Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Qupperneq 25
33
FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002
DV
Tilvera
*
U|)|).ill.illlsnivi)(ll)iUHliA
Fer mikiö í bíó
Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi segist frekar vilja horfa á myndir í bíó en af myndbandi.
Ég er bíófrík
- segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi
„Já, ég fer mjög oft í bíó,“ segir
Jóhann Páll Valdimarsson bókaút-
gefandi, „eins oft og framboöið gef-
ur tilefni til. Ég sé reyndar ekki allt
en fer samt oft á frekar slappar
myndir, því miöur er framboöið á
góðum myndum ekki nógu mikið.
Kvikmyndaframleiðslan í þeim
heimshluta sem ég þekki er orðin
svo einsleit og formúlukennd
þannig að ég sé oft lélegar myndir."
Jóhann segist ekki eltast mikið
við myndir á kvikmyndáhátiðum.
„Sýningamar eru oft á tímum sem
henta mér ekki en ég fer ef ég
get. Ég sé reyndar flestar
myndimar sem koma
hingað í tengslum við
kvikmyndahátiðir á end-
anum en þá á hefðbundn-
um sýningartímum.“
kins í aðalhlutverki.
Ég á mína uppáhaldsleikstjóra
eins og Roman Polanski og Ridley
Scott og þátttaka sumra leikara eins
og Anthony Hopkins er nánast
trygging fyrir gæðum.“
Vill maula popp I bíó
„Ég á vídeótæki en hef ekki mik-
ið notað það i seinni tíð því mér
finnst mun skemmtilegra að fara í
bíó en horfa á mynd-
ir af myndbandi. t
Kvikmyndir í dag t
byggja mikið á
tækni sem nýt-
ur sín ekki á
vídeó. Þetta er
Mik
ið um
formúlu
myndir
Jóhann segir að síðasta mynd
sem hann sá í bíó hafi verið Spy
Game með þeim Robert Redford
og Brad Pitt. „Þetta var for-
múlumynd með fremur slöppu
handriti, hún er aftur á móti
fagmannlega unnin bæði hvað
varðar leik og gerð og það
gerði hana bærilega. Af þeim
myndum sem ég hef séð á
síðustu vikum finnst mér
Amelie og Hearts in At-
lantis einna skástar,
Amelie er svo sem ekkert
stórkostleg en góð þrátt
fyrir það. Hearts in At-
lantis var aftur á móti
fin enda ekki við öðru að
búast með Anthony Hop-
reyndar miður því menn eru oft að
fela lélegt handrit með tæknibrell-
um. Ég vil því sjá myndir í myrkv-
uðum kvikmyndasal og maula mitt
popp á meðan.“
Að sögn Jóhanns er hann ekki
mikið fyrir að horfa á sömu mynd-
imar aftur. „Það er reyndar ein
mynd sem ég get horft á endalaust
og það er Bitter Moon eftir Roman
Polanski. 1 myndinni er sena sem ég
fæ einfaldlega ekki leiða á og fjallar
um mannlega græðgi. Elskendumir
í myndinni eru búnir að prófa bók-
staflega allt í ástarlífmu og í þessu
atriði er karlmaðurinn á fjórum
fótum á gólfinu með svínaól um
hálsinn. Kærastan stendur yfir
honum með svipu á lofti og miss-
ir stjóm á sér og hvæsir að hann
geti ekki einu sinni hrínt eins og
svin lengur og aö sjálfsögðu fór
sambandið út um þúfur. Þessi sena
er hreint út sagt frábær."
-Kip
Roman Polanski
„Þaö er reyndar ein
mynd sem égget
horft á endalaust
og þaö er Bitter
Moon. “
GetCarter
Stallone í
hefndarhug
Michael Caine hefur
hátt. Carter þekkir
undirheimalýðinn
betur en aðrir og sér
strax að þama er
sitthvað athugavert
og hefur eigin rann-
sókn á dauða bróður
síns. Sú rannsókn
snýst fljótt upp í
morðrannsókn og
vei hverjum þeim
sem lenda í klónum
á Stallone þegar
hann er kominn úr
jakkafotunum og
hnykkir vöðva sína sem sjaidan
hafa verið jafn fyrirferðarmiklir.
