Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Side 13
13 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 DV Velmegun fyrir eitt lík Það er farið eiginlega allan skalann í sýningu MR á Milljónamærin snýr aftur, frá algerri lágkúru sem með- al annars birtist í stöðugu grútfúlu klósettsturti meðan beðið er þess að sýning hefj- ist og upp í áhrifamikla leik- list sem hvað eftir annað kraftbirtist í mögnuðum hópsenum á sviðinu. Þessi blanda á ekki illa við leikrit Dúrrenmatts um forríku kerlinguna sem kemur í heimsókn í heimabæ sinn því það fer sjálft allan skal- ann, frá auviröilegasta gysi til hæstu dramatískra hæða. Maður verður steinhissa á því að svona verk skuli ekki oftar tekið til sýninga í at- vinnuleikhúsum heimsins eins og það spyr ágengra spurninga um siðferði og græðgi - en kannski er það ástæðan. MR-ingar geta ekki lagt höfuðáherslu á aldur aðalper- sóna eins og Dúrrenmatt gerir i sínum titli sem var þýddur beint þegar leik- ritið var sett upp hjá LR fyrir löngu, Sú gamla kemur í heimsókn. „Eftir“ Andy Warhol Baunadós í aö- göngumiöa staö og leikskrá. Titill Gísla Rúnars færir verkið strax mun nær nyi- um áhorfendum (og leikurum). Þó að okkur sé sagt í textan- um að áratugir séu liðnir síðan Kamilla Trump- gates var flæmd úr sínum heimabæ, þá fátæk og ólétt, nú moldrík á sjöunda eða áttunda eigin- manni, þá er sterkt að sjá ung andlit á persón- unum. Sársauki þeirra verður nákomnari. Milljónamærin er leikrit um siðferðileg álita- frúrnar á gulu skónum í búðinni hjá Uluga. En Dúrrenmatt gleymir held- ur ekki áhorfendum Glæpur Uluga er ennþá hræðilegur í augum okk- ar. Hann brást ungri unn- ustu sinni óléttri, hann fékk vini sína til að sverja rangan eið og segjast hafa sofið hjá henni líka, hann kom á hana slíku óorði að hún átti ekki annarra kosta völ en láta það ræt- ast - og allt vegna þess að hann vildi frekar kvænast til fjár. Hann hefur sýnt af sér slíka varmennsku að manni finnst hann næst- um því réttdræpur. Eða hvað? Þetta er metnaðar- mikið val hjá aðstandend- um Herranætur þvi um- ræða verksins heldur áfram lengi í hugum áhorfenda. Leiklist mál. Að visu finnst manni fyrst (eins og íbúum Kamra- hlíðar) að þetta sé ekkert álita- mál: Auðvitað drepi þeir ekki einn af sínum vegna gamalla ástamála, þó að Kamilla lofi þeim í staðinn að skíta nokkrum millj- ónum sem muni lyfta þeim úr ör- birgð til auðs. En áður en varir eru þeir flæktir í net peninganna, famir að eyða fé sem þeir eiga ekki í vissu þess að „einhver" muni koma fram hefndum fyrir Kamillu. Þetta varð magnaður kafli í sýningunni, til dæmis gleymast þær seint DV-MYND HARI Milljónamærin hittir æskuástina Hún hyggur á grimmar hefndir fyrir gamla Af aðalleikurum þótti harma. mér Magnús Davíð Norð- dahl öruggastur í hlut- verki borgarstjórans og baðsenan hans dillandi skemmtileg. En þau snertu mann líka Sunna María Schram og Árni Egill Örnólfsson í hlut- verkum elskendanna fornu, Kamillu og Rluga. Senan með þeim einum í skóginum sem teygð var listilega með myrkvun, var ein sú næmasta; annars voru hópsenurnar yflrleitt styrkur sýn- ingarinnar, fantalega vel unnar af Magnúsi Geir leikstjóra. Allur umbúnaður sýningarinnar er vel hugsaður. Sviðið hryllilega ljótt enda bær- inn á vonarvöl, búningar litlausir (margþvegn- ir) framan af en síðan glaðna litir. Hugmyndin með gulu skóna frábær. Tónlistin skemmtileg. Sýningarskrá með sínu kinki til Andy Warhol er gerð af húmor og metnaði. Silja Aðalsteinsdóttir Herranótt sýnir í Tjarnarbíó: Milljónamærin snýr aftur. Höfundur: Friedrich Durrenmatt. Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson. Leikmynd og búningar: Halla Gunnarsdóttir. Lýsing: KSri Gíslason. Tónlist: Medectophobia. Leik- stjórn: Magnús Geir Þórðarson. Leiklist - tónlist Tvær konur í inniskóm og maður með gítar DV-MYND EINAR ORN Jóhanna Jónas og Margrét Eir Bráöskemmtileg sýning og alvarleg, falleg og fyndin, framúrstefnuleg en samt hræðilega gamaldags. Þann fyrsta febrúar siðastliðinn voru liðin eitt hundrað ár frá fæðingu Langstons Hughes, (1902-1967), lárvið- arskálds blakkra Bandaríkjamanna. Hughes var umdeildur, bæði meðal hvítra og svartra, fyrir skoðanir sínar og baráttumál. Hann lenti í útistöðum við óamerísku nefndina, sem kennd hefur'verið við Joseph R. McCarthy öldungadeildarþingmann; beitt háðska hans skapaði honum óvild meðal svartra rithöfunda. Hughes stundaði nám við Columbia University, dvaldi um hríð í Suður- Ameríku og bjó í Sovétríkjunum í eitt ár. Hann þýddi verk eftir ljóðskáld, til dæmis Léopold Senghor og Federico Garcia Lorca. Hughes skrifaði skáld- sögur, leikhúsverk, ævisögur, blaða- og tímaritagreinar, barnabækur, óp- eruhandrit og síðast en ekki síst um baráttu vinar síns Jesse Simples, hins dæmigerða svarta alþýðumanns í Harlem. Sögur Simples vöku mikla kátínu þegar þær komu fyrst á prenti en jafnframt sköpuðu þær höfundi sínum óvild margra Harlem-búa sem töldu Hughes vera að niðurlægja þá með sögum um „fávísan negra“! í þessum mánuði kemur heildarútgáfa af verkum Hughes í sjö bindum hjá The Uni- versity of Missouri Press, bandaríska póstþjón- ustan gefur út frimerki með mynd hans og hljóðritun með ljóðalestri Hughes ásamt leik djassleikarans Charlies Mingus verður endur- útgefin. Það eru einmitt sögumar um Jesse Simple sem eru perlumar í sýningu þeirra Jóhönnu Jónas, Margrétar Eir og Guðmundar Pétursson- ar í Kaffileikhúsinu. Auk Simples er komið við í bókum Maya Angelou, eins vinsælasta merk- isbera svartra kvenna í Bandaríkjunum um árabil. Sýningin hófst með „I have a Dream“, hinni þekktu ræðu Martins Luthers Kings, upptöku af flutningi hans sjálfs. Síðan tók við látlaus flutningur Jóhönnu og Margrétar á hinum kunna gospelsálmi Amázing Grace. í þessum inngangi voru vafalaust margir komnir með tár í auga, enda efnið fallegt og flutningurinn áhrifamikill. En Langston Hughes kom mér og öðrum til bjargar, það varð lítið úr tárum þeg- ar Jóhanna ílutti Á Toast to Harlem, greinar- kom úr dagbók Jesse Simple, brosið stækkaði eftir því sem á flutninginn leið og hláturinn tók við. Eg hef heyrt Jóhönnu flytja þessa Harlem-kviðu áður en sjald- an eins vel og á laugardagskvöldið var. Hún hefur tileinkað sér mál- lýsku svartra suðurríkjamanna án þess að gera það afkáralega, eins og oft hættir tO hjá þeim sem ekki eru svartir og aldir upp á götum Harlem. Bandarískur háskóla- kennari sagði mér að hann hefði aldrei heyrt „útlending" gera þessu efni jafngóð skil. Margrét Eir stóð sig með mikilli prýði. Það er erfitt að feta í fótspor Ethel Waters og Bessie Smith en Margréti tókst að syngja, að mér fannst, skandinavíska útgáfu af Baðmullar-blús sem var einkar áheyrileg, enda tóku áheyrendur undir með taktfostu lófataki þegar best lét. Þáttur Guðmundar Péturssonar gítarleikara var lítillátur og ein- faldur en um leið framúrskarandi góður. Guðmundur hefur leikið blús víða um heim, m.a. með Pinetop Perkins og Jimmy Dawkings. Hann „skrúfaði gítarinn niður" til þess að ná blústilfmningu í leikinn og greip meira að segja til munnhörpunnar til að gefa sýningunni skemmtilegan lit. Þetta er ein besta sýning sem ég hef séð um langa hríð. Hún er bráöskemmtileg og alvarleg, ádeila og brandari, falleg og fyndin, framúr- stefnuleg en samt hræðilega gamaldags. Þetta er sýning sem allir ættu að sjá, strax í kvöld! Ólafur Stephensen Jóhanna