Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Page 22
26
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára__________________________
Kristinn J. Jónsson,
Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði.
75 ára _________________________
Ólafur Ásgeirsson,
Hjaltabakka 26, Reykjavík.
70 ára__________________________
Guörún Ásbjörnsdóttir,
Lyngheiði 19, Selfossi.
Jón Bjarni Þóröarson,
Stigahlíð 67, Reykjavík.
60 ára__________________________
Vilhelmína Salbergsdóttir,
Svelgsá, Stykkishólmi.
Guömundur Baldur Jóhannsson,
Vindási 2, Reykjavík.
Eiríkur Hreiöarsson,
Grísará 1, Akureyri.
Rósa Haröardóttir,
Króki 4, ísafirði.
50-ára______t___________________
Guömundur Ólafsson,
Vesturgötu 8, Ólafsfiröi.
Agnar Eggert Jónsson,
Ásbraut 6, Hvammstanga.
Einar Sölvi Guömundsson,
Frostafold 127, Reykjavík.
Ólafur Ingi Baldvinsson,
Forsölum 1, Kópavogi.
Margrét Ólafsdóttir,
Miðtúni 37, ísafirði.
Helgi Guömundsson,
Flúðaseli 67, Reykjavlk.
Helga Stefánsdóttir,
Vesturási 37, Reykjavík.
Guðbrandur Rúnar Leósson,
Frostaskjóli 31, Reykjavík.
40ára____________________________
Magnús V. Magnússon,
Furugrund 70, Kópavogi.
Ingi Tryggvason,
Kveldúlfsgötu 7, Borgarnesi.
Sigríöur Kristín Jónsdóttir,
Kóngsbakka 11, Reykjavík.
Bragi Kristjánsson,
Nónvörðu lOd, Keflavtk.
Anna Haröardóttir,
Árteigi, Húsavík.
Jóhanna Steinunn Hjálmtýsdóttir,
Stigahlíð 8, Reykjavík.
Vytautas Narbutas,
Laufásvegi 19, Reykjavík.
Heiörún Kristjánsdóttir,
Laugarnesvegi 38, Reykjavík.
Sigurlaug R. Halldórsdóttir,
Flúðaseli 90, Reykjavtk.
Hólmfríöur A. Bjarnason,
Sléttuvegi 7, Reykjavtk.
Guörún Sigríöur Reynisdóttir,
Suðurvangi 1, Hafnarfirði.
Jóhanna B. Hallbergsdóttir,
Grundargötu 16, Grundarfiröi.
Kristján Agnar Ómarsson,
Kleppsvegi 34, Reykjavík.
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I550 5000
Tómas P. Eyþórsson, Kríuhóli,
Eyjafjarðarsveit, er látinn. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Páll Eggertsson, Lindási, Innri-
Akraneshreppi, lést á dvalarheimilinu
Höföa miðvikud. 13.2.
Jón Sigurösson frá Stafholti, lengst af
búsettur í Borgarnesi, lést á
hjúkrunarheimilinu Eir fimmtud. 14.2.
Betty Ann Huffman Þorbjörnsson,
Skúlagötu 40a, Reykjavík, lést á
Landspítalanum Fossvogi föstud. 15.2.
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002
DV
Páll Ásgeir Tryggvason
1982, húsmóðir. rlka í Stóra-Dal, langafa Jóns alþm.
á Akri, föður, Pálma, fyrrv. ráð-
herra. Móðir Ingigerðar var Ingiríð-
sendiherra
Páll Ásgeir Tryggvason, hrl. og
sendiherra, Hlíðarhúsum 5-7,
Reykjavík, er áttræður í dag.
Starfsferill
Páll Ásgeir fæddist í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1942, embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1948 og öðlaðist hrl.-réttindi 1957.
Páll Ásgeir varð fulltrúi i dóms-
málaráðuneytinu 1948, fulltrúi í ut-
anríkisráðuneytinu 1948, sendifull-
trúi í Stokkhólmi 1952, deildarstjóri
í utanríkisráðuneytinu 1956, sendi-
ráðunautur í Kaupmannahöfn 1960,
sendifulltrúi í Stokkhólmi 1963,
fyrsti siðameistari utanríkisráðu-
neytisins 1964, deildarstjóri varnar-
máladeildar 1968-78, ráðunautur
um varnarmál 1979, sendiherra í
Noregi, Póllandi og Tékkóslóvakíu
1979, sendiherra 1985 í Sovétríkjun-
um, Búlgaríu, Rúmeníu, Ungverja-
landi, Austur-Þýskalandi og
Mongólíu, og sendiherra 1987-89 í
Sambandslýðveldinu Þýskalandi,
Austurríki, Grikklandi og Sviss og
starfsmaður ráðuneytisins hér á
landi síðan.
