Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 DV Fréttir ^ Stofnendur Thermo Plus leggja fram kærur: Oska rannsóknar á meintum veðsvikum - málið snýr m.a. að umsýslu fjármálastofnunar með hlutabréf Thermo Plus í Reykjanesbæ Fyrirtækiö varö gjaldþrota á síöasta ári og þrír stofnenda þess telja aö marg- víslegt saknæmt athæfi hafi átt sér staö á starfstíma fyrirtækisins. Lögfræðingar þriggja af stofnend- um kælitækjaverksmiðjunnar Thermo Plus Europe í Reykjanesbæ fóru þess skriflega á leit við Fjár- málaeftirlitið í gær að það rannsak- aði háttsemi fjármálafyrirtækis vegna viðskipta með hlutabréf í fyr- irtækinu. Snýst það um meðferð á hlutabréfum þremenninganna og Fimm ehf. í Thermo Plus, að nafn- verði 11 milljónir króna. Einnig hef- ur verið undirbúin kæra til ríkis- lögreglustjóra með beiðni um opin- bera rannsókn vegna hlutabréfa í fyrirtækinu sem áttu að vera í vörslu viðkomandi íjármálastofnun- ar. Þau bréf munu hins vegar ekki hafa fundist nema að hluta. Thermo Plus varð gjaldþrota á síð- asta ári en ekki er nákvæmlega vitað hversu stórt gjaldþrotið í raun er. Talið er að í töpuðum viðskiptakröfum og töpuðu hlutafé geti það verið um 800-1000 miiljónir króna. Hefur þögnin um þetta mál vakið athygli út fyrir landsteinana, ekki síst í ljósi þess að ít- rekaðar ábendingar hafa komið ffam um að þar geti verið um að ræða hund- raða milljóna króna fjársvik. Samkvæmt heimiidum DV snýst framlögð kæra m.a. um að einungis hafi verið hægt að gera grein fyrir hluta af hlutabréfum Fimm ehf. sem talin eru hafa verið í vörslu viðkom- andi fjármálastofnunar. Nokkur bréf voru á sínum tíma löglega framseld fjármálastofnuninni sem veð fyrir skuld á tékkareikningi. Þá munu fleiri bréf einnig hafa verið lögð þar inn, líklega sem veð, án þess að þau væru þó framseld með löglegum hætti. Bréfin voru í eigu Fimm ehf., sem var eins konar eign- arhaldsfélag stofnenda Thermo Plus og átti að halda utan um hlut þeirra í fyrirtækinu. Mun málið m.a. snúast um meint veðsvik með umsýslu hlutabréf- anna. Samkvæmt heimildum DV er þetta kærumál þó aðeins toppurinn á isjakanum og er búist við að rann- sóknin muni verða mun víðtækari. Þar komi þá væntanlega til skoðun- ar opinberir aðilar, stofnanir, félög og einstaklingar sem tengjast við- skiptum og uppgjöri Thermo Plus. Samkvæmt upplýsingum DV óskaði Fjármálaeftirlitið eftir því fyrir nokkru að fá í hendur gögn um Thermo Plus úr höndum skipta- stjóra og stendur rannsókn nú yfir. Samkvæmt heimildum blaðsins mun sú rannsókn m.a. snúast um hugsanleg fjársvik. Þá er blaðinu kunnugt um að hluthafar hafi óskað eftir því við að minnsta kosti einn þingmann að hann beiti sér fyrir fundi með yfirmönnum fjármálaeft- irlits og rannsóknarlögreglu um málið. Blaðið hefur einnig upplýsingar um að einstaklingar, sem telja sig hafa verið vélaða til hlutabréfa- kaupa á tólffóldu nafnverði á síð- ustu mánuðum félagsins, undirbúi nú málsókn. ítarlega hefur verið fjaliað um ýmis vafasöm mál sem tengjast fyrirtækinu á síðum DV all- ar götur síðan 1999. -HKr. DV-MYND TEITUR Handtekinn Einn þeirra sem mótmæltu við Grand hótel í gær framgöngu ísra- elsmanna gagnvart