Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 H>"Vr Fréttir Skriður á deCODE þrátt fyrir tap: Gengið frá kaupum á MediChem í dag - gæti þýtt 250 störf til viðbótar á íslandi Hótelið rýmt á 10 mínútum Á hluthafafundi bandaríska lyfja- þróunarfyrirtækisins MediChem í gær voru samþykkti kaup deCODE á félaginu með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða. Gengið verður form- lega frá kaupunum í dag. Með þeim kaupum og nýlegum samstarfs- samningum er vonast tO að hægt verði að koma fjölbreyttum afurð- um íslenskrar erfðagreiningar, sem þróaðar eru út frá niðurstöðum erfðafræðircmnsókna félagsins, á markað. Páll Magnússon, framkvæmda- stjóri upplýsinga- og samskiptasviðs ÍE, segir að innan fimm vikna verði tekin ákvöröun um þaö hvort lyfja- þróunarfyrirtækið verði reist á ís- landi eða í Bandaríkjunum. Ef því verður valinn staður á íslandi gæti þar verið um að ræða 250 störf til viðbótar störfum 550-600 manna sem þegar vinna hjá íslenska móð- urfyrirtækinu. Kári Stefáns- son, forstjóri ís- lenskrar erfða- greiningar, móð- urfélags deCODE genetics Inc., hef- ur greint frá því að afkomutölur fé- lagsins síðasta árið hafi einkennst af miklum vexti. Segir hann að fé- lagið hafi styrkt undirstöðumar fyr- ir langtimaáætlanir og á sama tíma náð metnaðarfullum tekjumarkmið- um. Þá er reiknað með áframhald- andi tekjuaukningu á þessu ári Skrifstofukostnaður eykst hjá Náttúruvernd: Ekkert bruðlað hér - segir forstjórinn. Framlög aukist mikið „Mín viðbrögð munu koma í viðræðum við ráðuneytið," sagði Ámi Braga- son, forstjóri Náttúmvemdar ríkisins, í sam- tali við DV. Tii- efnið er deila stofnunarinnar og umhverfisráö- herra. Eins og DV greindi frá kom það Siv Friðleifsdóttur umhverfis- ráðherra á óvart að Náttúmvemd ríkisins skyldi í síðustu viku senda inn erindi þar sem boðað var að skera yrði niður landvörslu í sumar til þess að halda fjárheimildir. Siv sagði það ekki koma til greina. Allt útlit er hins vegar fyrir að land- varsla verði skorin niður i sumar - og hefur því verið harðlega mót- mælt svo sem af Landvarðafélagi Is- lands og Náttúmvemdarsamtökum íslands. Umhverfisráðhema hefur sagt að frekar sé lag hjá stofnuninni að skera niður skrifstofúkostnað og gat ráðherra þess að flutningar í nýtt húsnæði hefðu orðið dýrari en áætl- anir gerðu ráð fýrir. Þá hefðu millj- ónir farið í kostnað við kaup á nýj- um húsgögnum. Aðspurður hvort stofnunin hafi braðlað á einhvem hátt neitaði Ámi þvi afdráttarlaust. Fram hefúr komið að skrifstofú- kostnaður Náttúravemdar hafi auk- ist úr 40 milljónum í 70 á síðustu fiórum árum. Samkvæmt upplýsingum úr um- hverfisráðuneytinu hafa fjárframlög til Náttúruvemdar ríkisins aukist mikið á síðustu áram. Árið 1999 var ríkisframlagiö 87,2 milljónir og er þá bæði tekið tillit til fjárlaga og fjár- aukalaga. Fjárlög gera ráð fyrir rétt tæplega 140 milljónum til stofnunar- innar, en þegar sértekjur koma til má gera ráð fyrir að Náttúravemd ríkisins hafi alls úr 172,4 milijónum króna að spila á þessu ári. -sbs/BÞ vegna fastra og áfangatengdra greiðslna frá samstarfsaðilum. Það er vegna lyfjaþróunar, lyfjaerfðafræði, þróunar grein- ingarprófa og einnig vegna samninga við nýja samstarfsaðila. í tilkynningu félagsins í gær kom þó fram að tapið hefði numið tæp- um 4,8 milljörðum króna á síðasta ári (ekki 48 milljörðum eins og mis- ritaðist í frétt DV). Þrátt fyrir það telja forsvarsmenn félagsins að reksturinn sé vel í takt við áætlan- ir. Páll Magnússon segir að þessar niðurstöður séu mjög í samræmi við áætlanir greiningarfyrirtækja um gengi fyrirtækisins. - „Bæði tekjur og útgjöld eru nákvæmlega á því róli sem reiknað var með.