Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Blaðsíða 24
28
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002
Tilvera 3>V
lí f iö
Á ferð um
landið
Ljósmyndararnir Bjarki Reyr
Ásmundsson og Arsineh Houspian
frá Ástralíu eru með sýningu í
Straumi, sunnan álversins. Hún
inniheldur svart-hvítar myndir
sem voru teknar á ferð þeirra um
landið á síðasta ári. Dregið verður
í happdrætti í lok sýningarinnar
þar sem vinningshafinn fær mynd
að eigin vali.
Leikhús
■ ISLANPS ÞUSUND TÁR Nenv
endaleikhúsið sýnir nýtt íslenskt
leikrit eftir Elísabetu Jökulsdóttur kl.
20 í kvöld. Verkiö nefnist íslands
þúsund tár og er sýnt í Smiðjunni
viö Sölvhólsgótu.
Fundir
B ÞJOÐERNÍ ÖG KYNÞÆltlR
Sagnfræöingurinn Unnur B. Karls-
dóttir fjallar um samband þjóðernis
og kynþáttar á hádegisfyrirlestri
Sagnfræðingafélagsins í Norræna
húsinu milli kl. 12 og 13.
B SÁLFRÆÐILEGAR SKÝRINGAR
Sigurður J. Grétarsson, prófessor
viö sálfræöiskor Háskóla íslands,
flytur erindiö: Sálfræðilegar
skýringar á morgun, miðvikudag, í
Odda, stofu 201, kl. 12.05-12.55.
Málstofan er öllum opin.
■ AUÐLINDAGJALDH)
Ragnar Arnason prófessor flytur
erindi, sem hann nefnir
Auðlindagjald og skatttekjur
ríkisins, á morgun, 20. febrúar, í
Hagfræðistofnun, Aragötu 14, kl.
16.00. Allir eru velkomnir.
Tönlist
■ EINLEIKUR A KLARINETT
A háskólatónleikunum í Norræna
húsinu miövikudaginn 20. febrúar
nk. leikur Ármann Helgason
klarínettuleikari verk eftir Stravinski,
Sutermeister, Penderecki og Rivier.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og
taka um þaö bil hálfa klukkustund.
Aögangseyrir er kr. 500. Ókeypis er
fyrir handhafa stúdentaskírteina.
Sýningar
■ ÞRJAR SYNINGAR I
LISTHUSINU LAUGARDAL i
Veislugalleríi og Listacafé í
Laugardal eru þrjár sýningar í gangi.
Sergio Vergara sýnir draumaverur.
Hann þykir undir áhrifum frá Chagall,
Kandinsky og Miró. Elínborg
Kjartansdóttir sýnir nokkur glerverk
og Blær sýnir málverk sem flest eru
máluð í svörtu, hvítu og rauðu.
■ GLER OG MÓSAÍK Rósa
Matthíasdóttir sýnir verk sín á Café
Rue Royale í Smáralind. Hún vinnur
með gler og mósaík á sérstakan
hátt.
■ CARNEGIE ART AWARP í
Gerðarsafni í Kóþavogi er sýningin
Carnegie Art Award. Hún endur-
speglar stöðu nútímamálverksins á
Norðurlöndunum.
B AÐASTEINN Á CAFÉ KARÓLÍNU
Aðalsteinn Vestmann er meö
sýningu á myndum sínum á Café
Karólinu á Akureyri. Það eru
akrýlverk og eitt olíumálverk. Mótífin
eru flest úr næsta nágrenni
listamannsins á Akureyri.
■ SVONA VARÐ BREIÐHOLTH) TIL
Sýning sem sett hefur veriö upp í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi,
ber heitiö Byggt yfir hugsjónir.
Breiðholtið frá hugmynd að
verulelka.
Nýsköpun í grunnskólum sem
námsefni aðeins til á íslandi
- segir Rósa Gunnarsdóttir, doktor í menntunarfræðum
Maður íífandi
Hún Rósa Gunnarsdóttir er ný-
bakaður doktor í menntunarfræði
með nýsköpun nemenda sem sér-
grein. Þar sem hún er að líkindum
fyrst allra í heiminum til að rann-
saka þetta svið má telja doktorsrit-
gerðina hennar til nýsköpunar og
ekki nóg með það. Rósa á von á
barni i sumar svo þar er nýsköpun
í gangi líka!
