Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 DV 25 Tilvera ♦ Krossgáta Lárétt: 1 kona, 4 kraft, 7 fuglar, 8 harma, 10 nísk, 12 sár, 13 mann, 14 sál, 15 gylta, 16 bás, 18 karlmannsnafn, 21 niðurlægja, 22 galla, 23 dysja. Lóðrétt: 1 gyðja, 2 kverk, 3 glettið, 4 ávöxt, 5 geislabaugur, 6 vön, 9 gamaldags, 11 furða, 16 sjávargróður, 17 klaka, 19 skjól, 20 sefa. Lausn neðst á síðunni. Skák Umsjón: Sævar Bjarnason Heiðursmaðurmn Óli Valdimarsson tefldi á mörgum helgarskákmótum á vegum Jóhanns Þóris Jónssonar og stóð sig alltaf vel, auk þess að hafa sanna ánægju og gleði bara af því að vera þátttakandi. Hann og Dan Hanson heitinn voru miklir vinir en skákvinir þurfa þó oft að mætast viö skákborðið. Hér vann Dan aö lokum eftir að hafa leikið þeim óvænta og óþægilega leik sem við verðum vitni að t dag! Hvltt: Dan Hanson Svart: Óli Valdimarsson Spánski leikurinn. Helgarmót Hellissandi (3) 1981 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 5. c4 Bd7 6. Rc3 Rge7 7. 0-0 g6 8. d4 Bg7 9. dxe5 dxe5 10. Bg5 f6 11. Be3 0-0 12. Rd5 Be6 13. Bc5 Hf7 14. a3 b6 15. Be3 Ra5 16. De2 Rxd5 17. cxd5 Bg4 18. b4 b5 19. bxa5 bxa4 20. Hfcl f5 21. h3 fxe4 22. hxg4 exf3 23. gxf3 e4 24. fxe4 Bxal 25. Hxal Dh4 26. Kg2 De7 27. Bd4 HafB 28. Hfl h5 29. Hhl Hf4 30. gxh5 Dg5+ 31. Kfl Hg4 (Stöðumynd- in) 32. Be3 Hxe4 33. Bxg5 Hxe2 34. Kxe2 Hf5 35. f4 gxh5 36. Hdl Kf7 37. Kf3 Ke8 38. Ke4 Hf7 39. Hbl Kd7 40. Ke5 HfB 41. f5 He8+ 42. Kf6 Kd6. 1-0 Umsjón: ísak Öm Sigurösson Bridge Spil dagsins er frá fyrstu deildar- keppninni í Danmörku. Þar kepptu innbyrðis sveitirnar Lars Blakset og Klaus Adamsen sem báðar hafa lengi verið meðal þeirra sterkustu þarlend- is. Það var sveit Blakset sem hafði betur í þessu spili. Austur hafði veru- lega skiptingu en valdi frekar að spila vörnina heldur en sóknina. Austur gjafari og allir á hættu: 4 Á4 «4- * Á87432 * Á9753 ♦ 1093 VK54 4- DG6 * G1082 4 KDG82 4» G + K105 * KD64 AUSTUR SUÐUR VESTUR NORÐUR Palmund Bruun Adams. Knud 4 » 4 * pass 6 4 dobl p/h Klaus Adamsen hefur væntanlega búist við því, þegar hann tók upp sínu leiðinlegu skiptingu, að sagnir myndu einkennast af bútabaráttu. Það kom honum hins vegar á óvart hve fjörlegar þær voru. Sagnimar út- skýra sig að flestu leyti sjálfar en dobl austurs var Lightner, áhuga á trompun. Varla er hægt að gagnrýna Dennis Koch Palmund fyrir ákvörðun sina að verjast, vitandi það að hann fengi trompslag, en það dugði samt ekki til. Ad- amsen fann laufútspiliö sem Palmund trompaði en þegar tígulnían kom til baka tók Mathias Bruun á kónginn, trompaði hjarta með ásnum í spaða og tók KDG í litn- um. Þegar trompið brotnaði voru 12 slagir tryggðir, 6 á tromp, 2 á tígul og 4 á lauf. 4 /bb V ÁD10987632 4- 9 * - Lausn á krossgátu '' BOJ 08 ‘-IBA 61 ‘sst ll ‘IQS 91 ‘Bjpun n ‘Ijajn 6 ‘uto) 9 ‘ejb g ‘nuijepuEui \ ‘juiBshnBds g ‘jso z ‘sip x ijjajQoq 'BQjn gg ‘JSQI ZZ ‘BUBUIS IZ ‘JBAI 81 ‘BIJS 91 ‘JÁs'si ‘ipuB \\ ‘§8as 81 ‘pun zi ‘umBu oi ‘Bjns 8 ‘JBOds l ‘jjbui \ ‘sojp i ijjöjbi Apótekið og veika konan Áreiðanlega vill enginn særa meðborgara sinn að tilefnis- lausu. En þetta er að gerast alla daga og ónærgætnin birtist okkur í mörgum myndum. Mér var sögð saga fyrir nokkru sem ég veit að er sönn, því er nú verr, saga um það hvernig ónærgætnina er jafnvel að finna þar sem síst skyldi. Kona um miðjan aldur fékk skyndilega hastarlegt kvíðakast sem hún þjáist af. Hún var stödd i verslunarmiðstöðinni Kringlunni snemma á þessu ári og leitaði skjóls í apóteki á næstu grösum. Þar bað hún um að fá að hringja í bróður sinn til að sækja sig. Því miður, var svarið, okkur er bannað að lána síma, sagði unga afgreiðslukonan. Svarið var blákalt nei, en veiku kon- unni bent á að uppi á næstu hæð væri tíkallasími. Nú veit ég að þessi unga afgreiðslukona hefur ekki viljað særa með- borgara sinn. En hún hafði fyr- irmæli frá eigandanum