Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Page 12
12
Menning
Hinn hreini átrúnaður
Það getur stundum verið erfitt
að átta sig á Hirti Marteinssyni,
einkum og sérílagi þegar myndlist-
argáliinn er á honum, en eins og
mörgum er kunnugt hefur hann
einnig gefið út ljóðabækur og verð-
launaða skáldsögu um Áma Magn-
ússon. Vandinn er aðallega sá að
hugmyndaleg undirstaða mynd-
verka hans er svo einkaleg, segjum
bara sérviskuleg, að áhorfandinn
er án listsögulegrar haldfestu þeg-
ar hann þarf að leggja mat á sam-
setningu þeirra og virkni. Og ekki
að furða því þau eru fyrst og
fremst sprottin upp úr heimi orð-
ræðunnar, fabúlum sem Hjörtur
hefur búið sér til áður en hann
grípur til útskurðarhnífsins eða
hefllsins. Þannig séð er Hjörtur í
rauninni myndlistarlegur einfari -
þó ekki naíflsti - í svipaðri merk-
ingu og Karl Dunganon.
En með því að setja sig í réttar
stellingar, láta alla listsögu lönd og
leið, gefa sig ímyndunarafli Hjart-
ar á vald og hunsa um leið hálf-
kæring og ólíkindalæti sem höf-
undur notar að því er virðist til að
ergja áhorfendur/lesendur sína, þá
verður maður þátttakandi í at-
burðarás sem er allt í senn ævin-
týraleg, fyndin, djúpskyggn og
sjáifhæðin. Og með þvi að ég var
að lesa Herra Palomar eftir Italo
Calvino um svipað leyti og ég skoð-
aði sýningu Hjartar, fannst mér sem ég væri á
heimavelli.
Sambandsleysið
Sýning Hjartar í Listasafni ASÍ heitir hvorki
meira né minna en „Þeir yðar sem erfiði og
þunga eru haldnir" og fjallar með ýmsum hætti
um kirkju og trú. Þvi má segja að hún kallist á
við það sem er að gerast í húsi Guðs hinum
megin á holtinu. Þungamiðja sýningarinnar er
bæjarferð Ufsa-Krists frá Eyjafirði, frægrar út-
skurðarmyndar frá 12. öld, sem óforvarendis
endaði í sýningarsalnum við Freyjugötu. Þar
stendur Kristur á miðju gólfl með útbreiddan
faðminn en allt í kringum hann eru ferðatösk-
ur sem sveitungar hans fyrir norðan hafa fært
Bókmenntir
Verk eftir Hjört Marteinsson
Þungamidja sýningarínnar er bæjarferð Ufsa-Krists frá Eyjafirði...
honum (!), ef ske kynni að hann vildi snúa aft-
ur heim.
Allt um kring og niðri í gryfju er síðan marg-
háttuð smíð og útskurður, athugasemdir, grein-
argerðir eða fyrirspumir i þrívíðu formi (úr
spónaplötum, plexígleri og MDF, að ógleymdum
flatkökum) sem ívið kaldhæðnislega, með
ljúfsárri eftirlöngun eða fúlustu alvöru snerta
kristna kirkju, kristilega breytni og átrúnað yf-
irleitt.
Ofarlega í huga Hjartar er sambandsleysið
milli kristinnar kirkju og þeirra sem hún á að
þjóna, og sýnist mér fámennið á Þingvöllum um
árið vera honum eins konar leiðarstef, að
ógleymdum væringum um kirkjuleg máiefni
innan og utan stofnunarinnar á siðustu árum.
Býsna lunkin er „kirkjuklukka"
Hjartar úr plexígleri þar sem svífa
ský með áfóstum þvingum. í sýn-
ingarskrá, sem jafnframt er frásögn
af ReykjaVíkurferð Ufsa-Krists, seg-
ir að það hafl einmitt verið sama
árið og kristnihátíð var haldin á
Þingvöllum að kirkjugestir urðu
varir við „ofurlitil ský innan í
klukkunni. Voru þau þvinguð.