Sjálfsmyndin tók breytingum
Rósa útskrifaðist úr Kennó 1993
með eðlis-,efna- og líffræði sem
grunngreinar og kveðst hafa fengið
vinnu strax uppi í Foldaskóla. „Þar
kynntist ég nýsköpun í fyrsta skipti,
sem kennaramir Gísli Þórðarson og
Guðrún Þórsdóttir höfðu hrint af
stað. Krakkamir í níu ára bekkjum
skólans fengu þar að vinna að eigin
hugmyndum og uppfinningum og
setja þær upp í gangi verslunarmið-
stöðvar. Það var stórkostlegt að
fylgjast með þessu. Rótgrónir kenn-
arar fóru að upplifa kennsluna á
annan hátt en áður og krakkar sem
sumir áttu í bölvuðu basli með sitt
hefðbundna nám gátu allt í einu
staðið úti á markaðstorgi og sann-
fært fólk um að það sem þeim hefði
dottið í hug væri eitthvað sem bráð-
vantaði. Sjálfsmynd þeirra tók slík-
um breytingum að það var ótrúlegt.
Þau áttu hugmyndimar og voru til-
búin að leita sér þekkingar úti um
allt tO að láta dæmið ganga upp.
Verkefnið var stutt af Reykjavíkur-
borg og kennarar, nemendur og for-
eldrar óskuðu eftir að þetta héldi
áfram, þvi það hefði svo jákvæð
áhrif. Hugmyndafræðin sem þama
þróaðist er undirstaða nýrrar náms-
greinar sem komin er inn í aðal-
námskrá grunnskólanna hér á landi
og heitir Nýsköpun, hagnýting,
þekking.“
í doktorinn i bríaríi
í bríaríi kveðst Rósa hafa ákveðið
að reyna að skOgreina hvað gerðist
við nýsköpun. „Einhvern tíma þeg-
ar við Gísli vorum að tala um hvað
þyrfti að gera næst tO að ýta þessari
námsgrein áfram sagði ég: „Heyrðu,
þú verður að koma henni inn í
Kennaraháskólann og þá skal ég
gera rannsókn á fyrirbrigðinu."
Hálfu ári síðar var Gísli búinn að fá
vinnu í Kennaraháskólanum og þá
Nafnlausir bréfritarar
Kolbrún Berg-
jrórsdóttir
skrifar.
DV-MYND E.ÖL.
Nýbakaöur doktor
Rósa Gunnarsdóttir hefur brennandi áhuga á nýsköpun í skólum og hefur nú nóg aö gera viö aö útbreiöa
þekkingu sína á þeirri grein.
varö ég að standa við mitt,“ rifjar
hún upp. Nú hefur hún verið við há-
skólann í Leeds í Englandi síðan
1997 að vinna að doktorsritgerðinni
en gerði sína rannsókn í Folda-
skóla. Þar kveðst hún hafa einbeitt
sér að börnunum og þeim sem um-
gengust þau mest, foreldrunum og
kennurunum. „Ég vOdi fá staðfest
hvort breytingar ættu sér stað á
börnunum við nýsköpunarvinnuna
og útskýra hver ástæða þeirra
breytinga væri.“
Rósa segir nýsköpun í grunnskól-
um, eins og hún er sett upp hér á ís-
landi ekki tO sem námsefni neins
staðar í heiminum og er því spurð
hvort ekki hafi verið erfitt að vinna
að ritgerðinni erlendis. „Jú það
gekk ekki snurðulaust. En það var
gott að hafa fólk í kringum sig sem
var ekki tObúið að taka við hlutun-
um fyrr en ég hefði sannanir fyrir
þeim. Það var það sem ég ætlaði
mér og það tókst. Niðurstaðan? Ég
ætla ekki að taka stórt upp í mig en
þetta er ný sýn á það hvemig fólk
getur lært.“
Fullt að gera í fyrirlestra-
haldi
Rósa hefur ekki aðeins verið að
læra úti í Englandi heidur líka
kenna - og auðvitað nýsköpun.
Byrjaði með klúbb í einum skóla
sem sonur hennar var nemandi i.
Fleiri skólar fylgdu á eftir. „Ég fékk
þvOík viðbrögð, bæði hjá þeim
kennurum sem eru að kenna með
mér og foreldrum krakkanna, ná-
kvæmlega eins og hjá fólkinu hér
heima þegar við vorum að byrja
uppi í Foldaskóla,“ segir hún.
