Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Síða 20
* 28
Tilvera
FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002
I>V
Erum mest undrandi sjálf
- segja Noröfirðingarnir 1 Gettu betur-liðinu 1 VA
Óskar, Ævar og Sóley á hestbaki
Liösmenn VA eru allir hreinræktaöir Noröfiröingar og ekkert á leiöinni í burtu á næstunni.
Undanfamar vikur hafa verið
þeim Óskari Ágústi Þorsteinssyni,
Sóleyju Þórðardóttur og Ævari Unn-
steini Egilssyni skemmtilegur tími
en þau skipa lið Verkmenntaskóla
Austurlands (VA) í Gettu betur-
spumingakeppninni. Árangur þess
hefur vakið mikla athygli enda er
lið skólans, sem einungis tvö hund-
ruð nemendur sækja, komið í und-
anúrslit. Þar mun það mæta liði
Menntaskólans við Sund og fer
viðureignin fram i Fjarðabyggð
þann 15. mars næstkomandi. Vafa-
lítið dettur mörgum í hug sagan um
Davíð og Golíat þegar sigurganga
liðsins er rakin því á leið sinni í
undanúrslitin lögðu þau að velli lið
Menntaskólans í Kópavogi í fyrstu
umferð, þá lið Verzlunarskóla Is-
lands, sem þótti eitt hið sigurstrang-
legasta í keppninni í ár, og nú síðast
laut Menntaskólinn á Akureyri í
gras fyrir liðinu frækna í átta-liða
úrslitum.
„Viö emm sennilega mest imdr-
andi á þessu sjáif,“ sagði Sóley Þórö-
ardóttir, náttúrufræðingur liðsins,
um árangurinn. „Okkar ósk var að
komast í aðra umferð og allt um-
fram þaö litum við á sem bónus. Ég
held að enginn hafi gert sér vonir
um að þetta gengi svona vel, allra
síst við sjálf,“ sagði hún, undrandi
yfir þessu öllu saman.
Eins og áður sagði hefur árangur
liðsins vakið mikla eftirtekt og
rigndi inn heillaóskum eftir sigur-
inn gegn MA. Heillaóskimar komu
úr öllum áttum, jafht frá háttsettum
embættismönnum þjóðarinnar sem
og fólkinu á götunni og greinilegt að
mörgum fannst sniðugt að sjá þenn-
an litla skóla velgja stóru skólunum
undir uggum.
Hittumst þrjú kvöid í viku og
spilum Trivial Pursuit
En hver er töfraformúlan? Af
hverju hefur liðinu vegnað eins vel
og raun ber vitni? Þeir sem þekkja
til liðsmanna telja að leyndarmálið
sé fólgið í hógværð og rósemd ein-
staklinganna sem skipa liðið og þar
fyrir utan séu þau gáfuð frá náttúr-
unnar hendi, eins og einn af kenn-
urum þeirra lét hafa eftir sér. Að-
spurður hvort æfingar hafi verið
stífar upp á síðkastið sagði fyrirlið-
inn og fjölfræðingurinn Óskar
Ágúst að svo hefði ekki verið, enda
þýddi ekki að fylla hausinn af upp-
lýsingum á síðustu stundu. „Við
erum ekkert að stressa okkur á
þessu. Við hittumst þrjú kvöld í
viku og spilum Trivial Pursuit. En
svo starfa auðvitað mjög góðir
kennarar við skólann og þeir miðla
reglulega af visku sinni. Ég get ekki
sagt að keppnin trufli okkur mikið.“
Og þó. Liðsmenn hafa orðið varir
við mikinn áhuga bæjarbúa á
keppninni og getur blaðamaður
staðfest að litið er á þau sem nokk-
urs konar þjóðhetjur í Fjarðabyggð.
Sem dæmi um áhugann sem ríkir í
bænum má nefna að ekki sást kött-
ur á kreiki á meðan viðureign VA
og MA í átta-liða úrslitunum stóð
yfir í sjónvarpinu. „Ég hélt að svona
lagað myndi eingöngu gerast í
Eurovision-keppninni," sagði Ævar
Unnsteinn, íþrótta- og dægurmála-
sérfræðingur liðsins, og bætti við að
hann væri oft að lenda í aðstæðum
þar sem hann væri minntur á stöðu
sína. „Daginn fyrir keppnina á Ak-
ureyri skellti ég mér í klippingu og
var að segja sessunaut mínum frá
því að kannski kæmumst við ekki
til Akureyrar vegna verkfalls flug-
umferðarstjóra. Einhver fyrir aftan
okkur hleraði samtalið og var ekki
par hrifmn af þessu. Þó ekki vegna
þess möguleika að fresta yrði
keppninni heldur vegna þess að um
var að ræða yfirvinnubann en ekki
verkfall. Það olli honum greinilega
miklum vonbrigðum að ég vissi
þetta ekki og var mér tjáð að svona
hluti yrði liðið að vita ef það ætlaöi
sér að komast lengra.“
Aðalatriðið er að allir hafi
gaman af þessu
En hvernig líst þeim á framhald-
ið? Var Menntakólinn við Sund
draumaandstæðingurinn fyrir und-
anúrslitin? Óskar varð fyrir svörum
og sagði dráttinn ekki skipta
nokkru máli. „Lið sem kemst alla
leið í undanúrslit hlýtur að vera
gott. En ég viðurkenni nú alveg að
hjartað í mér sló hratt þegar dregið
var um andstæðinga Menntaskól-
ans í Reykjavík. Það lið er mjög gott
eins og ávallt."