Töldu þeir það fyrirboða um óút-
skýrða hugarfarsbreytingu meðal
presta í garð hins hreina átrúnað-
ar.“
Með þögnina í eyrunum
Útskurðarmyndir Hjartar verða
eins konar hlutgervingar kreppu-
ástandsins innan kirkjunnar, í
senn einfaldar í formi en langt í frá
gegnsæjar að inntaki. Gott dæmi er
notkun hans á marglitum eyrna-
töppum, eina „aðskotahlutnum" á
sýningunni, sem ígiidi „þagnar“.
Sums staðar virðast þessir tappar
gefa til kynna inntaksleysi þess
boðskapar sem frá kirkjunni kem-
ur, annars staðar virðast þeir tákna
skeytingarleysi okkar sjálfra um
þennan boðskap, og loks verða þeir
ígildi eins konar upphafningar,
kannski Zen-upplifunar, samsemd
sálarinnar og algleymisins.
Að baki frásagnanna og fastra og
lausra skota á kirkjunnar menn i
verkum Hjartar leynast brýnar fyr-
irspurnir um eðli og nauðsyn átrún-
aðar á síðustu og verstu tímum, og
ekki síst um hlutverk listarinnar í kirkjulegu
samfélagi. Það er ljóst af þvi sem hann segir um
Ufsa-Krist, sem verður að dauðum spýtudrumbi
um leið og hann kemur inn á listsýninguna í
Ásmundarsal, að honum þykir listin nú vera úr
tengslum við kirkju og trú. Getur verið að lista-
maðurinn túlki „hinn andlega seim“ einum of
þröngt, að trúin hafi hreinlega tekið á sig nýjar
birtingarmyndir í listinni? En sýning Hjartar
vekur ótal spurningar, sem er meira en flestar
listsýningar gera nú til dags.
Aðalsteinn Ingólfsson
Sýning Hjartar stendur til 31. mars. Listasafn ASÍ er
opiö þriö.-sunn. kl. 14-18, helgidaga sem aðra daga.
Líf í skugga hins týnda
Söguhetja Hins týnda eftir Hans
Ulrich Treichel er aukapersóna í
eigin lífi. Hann er eina eftirlifandi
barn foreldra sinna, en stendur
ávallt í skugga bróður síns sem
týndist á flótta foreldranna undan
Rússum við lok seinni heimsstyrj-
aldarinnar. Foreldrar hans, og þó
einkum móðirin, eru heltekin af
sektarkennd yfir glataða syninum
og eyða ómældri fyrirhöfn og tima í
tilraunir til að finna hann á ný.
Smám saman verður leitin að glat-
aða syninum að þráhyggju, sem
kemur í veg fyrir að fjölskyldan
njóti nokkurrar hamingju, og bitnar vitanlega
harðast á yngri syninum.
Sagan er sögð frá sjónarhóli yngri bróðurins,
og hún lýsir vel vanmætti hans gagnvart þrúg-
andi nærveru hins týnda bróður og tvíbentum
tilfinningum í hans garð. Líkaminn og hlut-
gerving hans er eins og rauður þráður í gegn-
um söguna alla. Faðir söguhetjunnar er kjöt-
kaupmaður, bróðirinn týndi mögulega slátrari
og viðbrögð drengsins við umheiminum brjót-
ast út í líkamlegum öfgum: hann svitnar, ælir
og titrar.
Þessi áhersla á líkamann sem hold og hlið-
stæðan við sláturdýr verður svo enn magnaðri
í lýsingum á rannsóknum sem fjölskyldan
gengst undir til að reyna að ftnna glataða son-
inn. Þar er potað í þau og klipið með tækjum
og tólum líkamsmannfræðinnar í köflum þar
sem skiptast á kaldhæðin kimni og hryllingur.
Manneskjumar eru meðhöndlaðar eins og kjöt-
skrokkar, en um leið er þessi meðferð eina leið
þeirra til þess að reyna að endurheimta hið
týnda bam og fullkomna fjölskylduna að nýju.
