Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Side 23
27 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002_____________________________________ jjrsr Tilvera Benecio Del Toro 35 ára Óskarsverðlaunahafinn frá í fyrra, Benecio Del Toro, verður hálffertugur í dag. Del Toro hafði i nokkur ár verið að gera góða hluti í kvikmyndum, en það var fyrst í Traffic sem hann náði alþjóðlegri frægð. Del Toro fæddist í Púertó Ríkó og voru foreldrar hans báðir lögfræðingar. Hann missti móður sína þegar hann var ungur og flutti faðirinn með fjöl- skylduna til Pennsylvaníu. Hann ákvað að feta í fótspor foreldra sinna og hóf nám í lögfræði. Með náminu tók hann tíma í leiklist og fékk bakt- eríuna og sagði skiiið við annað nám. Tvíburarnir (2 Gildir fyrir miövikudaginn 20. febrúar Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l: I Ferðalag er í vændum og þú ert fullur eftir- væntingar. Þú skalt vera viðbúinn því að fólkið í kringum þig sé eitthvað pirrað og stressað. Fiskarnir (19. febr.-?0. mars>: Dagurinn hentar vel Itil viðskipta, sérstak- lega ef þú ert að fjárfesta eða selja á nýjum vettvangi. Kvöldið verður ánægjulegt. Hrúturinn (? 1. mars-19. apríh: . Þér hættir til að reyna * að stjóma ákveðinni manneskju umfram það sem hún vill. Þú verður fyrir óvæntu atviki seinni hluta dagsins. Nautið (20. april-20. maí): Dagurinn verður róleg- ur og þú ert í góðu jafnvægi. Svo er ekki ___ um alla í kringum þig en þú skalt ekki láta það hafa mikil áhrif á þig. Tvíburarnir (21. maí-21. iúni); Vinnan gengur að ' vissu leyti fyrir í dag og það er best fyrri þig að ljúka áríðandi . sem fyrst. Happatölur þínar eru 9, 17 og 23. Krabbinn (22. iúní-22. iúií): Ættingi þinn lætur j heyra frá sér og það f samtal á eftir að hafa ____ áhrif á nánustu fram- tíð þíná. Kvöldið verður rólegt. Happatölur þínar eru 3, 8 og 14. Uónið (23. iúlí- 22. ágúst): , Vinur þinn þarfnast athygli þinnar og þú ættir að verja meiri tíma með honum. ístvinir eiga saman góðan dag. Happatölur þínar em 1, 12 og 31. Mevlan (23. áeúst-22. sepU: Þú gætir staðið frammi fyrir vali á ^^r^lkmilli tveggja mögu- ^ f leika í dag og þú átt e'rfitt með að gera upp hug þinn. Happatölur þínar em 7, 8 og 9. Vogin (23. sept.-23. okt.l: J Gættu þess að fara r*f/ varlega með peninga í \ f dag og notaðu skyn- r/ semina. Varastu kæm- leysi og njóttu dagsins vel. Happatöliu- þínar em 3, 9 og 10. Sporðdrekinn (24. okt.-2l. nóv.): WSj& Ekki vera svartsýnn IV \ þó að eitthvað bregðist m lí dag og þú missir af góðu tækifæri. Þér bjóðast fleiri möguleikar. Happatölur þínar em 21, 22 og 33. Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des.): ----.Þú hittir fólk sem 'lífgar upp á daginn. Varastu forvitni þar sem hún á ekki við og sýndu nærgætni. Happatölur þínar em 28, 29 og 30. Steingeitin (22. des.-19. ian.): Einhver hefur mikil áhrif á þig þessa dag- ana og þú lætur við- komandi ráðskast allt of mikið með þig. Ekki gera neitt gegn vilja þínum. Nemendur 7. EB í Foldaskóla Þessi glæsilegi hópur ungmenna kom í heimsókm á DV fyrir skömmu í tengslum viö verkefni um dagblöð í skólum sem þau hafa veriö aö vinna. Agnes Eva Siguröardóttir, Aldís Kristjánsdóttir, Baidur Þrándarson, Benedikt Magnús- son, Eríkur Örn Þrastarson, Erna Guörún Steinarsdottir, Hildur Halldórsdóttir, Inga Sif