Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2002, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 4. MARS 2002
27
Sport
DV
q*CH ^PUBtlC
Tékkinn Roman Sebrle bar sigur úr býtum í sjöþraut karla á Evrópumeistaramótinu í Vín um helgina. Sebrle, sem er heimsmethafi í tugþraut utanhúss, ætlaði
sér að slá Evrópumót landa síns, Tomasar Dvoraks, en tókst það ekki þrátt fyrir mjög sterka þraut. Reuters.
Evrópumeistaramótið innanhúss í frjálsum íþróttum í Vín um helgina:
- Vésteinn Hafsteinsson landsliðsþjálfari ánægður með Völu og Jón Arnar
Úrslit á EM í
frjálsum íþróttum
1500 metra hlaup kvenna:
1. Y. Puzanova, Rússlandi 4:06,30 ra.
2. E. Iagar, Rúmeníu .... 4:06,90 m.
3. A. Turova, Hv. Rússl. . . 4:07,69 m.
Þrístökk karla:
1. C. Olsson, Svíþjóð ....17,54 m
2. M. Oprea, Rúmeníu......17,22 m
3. A. Glavatskiy, Hv, Rússl. . 17,05 m
60 metra hlaup kvenna:
1. K. Gevaert, Belgíu ...7,16 sek.
2. M. Kislova, Rússlandi ... 7,18 sek.
3. G. Kokloni, Grikklandi . . 7,22 sek.
800 metra hlaup karla:
1. P. Czapiewski, Póllandi 1:44,78 m.
2. A. Bucher, Sviss.... 1:44,93 m.
3. A. Reina, Spáni .... 1:45,25 m.
4x400 metra hlaup kvenna:
1. Hvíta Rússland...... 3:32,24 m.
2. Pólland............. 3:32,45 m.
3. Ítalía ............. 3:36,49 m.
60 metra hlaup karla:
1. J. Gardener, Bretlandi . . 6,49 sek.
2. L. Francis, Bretlandi . . . 6,55 sek.
3. A. Dovgal, Úkraínu .... 6,62 sek.
4x400 metra hlaup karla:
1. Pólland .......... 3:05,50 mín.
2. Frakkland..........3:06,42 mín.
3. Spánn............. 3:06,60 mín.
-ósk
Jón Amar Magnússon hafhaði í
fjórða sæti í sjöþraut á Evrópu-
meistaramótinu í frjálsum íþróttum
innanhúss í Vin um helgina.
Jón Arnar hóf keppni á fóstudags-
morgun í 60 metra hlaupi og eftir
frábært start kom hann í mark á
fjórða besta tímanum, sjö sekúnd-
um sléttum. Erki Nool kom fyrstur
í mark og Tékkamir Tomas Dvorak
og Roman Sebrle þar á eftir.
Tvö fyrstu ógild
í næstu grein, langstökkinu, var
Jón Arnar heldur tæpur. Hann
gerði fyrstu tvö stökk sín ógild en
náði síðan að stökkva 7,50 metra í
síðasta stökkinu og var augljóst að
þungu fargi var af honum létt eftir
það stökk. Það stökk gaf honum
fimmta sætið í langstökkinu og var
hann því enn í fjórða sæti eftir tvær
greinar.
Jón Amar skaust síðan upp fyrir
Eistann Erki Nool í kúlvarpinu
enda Nool slakur kúluvarpari. Jón
Amar varpaði kúlunni 15,53 metra
sem var þriðji besti árangurinn og
komst þar með í þriðja sætið sam-
anlagt.
Jón Arnar náði að halda þriðja
sætinu eftir síðustu keppnisgrein
fyrri dags sem var hástökk. Hann
stökk 1,96 metra og gerði þrjár mjög
heiðarlegar tilraunir við 1,99 metra.
Erki Nool stökk sömu hæð en Rom-
an Sebrel, sem leiddi eftir' fyrsta
dag, stökk 2,11 metra.
Jón Amar náði sér síöan ekki á
strik í fyrstu grein seinni dags sem
var 60 metra grindahlaup. Hann
hljóp á 8,24 sekúndum og hafnaði í
sjöunda sæti, þó ekki nema einu
sæti frá hans helsta keppinaut um
þriðja sætið, Eistanum Erki Nool.
