Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Page 24
1 36
MÁNUDAGUR 25. MARS 2002
Tilvera 33 V
Óvissuferð í
óperuna
Þeir Jóhann Friðgeir Valdimars-
son, tenór og Ólafur Kjartan
Sigurðarson barítón og Jónas
Ingimundarson píanóleikari
koma fram á hádegistónleikum í
íslensku óperunni á morgun.
Tónleikamir bera yfirskriftina
Óvissuferð í Óperuna því þeir
verða eins konar óvissuferð um
íslenskt sönglagasafn. Þeir hefj-
ast kl. 12.15 og taka 40 mínútur.
Krar
■ BINGO TIL STYRKTARLANG-
VEIKUM BORNUM Bingóiö heldur
áfram að rúlla í Kaupfélaginu. Leik-
urinn hefst kl. 21. Glæsilegir vinn-
ingar og gott málefni sem vert er að
styrkja.
Síðustu forvöð
■ FJORIR LISTAMENN I NYLO I
dag lýkur sýningu fjögurra lista-
manna í Nýlistasafninu við Vatns-
stíg. í Gryfju sýnir Steingrímur Ey-
flörð innsetningu undir yfirskriftinni
Breitt ástand, ásamt 9 öörum lista-
mönnum. I forsai sýnir Ragna Her-
mannsdóttir bókverk og myndir unn-
ar í tölvu. Á palli sýnir Finnur Arnar
Arnarsson innsetningu sem sam-
anstendur af 5 Ijósmyndum og víd-
eóverki og í SÚM-sal sýnir Hulda
Stefánsdóttir 7 Ijósmyndaverk sem
unnin eru beint á veggi safnsins.
Bíó
■ FILMUNPUR K 22.30 í dag sýn-
ir Filmundur kvikmyndina Wild at
Heart frá 1990 eftir David Lynch.
Óhætt er að segja að David Lynch
sé meö umdeildari leikstjórum
seinni ára en myndin vakti mikla at-
hygli á sínum tíma og sýndist sitt
hverjum en hún vann til fjölda verð-
, launa, hlaut meöal annars
gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í
Cannes. Wild at Heart veröur sýnd í
Háskólabíói.
Fundir og fyririestrar
■ MELKORKA FUNDAR ITC-doildin '
Melkorka heldur fund í kvöld kl. 19
að Borgartúni 22, þriðju hæð.
Fundurinn er öllum opinn.
■ HALLPÓR OG EGGH) í
NORRÆNA HUSINU A morgun,
þriðjudaginn 26. mars heldur Geröur
Kristný erindi í Norræna húsinu sem
hún nefnir Halldór og eggiö. Þar
mun hún fjalla um ímynd Halldórs
Laxness og þau áhrif sem hann
hefur haft á aðra íslenska
listamenn. Erindið hefst kl. 17.15.
Það er öllum opið og aðgangur er
, ókeypis. Erindið er það fyrsta í
fýrirlestraröð sem Vaka-Helgafell
efnir til í Norræna húsinu í tilefni
aldarafmælis skáldsins.
Sýningar
■ PAÐI I GALLERÍ FÓLD Akveðíð
hefur verið að framlengja
málverkasýningu Daða
Guöbjörnssonar í baksal Gallerí
Foldar til þriðjudagsins 2. aprfl.
Sýninguna nefnir Daði Bátar, Beib
og Bíbar. Gallerí Fold er opiö
daglega frá kl. 10-18.
■ NÝJAR MYNPIR
Myndlistarmaðurinn Hjörtur
Hjartarson hefur opnað sýningu á
nýjum myndum í Hafnarborg,
menningar og listastofnun
Hafnarfjarðar. Þar eru bæöi
teikningar og málverk sem unnin
eru á síðustu tveimur árum.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11-17 og hún
stendur til 14. apríl.
Úrslitakvöld Músíktilrauna 2002:
Atkvæði úr salnum tryggðu
Búdrýgindum sigurinn
gítartónar Rasmus Rasmussens sem
áttu stærstan þátt í að skapa þá sér-
stöku stemningu sem þeir ná upp í
tónlistinni.
