Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2002, Blaðsíða 2
20 MÁNUDAGUR 4. MARS 2002 Sport HK-Selfoss 26-27 0-1, 2-1, &4, 9-9,12-13, (15-13), 16-13, 20-17, 24-21, 24-24, 25-26, 26-26, 26-27. HK: Mörk/víti (skot/viti): Jaliesky Garcia 8/1 (14/2), Ólafur Víðir Ólafsson 4 (5), Vilhelm Bergveinsson 4 (12), Alexander Amarson 2 (2), Óskar Elvar Óskarsson 2 (4/1), Elias Már Halidórsson 2 (5), Amar Freyr Reynisson 1 (1), Jón Bersi EUingsen 1 (1), Samúel ívar Árnason 1 (1), Már Þórarinsson 1 (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Jón Bersi, Elías Már, Alexander). Vitanýting: Skorað úr 1 af 3. Fiskuó viti: Elías Már 1, Alexander 1, Garcia 1. Varin skot/viti (skot/viti á sig): Arnar Freyr Reynisson 16/1 (38/6, hélt 9, 42%, 1 víti í stöng), Sigurður S. Sigurðsson 2 (7, hélt 0, 29%). Brottvisanir: 4 mínútur. Selfoss: Mörk/viti (skot/viti): Robertas Paulzolis 6/1 (7/1), Þórir Ólafsson 6 (9), Hannes Jónsson 5/1 (10/1), Valdimar Þórsson 5/2 (11/4), Ramunas Mikalonis 4 (11), Gylfi Ágústsson 1 (2), ívar Grétarsson (2). Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Þórir 2, Mikalonis 1, Hannes 1). Vitanýting: Skorað úr 4 af 6. Fiskuó viti: Mikalonis 4, ívar 1, Þórir 1. Varin skot/viti (skot/viti á sig): Gísli Rúnar Guðmundsson 12/2 (38/3, hélt 9, 32%). Brottvisanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson (6). Gœói leiks (1-10): 4. Áhorfendur: 95. Maöur leiksins: Ámi Þoi vardai'son. Stjömunni Drama í daufum leik Leikur HK og Selfoss var ekki neitt augnakonfekt þó að úrslit hans hafi ráðist með mjög svo dramatískum hætti þegar gestirn- ir stóðu uppi sem sigurvegarar. Varnarleikur heggja liða var mjög slakur og komu mörkin nán- ast á færibandi. Það eina jákvæða við vörnina var ágætur leikur beggja mark- varða liðanna, þeirra Arnar Freys hjá HK og Gísla hjá Selfossi. HK höfðu hins vegar undirtökin í leiknum og voru aðeins þrisvar undir i leiknum. Vel var passað upp á Jaliesky Garcia en aðrir leikmenn reyndu að bæta það upp af fremstu getu. Skytturnar tvær hjá Selfossi, Mikalonis og Paulzol- is, hafa oft leikið betur en Paulzol- is var þó skástur gestanna. Þó að sigur HK-manna væri nánast í höfn tókst Selfyssingum með mikilli elju að komast yfir um 5 mínútum fyrir leikslok. HK- menn jöfnuðu og höfðu svo nægan tima fyrir lokasókn sína og fengu reyndar til þess tvö tækifæri þvi Valdimar þjálfari tók leikhlé þeg- ar 17 sekúndur voru til leiksloka. Þegar 5 sekúndur voru eftir tók Garcia skot, Gísli varði og gaf boltann á Þóri sem tókst að fiska víti þegar sekúnda var eftir. Valdi- mar Þórisson skoraði úr vitinu Kópavogsbúum til ómældar gremju. -esá ESSO-deild karla í handknattleik um helgina: Stál í stál - ekkert gefiö eftir þegar Grótta/KR og KA skildu jöfn Grótta/KR og KAmættust á Sel- tjamamesi á laugardaginn í mikil- vægum leik í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. KA-menn, sem höfðu tapað illa fyrir ÍR-ingum í umferðinni á und- an, mættu grimmir til leiks og virt- ust staðráðnir í að fara með tvö stig norður yfir heiðar. Fyrri hálfleikur var þó gífurlega jafn, nánast jafnt á öllum tölum og einkenndist hann af afar slökum og hugmyndasnauðum sóknarleik beggja liða. KA-menn spiluðu mjög