Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Síða 13
13 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 DV Á tónleikunum Rafskuggar hjarðpípuleikarans í Borgarleikhúsinu leikur Eydís Franzdóttir við segulbönd: Nýr og heillandi heimur Tónlist Elsta verkið er frá 1976, Konsert fyrir óbó og segulband eftir Norð- manninn Bjöm Fongaard (1919-1980) sem var mikill framúrstefnumaður á sinni tíð. „Samkvæmt heimildum frá norsku tónverkamiðstöðinni sendi hann verk á nótum hingað til lands árið 1966 en það var aldrei leikið vegna þess að hljóðfæraleikaramir vissu ekkert hvað þeir áttu að gera!“ segir Eydís og hlær við. „Þetta var hljómsveitarverk sem átti að flytja bæði hér og í Osló en var flutt á hvorugum staðnum. Höfundurinn varð býsna niðurdreginn við þetta og fór að prófa sig áfram með alls konar tækni, meðal annars raftónlist. Hann samdi svo á næstu árum 40 konserta fyrir einleikshljóðfæri og segulband, og ég leik annan af tveimm- óbókonsertum hans.“ - Hvers konar hljóð em á band- inu? „Alls konar draugahljóð - úúúúú,“ og Eydís gefur tóndæmi, „framleidd í græjum. Óbóhlutinn er ekki útreikn- aður í töktum heldur fær maður upp- gefinn sekúndufjölda sem maður á að bíða, svo fer maður af stað og verður sjálfur að áætla hraðann, þannig að það er tilviljunum háð hvemig þetta fellur við rafpartinn. Verkið er ömgg- lega aldrei eins í nein tvö skipti sem það er flutt." Hver stjórnar hverjum? „Upphaflega hófst ég handa með eitt verk sem ég heyrði úti i Bandaríkjunum 1999 á ráð- stefnu tviblöðunga,“ segir Eydís. „Það var eftir Roger Reynolds sem ég vissi ekkert um þá en hef komist aö því að hann var meðal kennara Hauks Tómassonar og Finns Torfa Stefánsson- ar og eflaust fleiri íslenskra tónskálda sem hafa numið í Bandaríkjunum. Ég heillaðist af þessu verki og pantaði nótur að því en svo tók það ár eða tvö að fá segulbandsupptökuna! Eft- ir það datt mér í hug að setja saman dagskrá Alger sveitasæla Eydís leikur líka verkið „Niobe" eftir Skotann Theu Musgrave, merka konu sem starfar í Bandaríkjunum. í grískum goðsögiun segir frá því að böm Niobe voru drepin og hún syrgði þau svo óskaplega að guðimir breyttu henni klett en hún hélt samt áfram að gráta. „Þetta er ofsalega fallegt verk,“ segir Eydís, „og manni líður eins og maður sé að spila góða kammermús- ík. Það er hreyfmg í teipinu og maður leiðist ósjálfrátt með. Þú heyrir hvað þetta er ótrúlega ólíkt,“ heldur hún áfram eftir stutta þögn. „Stundum er manni sagt ná- kvæmlega hvenær maður á að spila, stundum er allt tilviljunum háð, en í verki Theu fær maður svo skýra til- finningu fyrir flæðinu í verkinu að maður fylgir því bara.“ Eydís flytur líka tvö hrein einleiks- verk á óbóið sitt. Þau eru eftir Dan- ann Bent Sorensen sem fékk Tónlist- arverðlaun Norðurlandaráðs fyrir fá- einum árum. „Hann er afar gott tón- skáld og þegar ég fann óbóverkin hans gat ég ekki beðið með að flytja þau. Annað þeirra er „The Shadows of the Shepherds" sem tónleikarnir heita eftir - „Rafskuggar hjarðpípu- leikarans". Það verk gæti vel verið skrifað fyrir mig því ég er fjárhirðir sjálf - ég er með 35 fjár á hlaðinu hjá mér á Vatnsleysuströndinni og vinir mínir kalla mig iðulega hjarðpípuleikarann! Þetta er afar kyrrlátt verk og langt frá venjulegri hug- mynd fólks um nútímatónlist. Maður finnur sveitasæluna leggja frá þvi. Hitt verkið, „Plain- te díim troubadour“ eða Kveinstafir farand- söngvarans, er gjörólíkt, þar notar hann mikið af nútímatækni fyrir óbó og maður er enda- laust að fatta eitthvað nýtt í því.“ Tónleikaramir em því bæði fyrir áhugafólk um raftónlist og áhugamenn um tónlist yfir- leitt og við óskum Eydísi góðs gengis á þessum metnaðarfullu einleikstónleikum. DV-MYND HILMAfi ÞÓR Eydís Franzdóttir óbóleikari „Stundum er manni sagt nákvæmlega hvenær maöur á aö spila, stund- um er allt tilviljunum háö en stundum fær maöur svo skýra tilfinningu fyrir flæðinu í verkinu aö maöur fylgir því bara. “ með verkum fyrir rafhljóð og óbó og fór að leita á Netinu. Nú kemur árangurinn í ljós.