og þeim hlýddi hún út í algjörar öfgar. Fólk verður að kunna að taka eigin ákvarðanir á neyðar- stundu. Kona sem kemur inn í lyfjabúð í kvíðakasti veit varla hvar hún er stödd. Hún þarf að- stoð og hana fljótt. En það skjól sem konan valdi reyndist harla lítils virði. Næsta búð við hliðina hefði e.t.v. brugðist bet- ur við. Ég tek það fram að almennt er þjónusta f búðum nokkuð liöleg, oftast ófagmannleg, en stundum óviöunandi, bæði ófag- mannlega og fýlulega að verki staðið. Það þarf að mennta af- greiðslufólk hér, í Danmörku er það fjögurra ára nám. Sandkorn Umsjón: Birgir Guömundsson . Netfang: sandkorn@dv.is Miklar bollaleggirnar eiga sér nú stað meðal fram- ! sóknarmanna í Ár- borg um skipan framboðslista þeirra fyrir bæjar- stjórnarkosning- amar í vor en sem kunnugt er vikja af velli allir þeir sem nú eru í fram- varðasveit flokksins í byggðarlaginu. Meðal þeirra sem heyrast nefndir sem líklegir kandídatar eru Snorri Sigurfinnsson, rekstrarstjóri Blómavals á Selfossi og áður garð- yrkjustjóri bæjarsins, Guðmundur Karl Guðjónsson verkfræðingur og Ólafur Snorrason, forstjóri Rækt- unarsambands Flóa og Skeiða. Allir þessir kappar þykja vel til forystu fallnir og sama gildir raunar um þá Einar Pálsson atvinnuráðgjafa, Bjöm Bjarndal Jónsson, formann UMFÍ, og Amar Frey Ólafsson, verðbréfagúrú hjá Landsbréfum, sem búsettur er á Eyrarbakka. En það verða líka að vera konur á fram- boðslistanum. Margir búast við að Hróðný Hanna Hauksdóttir, mág- kona Guðna Ágústssonar, sem var bæjarfulltrúi á síðasta kjörtímabili, komi aftur. Sömuleiðis þykir Sigríð- ur Anna Guðjónsdóttir þrístökkvari, systurdóttir Guðna, líkleg til stórra stökka á hinum pólítíska vettvangi. En karlarnir sem heyrast nefndir eru sýnu fleiri. Margir búast við að Ingimundur Sigurmundsson, bankastjóri Bún- aðarbankans á Selfossi, muni hella sér í baráttuna og Guðmundur Karl Sigurdórsson, leikari og skrúfusölu- maður í Húsasmiðjunni, gæti verið í svipuðum sporum ... Eins og fram kom í sandkomi í gær hefur kjör- nefnd Sjálfstæðis- manna hug á að fá Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur til liðs við flokkinn í næstu kosning- um. Er það liður í því að efla listann sem skólamála- lista en Guðrún er sem kunnugt er einn af helstu forustumönnum kennarasamtakanna og Bjöm sem fyrrum menntamálaráðherra verð- ur vitaskuld mest áberandi í efsta sætinu. Nú er fullyrt að áherslan á skólamálaásýnd listans verði enn meiri þvi Guðrún Pétursdóttir eigi að vera á honum líka en Guð- rún hefur setið I fræðsluráði og er einn frumkvöðlanna í íslensku menntasamtökunum sem reka Ás- landsskóla í Hafharfirði... Björn Bjarnason mennta- málaráðherra ætl- ar Ijótlega að greina frá því hvernig hann hyggst haga brott- for sinni úr ráðu- neytinu en um þetta fjallar hann m.a. á heimasíðu sinni. Mikið er rætt um hugsanlega eftirmenn Björns í menntamálaráðuneytinu og sýnist sitt hverjum. Þau Tómas Ingi Olrich og Sigriður Ánna Þórðardóttir hafa helst verið nefnd en nú vex þeim orðrómi fisk- ur um hrygg að hringekja kunni að fara af stað þannig að menn muni víxla ráðherrastólum sem endi þá þannig að einhver nýr komi inn og setjist í stól Sturlu Böðvarssonar. Sturla færi þá í sjávarútvegsráðu- neytið en Ámi Mathiesen í menntamálin... í tilefni nýjustu frétta af Lands- úmamálinu kom Sigurdóri Sigur- dórssyni, blaða- manni á Bænda- blaðinu, eftirfar- andi staka í hug og þarfnast hún ekki frekari skýr- inga: Þaó er ekkert til að taka og telst vart siöur nýr aó þegar krókinn þarf aó maka þd eru góö ráö dýr. f Við<jetum6agtj^ akkurat hvaða spil þú hefur með því að líta framan í þigl Vei6tu af hveiju þú tap- ar? Þú tapar af því það se6t á andlitinu á þár hvaða spil þú ert meðl Umm, ág 'veðja tvö C hundruð kalli. Myndasögur Hætt’essu, éq er að fara til hans!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.