Ingólfsdóttir, Jóhann Björnsson, Kristján Karl Kristjánsson, Leifur Þorbergsson, Margrét Siija Siguröardóttir, Rúnar Freyr Reynisson, Sif Ragnarsdóttir, Sigrún Sif Þórsdóttir, Sigrún Sigurbergsdóttir, Smári Þór Baldursson, Stefán Arnarson, Sunneva Ólafsdóttir, Sævar Þrastarson, Tómas Arnar Guömundsson, Viiborg Sif Valdimarsdóttir, Þóra Björg Siguröardóttir. Kennari er Guölaugur Hermannsson. Yfirmenn á Skaftfellingi Kafteinninn Guömundur Pétur Guögeirsson og stýri- maöurinn ívar Páll Bjartmarsson. Þeir tóku á móti þorrablótsgestum í anddyri félagsheimilisins. Kominn til Víkur Koma Skaftfellings til Víkur í fyrrasumar var ofarlega í hugum þeirra sem skipuöu þorrablótsnefndina aö þessu sinni. Hér trónir mynd af skipinu á sviöinu. Víkurbúar blóta þorra og hafa uppi gamanmál: Ferð Skaftfellings landleiðina var rakin Ekkert lát er á að landsmenn blóti þorra. Þessi forni siður var endurvak- inn um miðja síðustu öld, ekki síst af veitingahúsinu Nausti i Reykjavík. í dag er enginn félagsskapur svo aumur að hann haldi ekki skörulegt þorra- blót. Mýrdælingar eru í hópi þeirra sem halda skemmtileg þorrablót sem mikið er lagt í, og ekki bara eitt held- ur þrjú. Á fyrsta blótið, sem haldið var í Leikskálum í Vík, komu um 200 manns, fólk á öllum aldri, til að blóta að gömlum og góðum íslenskum sið. í annál blótsins komu fram ýmis bros- leg atvik úr lífi þorpsbúa á sl.ári. Skreytingamar i félagsheimilinu voru allar í tilefni af komu Skaftfellings frá Vestmannaeyjum og var ferðasagan rakin frá Vestmannaeyjum, um upp- sveitir Árnes- og Rangárþinga til Vík- ur. Að loknu borðhaldi og skemmtiat- riðum spilaði hljómsveitin Granít fyr- ir dansi fram undir morgun. -SKH DV-MYNDIR SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON Rófurnar settar í pottinn Kristján Böövarsson, Halldór Eggertsson og Gunnar Bragi Jónsson, formaöur þorrablótsnefndarinnar. Kidman út á líf- ið hjá Svíum Hollywood-stjarnan Nicole Kid-man brá sér út á lífið við sjötta mann í Gautaborg á laugardagskvöldið og fékk sér í glas á frnurn veitingastað, Brasserie Lipp. Nicole bað dyravörð- inn um að sjá til þess að þau fengju að vera í friði og sú varð raunin. Svíar eru jú kurteist fólk. Nicole er þessa dagana í Trollhátt- an skammt þar frá að leika í nýjustu mynd Lars von Triers hins danska. Síðar um kvöldið yfirgaf Nicole samkvæmið með karlmanni nokkrum sem enginn veit hver er en menn velta vöngum yfir hvort sé ef til vill nýr unnusti. Brotist inn hjá George Michael Breski popparinn George Michael varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu um daginn að brotist var inn í glæsibústað hans og þaðan stolið mörgum góðum gripnum. Til að kór- óna allt fór þjófurinn, eða þjófarnir, svo á brott með þýfið í sportbíl söngv- arans. Bresk blöð segia að meðal annars hafi verið stolið málverkum, skart- gripum og fallegum fótum, auk biisins sem er af gerðinni Aston Martin og kostar heila formúu. Lögreglan breska hefur ekki græn- an grun um hver braust inn í hús Michaels sem er í glæsihverfinu Hampstead norður af miðborg Lund- úna þar sem margar stjömur og ann- ars konar fínt fólk býr. Heitur og þurr Tveggja laga spunatækni flytur rakann frá líkama- num og heldur þér heitum og þurrum. Sportvörugerðin Skipholti 5, s. 562 8383

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.