Palestínumönn- um komst fram hjá lögreglu og inn í hóteliö en lögreglan yfirbugaöi hann. Mótmæltu ferðakynningu Félagið Ísland-Palestína var með mótmælastöðu fyrir framan Grand hótel í Reykjavík í gær vegna land- kynningar ferðamálaskrifstofu ríkis- stjómar ísraels sem þar fór fram. í fréttatilkynningu frá félaginu segir m.a. að félagið lýsi furðu sinni á þeirri biræfni ferðamálaskrifstofu ríkis- stjómar ísraels að efna tii kynningar á skemmti- og sólarlandaferðum til landsins á sama tíma og heimurinn stendur á öndinni vegna framferðis Israelshers. -HKr./gk DV-MYND TEITUR Fjölmenni Talsvert á þriöja hundraö manns mótmælti framgöngu ísraels gagnvart Palestínumönnum fyrir utan Grand hótel í gær. ísraelski sendiherrann kom þangaö vegna kynningar á vegum Feröamálaskrifstofu ísraels. Mótmælin fóru aö mestu friösamlega fram. Lögreglan rannsakaði bein á síðasta ári í tengslum við Valgeirsmálið: Grunur um manna- bein djúpt í helli - engar skýringar á brenndum leifum af gallabuxum sem fundust Margir út í gifsi - eftir hálkuslys Mikil örtröð var á slysadeild Landspítala háskólasjúkra- húss í gær vegna háiku- slysa. Á annan tug fólks kom á deildina, annað- hvort með bein- brot eða lið- hlaup. „Hingað kom fólk með axlaliðhlaup, axlabrot, við- breinsbrot, úlnliðsbrot, mjaðmabrot og ökklabrot, svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Guðjón Baldursson, sérfræðingur á vakt, við DV síðdegis í gær. Hann sagði að aðrir heíðu sloppið með brákuð bein. „Það hafa margir farið út i gifsi í dag en nokkrir þurft að gista hjá okkur eft- ir að hafa undirgengist aðgerð vegna beinbrota," sagði Guðjón. Hann sagöi að miklar annir hefðu verið á deiidinni, en hún hefði þó haft undan. -JSS Grunur vaknaði á síðasta ári um að leifar af líki Valgeirs Víðissonar hefði verið að fmna inni í Raufarhólshelli í Ölfushreppi, skammt frá veginum um Þrengslin. Lögreglumenn úr Reykjavík fóru á staðinn, um 70 metra inn í hell- inn, en þar reyndust vera bein og leif- ar af brenndum fatnaði undir steinum sem komið hafði verið fyrir. Við fyrstu sýn virtist sem líkamsleifar manns hefðu fundist en eftir að málið var rannsakað nánar kom í ljós að hér var ekki um mannabein að ræða. Það var réttarmeinafræðingur sem komst að þeirri niðurstöðu. Lögreglumenn höfðu þá meðal annars spurt aðstand- endur Valgeirs hvemig fatnaði hann hefði verið í er hann hvarf. Forsaga þessa máls var að íbúi í Ölf- ushreppi var á gangi fyrir um þremur árum á þeim sióðum sem hellirinn er og ákvað að fara inn í Raufarhólshelli ásamt konu sinni. Þegar þau höfðu far- ið 70 metra inn í hellinn, yfir torfæra leið, sá fólkið aö eitthvað lá undir steinum - brenndar gallabuxur og bein sem gátu verið rifbein úr manni. Fólk- ið tilkynnti síðan um fúndinn tO lög- reglunnar á Selfossi. Þegar mál Valgeirs Víðissonar komst í hámæli á síðasta vori vöknuðu áleitnar spumingar hjá fólkinu sem fór í hellinn um það hvort lögreglan hefði komist að niðurstöðu. Sneri mað- urinn sér þá tO lögreglunnar í Reykja- vík, þess embættis sem rannsakaði hvarf Valgeirs í júní árið 1994. Lögreglumenn fóm inn í heliinn og vöknuðu strax grunsemdir um að hér hefði