Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Side 11
11 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002______________________________________________________________________________________________ DV________________________ Útlönd Viö Fellsmúla Simi 588 7329 S ia, igugafd. kl- 10-u REUTERSMYND Fyrsta ákæran Endurskoöunarfyrirtækiö Arthur And- ersen hefur veriö ákært í tengsium viö Enron-hneyksiiö vestra. Ákært fyrir að eyða skjölum um svindl hjá Enron Endurskoðunarfyrirtækið Arthur Andersen hefur verið ákært fyrir að hindra framgang réttvísinnar með því að eyða mörgum bílhlössum af skjölum sem tengjast rannsókn á gjaldþroti orkusölufyrirtækisins Enron undir lok siðasta árs. Gjald- þrotið var hið stærsta 1 sögu Banda- ríkjanna. Forráðamenn Arthur Andersen gagnrýndu ákæruna harðlega og sögðu hana gróflega misnotkun á ríkisvaldinu. Ákæran á hendur fyr- irtækinu er hin fyrsta sem lögð hef- ur verið fram frá þvi bandaríska dómsmálaráðuneytið hóf rannsókn á Enron-hneykslinu. Sérfræðingar segja að ákæran kunni að ríða end- urskoðunarfyrirtækinu að fullu. Aðstoðardómsmálaráðherra Bandaríkjanna sagði að í ákærunni kæmu fram staðhæfíngar um viða- mikil og mörg lögbrot endurskoðun- arfyrirtækisins. Mugabe settur í embætti á laugardag: Bretar hóta refsiaðgerðum Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, gagnrýndi forsetakosning- arnar í Simbabve harðlega í gær og sagði að bresk stjómvöld myndu koma í veg fyrir að Robert Mugabe og stjórn hans fengju aðgang að alþjóð- legum sjóðum. „Ibúum Simbabve hefur verið meinað um þau grundvallarréttindi að velja sér þann sem stjómar þeim,“ sagði Jack Straw í breska þinginu. Eftirlitsnefnd Samveldislandanna sendi frá sér harðorða skýrslu þar sem segir að endurkjör Mugabes í embætti forseta endurspegli ekki vilja þjóðarinnar. Forsætisráðherra Nýja-Sjálands, Helen Clark, sagöi í morgun að reka ætti Simbabve úr Samveldinu og hún hvatti stjómvöld í Ástralíu til að láta ekki undan þrýstingi Afriku- ríkja um að horfa í gegn um fingur sér með kosningasvikin. Ýmsir nágrannar Simbabve hafa lýst yfir stuðningi sinum við kosn- ingaúrslitin en enn hafa stjómvöld í Suður-Afríku ekkert tjáð sig. Ríkisútvarp Simbabve sagði í morgun að Mugabe yrði settur í embætti á morgun, laugardag. Mugabe, sem er 78 ára, hefur verið við völd frá 1980. Arafat segir brottflutning ísraelskra hersveita frá Ramallah sýndarmennsku eina: Bandaríkjamenn krefjast brottflutnings alls herafla ríska utanríkisráðuneytisins sagði í gær að liðsflutningar ísraelsmanna frá Ramallah dygðu engan veginn til að létta á spennunni, flytja þyrfti allt herliðið í burtu af palestínsku land- svæði til að árangur næðist, ekki bara frá Ramallah. Hann beindi einnig orð- um sínum tO Arafats og sagði að hann yrði á móti að beita sér gegn sífelldum árásum öfgahópa á ísraela. Sjálfur sagði Arafat að brottflutn- ingurinn frá Ramallah væri ekkert annað en sýndarmennska Israels- manna og á meðan herlið þeirra væri enn á palestínsku landsvæði væri ekki von á neinum árangri af friðar- viðræðum. Hann sagði einnig að yfir- gangur ísraelsmanna myndi draga úr líkunum á að friðartilboð Sádi-Araba næði fram að ganga á þingi Arababandalagsins i Beirút seinna í mánuðinum. Búist er við að Zinni fundi með Arafat á morgun og að þar muni Arafat gera kröfu um það að allt ísraelskt