grimma vöm sem kom vel út á móti skyttum Gróttu/KR. Sérstaklega fékk Lettinn Aleksandrs Pettersons, sem farið hefur mikinn í liði Gróttu/KR að undanfömu, að finna fyrir því og eftir fimmtán mínútna leik brugðu KA-menn á þaö ráð að láta Jónatan Magnússon taka hann úr umferð. Það er ekki hægt að segja að KR-ingar hafi leyst þá skip- an vel því sóknarleikur þeirra var ansi tilviljunarkenndur og það var meira fyrir viljann og sterka vörn en góða spilamennsku í sókninni að þeir voru aöeins tveimur mörkum undir í hálfleik. Grótta/KR mætti þó sterkara til leiks í seinni hálfleik en það vom samt sem áður KA-menn sem höfðu frumkvæðið framan af hálfleiknum og náðu mest þriggja marka forystu, 17-14, drifnir áfram af góðum leik Jónatans Magnússonar. Grótta/KR komst inn í leikinn aftur, þökk sé Hlyni Morthens, markverði liðsins, en hann varði frábærlega á mikil- vægum augnablikum og kom meðal annars í veg fyrir að KAkæmist fjórum mörkum yfir þegar hann varði frá Heimi Árnasyni í hraða- upphlaupi. Á lokakaflanum vora það síðan Atli Samúelsson og Aleksandrs Pett- ersons sem drógu Gróttu/KR að landi. KA komst í 24-22 en Atli minnkaði muninn og Pettersons slapp úr gæslu Jónatans og skoraði tvívegis og kom Gróttu/KR yfir, 25-24. Heimir Ámason jafnaði met- in fyrir KA þegar rúmar tvær min- útur vora eftir og þrátt fyrir að KA- menn hefðu boltann síðustu mínút- una þá tókst þeim ekki að tryggja sér sigurinn. Þeir misstu boltann þegar þrjár sekúndur vora eftir en Grótta/KR klúðraði síðustu sókn- inni og jafntefli var því staðreynd sem verða að teljast sanngjörn úr- slit þegar á heildina er litið. Hlynur Morthens varði vel í marki Gróttu/KR og Magnús Agnar Magnússon og Davíð Ólafsson voru sérstaklega sterkir í vörninni. Pet- ersons var i strangri gæslu nær all- an leikinn en náði þó nokkram sinnum að sýna mátt sinn og megin. Jónatan Magnússon var bestur KA-manna, geysilega drifandi bæði í sókn og vöm og tók af skarið þeg- ar með þurfti. Hans Hreinsson stóð vaktina með prýði í marki KA í fyrri hálfleik en átti erfitt uppdrátt- ar í þeim seinni. Heimir Árnason var með skotræpu og hefði að ósekju mátt sýna örlítið meiri kost- gæfni í skotvali sínu. „Þetta var miklu betri leikur hjá okkur heldur en gegn lR. Menn voru að leggja sig fram og þó að ég hefði auðvitað viljað fara með tvö stig héðan þá er ég sáttur við stigið. Deildin er alveg ótrúlega jöfn og það má ekki misstíga sig einu sinni án þess að gjalda fyrir það. Það eru eftir átta úrslitaleikir og við verðum klárir í þá,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA, eftir leikinn. -ósk Kaflaskipt í Safamýrinni - þegar Fram vann ÍBV í jöfnum leik Augljós styrkleikamunur - þegar Valur bar sigurorö af Víkingi Valsmenn gerðu það sem þeir þurftu þegar þeir fengu botnliö Víkings I heimsókn á fóstudags- kvöld. Eftir ströggl í fyrri hálfleik náðu Valsmenn að losa sig við gestina og innbyrða 11 marka sigur, 32-21. Það var lítið um varnir í fyrri hálf- leik hjá báðum liðum og mikið skorað en staðan I hálfleik var 17-15 Val í vil. Þá fóra Valsarar að taka Guö- laug Hauksson úr umferð og virk- aði það vel. Nokkuð var um ráð- leysi hjá Víkingum eftir það og enginn sem virtist geta tekiö af