Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Síða 28
V ▼
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 2002
23 ára karlmaður játar á sig morðið:
Var með ham-
ar, kjothmf og
sveðju á sér
8. manndrápið á tveimur og hálfu ári
/■* p /
23 ára Reykvíkingur hefur viður-
kennt að hafa banað 51 árs íbúa í
Vesturbænum við Víðimel í fyrrinótt.
Ungi maðurinn var handtekinn á
heimili sínu í gærkvöldi grunaður um
verknaðinn. Hann hefur ekki komið
mikið við sögu lögreglu áður. Hins
vegar þykir liggja fyrir að maðurinn
hafi verið að koma úr innbroti við
Ægisíðu þegar hann gekk fram á
mann við Víðimel. Sá maður hafði
verið í vinnu en verið samferða í bíi
meö félögum sínum að Melatorgi þar
sem honum var hleypt út.
Þegar maðurinn mætti manninum
sem var að koma úr innbrotinu við
Ægisíðu skipti engum togum að brota-
maðurinn réðst á vegfarandann.
Ástæöur verknaðarins liggja ekki fyr-
ir. Hins vegar þykir liggja ljóst fyrir
að hann hafi verið undir áhrifum
fikniefna.
Rannsókn lögreglu hefur leitt i ljós
að ofbeldismaðurinn var með kjöthníf
á sér, sveðju og slaghamar. Ekki ligg-
ur fyrir nákvæmlega á þessu stigi
hvert af vopnunum var notað við
hinn ógeðfehda verknað en miklir
áverkar voru á höfði hins látna.
Yfirheyrslur lögreglunnar, ná-
kvæm vettvangsvinna og önnur um-
Þórarinn:
Stórmannlegt
hjá Sturlu!
„Þetta er stórmannlegt hjá Sturlu
og undir þessu get ég ekki setið,“
sagði Þórarinn V.
Þórarinsson, fyrr-
um forstjóri Sím-
ans, um þau um-
mæli Sturlu Böðv-
arssonar að hann
hefði átt að ganga
frá því að - stjórn
félagsins yrði upp-
lýst um málið.
„Þegar fyrir lá að
Ríkisendurskoðun
taldi þetta fyrirkomulag eðlilegt og
fyrirmæli ráðuneytisins lágu á borð-
inu taldi ég að kröfunum gagnvart
mér væri fullnægt. Og það er augljóst
að svona mál ber forstjóri ekki upp
fyrir stjórn fram hjá stjórnarfor-
manni,“ sagði Þórarinn.
-BG
Þórarinn V.
Þórarinsson.
EINKAVINA
VARGÖLD!
fangsmikil rannsóknarvinna leiddu
til þess i gær að maðurinn var hand-
tekinn í gærkvöldi.
Lögfræðingar lögreglunnar í
Reykjavík unnu að því í morgun að
undirbúa kröfu um gæsluvarðhald
yfir manninum fyrir Héraðsdómi
Reykjavikur í dag.
Morðið við Víðimel er það áttunda
sem á sér stað hér á landi frá því í júlí
1999, þar af það sjötta í höfuðborginni,
Reykjavík. Eitt var í Kópavogi en ann-
að í Njarðvík. Síðasta manndrápið
sem framið var átti sér stað í Bakka-
seli í Breiðholti í október síðastliðn-
um. Það mál hefur ekki verið tekið
fyrir hjá dómstólum enn þá. -Ótt
DV-MYND ÞÓRARINN FRIÐJÓNSSON
Skáldiö meö forseta Islands
Leikrit Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Sniglaveislan, var frumsýnd í London á sunnudagskvöld og heitir The Feast of
Snails. Mjög góöur rómur vargeröur aö frumsýningunni og endurkoma Davids Warners á breskt leiksviö hefur vakiö
mjög mikla athygli en hann leikur aöalhlutverkið. Á myndinni sést skáldiö ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta ís-
lands, og Dorrit Mouissaeff, heitkonu hans, í veislu aö lokinni frumsýningu.
Samgönguráðherra hafnar því að hafa brotið hlutafélagalög:
Forstjórinn átti að
ganga frá málinu
„Friðrik hefur unnið feiknalega vel
að þessum verkefnum og það er mik-
ill fengur að því að hafa haft jafn-
reyndan mann í þessum málum. Hann
nýtur mins trausts, já,“ sagði Sturla
Böðvarsson í morgun þegar hann var
spurður um hvort Friðrik Pálsson
nyti enn trausts hans sem stjómarfor-
maður.
„Það fer hins vegar ekkert á milli
mála að stjómarformaðurinn og for-
stjóri Símans gerðu ákveðin mistök
með því að upplýsa ekki stjómina um
þetta mál. Forstjóri fyrirtækisins átti
auðvitað að ganga frá því að sú hlið
málsins væri trygg og traust þegar
hann fær bréfið frá ráðuneytinu,"
sagði Sturla. Samgönguráðherra er
þar að vísa til bréfs sem samgöngu-
ráðuneytið sendi Þórami V. Þórarins-
syni varðandi það verklag að ráðu-
neytið myndi kvitta upp á alla reikn-
inga sem fyrirtæki Friðriks, Góðráö
ehf., myndi senda inn áður en Síminn
greiddi þá.