Er ekki kominn meiri þrýstingur á
þau núna eftir alla velgengnina? „Nei,
það finnst mér ekki,“ svarar Sóley
ákveðin. „Við erum fyrir löngu búin
að ná okkar markmiði. Það verður
mikið stuð í Fjarðabyggð þegar lið
Menntaskólans við Sund og fóruneyti
þeirra mætir og aðalatriðið er að allir
hafi gaman af þessu."
Óhætt er að taka undir orð Sól-
eyjar því auðvitað er þessi keppni
fyrst og síðast stórkostleg skemmt-
un sem ber að taka hæfilega alvar-
lega. Hinu verður þó vart neitað að
sigurganga VA sýnir enn og aftur
að stærðin skiptir ekki máli. -JKÁ
Undanúrslit Gettu betur í kvöld:
Ætlum að hljóta ást þjóðarinnar
- segja MS-ingar
Stemningin var góð hjá liðssveit
MS í Gettu betur þegar heilsað var
upp á hana eitt kvöldið í vikunni.
Liðiö er skipað Ásbirni Jónassyni,
sem hefur orðið þriggja ára reynslu í
faginu, og þeim Úlfi Einarssyni og
Sigurlaugi Ingólfssyni sem báðir
hófu keppnisferilinn í vetur en eru
strax komnir í úrslitabaráttuna.
Þjálfaramir þennan veturinn eru
gamlir keppnishundar, Hannes Óli
Ágústsson og Úlfar Freyr Stefánsson.
í vetur hafa þeir spurt en ekki svar-
að. Hannesi Óla finnst skiptin góð.
„Það er ekki eins erfitt að vera þjálf-
ari eins og keppandi," segir hann.
Ágætt að koma austur
Keppnin i kvöld er tekin upp á
Neskaupstaö. Flogið eldsnemma
morguns og komið heim seint að
kveldi. Ferðin leggst vel í þá MS-
inga. Sigurlaugur hefur komið áður
á staðinn. Hinir líka en segjast hafa
verið svo litlir að þeir muni ekkert
efth- því. „Það verður ágætt að
koma austur," segja þeir og telja dá-
litið fúlt að geta ekki veriö á ballinu
sem verður haldið í Egilsbúð eftir
keppni. „Við fljúgum strax til baka
enda á Úlfur að mæta í fótbolta hálf-
ellefu á laugardag, að viðlagðri 5.000
króna sekt, svo það er ekki hætt-
andi á að draga heimferð," segir
Sigurlaugur.
Bond-spurning óskast
Félagamir í MS segjast hafa byrj-
að æfmgar fremur seint en tíminn
hafi verið vel notaður undanfarið.
Það hafi verið lesið, hlustað og
spjallað. „Svo erum við með spum-
DV-MYND EINAR J.
Tll í slaginn
Hannes Óli Ágústsson, annar þjálfarí liösins, og keppendurnir Úlfur Einarsson, Ásbjörn Jónasson og Sigurlaugur Ing-
ólfsson.
ingar í þúsundavís sem viö höfum
baunað á strákana," segir Hannes
Óli húsbóndalega og bætir við að
hluti af undirbúningnum felist í að
spá í Eggert dómara og áherslur
hans. Aðspurðir hvaða efni þeir
vildu helst vera spurðir um eru þeir
á einu máli - Bond! „Það væri gott
að fá þunga Bond-spumingu til að
bjarga sér á. Enda er kominn tími á
eina slíka. Það hefur varla verið
minnst á Bond í keppninni. Þó er
þetta hákúltúr í kvikmyndasög-
unni,“ segja þeir.
Þegar spurt er hvort undirbún-
ingur undir keppnina hafi komið
niður á hinu almenna skólanámi
verða nýliöamir dálítið sposkir á
svip: „Já, svona frekar," segir Úlfur
og Sigurlaugur bætir við: „Maður
vælir um frest á frest ofan í sam-
bandi við verkefnaskil." En Ásbjörn
ber sig vel. „Það er bara lært,“ seg-
ir hann og ekki orð um það meir.
Þeir horfa allir vongóðir til páska-
frisins og segja að þá verði hægt að
vinna upp syndirnar.
Töluvert gáfaðri eftir
í framhaldinu velta menn fyrir
sér tilganginum með æfingunum -
eða tilgangsleysinu. Ásbjöm vill
meina að þeir verði allir töluvert
gáfaðri eftir, þótt hluti kunnáttunn-
ar verði kannski aldrei notaður.
„Við væmm ekki að leggja þetta á
okkur ef það væri til einskis," segir
þjáifarhm ákveðinn. „Nei, við ætl-
um auðvitað í utanlandsferðina,"
minnir Sigurlaugur á....Og hljóta
ást þjóðarinnar með því að sigra í
ár,“ bætir Úlfur við. -Gxm.