herlið veri flutt af svæðinu áður en friðarviðræður geti hafist. Þrátt fyrir brottflutninginn og komu Zinnis á svæðið hafa róstur haldið áfram og bárust fréttir af því i morgun að sex Palestínumenn hefðu fallið á átökum víðs vegar á svæðinu, en fjórir þeirra munu hafa eftir að bíll þeirra var sprengdur í loft upp í þorpinu Bala í nágrenni Tulkarm. Þá bárust fréttir af því frá bænum Anabta að Mutasen Hammad, foringi al-Aqsa samtakanna í bænum hefði verið drepinn á sprengjuárás. REUTERSMYND Ættingjar fagna niöurstöðu Ónafngreindir ættingjar fórnarlamba flugslyssins yfir Lockerbie í Skotlandi áriö 1988 fallast í faöma eftir aö áfrýjunar- dómstóll staöfesti lífstíöarfangelsisdóm yfirAbdel Basset al-Megrahi, fyrrum útsendara líbísku leyniþjónustunnar. Hann er nú kominn til Skotlands þar sem hann mun afpiána refsingu sína. ísraelar hófu seint í gærkvöldbrott- flutning herja sinna frá bænum Ramllah á Vesturbakkanum rétt eftir komu samninganefndar Anthony Zinnis tU Mið-Austurlanda þar sem hann mun eiga fundi með fulltrúum deUuaðUa í dag í þriðju tilraun sinni tU að koma á friði á svæðinu. Hann hitti Ariel Sharon á fundi í Jerúsalem strax í gærkvöld og fór þá fram á að hann kallaði aUar hersveitir sínar frá svæðum á Vesturbakkanum og Gaza tU að opna frekari leið tU samninga. Að sögn Sharons mun hann leggja aUa áherslu á að koma á vopnahléi sem fyrst, en aUs ekki á kostnað ör- yggis ísraelskra borgara. Eftir fundinn komst skriður á mál- ið og fóru bryndrekar þá að streyma út úr RamaUah, þar sem Yasser Ara- fat hefur verið í gíslingu og ferða- banni ísraelsmanna síðustu vikumar og var vonast tU að liðsflutningum úr bænum lyki í morgunsárið. Að sögn ísraelska útvarpsins munu liðsUutnmgamir taka nokkurn tíma þar sem liðsafli á svæðinu er mjög Yasser Arafat Yasser Arafat, leiötogi Palestínumanna, segir aö brottflutningur hersveita ísraela frá Ramalla sé aöeins sýndarmennska oggerir kröfu um allt herliö veröi flutt á brott áöur en friöarviöræöur Zinnis geti hafist. mikUI, en um tuttugu þúsund her- menn og vel á annað hundrað skrið- og bryndrekar hafa undanfama daga tekið þátt i umfangsmestu hemaðar- aðgerðum ísraelsmanna á yfirráða- svæðum Palestínumanna og ljóst að þrátt fyrir brottflutninginn frá Ram- aUah mun meirihluti heraUans dvelja áfram á svæðinu. Richard Boucher, talsmaður banda- m M g. £51 ; 18 l. L V,... eða meðan birgðir endast Hreinlætistæki WC með vandaöri setu, festingum, 60/40 skolun. Stútur í vegg eða gólf. Verð kr. 16.850,- stgr. Baökör 160/170x70. Verð fró kr. 12.450,- stgr. Handlaugar. Margar stærðir og gerðir. Verð fró kr. 3.990,- stgr. Verðl Blöndunl f. baðkl i sturtusefl Verðfifcb. 6.340,- sfi Hitd%vrZ> blönduncfejæki f. bað eöa Verð fró kr. 10.800,v ...jbor sem meistararnir mœta! Stórhðfðl 17 • www.champlons.ls Textavarp 668 • Hádegishlaðborð virka daga n LAUGARDAGURINN 16. MARS Kl. 12.00 Middlesb. - Liverpool Kl. 15.00 West Ham - Man.Utd Kl. 15.00 Neweastle - Ipswich Kl. 17.35 Hibernian - Hearts Kl. 19.30 Roma - Atalanta Kl. 20.30 Barcelona - Real Madrid SUNNUDAGURINN 17. MARS Kl. 14.00 italski boltinn Kl. 14.00 Leeds - Blackburn Kl. 16.00 Aston Villa - Arsenal Kl. 19.00 Rayo Vallecano - Valencia Kl. 19.30 AC Milan - Torino HELGINA 15. & 16. MARS: AUSTFIRÐINGABÖLL MEÐ HLJÓMSVEITINNI VAX

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.