga um 2%. Sú lækk-
un nemur á annað hundrað milljón-
um hjá okkur. Við vorum því
kannski á undan átakinu tU að
halda verðbólgunni í skefjum en lít-
um þannig á að þetta sé okkar fram-
lag tU þess.“ Guðmundur segir að
lækkunin nemi um 4000 kr. á hvern
einkabU á ári sem er í kaskó og á
mörgum heimUum eru tveir bUar
þannig að sparnaðurinn getur
numið mn 8000 kr.
Gunnar Felixson, forstjóri Trygg-
ingamiðstöðvarinnar, segir að af-
slættir á iðgjöldum kaskótrygginga
á einkabUum hafi hækkað í janúar.
„Við breyttum bónuskerfi kaskó-
trygginga þannig að hæsti bónus
varð 55% i stað 50% áður. Það þýð-
ir 10% lækkun á iðgjöldum tU
þeirra sem eru í hæsta bónusUokki,
en flestir viðskiptavina okkar eru í
honum. Gjaldskráin er því óbreytt
en bónuskerfið breytist."
FuUrúar ASÍ heimsóttu Trygg-
ingamiðstöðina í fyrradag og var
þeim gerð grein fyrir þessum breyt-
ingum. -ÓSB