Rokk af ýmsum toga
Fimmta sveitin var rokksveitin
Gizmo sem þrátt fyrir þrjá gítarleik-
ara var ekki mjög eftirminnileg, ef
frá er talið síðasta lagið sem ber af
þeirra lögum í keppninni. Þeir áttu
greinilega milklu fylgi að fagna í
salnum og skiluðu sínu hnökra-
laust. Síðasta sveit fyrir hlé var svo
ný-pönk-tríóið Waste. Þeirra ein-
földu og smekklega útsettu og vel
sungnu popp-pönklög eru í góðu lagi
Það var þétt setinn bekkurinn í
íþróttahúsi Fram í Safamýrinni
þegar úrslitakvöld Músíktilrauna
Tónabæjar 2002 fór þar fram á föstu-
dagskvöldið. 10 hljómsveitir kepptu
til úrslita en að auki komu fram
þrjú gestanúmer. Fyrst þeirra voru
þeir Sesar A og DJ Magic sem hit-
uðu salinn upp með rappi, skratsi
og léttum samkvæmisleikjum.
Fyrsta keppnissveitin á dag-
skránni var Vafurlogi. Hún stóð sig
töluvert betur á úrslitakvöldinu
heldur en kvöldið áður - nú var
trommarinn ekkert að klikka og
tónlistin, sem ber nokkuð sterkan
keim af frönsku sveitinni Air, virt-
ist ganga vel í áhorfendur. Næsta
sveit á sviðið var ein kraftmesta
rokkhljómsveitin i keppninni í ár,
Fake Disorder, en hún gerði þau
mistök að breyta prógramminu sínu
og tók inn nýtt lag sem hún réð ekki
alveg við og fyrir vikið var frammi-
staðan töluvert undir væntingum.
Þetta er flott band sem á örugglega
eftir að vaxa þó að þetta kvöld hafi
ekki alveg lukkast. Eina rappsveitin
sem komst í úrslit var næst i röð-
inni. Tannlæknar andskotans stóðu
sig vel en lögin þeirra þrjú sýndu að
þeir eru fyrst og fremst efnilegir og
eiga eftir að vinna töluvert í töktum
og tónum áður en þeir komast í
fremstu röð.
Það var mikil eftirvænting í saln-
um þegar Færeyingarnir í Makrel
stigu á sviðið, en þeir gjörsigruðu
kvöldið áður, bæði hjá dómurum og
áhorfendum. Þeir byrjuðu á því að
biðja kynni kvöldsins, Óla Palla af
Rás 2, að skila þakklæti til allra fyr-
ir að fá að taka þátt í keppninni, en
þeir eru fyrsta hljómsveitin í 20 ára
sögu Músíktilrauna sem er ekki frá
íslandi. Tónlist þeirra Makrel-
manna fékk góðar viðtökur í saln-
um og sem fyrr voru það seiðandi
Forgarður helvítis
Önnur af tveimur gestahljómsveitum kvöldsins var Forgaröur helvítis. Á
myndinni er Siggi pönk aö veifa fána og áhorfendur fagna og var ekki
annaö aö sjá en aö allir skemmtu sér vel.
DV-MYNDIR EINAR J.
Búdrýgindi
Sigurvegararnir spiluöu af miklu öryggi og fagna hér giæstum sigri.
þó að þetta sé kannski ekki endilega
mest spennandi tónlistin í bænum í
dag.
Eftir stutt hlé komu fjórmenning-
arnir í Búdrýgindum á sviðið og
ekki vantaði kraftinn hjá þeim frek-
ar en á tilraunakvöldinu. Gítarleik-
arinn og trommarinn eru báðir á
meðal þeirra bestu í keppninni og
bassaleikarinn var ekkert að klikka
heldur. Söngvarinn skilaði sínu líka
vel og passaði sig á því að ofreyna
ekki röddina sem hefur sín tak-
mörk. Þetta eru flott keyrslu-
rokklög, skreytt uppátækjasömu
spiliríi og skemmtilegum textum og
svo voru Búdrýgindi án efa örugg-
asta hljómsveitin í keppninni. Þeir
dreifðu nammi af sviðinu og voru
með ýmis poppstjömutilþrif i gangi
en ekkert af því truflaði nokkum
tíma tónlistina.
Næsta hljómsveit var Nafnleysa
en ólíkt Búdrýgindum voru þeir fé-
lagar frekar óöruggir á sviðinu, sér-
staklega söngvarinn. Það má alveg
hafa gaman af bílskúrspönkinu
þeirra en þeir eiga langt í land ef
þeir ætla komast í hóp hinna bestu.