Páll Ásgeir var formaður togara-
útgerðarfélagsins Júpiters og Mars
1945 og þar til félögin hættu starf-
semi, sat í stjóm Aðalstrætis 4 hf.
frá 1945 og formaður þess 1984 og á
meðan það starfaði, var varafor-
maður stúdentaráðs HÍ 1945-46, sat í
stjórn Nemendasambands MR
1946-56, formaður Stúdentafélags
Reykjavíkur 1951-52, varaformaður
Starfsmannafélags stjórnarráðsins
1952-54 og formaður þess 1968-70,
formaður Félagsheimilis stúdenta
1954-60, sat í stjórn Golfklúbbs
Reykjavíkur í nokkur ár, forseti
Golfsambands íslands 1970-80, var
stjómarformaður Pólarminks hf.
1970-75, einn af stofnendum Lions-
klúbbs Reykjavíkur 1951 og síðan
ritari hans en formaður klúbbsins
1956-57 og siðan formaður hans á
fjörutíu ára afmæli hreyfingarinnar
1991.
Páll Ásgeir hefur unnið til fjölda
verðlauna í golfkeppnum. Hann
vann tvenn fyrstu verðlaun í II.
flokki á landsmóti 1965, hlaut hetju-
verðlaun Carnegies 1937, er stór-
riddari íslensku Fálkaorðunnar auk
þess sem hann hefur verið sæmdur
stórkrossi konunglegu norsku
Ólafsorðunnar, stórkrossi þýsku
Þjónustuorðunnar, stórkrossi aust-
urrísku Þjónustuorðunnar, er stór-
riddari með stjömu af finnsku
Ljónsorðunni, stórriddari dönsku
Dannebrogsorðunnar og stórriddari
sænsku Norðurstjömunnar.
Fjölskylda
Páll Ásgeir kvæntist 4.1. 1947
Björgu Ásgeirsdóttur, f. 22.2.1925, d.
7.8. 1996, húsmóður. Hún var dóttir
Ásgeirs Ásgeirssonar, forseta ís-
lands, og k.h., Dóru Þórhallsdóttur
forsetafrúar.
Börn Páls og Bjargar eru Dóra, f.
29.6. 1947, kennari í Reykjavík, var
gift Davíð Janis tölvufræðingi og
eiga þau þrjá syni en maður hennar
er Jens ToÚefsen, hagfræðingur hjá
Flugmálastjórn; Tryggvi, f. 28.2.
1949, framkvæmdastjóri íslands-
banka, kvæntur Rannveigu Gunn-
arsdóttur, forstöðumanni Lyfja-
stofnunar íslands, og eiga þau tvö
börn; Herdís, f. 9.8. 1950, sérkennari
í Ósló, gift Þórhalli E. Guðmunds-
syni markaðsstjóra og eiga þau
þrjár dætur; Ásgeir, f. 29.10. 1951,
framkvæmdastjóri hjá Flugmála-
stjóm, kvæntur Áslaugu Gyðu
Ormslev og eiga þau þrjú börn; Sól-
veig, f. 13.9. 1959, leikari, gift Torfa
Þorsteini Þorsteinssyni, forstjóra
Faxamjöls og Fiskimjölsverksmiðj-
unnar í Þorlákshöfn og eiga þau
þrjú böm.
Systkini Páls Ásgeirs: Jóhanna, f.
29.1. 1925, fram-
kvæmdastjóri í
Hafnarfirði;
Rannveig, f. 25.11.
1926, þýðandi í
Reykjavík; Her-
dis, f. 29.1. 1928,
húsmóðir i Osló;
Anna, f. 19.8.1935,
kennari í Reykja-
vík.
Foreldrar Páls
Ásgeirs voru
Tryggvi Ófeigs-
son, f. 22.7. 1896,
d. 18.6. 1987, skip-
stjóri og útgerðar-
maður í Reykja-
vik, og k.h., Her-
dís Ásgeirsdóttir,
f. 31.8. 1895, d. 3.10.
Ætt
Tryggvi var sonur Ófeigs, b. í
Ráðagerði í Leiru, bróður Helgu,
langömmu Árna Þ. Árnasonar,
skrifstofustjóra í iðnaðarráðuneyt-
inu. Ófeigur var sonur Ófeigs, b. á
Fjalli, bróður Sigriðar, langömmu
Kristins Finnbogasonar fram-
kvæmdastjóra. Ófeigur var sonur
Ófeigs rika, b. á Fjalli og ættföður
Fjallsættar, Vigfússonar, bróður
Sólveigar, langömmu Guðnýjar,
móður Guðlaugs Tryggva Karlsson-
ar hagfræðings. Móðir Ófeigs á
Fjalli var Ingunn Eiríksdóttir, ætt-
föður Reykjaættar, Vigfússonar.