“ Árið 2001 voru 31,6 milljónir Bandaríkjadala tekjufærðar í rekstrarreikningi sem er 46% aukn- ing frá árinu áður. Bókfærðar tekj- ur ársins jukust um 70% frá árinu 2000 og námu 40,3 milljónum Banda- ríkjadala sem er ívið hærra en gert var ráð fyrir í áætlun félagsins sem hljóðaði upp á 40 milljónir dala. Þá styrktist lausafjárstaðan á síðari hluta ársins um 43,5 milljónir dala vegna endurfjármögnunar á bygg- ingu nýrra höfuðstöðva og kaupa á yfir 50 ABI 3700 DNA-greiningar- tækjum. -HKr. Kári Stefánsson. DV-MYND E.ÓL Kauphlaup í Smáralind Kauphlaup Smáralindar hófst í gær og eins og sjá má á myndinni hefur veriö mikiö fjör. Á Kauphlaupsdögum bjóöa verslanir í Smáralind nýjar vörur á til- boösveröi. Fyrsta Spretthlaup Kauphlaupsins var í Euronics klukkan 14 og var Phitips þvottavél boöin á 19.995 krónur í staö 59.900 króna. Þuríöur Jónsdóttir haföi veriö í rúma klukkustund í Smáralind þegar Spretthlaupið eft- ir þvottavélinni hófst. Hún skilaöi þátttökuseðli í kassa í Euronics og var síö- an dregin út og fékk þvottavélina. Þá tryggöi Herdís Hall sér svefnpoka í Úti- lífi á 5000 kr. Björn Bjarnason vill valddreifingu í skólakerfinu: Borginni skipt í skólahverfi - í stað þess að hafa 40 skóla undir einu fræðsluráði Björn Bjarnason, Bjöm Bjarna- son, borgar- stjóraefni Sjálf- stæðisflokksins, heimsótti Rima- skóla í Grafar- vogi i gær ásamt öðrum frambjóð- endum flokks- ins. Segir hann fulla þörf á að dreifa valdinu innan skólakerfis borgarinnar meira en gert er í dag. „Okkar megináherslur í skóla- málunum miða að þvi að dreifa valdinu hér innan Reykjavíkur eins og að veu- stefnt með flutningi grunnskóla frá rikinu til sveitarfé- laga. Við teljum að það að hafa eitt fræðsluráð yflr 40 skólum nýti ekki kosti valddreifingarinnar sem skyldi og þvi viljum við skipta Reykjavík í skólahverfi. Þar með verði meiri nálægð á milli þeirra sem stjóma skólunum og þeirra sem taka þátt i stefnumótun fyrir hvert hverfi. Við sjáum þá þróun hér að fólk með börn á skólaldri, hvort sem er á leikskóla- eða grannskólaaldri, leitar í nágranrxa- sveitarfélögin vegna þess að þar er betri þjónusta og skólarnir eru nær stjórnendum sveitarfélagsins heldur en í Reykjavík. Við teljum að við þurfum að skapa slíkt um- hverfi hér i Reykjavík líka. Þróun- in geti þá orðið sú að fólk geti val- ið hér á milli skólahverfa þar sem áherslurnar séu mismunandi.“ Björn segir að skólamir séu þungamiðjan í skólunum og ef ekki séu náin tengsl á milli skólanna og nánasta umhverfis, þá náist ekki nauðsynlegt jafnvægi. Björn segist þó telja að almeimt hafi flutningur grannskólanna frá ríki til sveitarfé- laga gengið vel. Hins vegar telur hann að tækifærin hafi ekki verið nýtt sem skyldi í Reykjavík með því að setja alla 40 grunnskólana undir eitt fræðsluráð. Hann segist því vilja sjá að stofnuð veröi skóla- hverfi í Reykjavík. Þar geti skólar I heimsókn í Rimaskóla Bjöm Bjarnason skoöaöi skólann í gær og kynnti