Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Síða 24
32
FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002
Tilvera I
1 í fiÖ
Sá fyndnasti
Fyndnasti maður íslands, Úlfar
Linnet, ætiar að sýna Norðlend-
ingum hvers vegna hann var val-
inn fyndasti maður íslands. Þetta
er í fyrsta skipti sem Úlfar
kemur fram norðan heiða.
Gríniö hefst í Deiglunni í Lista-
gili kl. 22 í kvöld.
Fundir og fyririestrar
■ KOSTNAÐARSKIPTING í
HEILBRIGÐISKERFINll Málbing um
kostnaðarskiptingu í heilbrigðis-
kerfinu verður haldið í Norræna
húsinu í dag og hefst kl. 14.
Krár
ÍBROAD A ÁMSTERDAMA
Amsterdam í kvöld spilar sænsk/ís-
lenska dúóiö Broad en það er skip-
að þeim Mats Nilson og Birni Vil-
hjálmssyni.
■ JANIS JOPLIN TÓNLEIKAR OG
BALL A KRINGLUKRANNI Það
verða Janis Joplin tónleikar klukkan
21 á Kringlukránni í kvöld.
■ PÁLL ÓSKAR Á GAUKNUM í
kvöld mun Páll Oskar halda dúndur-
teiti á Gauknum og mun hann hafa
fjóra gógó-dansara sér til aðstoðar.
Sveitin
■ BRETTAKVOLP I HLIÐARFJALLI
Það verður eitt stykki Brettakvöld
haldið í Hliöarfjalli á Akureyri í
kvöld frá 19-21.
■ XXX ROTTWEILERHUNPAR Í
GRINDAVIK Rapphundarnir í XXX
Rottweilerhundum verða með
tvenna tónleika í Hafurbirninum í
Grindavík t kvöld.
■ ÚTRÁS í NESKAUPSTAÐ 1 Egils-
búð í Neskaupstað veröur kátt á
hjalla eftir Gettu betur keppni Verk-
menntaskóla Austfjarðar og Mennta-
skólans við Sund en hljómsveitin Út-
rás mætir og veröur með ball fyrir
þátttakendur, gesti og gangandi.
Leikhús
■ ANNA KARENINA I kvöld sýnlr
Þjóðleikhúsiö verkið Anna Karenina
eftir Leo Tolstoy. Sýnt er á stóra
sviðinu í kvöld kl. 20.
■ BOÐORÐIN 9 í kvöld sýnir Borg-
arleikhúsið ieikritiö Boðorðin 9 eftir
Ólaf Hauk Símonarson. Leikrit um
núttmafólk í kröppum dansi sem
hefst klukkan 20.
■ FYRST ER AÐ FÆÐAST Leikritið
Fyrst þarf nú að fæðast er sýnt á
Nýja sviði Borgarleikhússins og
hefst sýningin kl. 20.
■ GULLBRÚPKAUP í kvöld sýnir
Leikfélag Akureyrar verkið Gullbrúð-
kaup eftir Jökul Jakobsson en sýn-
ingin hefst kl. 20
■ HVER ER HRÆPDUR? í kvöld
sýnir Þjóðleikhúsið Hver er hræddur
við Vfrginíu Woolf? Sýningin hefst
kl. 20
■ MEÐ LYKIL UM HÁLSINN Vestur-
portið sýnir T kvöld kl. 20 verk eftir
Agnar Jón sem ber heitið Með lykil
um hálsinn. Tekiö skal fram að sýn-
ingin er ekki ætluð börnum undir 14
ára aldri.
Bíó
■ SfÚTtMÝNPÁKVOLP I HINU
HUSINU Frá kl. 20 til 22 verður
stuttmyndakvöld á Loftinu (3. hæð) í
nýja Hinu Húsinu, Pósthusstræti
3-5 (gamla löggustööin). Aðgangur
ókeypis. Allir velkomnir.