í stangarstökkinu náöi Nool hins
vegar að komast upp fyrir Jón Arn-
ar með því að stökkva 5,20 metra en
Jón Amar lét sér nægja 5 metra
sem hann fór yfir í fyrstu tilraun.
Oröinn þreyttur
Jón Amar var síðan orðinn veru-
lega þreyttur þegar kom að 1000
metra hlaupinu en ljóst var fyrir þá
grein að hann þyrfti að hlaupa á frá-
bæmm tíma til að eiga möguleika á
bronsverðlaunum. Það tókst ekki.
Jón Amar hljóp metrana þúsund á
2:50,91 mínútu og hafnaði eins og áð-
ur sagði í fjórða sæti með 5996 stig, 88
stigum á eftir Eistanmn Erki Nool.
Tékkinn Roman Sebrle bar sigur
úr býtum, fékk 6280 stig sem er und-
ir íslandsmeti Jóns Amars frá 1999.
Annar Tékki, Tomas Dvorak, hafn-
aði í öðru sæti með 6165 stig.
Vaia komst ekki í úrslit
Vala Flosadóttir komst ekki í úr-
slit í stangarstökkskeppninni. Vala
var þó ansi nálægt því hún stökk
4,30 metra og jafnaði sinn besta ár-
angur á árinu. Hún var með átta
efstu þegar allar konur áttu eitt
stökk eftir en þá vippuðu þær
Annika Becker frá Þýskalandi og
Pavla Hamackova frá Tékklandi sér
yfir 4,35 metra sem var lágmarks-
hæð til að komast í úrslit og því sat
Vala eftir með sárt ennið.
Vala stökk af miklu öryggi í
fyrstu tilraun yfir 4 metra, 4, 20
metra og 4,30 metra, en tókst ekki
að fara yfir 4,35 þrátt fyrir þrjár
ágætar tilraunir.
Stimpluðu sig aftur inn
Vésteinn Hafsteinsson, landsliðs-
þjálfari íslenska frjálsíþróttalands-
liðsins, var sáttur við frammistöðu
Jóns Amars og Völu á mótinu þeg-
ar DV-Sport hafði samband við
hann í Vin eftir að þau höfðu lokið
keppni.
„Þegar á heildina er litið er ég
mjög sáttur með árangurinn. Við
fórum út með lítinn hóp þar sem
ekkert mátti út af bregða og þau ná
bæði sínum besta árangri á árinu
og stimpluðu sig aftur inn meðal
þeirra bestu á þessu móti,“ sagði
Vésteinn.
„Ég er mjög ánægður með Jón.
Hann er fjórði í sjöþrautinni og það
er betra en ég þorði að vona fyrir
mótið. Árangurinn á pappírunum
fyrir mótið gerir það að verkum að
ég er mjög sáttur við þrautina hjá
honum þrátt fyrir að það hefði ver-
ið skemmtilegra fyrir hann að kom-
ast á pall. Það var gaman að sjá að
startið hjá honum í stuttu hlaupun-
um var mjög gott sem segir okkur
að það er ennþá kraftur í líkaman-
um hjá honum og ég er ekki í vafa
um að hann á eftir að geta haldið
dampi í tvö til þrjú ár í viðbót í
fremstu röð.“
Tekur tíma
„Vala hefur gengið í gegnum
miklar breytingar undanfarið ár
hvað varða þjálfara og það tekur
einfaldlega tíma fyrir íþróttamenn
að venjast nýjum áherslum. Ég hef
mikla trú á því að hún komi sterk
inn í sumar,“ sagði Vésteinn í sam-
tali við DV-Sport. -ósk
Úrslit á EM í
frjálsum íþróttum
Sjöþraut karla:
1. Roman Sebrle, Tékklandi . . . 6280
2. Tomas Dvorak, Tékklandi . . . 6165
3. Erki Nool, Eistlandi.... 6084
4. Jón Amar Magnússon ..... 5996
Fimmtarþraut kvenna:
1. Y. Prokorhova, Rússlandi . . . 4622
2. Naide Gomes, Portúgal... 4595
3. Carolina Kluft, Svíþjóð. 4535
Kúluvarp karla:
1. M. Martinez, Spáni ...21,26 m
2. J. Olsen, Danmörku....21,23 m
3. M. Konopka, Slóvakíu . . . 20,87 m
Kúluvarp kvenna:
1. V. Pavlysh, Úkraína...19,76 m
2. A. Legnante, Ítalíu...18,60 m
3. L. Koeman, Hollandi .... 18,53 m
Þristökk kvenna:
1. T. Marinova, Búlgaríu . . . 14,81 m
2. A. Hansen, Bretlandi .... 14,71 m
3. Y. Oleynikova, Rússlandi . 14,30 m
Hástökk kvenna:
1. M. Kuptsova, Rússlandi . . . 2,03 m
2. K. Bergqvist, Svíþjóð..1,95 m
3. D. GyorfFi, Ungverjalandi . 1,95 m
Stangarstökk karla:
1. T. Lobinger, Þýskalandi . . 5,75 m
2. P. Kristiansson, Svíþjóð . . . 5,75 m
3. L. Borgeling, Þýskalandi . . 5,75 m
3000 metra hlaup karla:
