Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Page 7
FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002
7
Fréttir
íslenskt markaðsátak í Bandaríkjunum:
Vilja lceland á mat-
seðla Bandaríkjamanna
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
DV, BOSTON:
„Við erum að vinna
að því að koma vöru-
merkinu Iceland á kort-
ið í gegnum átaksverk-
efnið Iceland Naturally.
Við viljum koma
Iceland-vörumerkinu
inn á matseðla Banda-
ríkjamanna og sem víð-
ast fyrir augu neyt-
enda,“ segir Magnús
Bjamason, viðskipta-
fulltrúi og aðalræðis-
maður íslands í New
York.
DV ræddi við Magn-
ús og Pétur Óskarsson
viðskiptafulltrúa á sjáv-
arútvegssýningunni í
Boston en þeir vinna
sameiginlega að því að
auka hróður íslands og
íslenskrar framleiðslu
meö þessum hætti.
Á sjávarútvegssýn-
ingunni hittu þeir
fjölda manns í tengslum
við átaksverkefnið.
Þeim hefur gengið
vel með verkefnið og
sem dæmi þá hefur tek-
ist að koma Iceland-
vörumerkinu inn á alla
. DVWYND REYNIR TRAUSTASON
Hreint frá íslandi
Magnús Bjarnason og Pétur Óskarsson vinna höröum höndum aö því aö markaössetja ís-
land í Bandaríkjunum. Hér eru þeir viö innganginn aö sjávarútvegssýningunni í Boston.
matseðla
hjá veitingahúsinu Perkins í Banda-
ríkjunum.
„Perkins er með 500 veitingastaði
um öll Bandarfkin svo auglýsingin
sem felst i að hafa merkið á matseðl-
um þeirra er gríðarleg. Við erum að
stefna að því að koma boðskapnum
að á þúsundum veitingastaða," seg-
ir hann.
Magnús segir að með verkefninu
Iceland Naturally sé verið að sam-
hæfa skilaboð til neytenda þar sem
hreinleiki og gæði íslenskrar vöru
eru tíunduð.
„Við erum að samhæfa skilaboð-
in tii neytenda þar sem horft er á
allan markaðinn. Það gUdir um
ferðaþjónustu, matvæli og aUt ann-
að sem íslenskt er. Þetta gerist með
þvi að koma boðskapnum að með
þessum hætti og með beinum aug-
lýsinginn og því að hvetja fjölmiðla
tU að fjalla um ísland. Þessi vinna
gengur mjög vel enda erum við að
bjóða góða vöru,“ segir Magnús.
-rt
Nú hefur fan'ð fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 46. útdráttur
1. flokki 1990 - 43. útdráttur
2. flokki 1990 - 42. útdráttur
2. flokki 1991 - 40 útdráttur
3. flokki 1992 - 35. útdráttur
2. flokki 1993 - 31. útdráttur
2. flokki 1994 - 28. útdráttur
3. flokki 1994 - 27. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. maí 2002.
Ölt númerin veróa birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess
eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt
í Morgunblaðinu föstudaginn 15. mars. Upplýsingar um
útdregin húsbréf má einnig finna á heimasíðu
íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 I 105 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Útsölumarkaður
Sleðobelti
Útlitsgallaðar
felgur með
miklum afslœtti
Hlaupahiól með
50% afslœtti
www.vdo.is
Öll verð eru með afslættí