Annað vöðvabúnt kemur okkur
kunnuglega fyrir sjónir, er það
Mickey Rourke, sem eins og
Stallone hefur bætt heilmiklum
vöðvum á líkama sinn. Rourke leik-
ur að sjálfsögðu þann versta af
mörgum vondum og er aumt að sjá
hvað hefur orðið úr þessum áður
fyrr efnilega leikara.
-HK
Útgefandl: Sam-myndbönd. Leikstjórl:
Stephen Kay. Bandaríkin 2000. Lengd:
104 mín. Leikarar: Sylvester Stallone,
Mirinda Richardson, John McGinley,
Mickey Rourke og Michael Caine.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
leikið í mörgum misgóðum
kvikmyndum. Ein af hans
betri kvikmyndum er Get
Carter frá árinu 1971,
hörkugóður tryllir þar sem
Caine sýndi sínar bestu
hliðar. Meðal þeirra sem
hrifhir voru var Sylvester
Stallone sem lengi hefur
veriö með þá hugmynd að endur-
gera myndina. Þetta hefur hann nú
gert og þó Stallone sé ekki hátt
skrifaður sem leikari þá hefur hann
gert margt verra en að leika
krimmann Carter. Hann fer þó ekki
með tærnar þar sem Caine er með
hælana í túlkun sinni. Stallone
hefði nú samt átt að láta þetta eiga
sig, myndin sjálf er langt í frá að
vera sá spennutryllir sem vænta
hefði mátt og hér á landi fer hún
beint á myndbandamarkaðinn, sem
hefði nú einhvem tímann þótt saga
til næsta bæjar þegar um er að ræða
nýja mynd með Stallone.
Sem og í fyrri myndinni er Cart-
er í upphafi á leið í jarðarför bróður
síns sem hefur látist á dularfullan
Verð 1.050.000
SUBARU IMPREZA W/G,
fyrst skráður 12/98, ek. 84.000 km., 5
dyra, 5 gíra, 4X4.
Verð 1.050.000,-
Skoða skipti.
J. R. BlLASALAN
www.jrbilar.is
Til sölu og sýnis á JR Bflasölu, Bíldshöfða 3,
sími 567-0333
Getum bætt við okkur bílum á staðinn oq á skrá. visa/Euro rað9rp' s,ur
The Commissioner |
★ ★*
Þeir
sem ráda
Hverjir stjórna
heiminum? Eru það
stjómmálamenn eða
eru það stórfyrirtæki?
Þessu er svarað i The
Commissioner, sem
fjallar um það hvem-
ig kaupin gerast á
eyrinni hjá Evrópu-
sambandinu. Sam-
kvæmt útkomu
myndarinnar þá em það fyrirtækin
sem hafa tögl og hagldir en ekki
stjómmálamenn og stjóma bak við
tjöldin.
John Hurt leikur James Morton,
breskan ráðherra. Honum er gert að
segja af sér ráðherradómi og taka
við stöðu æðsta manns Breta í Evr-
ópusambandinu. Á bak við ráðn-
ingu hans stendur breskt stórfyrir-
tæki sem teygir anga sína inn í
bresku ríkisstjómina. Morton tekur
starf sitt alvarlega og þegar upp
kemur stuðningur við fyrirtæki
sem er í efnaframleiðslu og grunur
The* Comlnissíonír
leikur á að sé á kafi í
eiturefiium setur hann
hnefann í borðið. Hefst
nú spennandi atburða-
rás þar sem allt virðist
ætla að ganga upp hjá
Morton, hann verður
hetja í augum fólksins
og er hækkaður í tign.
Það sem hann veit ekki
er að hann hefur veriö
strengjabrúða í hönd-
um þeirra sem hafa
plottað bak við tjöldin
ÍJ The Commissioner,
sem leikstýrt er af
belgíska leikstjóranum George Slu-
izer (The Vanishing), er aö mörgu
leyti áhugaverð. Plottið er gott og
leikur góður. Það sem kemur í veg
fyrir að um góðan pólitískan trylli
sé að ræða er að leikstjórinn á það
til aö hægja um of á atburðarásinni
með þeim afleiðingum að uppbyggð
spenna gufar upp. -HK
Útgefandi: Myndform. Leikstjórl: George
Sluizer. Belgía/Bretland 1998. Lengd:
110 mín. Leikarar: John Hurt, Rosanna
Pastor, Alice Krige og Armin Mueller-
Stahl. Bönnuö börnum innan 12 ára.
IVIywlbamtiirýni
<■