Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 25. MARS 2002
Landið
DV
Tákn Árborgar:
•• ■ **
Bjossi a
mjólkurbílnum
Ólafi Björnssyni formanni at-
vinnuþróunamefndar Árborgar,
hefur verið falið að vinna að því að
kanna mögulega notkun á orð- og
vörumerkinu „Bjössi á mjólkurbíln-
um“ í tengslum við kynningarefni
um Árborg. Með þessu yrði hinn
gamli slagari frá Hauki Morthens
orðin tákn Árborgar með beinni
skírskotun í mjólkurframleiðsluna
sem er ein af meginatvinnugreinum
sveitarfélagsins. Mjólkurbú Flóa-
manna er eitt stærsta fyrirtækið í
Árborg og í áratugi hafa mjólkurbíl-
stjórar frá fyrirtækinu farið um
héruð sunnanlands og safnað afurð-
um bænda og verið tengiliðir við
umheiminn. -NH
Starfslokasamningur fyrrum bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar:
Heildargreiðslur nema
fjórum milljónum króna
Á fundi bæjarstjórnar Dalvíkur-
byggðar á dögunum var tekinn til
umfjöllunar og afgreiðslu, starfs-
lokasamningur við Rögnvald Skíða
Friðbjömsson, fyrrum bæjarstjóra
Dalvíkurbyggðar, en sem kunnugt
er hvarf hann til annarra starfa hjá
íslandsfugli um áramót.
Samkvæmt starfslokasamningn-
um á Rögnvaldur Skíði að fá greidd
fjögurra mánaða íost mánaðarlaun
auk 60 klst. yfirvinnu á mánuöi.
Ekkert orlof er greitt ofan á þessi
starfslokagreiðslu, en Dalvíkur-
byggð greiðir 11,5% iðgjald í lífeyr-
issjóð Rögnvaldar.
Samtals nema þessar launa-
greiðslur kr. 2.709.964 og lífeyris-
sjóðsiðgjaldið kr. 311.646. Við þetta
;;
iM J 21 j oí)
FESTINA
Sterk, nákvæm, flott
Festina herraúr,
sandblásið og
pólerað stál, hert
gler, skrúfað bak,
100 m vatnsvarið.
Skeiðklukka,
dagatal.
Verð aðeins kr.
(takmarkað magn)
Einnig sama úr án
skeiðklukku með
auka-leðuról
Verð aðeins kr.
Póstsendum
r | lbert
VJ ‘ ÚRSMIÐUR 1
Laugavegi 62 - simi: 551-4100
GULL-ÚRID
Axel EiríksBon
úrsmíðameistari
Álfabakka 16
sími 587 4100
MJÓDDINNI
bætast ógreidd orlofslaun, nánar
tiltekið átta óteknir orlofsdagar
frá siðasta orlofsári, og tuttugu
áfallnir orlofsdagar á yfirstand-
andi orlofsári, miðað við starfs-
lokadag, alls krónur 873.963, auk
lífeyrissjóðsiðgjalda af upphæð-
inni, kr. 100.506. Alls nema því
þessar starfslokagreiðslur til
fyrrum bæjarstjóra kr. 3.996.079.
Ekki allir á eitt sáttir
Talsverðar umræður urðu á
bæjarstjómarfundinum um
þennan samning og sitt sýndist
hverjum. Fulltrúar minnihlutans
gagnrýndu meirihlutann harð-
lega og töldu að ef rétt hefði ver-
ið staðið að málum hefði fyrrum
bæjarstjóri ekki átt neinn rétt á
biðlaunum. Kváðust menn undr-
andi á því að svo væri komið að
fyrrverandi bæjarstjóra skuli
greidd laun fyrir að halda ekki
samning við Dalvíkurbyggð. Það
væri alfarið meirihlutanum að
kenna því að hann hlustaði ekki á
DVJHYND HALLDÓR INGI ASGEIRSSON.
Bæjarstjórinn
Rögnvaldur Skíöi - bæjararstjórinn sem fór í
kjúkiingana. Nú fær hann í hendur góöan
starfslokasamning.
viðvaranir minnihlutans í desem-
bermánuði sl. og veitti bæjarstjóra
lausn frá störfum án þess að ganga
frá því að hann félli frá frekari
launakröfum. Bent var einnig á að
meirihlutinn hefði ekki óskað eftir
uppsagnarbréfi frá bæjarstjóra eins
og minnihlutinn fór fram á (sem
hefði fríað bæinn við frekari
launakröfum) heldur veitt honum
lausn frá störfum að ósk þriðja að-
ila.
Fulltrúar meirihlutans sögðu
að ekki hefði verið hægt að kom-
ast hjá því að gera starfsloka-
samning við bæjarstjóra vegna
ákvæða i starfssamningi hans og
vitnuðu í álit Jónatans Sveinsson-
ar bæjarlögmanns um málið. Nið-
urstaða Jónatans er að miðað við
hvernig málin þróuðust eigi Rögn-
valdur Skíði fullan rétt á biðlaun-
um.