“ Eydis leikur meðal annars verk eftir tvö írsk tónskáld. Sá eldri er Donal Hurley sem tengir saman hljóðfæratónlist og raftónlist og notar efnivið úr írskum þjóðlögum. „Verkið sem ég flyt eftir hann em tilbrigði við írskt þjóðlag og hljóðin á bandinu era ekki bara rafhljóð held- ur kunnugleg hljóð úr hljóðfæraheiminum," segir Eydís. „En það er greinilegt á verkum hins írans, Donnacha Dennehy, sem er tuttugu árum yngri, hvað hann hefur upplifað öðravísi tónlist, techno-tónlist og þess háttar. í hans Á 15:15 tónleikum á Nýja sviði Borgarleikhússins á morgun, laugar- dag, kl. 15.15 leikur Eydis Franzdótt- ir ein á sitt óbó á móti alls konar raf- hljóöum. Raftónlistin er öll á fjölrása segulbandi nema nýtt verk eftir Hilm- ar Þóróarson sem er samiö fyrir óbó og tölvu. „Ég stjórna tölvunni um leiö og ég spila," segir Eydís, „meö fœtin- um, “ bœtir hún við til nánari skýring- ar. Einungis tvö verkanna hafa heyrst hérlendis áöur. verki, sem er samið 1996, stjómar hann hljóðfæraleikaranum með því aö gefa honum taktinn í gegnum heymartól og telja hann áfram því hann vill láta allt passa nákvæmlega. Aftur á móti stýri ég tölvunni sjálf í verkinu eftir Hilmar Þórðarson og ræð hraðanum þannig að ef ég verð æst þá get ég látið tölvuna fylgja mér! Mér fannst strax alveg rosalega gam- an að spila þessi verk. Þetta er alveg nýr heimur og ótrúlega heillandi." Mörg sjónarhorn A tónleikum i Salnum síðast- liðið þriðjudagskvöld lék Halldór Haraldsson píanóleikari þrjú til- brigðaverk. Tónleikamir vora hluti tónleikaraðárinnar Tíbrár. Efnisskráin var glæsileg og tón- leikamir vel sóttir. Það er ekki öllum gefið að skoða sama hlutinn frá mörgum sjónarhomum. Við follum flest í þá gryfju að láta okkur nægja að byggja álit okkar eða niðurstöðu á einföldmn athugunum. Til- brigðaverk byggjast á stefi sem oft era í eyram okkar hinna harla ómerkileg. Og þó við reyn- um þá getum við ekki sett fram í huganum nema kannski tvö til fjögur mismunandi blæbrigði á þessa lagstúfa og verða þeir lítið merkilegri við þá fábeytilegu meðferð. En svo taka tónskáldin sig til og gera stundum nokkra tugi tilbrigða við hugmyndina. Hún lifnar við, stækkar, þenst og dýpkar - allt vegna þess hvað hugsuðimir geta valið sér mörg sjónarhom. Tilbrigðaverkin geta því virkað sem þörf áminning á tímum einföldunar um það hve hvert mál, hversu einfalt sem það virðist, get- ur haft margar hliðar. En það þarf vilja og þjálfún til að sjá þær. Halldór Haraldsson hafði á þriðjudag ekki valið til flutnings verk eftir nein smámenni. Beethoven og Schumann verða að teljast til voru talsverðir en best tókst til í tilbrigði sem rammað er inn af skalaleikjum, fyrst í hægri hendi og síðan í vinstri. Sveifl- an í rytmískum leik er góð þar. Theme varié eftir Francis Poulenc er bráðskemmtilegt verk þar sem kaflarnir bera lýsandi nöfn um innihaldið: glaðlegt, göfugt og hæðnislegt eru aðeins þrír af níu titlum. Flutningurinn var ekki alltaf öruggur en hvert tilbrigði þó málað i sterkum litum. Sakleysi hjarðljóðsins og alvara elegí- unnar voru sérlega vel útfærð. Sinfónískar etýður eftir Ro- bert Schumann eru misáhuga- verðar en heildin þó verulega safarik framan af. Áhrifa frá Chopin gætir á köflum en etýðusöfnin hans eru samin um svipað leyti eða á fyrri hluta fjóröa áratugar nitjándu aldar. Schumann hafði hrifist af til- brigðatækni Chopin og auglýsti hann í blaðagreinum sem snilling. Það var í hinum safaríka fyrsta hluta þessa verks sem flutningur Halldórs náði hvað bestu flugi. Þétt- ur og skapríkur leikur skilaði þar oft hrífandi túlkun. Halldór kvaddi gesti sína á hugljúfum nótum og mjúkur og einlægur hljómur slaghörpunnar í höndum hans fylgdi mönnum heim. Sigfríður Bjömsdóttir Halldór Haraldsson píanóleikari Mjúkur og einlægur hljómur slaghörpunnar í höndum hans fylgdi mönnum heim. stórskotaliðsins, en verk í léttari dúr eftir