verið um að ræða lík Valgeirs. Vora aðstandendur m.a. spurðir út í það í hvemig klæðnaöi Valgeir hefði verið um það leyti sem síðast spurðist tO hans. Eftir nákvæma rannsókn kom síðan í ljós að hér var ekki um manna- bein að ræða. Engar skýringar hafa hins vegar fengist á því hvers vegna beinin vora komin svo lcmgt inn í hinn torfæra heOi né heldur af hverjum hinn brenndi fatnaður var. -Ótt Stuttar fréttir Nýr formaður Samgönguráð- herra hefur skipað Einar Kr, Guðfmns- son alþingismann formann Ferðamáia- ráðs íslands. Hann tekur við formennsk- unni af Tómasi Inga Olrich. Foss í Aðalstræti í kvöld fslenskum fossi verður varpað á framhlið Aðalstrætis 6 í kvöld og annað kvöld frá 21.00-24.00 báða dagana. Vegna veðurs hafa fyrri tO- raunir tO að varpa fossinum upp mistekist. Þessi viðburður var á vetrarhátíð Reykjavíkurborgar, Ljós í myrkri, og aðeins einu sinni á meðan á hátíðinni stóð tókst að sýna fossinn. Stefán sigraði Hannes Hlífar Stefán Kristjánsson náði lokaáfang- anum að alþjóðlegum meistaratitli er hann lagði Hannes Hlífar Stefánsson í sögulegri skák í 8. og næstsíðustu um- ferð Reykjavíkurmótsins og er í 2.-6. sæti með 6 vinninga. Ekki nóg með það heldur getur Stefán krækt sér í áfanga að stórmeistaratitli geri hann jafhtefli í lokaumferðinni. Helgi Áss hefur einnig sex vinninga. Bragi Þor- fmnsson getur einnig náð sínum loka- áfanga að alþjóðlegum meistaratitli geri hann jafiitefli í lokaumferðinni sem hefst kl. 13.00 í dag, föstudag, í Ráðhúsinu. Jaan Ehlvest er efstur með 6 1/2 vinning. Vill opna sæðisbanka Nemandi við Viðskiptaháskólann á Bifröst hefur sótt um styrk tO að kanna möguleika þess að opna fyrsta sæðis- bankann á íslandi. Þekking og kunnátta starfsmanna í nautastöð Bændasamtaka islands á Hvanneyri gæti komið að góð- um notum verði bankinn að veruleika.Ý - RÚV greindi frá. Gagnrýnir viðskiptabanka Raunvextir við- skiptabankanna hafa hækkað umtalsvert við það eitt að verð- bólgan hefur lækkað. Þetta segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sem segir við- skiptabankana hafa bragðist seint og illa við breyttum efnahagsforsendum. - RÚV greindi frá. Milljarðs kröfur Ljóst er að eignir hrökkva engan veginn fyrir skuldum í búi verðbréfa- fyrirtækisins Bumham Intemational á íslandi og talið er að gjaldþrot fyrir- tækisins muni nema tæpum háifúm mOjarði króna. Lýstar kröfur í búið nema um mflljarði en skiptastjóri hafnar helmingi þeirra. - RÚV greindi frá. -HKr./HK/JSS helgarblað Krossfarinn í Helgarblaði DV á morgun er ítarlegt viðtal við Sigurstein Másson, formann Geðhjálpar, sem hef- ur breytt viðhorfi ís- lensku þjóðarinnar tO geðsjúkra meira á stuttum tíma en áður var talið mögulegt. Sigurstemn talar opinskátt um átökin hjá Geð- hjálp, fordómana gegn geðsjúkum og afleiðingar Englanna. í blaðinu er einnig viðtal við unga móður sem stofnað hefur félagið Litl- ir englar sem eru samtök foreldra sem misst hafa ung böm. FjaOað er um búsetu frambjóðenda R- og D-list- ans í Reykjavík, rætt við forsvars- menn Félags maraþonhlaupara um hið undarlega Laxnesmaraþon og sagt frá framlegum bónorðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.