Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Page 10
10 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 DV REUTER-MYND George Speight Uppreisnarforinginn á Fídjí slapp naumlega vid gálgann. Speight dæmdur í lífstíðarfangelsi George Speight, leiötogi valda- ræningja á Fídjí, hóf í morgun að af- plána lífstíðarfangelsisdóm fyrir landráð. Fáir trúa því þó að hann eigi eftir að dvelja á bak við lás og slá það sem hann á eftir ólifað. Speight játaði sekt sína fyrir dómi í gær og brast í grát þegar hann var dæmdur til hengingar. Forseti landsins breytti dauðadóm- inum hins vegar í lífstíðarfangelsi nokkrum klukkustundum síðar. Speight fór fyrir ílokki manna sem hélt indverskum forsætisráð- herra landsins og öðrum ráðherrum í gíslingu í 56 daga vorið 2000 og kröfðust aukinna réttinda fyrir inn- fædda Fídjíbúa. Margir telja að játn- ing kaupsýslumannsins fyrrverandi muni leiða til þess að allur sann- leikurinn um valdaránið muni aldrei verða leiddur i ljós. Reiði almennings bitnar á bönkum Hundruð reiðra Argentínubúa skeyttu skapi sínum á bönkum sín- um í gær til að mótmæla því að stjórnvöld hafa fryst bankainni- stæður þeirra. Mótmælendurnir lokuðu götum meðal annars í höfuðborginni Buen- os Aires og máluðu ókvæðisorð í garð stjómvalda á veggi bankabygg- inganna. Stjómvöld gripu til þess ráðs fyrir allnokkru að frysta bankainnistæður landsmanna til að koma í veg fyrir hrun bankakerfis- ins í efnahagskreppunni sem hefur einkennt argentínskt efnahagslíf undanfarin fjögur ár. Gjaldeyrismarkaður í Buenos Aires hertu öryggisgæslu í gær af ótta við átök. Líkbrennslan í Noble Tala líkanna sem fundist hafa í landi líkbrennslunnar í Noble í Georgíu er komin í 139. Líkunum í Noble fjölgar enn Yflrvöld í Georgíu í Bandaríkjun- um tilkynntu í gærkvöld að 139 lík hefðu þegar fundist í nágrenni lík- brennslunnar í bænum Noble og ætti þeim eflaust enn eftir að fjölga til muna. Umsjónarmaður líkbrennslunn- ar, Ray Brent Marsh, hefur verið handtekinn í annað sinn og er nú ákærður fyrir glæpsamlegt afhæfi eftir að hafa áður verið handtekinn fyrir svik í fyrradag og síðan látinn laus. Málið uppgötvaðist þannig að hundur gróf upp hauskúpu eins hinna látnu og fer nú fram skipu- lögð leit á 18 ekru landi líkbrennsl- unnar, sem undanfarin ár hefur tekið á móti líkum frá um 30 útfararstofnunum í þremur ríkjum. REUTER-MYND Nekt gegn kjarnorku Lögregla í Sydney í Ástralíu leiöir burt konu sem fækkaöi fötum til aö leggfa áherslu á þá skoöun sína aö ekki ætti aö byggja nýjan kjarnaofn til aö framleiöa rafmagn fyrir borgina. Tveir voru handteknir í mótmælaaögerðunum. Asíuferð Bandaríkjaforseta: Búist við hörðum mótmælum í Seoul George W. Bush Bandarikjaforseti þakkaði japönsku þjóðinni dyggan stuðning í kjölfar hryðjuverka- árásanna í Bandaríkjunum, þegar hann ávarpaði japanska þingið i gær. Hann sagði að þjóðimar hefðu bund- ist tryggum vinaböndum sem heföi bæði stuðlað að velgengni og friði á Kyrrahafssvæðinu. „Viðbrögð ykkar við hryðjuverka- ógninni hefur endurspeglað sameigin- legan styrk okkar og nauðsynlegan stuðning Japans í alþjóðlegum aðgerð- um sem hófust í Asiu,“ sagði Bush og bætti við að hann væri sannfærður um að 21. öldin yrði „öld Kyrrahafs- ins“ og lofaði þjóðum svæðisins full- um stuðningi. „Við munum sýna styrk Bandaríkj- anna í raun og halda áfram nauðsyn- legum stuðningi okkar við Filippseyj- ar, Ástralíu og Taíland, eins og við höfum gert hingað til. Við munum halda áfram að halda aftur af Norður- Kóreumönnum og með samvinnu við Bush ávarpar japanska þingiö. Japan stuðla að öryggi i Asíu. Við munum heldur ekki gleyma skuld- bindingum ykkar og tryggð við Taív- an,“ sagði Bush sem er þriðji forseti Bandaríkjanna til að ávarpar jap- anska þingið á eftir þeim Reagan árið 1983 og Clinton árið 1996. Bush vék síðan að efnahagsástand- inu í landinu og lýsti yflr stuðningi sínum við áætlanir Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, um umbætur til að rétta við slakan efnahag þjóðarinnar. „Það er betra að taka á málunum heldur en bíða,“ sagði Bush og reyndi eftir megni að sýna Koizumi stuðning við nýlega kynntar efnhagsaðgerðir sem hann hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir, jafnvel meðal eigin flokks- manna. Eftir tveggja daga