Móðir Tryggva var Jóhanna Frí-
mannsdóttir, b. í Hvammi i Langa-
dal, Björnssonar, b. í Mjóadal, Þor-
leifssonar. Móðir Frímanns var
Ingibjörg Guðmundsdóttir, b. í
Mjóadal, bróður Ólafs, föður Arn-
ljóts á Bægisá, langafa Arnljóts
Bjömssonar prófessors. Móðir Jó-
hönnu var Helga Eiríksdóttir, b. á
Efri-Mýrum, Bjarnasonar. Móðir Ei-
ríks var Ingigerður, systir Þorleifs
ur Jónsdóttir, ættföður Skeggs-
staðaættar, Jónssonar.
Herdís var hálfsystir Matheu
Kristínar Pálsdóttur, móður Rann-
veigar Torp, móður Rannveigar,
konu Sturlaugs Böðvarssonar, út-
gerðarmanns á Akranesi. Herdís
var dóttir Ásgeirs, skipstjóra í
Reykjavík, Þorsteinssonar. Móðir
Ásgeirs var Herdís Jónsdóttir, syst-
ir Guðrúnar, langömmu Jóhannes-
ar Nordal, og systir Margrétar, móð-
ur Jóns Þorlákssonar forsætisráð-
herra. Móðir Herdísar var Rannveig
Sigurðardóttir, skipstjóra í Reykja-
vík, Símonarsonar, bróður Krist-
jáns, langafa Halls Símonarsonar
blaðamanns og Sigríðar, móður
Friðriks Ólafssonar stórmeistara.
Bróðir Sigurðar var Bjami, faðir
Markúsar, fyrsta skólastjóra Stýri-
mannaskólans, afa Rögnvaldar Sig-
urjónssonar píanleikara.
PáU Ásgeir heldur upp á daginn
með fjölskyldu sinni.
Fimmtugur
Bjarni Ásgeir Jónsson
framkvæmdastjóri í Mosfellsbæ
Bjarni Ásgeir Jónsson fram-
kvæmdastjóri, Rein, Mosfellsbæ, er
flmmtugur í dag.
Starfsferill
Bjarni Ásgeir fæddist á Suður-
Reykum i Mosfellssveit og ólst þar
upp. Hann lauk prófum sem garð-
yrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla
ríkisins að Reykjum Ölfusi 1972.
Bjarni Ásgeir var framkvæmda-
stjóri Gróðrarstöðvarinnar Garðs-
horns i Fossvogi 1971-79 og er fram-
kvæmdastjóri Reykjagarðs hf. frá
1979. Hann hefur búið alla ævi i
Mosfellssveit og Mosfellsbæ að und-
anteknum árunum 1974-78 er hann
bjó í Garðshorni í Fossvogi.
Bjarni Ásgeir hefur setið í stjóm
Félags garðplöntuframleiðenda, Fé-
lags eggjaframleiðenda, Félags ali-
fuglaframleiðenda, Félags
kjúklingaframleiðenda og formaður
þess frá 1989, hefur setið í Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins, í stjórn
Handknattleikssambands íslands og
handknattleiksdeildar Afturelding-
ar í Mosfellsbæ auk þess sem hann
hefur sinnt ýmsum nefndastörfum.
Fjölskylda
Bjarni Ásgeir kvæntist 23.3. 1985
Margréti Atladóttur, f. 27.11. 1949,
húsmóður. Hún er dóttir Atla Elías-
sonar, málarameistara í Reykjavík,
og Ragnhildar Bergþórsdóttur hús-
móður.
Böm Bjarna Ásgeirs og Margrét-
ar eru Atli, f. 23.4. 1985, nemi; Ragn-
heiður, f. 1.1.1987, nemi.
Börn Bjama Ásgeirs frá fyrra
hjónabandi eru Jón Vigfús, f. 14.8.
1971, verslunarmaður á Árbakka í
Mosfellsbæ, en kona hans er Svan-
fríður Linda Jónasdóttir og eru
böm þeirra Bjami Ásgeir og Guð-
rún Saga; Sigríður, f. 23.7. 1973, bú-
sett á Teigi í Mosfellsbæ; Benedikt,
f. 18.8. 1978, nemi Mjölby í Sviþjóð,
kona hans er Ann Sofie Lundh.
Systkini Bjarna Ásgeirs eru Ásta,
f. 17.4. 1950, hjúkrunarkona á Efri-
Reykjum i Mosfellsbæ, maður henn-
ar er Ragnar Bjömsson; Kristján
Ingi, f. 30.11. 1957, blómaskreytinga-
maður í Reykjavík; Baldur, f. 28.2.