skariö. Valsmenn sigu hægt og bítandi fram úr eftir því sem leiö á leikinn og styrleikamunur liðanna kom berlega í ljós. Hjá Val var Snorri Steinn sterk- ur og Sigfús nýtti það sem hann fékk úr að moða vel. Roland Era- dze stóð sig vel að vanda í markinu og varði m.a. þrjú vítaköst. Hjá Víkingum var Guðlaugur bestur og Þórir Júlíusson var dug- legur að sækja á Valsvömina sem var ekki sterk í fyrri hálfleik og oft- ar en ekki fékk Þórir vítakast fyrir ómakið. Það er þó áhyggjuefni fyr- ir Víkinga hversu mikið þeir treysta á Guðlaug sóknarlega séð. Eftir að Valsmenn tóku hann úr umferð var sóknarleikur liðsins hvorki fugl né fiskur og veröur lið- ið aö bæta úr þvi á lokakaflanum ætli það sér að næla í fleiri stig áö- ur en deildarkeppninni lýkur. Trausti Ágústsson varði ágætlega í markinu en Víkingar notuðu þrjá markverði í leiknum. -Ben Fram sigraði ÍBV, 27-26, í spenn- andi og kaflaskiptum leik í Essódeild karla 1 Safamýrinni á laugardaginn. Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálíleik en í stöðunni 7-6 tóku heimamenn öll völd á vellinum, lokuöu vörn- inni hjá sér og voru skynsamir i sókninni og þeir uppskáru sex marka forskot þegar flautað var til leikhlés, 17-11. Þeir héldu sínu fyrstu fimm mínútur síðari hálf- leiks en misstu þá tvo leikmenn út af á sama tíma, Björgvin fyrir brot og svo var dæmt á bekkinn fyrir kjaftbrúk. Þetta voru Eyjapeyjar fijótir að nýta sér og skoruðu þrjú mörk á þessum tveimur minútum og héldu síðan uppteknum hætti næstu mínútur og minnkuðu mun- inn í eitt mark, 26-19. Þá vöknuðu heimamenn við vondan draum og þeim tókst að skora næstu þrjú mörk en gestimir gáfust ekki upp við það heldur settu fjögur mörk í röð og jöfnuðu leikinn í fyrsta sinn frá því í stöðunni 4-4. Lokakaflinn var síðan æsispennandi en Fram- arar voru alltaf á undan að skora og það var Hjálmar Vilhjálmsson sem skoraði síðasta mark leiksins þegar þrjátíu sekúndur voru eftir. Eyjamenn voru reyndar óheppnir aö jafna ekki leikinn á lokasekúnd- unum en þá smaii skot Mindgas Andrisuka í þverslána og leiktím- inn rann út. Róbert Gunnarsson, Björgvin Björgvinsson, Lárus G. Jónsson og Hjálmar Vilhjálmsson fóru fyrir heimamönnum og þá stóð Magnús G. Erlendsson sig vel í markinu þann frekar stutta tíma sem hann fékk. Hjá gestunum átti Svavar Vignisson frábæran leik og þeir Mindgas Andriuska og Petras Raupanas áttu góða spretti. -SMS Grótta KR-KA 25-25 0-1, 1-1, 2-1, 24, 5-5, 11-9, 11-12, 12-12 (12-14), 13-14, 13-16, 14-16, 16-17, 18-18, 19-18, 21-23, 24-24, 25-25. Grótta/KR: Mörk/viti (skot/viti): Magnús A. Magnús- son 6/4 (9/5), Aieksandrs Petersons 6 (10), Davíð Ólafsson 5/1 (7/2), Atli Samúelsson 4 (8), Gísli Kristjánsson 2 (2), Alfreð Finns- son 1 (4), Kristján Þorsteinsson 1 (4). Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Petersons, Davíð, Gísli). Vitanýting: Skorað úr 5 af 7. Fiskuó víti: Gísli 2, Magnús A., Petersons, Kristján, Alfreð, Atli. Varin skot/viti (skot/viti á sig): Hlynur Morthens 18 (43/4,14 haldið, 42%). Brottvísanir: 6 minútur. KA: Mörk/víti (skot/viti): Jónatan Magnússon 8/3 (12/3), Heimir Ámason 6 (16), Andrius Stelmokas 4 (5), Jóhann G. Jóhannsson 3 (4), Halldór Sigfússon 2/1 (5/1), Heiðmar Felixson 2 (5), Sævar Árnason (1), Hreinn Hauksson (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Jónatan, Heiðmar, Stelmokas). Vítanýting: Skorað úr 4 af 4. Fiskuð viti: Halldór 2, Stelmokas, Jóhann. Varin skot/viti (skot/viti á sig). Hans Hreinsson 13 (36/4, 6 haldið, 36%), Egidius Petkevicius 2/1 (4/2, 0 haldið, 50%, eitt víti fram hjá). Brottvisanir: 10 minútur. Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Vaigeir Ómarsson (5). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 165. Maður leiksins: Jónatan Magmisson. KA Fram-ÍBV 27-26 0-1, 3-1, 7-6,13-7,15-10, (17-11), 17-12,20-14 20-19, 23-19, 25-25, 27-26. Franu Mörk/viti (skot/viti): Róbert Gunnarsson 8/4 (12/4), Björgvin Björgvinsson 5 (12), Lárus Jónsson 4 (5), Hjálmar Vilhjálmsson 4 (9), Þorri Gunnarsson 3 (3), Guðjón Drengsson 2 (5), Gunnar B. Jónsson 1 (1), Rögnvaldur Johnsen (2). Mörk úr hraóaupphlaupum: 5 (Róbert 2, Þorri, Guöjón, Gunnar). Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Fiskuð víti: Róbert 2, Lárus, Guðjón. Varin skot/viti (skot/víti á sig): Sebasti- an Alexandersson 6/1 (25/3, 0 haldið, 24%), Magnús Erlendsson 6 (13/1, 3 haldið, 46%) Brottvísanir: 10 mínútur. ÍBV: Mörk/viti (skot/viti): Mindaugas Andriuska 8/1 (20/2), Svavar Vignisson 7 (8), Petras Raupanas 5 (9), Jón Andri Finnsson 4/2 (4/2), Sigurður A. Stefánsson 2 (3), Sigurður Bragason (1), Amar Pétursson (3). Mörk úr hraóaupphlaupum: 5 (Jón Andri 2, Andriuska 2, Svavar). Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Fiskuð viti: Svavar 4. Varin skot/viti (skot/víti á sig): Hörður F. Ólafsson 13 (39/4, 5 haldið, 33%), Gunnar G. Gústafsson 0 (1, 0%). Brottvisanir: 10 mínútur Dómarar (1-10): Hlynur Leifsson og Anton Gylfi Pálsson (6). Gteói leiks (1-10): 6. Áhoifendur: 104, Maöur leiksins: Svavar Vígnisson. ÍB\' Valur-Víkingur 32-21 0-1, 2-2, 4-4, 6-6, 9-6, 11-8, 13-11, 16-12, (17-15), 18-15, 21-16, 24-17, 27-20, 32-21 Valur: Mörk/víti (skot/viti): Snorri Steinn Guð- jónsson 10/5 (14/5), Sigfús Sigurðsson 7 (7), Freyr Brynjarsson 5 (6), Bjarki Sigurðsson 4/1 (8/1), Davíð Höskuldsson 3 (5), Ragnar Ægisson 1 (1), Ásbjöm Stefánsson 1 (2), Einar Gunnarsson 1 (6), Erlendur Egilsson (1), Patric Þorvaldsson (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 9 (Freyr 2, Davíð 2, Snorri 2, Sigfús 2, Ragnar). Vitanýting: Skorað úr 5 af 6. Fiskuó viti: Sigfús 2, Bjarki 2, Snorri, Ein- ar. Varin skot/viti (skot/viti á sig): Roland Eradze 21/3 (41/7, hélt 7, 51%), Pálmar Pét- ursson 2 (3, hélt 0, 67%). Brottvisanir: 8 mínútur. Vikineur: Mörk/viti (skot/víti): Guðlaugur Hauks- son 10/4 (19/7), Bjöm Guðmundsson 4 (8), Benedikt Jónsson 3 (5), Þórir Júlíusson 2 (6), Sigurður Jakobsson 2 (8). Mörk úr hraóaupphlaupum: 0 Vitanýting: Skorað úr 4 af 7. Fiskuð viti: Þórir 4, Benedikt, Atli, Sigurður. Varin skot/viti (skot/viti á sig): Trausti Ágústsson 16 (38/4, hélt 6, 42%), Jón Traustason 2 (9/2, hélt 1, 29%), Öm Grétarsson 1 (4, hélt 0, 25%). Brottvisanir: 8 minútur Dómarar (1-10): Jónas Elíasson og Ingvar Guðjónsson, (7). Gteði leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 90. Maöur ieiksins: Snorri Stcinn (iuðjónsson, V’al

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.