þær áherslur sem hann vill taka upp í skólamáium í Reykjavík. af mismunandi stærðum haft með sér samvinnu um nýtingu á starfs- kröftum eins og varðandi sérdeildir og fleira. Þá benti hann á að hafa sett leikskólunum námskrá vegna þess að hann líti á leikskólana sem fyrsta skólastigið, en ekki eitthvert biðlistavandamál. -HKr. „Það tók um 10 mínútur að rýma hótelið og við erum mjög ánægðir með þann tíma. Skömmu eftir að all- ir voru komnir út vorum við svo bún- ir að finna hvað olli þessari lykt,“ sagði Guðbrandur Bogason, varð- stjóri hjá Slökkviliði Reykjavikur, í morgun en liðið var kallað út seint i nótt vegna gruns um gaslykt á Hótel Esju við Suðurlandsbraut. Á hótelinu voru um 180 gestir og var lögð áhersla á að koma þeim út úr húsinu sem allra fyrst. Á vettvang fóra 4 sjúkrabifreiðar, slökkvibílar og lögregla og þá var sent eftir tveimur strætisvögnum ef til þess kæmi að flytja gestina á brott. Til þess kom þó ekki og fékk fólkið að snúa aftur inn á hótelið þegar komist hafði verið að því hvað olli „gaslyktinni“. Lyktin reyndist koma frá steinolíukyntum hitablásara í nýbyggingu hótelsins og stafaði hvorki hótelgestum né öðrum nein hætta af henni. „Við fundum lyktina fyrst í morg- unverðarsal og síðan í gestamóttöku. Við höfðum samband við neyðarlín- una og þar var okkur sagt að haga okkur eins og um eld væri að ræða og því var farið strax í það að rýma hót- elið. Það gekk mjög vel, að vísu voru drukknir menn í nokkrum herbergj- um sem sváfu fast og aðstoðaði lög- regla við að koma þeim út. Fólk hélt nær undantekningarlaust ró sinni og þetta gekk mjög vel,“ sagði Halldóra Bjarkadóttir sem var á vakt í gesta- móttöku hótelsins í nótt þegar lyktin fannst og hótelið var rýmt. -gk Loðnukvóti var aukinn Sjávarútvegsráðuneytið jók í gær loðnukvótann um sem nemur 100 þús. tonnum, eða úr rúmum 996 þúsund lestum í 1.096 þúsund lestir. Ákvörðvm þessi var tekin að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar. Óvist er þó talið að þetta muni skipta miklu máli fyrir veiðamar en flot- inn hefur ekki enn náð að klára kvótann og ekki er talið að eftir séu nema þetta 10-12 dagar af vertíðinni þar til loðnan fer að hrygna. í janúar lauk Hafrannsóknastofn- unin við mælingar á kynþroska hluta loðnustofnsins og gerði að þeim loknum tillögu um 1200 þús- und tonna heildaraflamark fyrir yf- irstandandi loðnuvertið. Undanfar- ið hafa verið spurnir af líklegri vestangöngu loðnu og hafa nú mælst liðlega 100 þús. tonn sem talið er að ekki hafi tilheyrt þeim hluta stofnsins sem mældur var í janúar. Gera má ráð fyrir að hækkun á leyfilegum heildarafla í loðnu bæði nú, en þó sérstaklega í janúar, muni auka útflutningsverðmæti sjávarafurða á ár- inu 2002 um 1,2 milljarða frá fýrri áætl- unum Þjóðhagstofnunar. -BG Sjö teknir í göngunum Lögreglumenn frá Ólafsfirði og Dalvik hafa verið að herða eftirlit með hraðakstri í jarðgöngunum í Ólafsfjarðarmúla og munu halda þar uppi öflugu eftirliti í framtiðinni. í fyrrakvöld voru sjö ökumenn stöðvaðir í göngunum vegna hraðakst- urs á stuttum tima. Þeir óku vel yfir löglegum hámarkshraða sem er 50 km, og voru nálægt 100 km þeir sem hrað- ast fóru. Göngin era einbreið og þröng og mjög mikil slysahætta sem skapast af hraðakstri í þeim. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.