Hulda Lind Jóhannsdóttir leikkona ársins í Svíþjóð:
Sótti um leiklistarnámið af rælni
Alltaf er gaman þegar landinn
gerir það gott á erlendri grundu og
þegar við fréttum af íslenskri
leikkonu, Huldu Lind Jóhannsdótt-
ur, sem útnefnd var leikkona ársins
í Sviþjóð á síðasta ári þá var for-
vitnin vakin og slegið á þráðinn tii
hennar. Hún var á leikferðalagi um
Blekinge, á leið til Kalmar þegar í
hana náðist og kvaðst afar ánægð
með upphefðina og verðlaunin sem
henni féllu í skaut. „Það er fyrst og
fremst heiðurinn sem skiptir máli
því þetta er mikil viöurkenning,"
sagði hún. Hulda kvaðst yfirleitt
vera aðra hverja viku á flakki en
hina heima í Stokkhólmi. Nú ferð-
ast hún um með bamaleikritið Gá
pá lina, þar sem hún leikur aðal-
hlutverkið.
MYND: RIKSTEATERN, PEO OLSSON
Ur leikritinu Gá pá lina
Roberto Gonzalez og Hulda Lind í hlutverkum sínum sem afinn og litla stúlk-
an, Esme.
listina í Svíaríki svarar Hulda: „Já,
ég lærði við skóla í Gautaborg.
Hann er einn af þessum háskólum
sem leggja mikið upp úr líkamstján-
ingu og slíkum kenningum. Mjög
sérstakur skóli sem mikil aðsókn er
að. Umsækjendur eru hátt í þúsund
árlega og ég var ein af 16 sem komst
inn það árið,“ segir hún og kveðst
hafa verið mjög hissa sjálf á þeirri
velgengni. „Ég reiknaði alls ekki
með að komast inn. Sótti samt um í
öllum fjórum stóru leiklistarskólun-
um í landinu, bara af rælni. Byrjaði
á að fara í eins árs nám í Stokk-
hólmi sem var undirbúningsdeild
fyrir þessa skóla. Komst svo inn í
Gautaborg, mér til mikillar furðu,
fór í gegn um allar síur og var þar í
þrjú ár. Þetta rúllaði svona áfram
án þess að ég hefði beinlínis ætlað
það. Ég var alltaf á leiðinni heim!“
Kona eigi einsömul
Nú viljum við fá að vita hvort
Hulda komi ekki stundum í heim-
sókn til íslands. „Jú, að minnsta
kosti einu sinni á ári og stundum
tvisvar. Þegar Flugleiðir bjóða ein-
hverja góða prísa, en það gerist ekki
oft! Mér finnst nauðsynlegt að koma
heim og heilsa upp á fjölskylduna."
Hulda kveðst eiga sænskan sam-
býlismann sem hún hafi oft komið
með til íslands og kunni mjög vel að
meta landið hennar. Þegar spurt er
út í framtíðaráformin kemur i ljós
að daman er kona eigi einsömul svo
horfur eru á breyttum högum síðar
á árinu. „Ég reikna með að taka
mér frí frá leikhúsinu í haust og
vera heima við í eitt ár,“ segir hún.
-Gun.
MYND: YLVA LAGERCRANTZ
Skarar fram úr í Svíþjóð
Hulda Lind Jóhannsdóttir er ánægð með viðurkenn-
inguna.
Lofsamlegir dómar
Hulda tilheyrir kjarnanum í
barnadeild Þjóöleikhússins i Stokk-
hólmi, Riksteatem. Þar er yfirleitt
ráðið í hvert leikrit fyrir sig, að
hennar sögn. Hún lék titilhlutverk í
ööru barnaleikriti sem var í gangi á
Riksteatern í fyrra og hét Malla
handlar og fékk afar lofsamlega
dóma fyrir frammistöðu sína í því,
rétt eins og í Gá pá
lina. „Við frumsýnd-
um Malla handlar í E1
Salvador og ferðuð-
umst með það vítt um
Mið-Ameríku og Jap-
an, auk þess að sýna
það hér í Skandinavíu.
Það var mjög skemmti-
leg upplifun," segir
hún. Ekki hefur hún
komist í leikfor enn þá
til íslands enda þykir
það víst of dýrt. En
hversu lengi hefur
hún búið í Svíþjóð og
hvað hyggst hún fyrir
í framtíðinni?
„Ég hef búið hér sið-
an 1989, eða í 13 ár, og
býst ekki við að fLytja
heim fyrsta kastið,“
svarar hún. Hún
kveðst þó aldrei hafa
ætlað að ílengjast í Svíþjóð. „Ég var
hér eitt sumar og vann við þrif,
langaði að kynnast nýju landi og
læra nýtt mál. Þetta var sumarið ‘86
og ég var í Stokkhólmi. Svo fór ég
heim en kom aftur og vann í hálft
ár. Svo bara gerðist það að ég stað-
næmdist hér,“ segir hún eins og af-
sakandi.