Jónas, Margrét Eir og Guðmundur Pétursson flytja í Kaffileikhúsinu: A Toast to Harlem - Svört melódía. ___________________Menning Umsjón: Sifja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is Kúbudagar í gærkvöldi hófust Kúbudagar í Ríkisút- varpinu, sjónvarpi og útvarpi og þeir standa til 25. febrúar. Meðal annars verða sýndar fimm heimildarmyndir og fimm bíómyndir sem tengjast eyjunni fögru í Karíbahafi og flutt efni tengt Kúbu í ýms- um þáttum á Rás 1 og Rás 2. Ekki síst mun dillandi tónlist eyjarskeggja fá að hljóma. í kvöld verður sýnd bresk heimUdar- mynd um Fidel Castro, einræðisherra eyj- arinnar, sem hefur verið fleinn í holdi bandarískra stjórnvalda í 40 ár. Annað kvöld er á dagskrá mynd um bandarísku mafluna í Havana á sjötta áratugnum, áður en Castro komst tU valda; þá réðu kumpánar eins og Lucky Luciano, Santo Trafflcante og Meyer Lansky ríkjum á eyj- unni. Á fóstudag verður sýnd myndin Bu- ena Vista Social Club sem Wim Wenders gerði árið 1999 um hóp roskinna tónlistar- manna á Kúbu sem notið hefur mikUla vinsælda á seinni árum og hélt m.a. tvenna tónleika i Reykjavík i fyrra. Aðdáendur gamaUa amerískra bíó- mynda og Humphrey Bogart sérstaklega ættu að gá að þvi að sama fostudagskvöld verður líka sýnd bíómyndin AUt eða ekk- ert (To Have and Have Not) frá 1944, byggð á sögu eftir Ernest Hemingway sem átti lengi heimUi á Kúbu. Á laugardags- kvöld verða sýndar þrjár bíómyndir. Fyrst Mambó-kóngamir eftir verðlauna- sögu Oscars Hijuelos um tvo bræður og tónlistarmenn frá Kúbu þar sem Antonio Banderas er ennþá yngri og fegurri en hann er nú, þá Líf í tuskunum (La vida es sUbar), margverðlaunuð mynd frá 1998 um dansmey, félagsráðgjafa og slagverks- leikara í Havana sem verða að gera það upp við sig hvemig þau vUja lifa lífinu, og loks Paradís á jörðu (Un paraíso bajo las estreUas), gamanmynd frá 1998. Á sunnudagskvöld verður sýnd bíó- myndin Jarðarber og súkkulaði (Fresa y chocolate) frá 1993, fyrsta kúbverska myndin sem Maut tUnefningu tU ósk- arsverðlauna og margir sáu í Háskólabiói. Hún íjaUar á einstaklega hlýlegan og fynd- inn hátt um homma sem verður ástfang- inn af kreddufuUum gagnkynhneigðum manni. Kúbuvikunni í Sjónvarpinu lýkur svo mánudagskvöldið 25. febrúar en þá er á dagskrá heimUdarmynd um morðið á Che: Fórnin - Hver sveik Che Guevara? Raddir kvenna í arab- ískum bókmenntum MicheUe Hartman, lektor við Hofstra háskóla í Bandaríkjunum, flytur fyrirlest- ur á vegum Hugvísindastofnunar Háskóla íslands um konur í arabískum bókmennt- um kl. 17.15 á morgun í stofu 101 í Lög- bergi. I fyrirlestrinum mun Hartman fyrst gefa yfirlit yflr þróun arabískrar bók- menningar og fjaUa um skáldskap frá því í fomöld og fram á nútíma með sérstakri áherslu á tengsl tungumáls og bókmennta. Meginefni fyrirlestrarins er arabískur skáldskapur í bundnu og lausu máli á 20. öld og þá einkum framlag kvenna tU hans. Lögð verður áhersla á fjölbreytni í verk- um kvenna og skapandi notkun tungu- máls. Með því að skoða nokkra texta má draga upp mynd af frumlegum leiðum ar- abískra kvenrithöfunda tU að takast á við langa hefð og arfleifð arabískrar tungu og bókmennta. Fyrirlesturinn er opinn og öUum heim- Ul. Tónleikum frestað Píanótónleikum HaUdórs Haraldssonar, sem vera áttu i Tíbrárröð 1 í Salnum i kvöld, erFRESTAÐtU þriðjudags 12. mars kl. 20. AUar nánari upplýsingar em góðfúslega veittar í Salnum, sími 5 700 400. Þeir sem senda tölvupóst á menningar- síöu athugi aö póstfangiö hefur breyst. Þaö er nú: silja@idv.is. Póstur sendur á eldra netfang kemst því miöur ekki til skila þó aö svo viröist því hann er ekki endursendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.