1963 að Efstu-Reykjum í Mosfellsbæ,
kona hans er Hugrún Svavarsdóttir.
Foreldrar Bjarna Ásgeirs: Jón
Vigfús Bjamason, f. 23.3. 1927, d. 5.5.
1990, garðyrkjubóndi að Suður-
Reykjum í Mosfellsbæ, og k.h.,
Hansína Margrét Bjarnadóttir, f.
13.7. 1926, húsfreyja.
Ætt
Jón Vigfús var bróðir Jóhannesar
verkfræðings, föður Ástu Ragnheið-
ar alþm. Jón Vigfús var sonur
Bjarna, alþm. á Reykjum í Mosfells-
sveit, Ásgeirssonar, b. í Knarrar-
nesi, Bjarnasonar. Móðir Bjarna
ráðherra var Ragnheiður, systir
Sigríðar, ömmu Hallgríms Helga-
sonar tónskálds. Ragnheiður var
dóttir Helga, b. í Vogi, bróður Ingi-
bjargar, langömmu Kristjáns Eld-
jáms forseta. Móðir Jóns Vigfúsar
var Ásta, systir Guðmundar, föður
Jóns, fyrrv. hreppstjóra á Reykjum.
Systir Ástu var Lára, amma Láru
Margrétar Ragnarsdóttur alþm.
Ásta var dóttir Jóns, skipstjóra í
Reykjavík, Þórðarsonar.
Hansína Margrét er systir Gunn-
ars, skólastjóra og hrossaræktar-
ráðunautar. Hansina er dóttir
Bjama, kaupmanns á Húsavík,
Benediktssonar, bróður Hansínu,
ömmu Jónasara Kristjánsssonar rit-
stjóra. Móðir Hansínu var Þórdís,
systir Bjarna, alþm. á Reykjum.
Bjami Ásgeir tekur á móti vinum
og vandamönnum i Hlégarði fóstu-
daginn 22.2. frá kl. 19.00.
Merkir Islendingar
Sveinn Björnsson
Sveinn Björnsson listmálari fæddist á Skál-
um á Langanesi og ólst þar upp og í Vest-
mannaeyjum. Hann var sonur Björns Sæ-
mundssonar, innheimtumanns i Reykja-
vík, og Sigurveigar Sveinsdóttur. Meðal
alsystkina Sveins er Elín vefkona. Hálf-
bróðir Sveins, sammæðra, er Baldur
Johnsen, fyrrv. yfirlæknir.
Sveinn lauk stýrimannaprófi í
Reykjavík 1947, stundaði nám við
Listaháskólann í Kaupmannahöfn
1956-1957 og fór listanámsferðir til ítal-
íu, Frakklands og Þýskalands. Hann
var sjómaður 1939-1953, var lögreglu-
maður í Hafnarfirði frá 1954 og yfirmað-
ur rannsóknarlögreglunnar þar um árabil.
Sveinn málaði myndir frá 1949, hélt fjölda
einkasýninga víða um landið og i Danmörku og
tók þátt í samsýningum hér á landi, í Bandaríkj-
unum og í fjölda Evrópulanda.
Árið 1989 kom út bókin Veröld þín með
handskrifuðum ljóðum Matthíasar Jo-
hannessens og myndum Sveins við ljóð-
in. Hann var lengst af búsettur i Hafn-
arfirði en hafði jafnframt vinnustofu
og annað heimili i Krýsuvik.
Sveinn svaraði kalli listagyðjunnar
og braust til myndmennta af miklum
dugnaði. Myndir hans flokkast oft und-
ir mjög persónulegan expressionisma
þar sem náttúruöflin era ráðandi í
margvíslegum skilningi. Sonur Sveins,
Erlendur, hefur gert athyglisverða kvik-
mynd um foður sinn, Málarinn og sálmur-
inn hans, sem tilnefnd er til menningarverð-
launa DV í ár. Sveinn lést 28. apríl 1987.
Útför Jóhannesar Kristins Stefánssonar
Mávabraut 5B, Keflavík, fer fram frá Ytri-
Njarðvtkurkirkju 19.2. kl. 14.00.
Jóhanna Katrín Helgadóttir, Miklubraut
50, Reykjavík, verður jarösungin frá
Dómkirkjunni þriðjud. 19.2. kl. 13.30.
Sigríöur G. Guðjónsdóttir,
dvalarheimilinu Seljahlíö, Hjallaseli 55,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriöjud. 19.2. kl. 15.00.
Smáauglýsingar
rrra
550 5000