1. A. Garcia, Spáni .... 7:43,89 mín.
2. A. Jimenez, Spáni . . . 7:46,49 mín.
3. J. Espana, Spáni .... 7:48:08 mín.
Langstökk karla:
1. R. Fernandez, Spáni ...8,22 m
2. Y. L'amela, Spáni......8,17 m
3. P. Datchev, Rússlandi .... 8,17 m
200 metra hlaup karla:
1. M. Urbas, Póllandi .... 20,64 sek.
2. C. Malcolm, Bretlandi . . 20,65 sek.
3. R. Mackowiak, Póllandi 20,77 sek.
200 metra hlaup kvenna:
1. M. Hurtis, Frakklandi . . 22,52 sek.
2. K. Mayr, Austurríki . . . 22,70 sek.
3. G. Rockmeier, Þýskal. . . 23,07 sek.
1500 metra hlaup karla:
1. R. Silva, Portúgal . . . 3:49,93 mín.
2. J. Higuero, Spáni.... 3:50,08 mín.
3. M. East, Bretlandi . . . 3:50,52 mín.
60 metra grindahlaup karla:
1. C. Jackson, Bretlandi . . . 7,40 sek.
2. E. Lichtenegger, Austurr. 7,44 sek.
3. Y. Pechonkin, Rússlandi . 7,50 sek.
60 metra grindahlaup kvenna:
1. G. Alozie, Spáni.....7,84 sek.
2. L. Ferga, Frakklandi . . . 7,96 sek.
3. K. Bolm, Þýskalandi .... 7,97 sek.
400 metra hlaup kvenna:
1. N. Antyukh, Rússlandi . 51,65 sek.
2. C. Marx, Þýskalandi .. . 52,15 sek.
3. K. Shinkins, írlandi .. . 52,17 sek.
Stangarstökk kvenna:
1. S. Feofanova, Rússlandi . . . 4,75 m
2. Y. Buschbaum, Þýskalandi 4,65 m
3. M. Pyrek, Póllandi.....4,60 m
Langstökk kvenna:
1. N. Xanthou, Grikklandi ... 6,74 m
2. O. Rublyova, Rússlandi ... 6,74 m
3. L. Galkina, Rússlandi .... 6,68 m
400 metra hlaup karla:
1. M. Piawgo, Póllandi . . . 45,39 sek.
2. J. Laursen, Svíþjóð .... 45,59 sek.
3. I. Vieru, Rúmeníu....46,17 sek.
3000 metra hlaup kvenna:
1. M. Dominguez, Spáni. 8:53,87 mín.
2. C. Sacramento, Portúg. 8:53,96 mín.
3. Y. Zadorozhnaya, Rússl. 8:58,36 mín.
Hástökk karla:
1. S. Strand, Svíþjóð ....2,34 m
2. S. Hoim, Svíþjóð ......2,30 m
3. Y. Rybakov, Rússlandi .... 2,30 m
800 metra hlaup kvenna:
1. J. Ceplak, Slóveníu .. 1:55,82 mín.
2. S. Graf, Austurríki . . 1:55,85 mín.
3. E. Grousselle, Frakkl. 2:01,46 mín.
-ósk
r>
*