í þessum köflum myndast áhrifamikil gjá milli
orðræöu vísindanna annars vegar þar sem lík-
indareikningur og framandi hugtök um hlut-
fóll mannslíkamans eins og hvarmskora og nef-
baksform ráða úrslitum um mál sem snerta
dýpstu og innilegustu tilfinningar fjölskyld-
unnar. Þessu hárfína jafnvægi milli andstæðna
hefur þýðandanum, Áma Óskars-
syni, tekist að miðla á sannfærandi
hátt. Það er ekki einfalt verk að sam-
eina angistina og hjákátleikann sem
einkenna andrúmsloft sögunnar, en
Árna tekst það með glæsibrag.
í Hinum týnda er unnið með tví-
bura eða tvífaraminni; bræður sem
eru aðskildir í æsku með tilheyrandi
sálarklofningi, og það er eiginlega
óhjákvæmilegt að hugsa til sögu
Þýskalands undanfama áratugi við
lestur sögunnar. Þannig má lesa fjöl-
skyldu sögumanns sem eins konar
smækkaða útgáfu af þýsku þjóðinni,
stríðið klýfur hana í tvennt og skilur eftir sár
sem ekki verða læknuð. Á eftirstríðsárunum
tekur hún ákafan þátt í kapphlaupi um aukin
lífsgæði og vegnar vel í viðskiptum. Viðskiptin
verða flóttaleið föðurins eða uppbót fyrir það
sem fjölskyldan hefur glatað.
Þessi hliðstæða er næstum of augljós og
kannski er best að láta hana ekki stýra lestri
sínum um of. Sagan þarf ekki á þessari vídd að
halda. Hinn týndi er nærgöngul skáldsaga um
líf í viðjum fortíðar, um hlutgervingu manns-
ins og vanmátt.
Jón Yngvi Jóhannsson
Hans-Ulrich Trelchel: Hinn týndi, Árni Óskarsson þýddi
Mál og menning
, mannsgaman
Ef gólfið gæti gleypt
Stundum færi betur að gólfið gleypti mann.
Þetta gerist á þeim augnablikum í lífinu þeg-
ar forsjálni fær minna pláss en fikt í huganum.
Stundum kemur þetta yfir mann í lotum og
stundum runum - og það er miður, af því að
einu sinni er verra en svo að maður vilji það
oftar.
Þetta er sagt af því skakkar myndir fara
óskaplega í taugamar á þeim sem þetta skrifar,
einkanlega myndir og málverk á flottustu lista-
söfnum og landsins bestu sýningarsölum.
Verstar eru myndirnar sem eru svo lítið skakk-
ar að þær eru eiginlega alveg beinar. Sök sér
með þær sem eru rammskakkar - nei, hinar
sem eru svo stutt frá því að vera réttar og bein-
ar eru þær sem sterkast höfða til manna og
kvenna sem eru haldin svona skekkjufælni.
Tökum sem dæmi sunnudagssíðdegi í svölum
maí. Listasafn íslands. Og aðeins einn í salnum.
Þú sjálfur. Tuttugu og tvær myndir og ein
skökk, ofboðlítið skökk, eiginlega alveg bein en
samt skökk. Það nægir. Og þá líka gerist það.
Smám saman tekur fiknin að kvikna og fiktið
öll völd i líkama og sál.
Á svona stundum kippist taugakerfið svolítið
til að bendifingur hægri handar rís hægt en ör-
ugglega út úr þvölum hnefanum og nálgast
þessa hreint alveg ótrúlega pirrandi skekkju.
Og stundum færi jú betur að gólfið gleypti
mann.
Til dæmis þegar maður lagar litla mynd eftir
Tuma. Og bendifingurinn fer of geyst og sömu-
leiðis gimið á naglanum sem gefur sig í sveifl-
unni. Finna svitann perla á enninu þegar lista-
verkinu er náð í frjálsu fallinu. Og standa með
það í fanginu og vera ekki lengur einn í saln-
um.
Reyna svo að segja sýningarverðinum satt,
en sjá aðeins tvö stór augu hans.
-SER
MÁNUDAGUR 25. MARS 2002
_______________PV
Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir
Halldór og eggið
Næsti fyrirlestur í tilefni af aldaraf-
mæli Halldórs Laxness verður á morgun
kl. 17.15 í Norræna húsinu. Þá heldur
skáldið og rithöfundurinn Gerður Kristný
erindi sem hún nefnir „Halldór og eggið“
og fjallar um ímynd Halldórs Laxness og
þau áhrif sem hann hefur haft á aðra ís-
lenska listamenn.