Nú er hún að vinna í stóru Evr-
ópuverkefni sem tekur tO næstu
þriggja ára, því fyrsta sem er stjóm-
að frá íslandi. Markmiðið er að
setja upp nýsköpunamám á kenn-
aramenntunarstigi og nemendastigi
í gegnum fjarkennslu. „Fyrst núna
er ég búin að taka niður skjöldinn
og nú getur fólk farið að skjóta!"
segir hún og telur opna leið fyrir
þjóðir að nýta sér þá grunnvinnu
sem hún hafi unnið og aðlaga að
þeirri menningu sem fyrir sé á
svæðinu. Hún er búin að fá boð um
að halda fyrirlestra á nokkrum ráð-
stefnum. Ein er í Amsterdam og
fjaOar um sálfræði. Önnur í Rúss-
landi um tæknimenntun og sú
þriðja er í Englandi í sumar, líka á
tæknimenntasviðinu. „Ég er ekki
alveg búin að ákveða hvað ég geri
eftir ágústmánuð, þvi þá á ég von á
barninu," segir Rósa brosandi og
bætir við: „Ég verð að láta það
ganga fyrir!“
í
■
f
I
tyrr ett. _______ uy mai peirra hefðu getað 'haft afdnfaríkar afleiðingar
fynr Reykjavikurlistann.
i prófkjórmu þarf Samfyfkingarfófk aö hafa það í huga að mögulega mun
borgarstjóri snúa sér til nýrra verkefna á stjórnmálasviðinu og þá yrði það
verkefni annara borgarfulltrúa Reykjavikurlístans að velja efbrmanrt hennar Ef j
til þess kemur, er nauðsynfegt að í hópi borgarfulltrúanna sé eínstaktingur sem |
værí í stakk búinn tíl að taka við embætti borgarstjóra. Sá einstaklingur verður
að koma úr okkar hópi og hafa öflekkaðan feríl til að njóta trausts
samstarfsflokka Samfyikmgannnar.
Reykjavík S.2.2002
Áhyggjufulfir Samfytkingarmenn
Mér barst bréf á dög-
unum undirritað af
áhyggjufuOum samfylk-
ingarmönnum. Sjálf er
ég áhyggjufuOur sam-
fylkingarmaður. Það
gengur nefnOega ekkert
hjá okkur í Samfylking-
unni, kannski af því að
við erum að reyna að
gera öOum tO hæfis og
gerum því engum tO
hæfis. Samt var ég ekki
sérlega ánægð með þetta
bréf frá þjáningarsystk-
inum mínum i flokkn-
um. Fannst það reyndar mjög
ósmekklegt.
Þetta bréf sem mér barst snerist
um prófkjör Samfylkingar en af því
höföu bréfritarar miklar áhyggjur.
Þeir máttu ekki tO þess hugsa að
Helgi Hjörvar og Hrannar B. Am-
arsson næðu endurkjöri sem borg-
arfuOtrúar. Það sem vakti þó mesta
athygli mína í bréfmu var sú fuU-
yrðing að borgarstjóri myndi „snúa
sér tO nýrra verkefna á stjómmála-
sviðinu". Þá yrði að velja eftirmann
borgarstjóra og því væri nauðsyn-
legt að í hópi borgarfuUtrúa væri
einstaklingur „sem væri í stakk bú-
inn tO að taka við embætti borgar-
stjóra".
Þetta finnst mér merkUeg klausa
því ég hef talið víst aö Ingibjörg Sól-
rún muni sitja út kjörtímabUið nái
hún endurkjöri sem borgarstjóri í
Reykjavik. Persónulega er ég ekki
tUbúin að kjósa R-listann upp á ann-
að. Ég sé einfaldlega engan eftir-
mann borgarstjóra í hópi annarra
frambjóðenda. Mér þætti gaman að
vita hvaö „áhyggjufuUir samfylk-
ingarmenn" hafa fyrir sér i því að
borgarstjóri sé á leið úr sæti borgar-
stjóra og í landsmálin. Ég hélt að
Ingibjörg Sólrún væri búin að af-
greiða þetta mál í fjölda viðtala. Get-
ur verið að mér skjátlist?
Nú þykist ég alveg vita hvaöa ein-
stakling bréfritarar telja hæfan tO
að verða eftirmaður borgarstjóra.
Mér hugnast sú hugmynd þeirra
Ula. Jafnvont og aumingjalegt finnst
mér að senda út nafnlaust bréf með
svívirðingum um tvo frambjóðend-
ur. Ég hef heyrt þá kenningu innan
„Þetta finnst mér merki-
leg klausa því ég hef talið
víst að Ingibjörg Sólrún
muni sitja út kjörtima-
bilið nái hún endurkjöri
sem borgarstjóri í
Reykjavik. Persónulega er
ég ekki tilbúin að kjósa
R-listann upp á annað.
Ég sé einfaldlega engan
eftirmann borgarstjóra í
hópi annarra frambjóð-
enda. “
Samfylkingar að bréfið sé komið frá
sjálfstæðismönnum sem svifist
einskis í kosningabaráttu en heldur
finnst mér það langsótt kenning.
Þetta bréf get ég ekki endursent því
ég veit ekki hverjir sendendur eru. |
Það eina sem ég get gert er að lýsa
fyrirlitningu minni á því. Og geri
það hér með.