Pou- lenc fékk að fljóta með. Fimmtán tilbrigði og fúgu op.35 í Es-dúr samdi Beethoven rúmlega þrítugur. Frelsi fantasíunnar í tilbrigðaforminu og svo sama frelsi undir ströngmn aga fúgunnar átti eftir að heilla Beethoven fram eftir öllum aldri. Til- brigðin op. 35 eru öguð og framúrskarandi glæsileg tónsmíð á köflum. Hnökrar í flutningi ___________________Menning Umsjón: Siija Aðalsteinsdóttir silja@dv.is Prinsessan í hörpunni Leikbrúðuland flytur Prinsessuna í hörpu- nni eftir Böðvar Guðmundsson í Samkomu- húsinu á Akureyri um helgina kl. 13 og 15 á laugardag og kl. 14 og 16 á sunnudag. Sýning- in sækir efhi sitt í Völsungasögu og var frum- flutt á Listahátíð í Reykjavik 2000 og hlaut frá- bærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda. Efnið er sótt í Völsungasögu. Það geisar stríð og kóngur og drottning eru drepin en Heimir gamli hörpuleikari bjargar Áslaugu prinsessu með því að fela hana í hörpu sinni. Eftir mikla hrakninga hittir Áslaug gott fólk sem elur hana upp. Löngu síðar kemur Ragn- ar loðbrók siglandi á skipi sínu og leysir Ás- laug þrjár þrautir til að sanna ætterni sitt fyr- ir honum. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Pessi ja Illusia Á sunnudaginn kl. 14 verður finnska ævin- týramyndin Pessi ja Illusia (1983) sýnd í Nor- ræna húsinu. I skógunum miklu búa dýrin, mannfólkið, tröllin, ljósálfarnir og fleiri verur. Þangað hrapar ljósálfurinn Illúsía ofan af regnboganum og fjallakóngulóin rænir hana vængjunum svo að hún kemst ekki aftur heim. Illúsia veröur að bjarga sér af eigin rammleik á jörðinni, og ævintýri sumarsins breytast í harða baráttu við hvíta vetrardauð- ann. í þeirri baráttu vinnur hugdjarfi trölla- drengurinn Pessi hetjudáð. Leikstjóri er Heikki Partanen. Schumann og Mendelsohn Kammerhópur Salarins heldur tónleika í Salnum í Kópavogi kl. 16.30 á sunnudaginn. Fyrst flytur Karólína Eiríksdóttir tónleika- spjall, síðan leika Auður Hafsteinsdóttir, Sif Tulinius, Þórunn Ósk Marinósdóttir, Sigurður Bjarki Gunnarsson og Nína Margrét Gríms- dóttir Strengjakvartett op. 12 nr. 1 í Es dúr eft- ir Mendelssohn og Píanókvintett op. 44 í Es dúr eftir Schumann. Veitingahúsakynning verður á vegum Te og kaffi. Messa heilagrar Sesselju Söngsveitin Fílharmónia flytur hina miklu Messu heilagrar Sesselju eftir Joseph Haydn í Langholtskirkju sunnudag og þriðjudag kl. 20.30. Einsöngvarar eru Hulda Björk Garðars- dóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Þorbjörn Rún- arsson og Ólafur Kjartan Sigurðarson. Kamm- ersveit skipuð 26 hljóðfæraleikurum tekur þátt í flutningnum og stjómandi er Bemharð- ur Wilkinson. Miðar eru til sölu í Bókabúð Máls og menn- ingar á Laugavegi 18 og við innganginn. Tattóveraði * Alendingurinn Heimildakvikmyndin Tattóveraði Álending- urinn eftir þjóðfræðinginn Per-Ove Högnás verður sýnd í Norræna húsinu á sunnudaginn kl. 16. Þar er m.a. rætt við unga töffara, sjó- menn af yngri og eldri kynslóðinni, rithöfund og unga stúlku sem öll eru stolt af því að bera tattú. Per-Ove leggur áherslu á að sýna fólkið í sínu eigin umhverfi, töffarann á rúntinum í ameríska kagganum, sjómanninn við störf sin að sumri sem vetri o.s.frv. Dregin er upp mynd af sögu tattúsins og fjallað um hvers vegna fólk lætur tattóvera sig. Efnahagsumbreyting Halldór Bjamason sagnfræðingur flytur er- indi á opnum fundi í húsi Sögufélags við Fischersund á morgun kl. 17.30 eftir aðalfund- arstörf félagsins. Erindið nefnir hann „Utan- landsverslunin og efnahagsumbreyting ís- lands 1870-1914“ og byggir það á nýjum rann- sóknarniðurstöðum úr doktorsritgerð sinni. Meðal annars verður fjallað um þýðingu blaut- fiskverslunar fyrir myndun þéttbýlis og nýrra stétta í bæjum og þorpum, þ.e. verkalýðs og at- vinnurekenda. Einnig verður lýst þeirri pen- ingavæðingu, sem hófst skömmu fyrir alda- mótin 1900 og var áhrifamikil í afnámi gam- alla og nýrra hafta í samfélaginu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.