Sturla þvertekur fyrir að þrátt fyr-
ir að hann, hafi óskað eftir því við
Friðrik að hann
Sturla
Böövarsson.
ynni meira en sem
nemur hefðbundn-
um stjórnarfor-
mennskustörfum
við einkavæðingu
íyrirtækisins hafi
myndast ráðning-
arsamningur mUli
hans, sem hand-
hafa eina hluta-
bréfsins, og Góð-
ráða með þessu. Slíkt væri enda i
trássi við hlutafélagalög því eins og
Áslaug Björgvinsdóttir, sérfræðingur
í félagarétti, hefur bent á getur hlut-
hafi ekki skuldbundið hlutafélagið.
Sturla segir það því af og frá að hann
hafi á einhvern hátt verið að brjóta
lög.
Hins vegar vill hann ekkert um það
segja hvar ráðningarsamningur hafi
þá orðið til við Góðráð ehf. úr því
hann varð ekki til í samskiptum Góð-
ráða og ráðuneytisins. Þórarinn V.
Þórarinsson lýsti því yfir í DV í gær
að hann hefði ekkert haft með samn-
inginn að gera og stjóm félagsins
hefði ekkert haft með hann að gera
heldur. Sturla minnir á að haft hafi
verið samband við Ríkisendurskoðun
en fellst á að ríkisendurskoðandi hafi
átt að vera ráðgefandi um verklag en
ekki samninginn sjálfan. Sturla segir
að það sé sameiginleg ákvörðun full-
trúa eiganda, stjórnarformanns og for-
stjóra að Friðrik samhliða stjórnarfor-
mennsku vinni meira en útfærslan á
því hafi átt að vera í höndum forstjór-
ans og það hafi komið sér mjög á
óvart að stjórnin hafi ekki veriö upp-
lýst um þetta. „Það var hins vegar
aldrei um neinn ráðningarsamning
milli Friðriks og mín að ræða heldur
gerði ég ráð fyrir að frá þessu yrði
gengið innan Símans enda fékk for-
stjórinn bréf þar sem sett var fram
beiðni um þetta verklag og þá átti
hann vitaskuld að ganga frá málinu
þannig að allt væri í lagi,“ segir
Sturla Böðvarsson.
Sjá einnig fréttir á bls. 4, 5, 7 og
leiðara á bls. 14
-BG
Verð matarkörfu:
Lækkaði um 5,3%
Miðað við könnun sem DV gerði í
10 verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu í gær hefur verð matarkörfu
lækkað að meðaltali um 5,3% síðan
24. janúar sl. þegar samsvarandi
könnun var gerð. Verð körfunnar
lækkaði í öllum verslununum, aUt
að 9% þar sem mest var.
Verðlækkunin var mest í Fjarðar-
kaupum í Hafnarfirði og í Nóatúni,
eða 9% eins og áður sagði, og í Sam-
kaupum og 11-11 þar sem verðið
lækkaði um 7%. Minnsta verðlækk-
unin á matarkörfunni mældist hins
vegar í lágvöruverðsverslununum
Krónunni og Nettó, eða 1%, en aðal-
keppinautur þeirra, Bónus, mældist
með 5% lægra verð nú en í janúar-
könnuninni.
Verð matarkörfunnar var lægst í
Bónusi og næstlægst í Fjarðarkaup-
um en 9% verðmunur reyndist vera
á körfunum í þessum verslunum.
Hæsta verðið á körfunni var hins
vegar að finna í Nýkaupi og var það
33% hærra en karfan kostaði í Bón-
us. Sjá nánar á bls. 9 -ÓSB
Stærsta þota Flugleiða senn tilbúin til afhendingar:
Kostar svipað og eitt álver
Stærsta og aflmesta þota Flugleiða
er senn tilbúin frá verksmiðjunum í
Renton, útborg Seattle, og kemur
hingaö til lands í fyrsta sinni 19.
mars. Flugvélin er af gerðinni 757-300
og tekur 227 manns í sæti. Vélin er
talin hagkvæmur kostur, rekstrar-
kostnaður á hvert farþegasæti er til
muna lægra en á öðrum flugvélum fé-
lagsins. Kannski vísa skráningar-
stafimir TF-FIX til þess að einmitt
þessi þota muni laga fjárhag Flugleiða
í framtíðinni og vonandi að svo verði.
Verðið á nýrri þotu af þessu tagi nem-
ur 3-4 milljörðum króna, menn segja
að það sé ekki lægra en til dæmis eitt
stykki af álveri. Þota af þessari stærð
er útvegar 250 manns atvinnu. -JBP
■■■ |
:v' «V- -1
MYND AIRPICS
Sparsöm og stór
TF-FIX, hin nýja þota Flugleiöa, í fyrradag viö flugvélasmiöju Boeing í Seattle.
- A l\ l\ l\ l\ ■ A A .. ft ft .. A ,
iGitarinní
■57 Stórhöfða 27, Æ
X s. 552 2125. X
t. Rafmagns gítar, x
¥ magnarT m/effekt K
'K’ól og snúra 33.900krx
_ fl . A „ n n n .. n . A . fl _ A A _
Toooöoöoom
,