Fulltrúar minnihlutans vitnuðu
einnig í álit bæjarlögmannsins
máli sínu til stuðnings, þar sem
segir: „Var borin upp og samþykkt
tillaga um að veita bæjarstjóranum
lausn frá störfum en tillagan hafði
ekki að geyma nokkum þann fyrir-
vara er varðað gæti hinn samnings-
bundna rétt bæjarstjórans skv. 8. gr.
ráðningarsamningsins til launa í
fjóra mánuði við starfslok." -hiá
Þrettán fengu viðurkenningu:
Markmaður íþrótta-
maður Siglufjarðar
Val á íþróttamannni
Siglufjarðar var kunngert
fyrir skömmu og jafn-
framt voru krýndir
íþróttamenn í þeim grein-
um sem stundaðar eru í
bænum. Tólf voru kjömir
og auk þess einn heiðrað-
ur sérstaklega.
Yngri flokkur: Katrin
Dröfn Haraldsdóttir,
hestaíþróttir, Salóme Rut
Kjartansdóttir og Amar
Þór Björnsson, borðtenn-
is, Ester J. Torfadóttir og
Einar I. Andrésson, skíði,
Hrafnhildur Guðnadóttir
og Gunnar Ragnarsson,
knattspyma. Jóhann Már
Sigurjónsson, golf.
Eldri flokkur: íris
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON
Benedikt Þorsteinsson, markvöröur meistaraflokks KS.
Gunnarsdóttir, boccia,
Þorsteinn Jóhannsson,
golf, og Ásdís Jóna Sigur-
jónsdóttir og Benedikt Þor-
steinsson, knattspyrna. Úr
þessum hópi var svo Bene-
dikt Þorsteinsson, mark-
vörður meistaraflokks KS,
kjörinn íþróttamaður
Siglufjarðar árið 2001.
Þessu til viðbótar fékk
Mark Duf-fleld sérstök
heiðursverðlaun en hann
lék 23. keppnistímabil sitt
i meistaraflokki í fótbolt-
anum sl. sumar og á að
baki tæplega 360 meistara-
flokksleiki í deildar-
keppni. Kiwanismenn í
Siglufirði stóðu að kjör-
inu. -ÖÞ
Viö leggjum okkar af mörkum til aö halda verðbólgunni
niðri og veitum 4% afslátt af völdum bilum.
Renault Laguna II
fólksbm
23.449
Bflalán, afborgun á mán.
Rekstraáeiga: 39.299
Verðáður 2.090.000
Verð nú 2.006.000
Renault Scénic
fólksbíll
23.008
Bílalán, afborgun á mán.
Reksbarteiga: 38.627
Verðáður 2.050.000
Verðnú 1.968.000
Renault Mégane Berline
fólksbfll
18.332
Bilalán, afborgun á mán.
Rekslrarieiga:31.731
Verðáður 1.630.000
Verðnú 1565.000
Grjóthál* 1 . Sfml 675 1200
Söludaild 575 1220 • www.bl.is
Rekslrarleigan er til 36 mán., m.v. við 20.000 km á ári og erienrla myntkörfu. Rekstrarleiga er aðeins i boði til rekstraraðila (fyrirtaekja).
Bilalán miðast viö 30% ntborgun og 84 mán. samning. Allar tölur em með vsk. Tilboðið gildir út mars
Blönduós:
Nýir menn leiða H-listann
Nýir menn eru í tveimur efstu
sætunum á H-lista vinstri manna og
óháðra fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar á Blönduósi í vor. Tveir bæjar-
fulltrúa flokksins fara í heiðurssætin
aftast á listanum en sá þriðji, Hjör-
dís Blöndal, er í 3. sæti. H-listinn er
í meirihluta bæjarstjómar með Sjálf-
stæðisflokki.
Efstu sæti listans eru annars
þannig skipuð: 1. Valgarður Hilm-
arsson oddviti. 2. Jóhanna G. Jónas-
dóttir leikskólastjóri. 3. Hjördís
Blöndal bæjarfulltrúi. 4. Guðmundur
Ingþórsson verktaki. 5. Hulda Birna
Frímannsdóttir sjúkraliði. 6. Jón
Kristófer Sigmarsson tamningamað-
ur. 7. Anna Margrét Jónsdóttir hér-
aðsráðunautur. 8. Eva Hrand Péturs-
dóttir verkakona. 9. Sigríður Helga
Sigurðardóttir leiðbeinandi og 10.
Björn Guðsteinsson bóndi. -gk
Akranes:
Framsókn með lista
Fulltrúaráð Framsóknarflokksins
á Akranesi hefur samþykkti tillögu
uppstOlingamefndar að lista flokks-
ins fyrir bæjarstjómarkosningar á
Akranesi í vor. Töluverðar breyt-
ingar eru á lista flokksins miðað við
síðustu bæjarstjómarkosningar þar
sem nýtt fólk verður í 2., 3. og 4.
sæti listans. Framsóknarflokkurinn
hefur nú 2 fulltrúa í bæjarstjóm og
myndaði meirihluta meö Akra-
neslista eftir siðustu kosningar. í 7
efstu sætum eru:
1. Guðmundur Páll Jónsson
starfsmannastj óri.
2. Magnús Guðmundsson for-
stjóri.
3. Guðni Tryggvason verslunar-
maður.
4. Margrét Þóra Jónsdóttir leik-
skólakennari.
5. Jóhanna Hallsdóttir bókari.
6. Valdimar Þorvaldsson vélvirki.
7. Jóhannes Snorrason tækni-
fræðingur.
-hlh