Eftir Gerði Kristnýju hafa komið út
tvær ljóðabækur, skáldsaga og smásagna-
safn og má geta þess að Halldór Laxness
er áberandi persóna í fyrstu skáldsögu
hennar sem út kom árið 1996 og nefnist
Regnbogi með póstinum. Gerður Kristný
er einnig ritstjóri Mannlífs.
Bókmenntaverðlaun
Tilkynnt hefur verið hvaða sjö skáld-
sögur keppa til IMPAC Dublin bók-
menntaverðlaunanna í ár. Þær eru The
Blind Assassin eftir Margaret Atwood (sú
bók hlaut Booker-verðlaunin árið 2000 og
Dashiell Hammett glæpasagnaverðlaunin
í fyrra!), True History of the Kelly Gang
eftir Peter Carey, The Keepers of Truth
eftir Michael Collins, The Last Samurai
eftir Helen DeWitt, The Years with Laura
Díaz eftir Carlos Fuentes, Atomised eða
Öreindimar eftir Michael Houellebecq og
Madame eftir Antoni Libera. Úrslitin
verða kunngerð í Dublin 13. maí. í dóm-
nefnd sitja fimm rithöfundar og fræði-
menn, þar á meðal Steinunn Sigurðardótt-
ir rithöfundur.
Yflr 100 bókasöfn víðs vegar í heimin-
um tilnefna til þessara verðlauna sem
veitt eru fyrir skáldsögu á ensku, frum-
samda eða i þýðingu, og tilnefndu islensk
bókasöfn að þessu sinni Slóð fiðrildanna
(The Journey Home) eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson. Nánari upplýsingar um verð-
launin má nálgast á vefsíðu Borgarbóka-
safns Reykjavíkur www.borgarboka-
safn.is.
Vigdís flytur til JPV
Vigdís Grímsdóttir rit-
höfundur og JPV útgáfa
hafa gengið frá samningi
um að JPV útgáfa fari
með öll útgáfumál henn-
ar hér á landi og erlend-
is, frumútgáfur og endur-
útgáfur en undanfarin ár
hefur Iðunn annast út-
gáfu á bókum hennar.
Vigdís hefur á liðnum árum sent frá sér
fjölda verka og hlotið margvíslega viður-
kenningu fyrir þau. íslensku bókmennta-
verðlaunin hlaut hún fyrir Grandaveg 7
og Menningarverðlaun DV í bókmenntum
hefur hún hlotið tvisvar, fyrir Ég heiti ís-
björg, ég er ljón og Þögnina. Auk þess hef-
ur hún hlotið Davíðspennann og viður-
kenningu Ríkisútvarpsins og verið til-
nefnd til Bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs. Vigdís bætist í fríðan flokk
höfunda hjá JPV útgáfu því þar eru fyrir
meðal annarra Guðbergur Bergsson, Ólaf-
ur Gunnarsson, Sigurður Pálsson, Fríða
Á. Sigurðardóttir og Þórunn Valdimars-
dóttir.
Hollendingurinn
fljúgandi
'Eftir tæpan mánuð eða
23. apríl hefst námskeið
á vegum Endurmenntun-
arstofnunar Háskólans
um óperuna Hollending-
inn fljúgandi eftir
Wagner, en eins og
kunnugt er taka fjórar
listastofnanir, íslenska
óperan, Þjóðleikhúsið,
Sinfóníuhljómsveit íslands og Listahátíð í
Reykjavík, höndum saman um flutning á
henni í vor.
Þetta er fyrsta fullmótaða ópera
Wagners. í henni beitir tónskáldið nýrri
tækni sem átti eftir að einkenna allar síð-
ari óperur hans: Hver persóna, hlutur eða
hugmynd á sitt eigið leiðarstef eða „Leit-
motiv“; verkið er borið uppi af þessum
stefjum og verða þau greind á námskeið-
inu. Þátttakendur fá líka tækifæri til að
ræða viö aðstandendur sýningarinnar.
Kennari er Gunnsteinn Ólafsson hljóm-
sveitarstjóri.