Ókind var næstsíðasta sveitin í
keppninni og eins og stundum ger-
ist þá voru þeir félagar ekki eins
góðir á úrslitakvöldinu og þeir voru
á tilraunakvöldinu. Þeir eru geysi-
lega efnilegir og em búnir að skapa
sér ákveðið sánd en lögin voru mis-
jöfn að gæðum. Annað lagið þeirra,
„Svik ísskápsins", var frekar lélegt
og kostaði þá sennilega sigurinn í
keppninni. Stórsveitin Pan var síð-
ust á sviðið. Þar em allir færir á
hljóðfærin sín og söngvarinn var
einn af þeim bestu í keppninni, en
þetta framsækna og vandaða popp
þeirra er ekki að allra skapi.
Sigursveitin fékk
útgáfusamning
Það voru svo tvær hljómsveitir
sem spiluðu á meðan atkvæði voru
talin og dómnefnd réð ráðum sínum
- Forgarðar helvítis og XXX
Rottweilerhundar. Það er alltaf mik-
il stemning þegar úrslitin eru til-
kynnt og árið í ár var þar engin
undantekning. Það var Helgi Hjörv-
ar (í rokkdressi) sem afhenti verð-
launin í þetta skiptið í fjarvera
borgarstjórans sem var veik heima.
Þess má geta að það sannaðist í ár
að þó að dómnefndin hafi meira
vægi en atkvæði úr sal geta þau síð-
arnefndu skipt sköpum. Búdrýgindi
og Ókind voru hnífjöfn í kosningu
dómnefndar, en á meðal áhorfenda
voru Búdrýgindi efst en Ókind
þriðja. Sú nýbreytni átti sér stað nú
í ár að Edda, miðlun og útgáfa, gaf
sigurhljómsveitinni útgáfusamning
og gaman verður að heyra plötu frá
Búdrýgindum seinna á árinu. Von-
andi verður þessari nýbreytni hald-
ið áfram um ókomin ár.
í heildina má segja að Músíktil-
raunir 2002 hafi heppnast mjög vel.
Þátttaka var með mesta móti og
margir efnilegir tónlistarmenn á
meðal þátttakenda. Það er að vísu
umhugsunarefni að á meðal 143
keppenda sé aðeins ein stelpa. Hlut-
fallið í ríkisstjóm er hátið miðað
við þetta! Að lokum þetta: Þegar 40
taka þátt og einn vinnur þá er auð-
vitað deilt um úrslitin. Sem betur
fer segi ég. Það væri litið gaman að
þessu annars!
Trausti Júliusson
Úrslit Músíktilrauna árið 2002
1. sæti: Búdrýgindi
2. sæti: Ókind
3. sæti: Makrel
Athyglisverðasta hljómsveitin:
Vafurlogi
Besti söngvartnn:
Grímur Gíslason úr Waste
Besti gítarleikarinn:
Rasmus Rasmussen úr Makrel
Besti bassaleikarinn:
Birgir Örn Ámason úr Ókind
Besti trommuleikarinn:
Ólafur Þór Amalds úr Fake
Disorder
Besti hljómborðsleikarinn:
Árni Þór Jóhannesson úr
Vafurloga
Bestu tölvaramir:
Magnús og Gunnar
Guðmundssynir úr Equal
Besti rapparinn:
Kristinn Loftur Einarsson
úr Tannlæknum andskotans
40 kepptu á Músíktilraunum
árið 2002:
36 hljómsveitir
4 einyrkjar
Þátttakendur voru alls
143 talsins:
142 strákar
1 stelpa
Þar af voru:
46 gítarleikarar
33 söngvarar
30 bassaleikarar
29 trommuleikarar
13 tölvarar
9 hljómborðsleikarar
5 rapparar
1 þeramínleikari
Sigurvegarar frá upphafi:
1982 DRON
1983 Dúkkulísur
1985 Gipsy
1986 Greifamir
1987 Stuðkompaníið
1988 Jójó
1989 Laglausir
1990 Nabblastrengir
1991 Infusoria (Sororicide)
1992 Kolrassa krókríðandi
1993 Yukatan
1994 Maus
1995 Botnleðja
1996 Stjömukisi
1997 Soðin fiðla
1998 Stæner
1999 Mínus
2000 XXX Rottweilerhundar
2001 Andlát
2002 Búdrýgindi
Keppnin féll niður 1984
vegna verkfalla.