stopp í Japan hélt Bush áleiðis til Suður-Kóreu í morgun, þar sem hann mun án efa mæta mikilli andúð vegna ummæla sinna um nágrannaríkið í norðri, þeg- ar hann nefndi það eitt af „öxulveld- um hins illa“, ásamt írak og íran. Bú- ist var við hörðum mótmælum, en mótmælafundir hafa verið skipulagð- ir víða um landið og er ströng örygg- isgæsla við bandaríska sendiráðið í Seoul. Kostunica Júgóslavíuforseti gagnrýnir réttarhöldin í Haag: Milosevic fær tækifæri til að spyrja fyrsta vitnið í þaula Búist er við að Slobodan Milos- evic spyrji fyrsta vitnið þegar stríðsglæparéttarhöldunum yfir honum verður fram haldið í Haag i Hollandi í dag. Vitnið er aldurhnig- inn albanskur stjórnmálamaður frá Kosovo, Mahmut Bakalli, sem sak- sóknarar kölluðu fyrir í gær til að bera vitni um meinta glæpi gegn mannkyninu sem Milosevic framdi í Kosovo. Hundruð vitna munu bera vitni gegn Milosevic í Haag áður en yfir lýkur þegar ákærur fyrir þjóðar- morð í Bosníu og glæpi gegn mann- kyninu verða teknar fyrir síðar. Bakalli sagöi réttinum í gær að Milosevic hefði rekið eins konar að- skilnaðarstefnu gegn albanska meirihlutanum í Kosovo á síðasta áratug tuttugustu aldarinnar. Þá greindi Bakalli, sem eitt sinn var REUTER-MYND Stuðningur heima fyrir Milosevic, fyrrum Júgóslavíuforseti, nýtur mikils stuönings í Serbíu. háttsettur í kommúnistaflokknum, frá því að einn embættismanna Milosevics hefði á árinu 1998 sagt sér frá áætlunum Serba um að leggja byggðir Albana, nærri ári áð- ur en farið var að reka Albani skipulega frá Kosovo. Vojislav Kostunica, forseti Júgóslavíu, gagnrýndi í gær fyrstu skrefin í réttarhöldunum yfir Milos- evic og sagði að saksóknarar greindu aðeins yfirborðslega frá at- burðunum. Kostunica, sem lítur á sig sem hófsaman þjóðemissinna, dró í efa margar fullyrðingar saksóknara. Stuðningsmenn Milosevics voru hrifnir af tveggja daga ræðu sak- bomingsins við upphaf réttarhald- anna og sögðu hana hafa verið snilldarlega. Fjórir af hverjum tíu Serbum gáfu henni hæstu einkunn. NATO framlengir gæslu George Robert- son, framkvæmda- stjóri NATO, sagði í gær að bandalagið hefði ákveðið að framlengja dvöl friðargæslusveita sinna í Makedóníu um sex mánuði, eins og stjórnvöld í Skopje höfðu óskað eftir. Kóngur hvetur til einingar Konungurinn í Nepal hvatti til einingar þjóðarinnar í morgun í kjölfar mannskæðustu árásar skæruliða maóista um helgina þar sem á annað hundrað voru drepin. Örygginu ógnað Varað hefur verið við því að ör- ygginu í Afganistan standi ógn af flóttamönnum úr röðum al-Qaeda sem enn eru í landinu og af átökum milli fylkinga innan stjómarinnar. Cheney talar um öxulinn Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, sagði í gær að Bush for- seti hefði haft ærnar ástæður til að vara við hættunni af írak, íran og Norður-Kóreu, sem hann kallaði „öxulveldi hins illa“ á dögunum. Leiðtogar varkárir Schröder Þýskalandskanslari og Chrétien, forsætisráðherra Kanada, vildu ekki hafa uppi neinar vanga- veltur í gær um hugsanlegar hern- aðaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Saddam Hussein og írak. Páfi særir út djöfsa Jóhannes Páll páfi hefur þrisvar sinnum á 23 ára páfaferli sært út illa anda. Síðasta tilvik- ið var í september í fyrra, að sögn eins helsta djöflasær- ingamanns páfa- garðs. Þá voru illir andar reknir úr tvítugri konu. Dómurinn staðfestur Æðsti áfrýjunardómstóll Perús staðfesti í gær tuttugu ára fangelsis- dóm yfir ungri bandarískri konu, Lori Berensen, sem var dæmd fyrir að hjálpa marxískum skæruliðum. Jospin lítt hrifinn 0Lionel Jospin, for- sætisráðherra Frakk- lands, og franskir sósíalistar, eru lítt hrifnir af hugmynd- um Tonys Blair, for- sætisráðherra Bret- lands, og Silvios Berlusconis, forsætisráðherra ítal- íu, um efnahagsumbætur hjá Evr- ópusambandinu. Þar er meðal ann- ars hvatt til aukins sveigjanleika og hreyfanleika á vinnumarkaði ESB. Dæmt í Færeyjum Liðlega þrítugur maður var dæmdur í 15 mánaða fangelsi í gær fyrir aðild að stærsta fikniefnamál- inu í Færeyjum. Ókeypis blað umdeilt Útgáfa ókeypis dagblaðsins Metro í Frakklandi hefur valdið miklum deilum og andstöðu verkalýðshreyf- ingarinnar. Bókagerðarmenn eyðilögðu fimmtíu þúsund eintök af blaðinu í Marseille.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.