Sótti um af rælni
Aðspurð hvort hún hafi lært leik-
Bíógagnrýni
wssm
Sam-bíóin - Snow Dogs ★ ★
Úr sólinni á Flórída í kuldann í Alaska
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Á kránni í Alaska
Cuba Gooding jr. og Grahame Greene í hlutverkum sínum.
„Er ég eskimói,“ öskrar Cuba
Gooding jr. upp yfir sig þegar hann
kemst að því að hann hefur verið
ættleiddur. Hin raunverulega móðir
hans, sem hefur búið alla ævi í
Alaska, er látin og hefur arfleitt son
sinn að eigum sínum. Það er von að
aumingja Cuba spyrji - fáfræðin hjá
þeim sem búa við temprað loftslag
er mikil þegar Alaska, Grænland og
jafnvel ísland er nefnt á nafn. Allt
er þetta nú samt í gríni í Snow Dogs
sem er klassísk afþreyingarmynd
frá Disney. Frumleikinn liggur í að
láta svartan mann úr sólinni á Flór-
ída, sem aldrei hefur verið í veðr-
áttu undir tuttugu stigum, fara í
kuldann til Alaska. Að öðru leyti er
myndin ein klisjan á eftir annarri,
gerð af fagmönnum sem vita hvað
þeir eru að gera.
Ted Brooks (Cuba Gooding jr.) er
vinsæll tannlæknir í Miami sem lif-
ir lífinu til fulls. Þegar hann er bú-
inn að fá fréttirnar um uppruna
sinn er það meira af forvitni heldur
en til að hirða eigur látinnar móð-
ur, sem hann yfirgefur hlýjuna og
fer i kuldann. Eins og við er að bú-
ast er hann eins og belja á svelli (i
orðsins fyllstu merkingu) þegar
hann er kominn til Alaska. Eigur
móður hans reynast ekki dýrmætar,
fyrir utan hundasleðalið sem hún
átti. Nú stendur fyrir dyrum hunda-
sleðakapphlaup og maðurinn sem
allir hræöast, Thunder Jack (James
Cobum), hefur mikinn hug á að
eiga þetta hundalið en vill lítið
borga fyrir það. Hefst nú skemmileg
rinuna á milli þeirra sem ekki verð-
ur friðsamlegri þegar Brooks kemst
að því að Thunder Jack, sem er
hvítur, er raunverulegur faðir hans
Cuba Gooding jr. er fyrst og
fremst gamanleikari þó hann hafi
gert ágæta hluti í dramatískum
myndum. Hlutverk tannlæknisins,
Ted Brooks, er eins og sniðið fyrir
hann. í þessu hlutverki fær hann að
fara með brandara á kostnað þeirra
sem búa á mörkum hins byggilega,
impróvisera að vild og gera um leið
létt grín að kynþætti sínum. Það
gefur því augaleið að myndin fellur
og stendur með honum og Gooding
fer létt í gegnum allt ferlið með
sóma. James Cobum, sem ekki hef-
ur lagt það í vana sinn að leika í
gamanmyndum, er stirður og lítt
fyndinn. Það eru helst hundamir
sem veita Gooding einhvem mót-
leik.
í fjölskyldumyndum á borð við
Snow Dogs verður rómantíkin að
vera með og viti menn: er ekki svört
og falleg ógift stúlka í þorpinu?
Ekki þarf að hafa fleiri orð um hvað
henni og Gooding fer á milli en mik-
il ósköp er innkoma hennar i mynd-
ina vandræðaleg. Það er augljóst að
persónan er til uppfyllingar og að-
eins til að koma rómantíkinni að.
Að öðru leyti er Snow Dogs mein-
laust gaman.
Leikstjóri: Brian Levant. Handrit: Jim
Kouf, Tommy Swerdlow og fleiri. Kvik-
myndataka: Thomas Ackerman. Tónlist:
John Debney. Aðalhlutverk: Cuba Good-
ingjr., James Coburn, Nichelle Nichols,
M. Emmet Walsh og Graham Greene.