Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Page 6
20
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
21
Sport
Sport
Sigurbros á vörum
- KA-menn slógu íslands- og bikarmeistara Hauka út úr keppninni
KA er komið í úrslit Essodeildar
karla eftir 27-26 sigur á íslands- og
bikarmeisturum Hauka í annarri
viðureign liðanna á Akureyri á fbstu-
dag. Grunninn lögðu KA-menn á Ás-
völlum á miðvikudag með góðum úti-
sigri sem færði þeim úrslitarimmu
við foman fjanda, Val.
Leikurinn á fóstudag var spenn-
andi frá byrjun og jafnt á öllum töl-
um, í bókstaflegri merkingu fram í
stöðuna 8-8, þegar Haukar náðu
frumkvæðinu í leiknum. Sóknarleik-
ur beggja liða var mjög hraður og
skemmtilegur framan af og annars
ágætar vamir þeirra urðu oftast að
lúta í lægra haldi. KA-menn hófu
leikinn á sinni hefðbundnu 3:2:1 vöm
og Haukar voru í sinni 6:0 vöm og
bæði lið spiluðu ákveðið enda mikið
i húfi. Um miðjan hálfleikinn fór síð-
an aðeins að halla undan fæti hjá
heimamönnum og þeir skiptu í 6:0
vöm sem skilaði þó ekki alveg tilætl-
uðum árangri. Haukamir gengu á
lagið en voru oft á tíðum kærulausir
í sóknarleiknum og náðu því ekki að
hrista KA-menn af sér.
Lukkan gekk síðan í lið með
heimamönnum undir lok fyrri hálf-
leiks þegar þeir unnu upp tveggja
marka forystu Hauka þrátt fyrir að
vera á löngum stundum einum færri
og í raun hægt að segja að miðað við
állar aðstæður hefðu Haukamir átt
að hafa forystu í hálfleik í stað jafnr-
ar stöðu.
Fjögur fyrstu mörkin
Það má segja að KA-menn hafi lagt
grunninn að sigri sínum í upphafi
síðari hálfleiks. Þeir skiptu aftur í
3:2:1 vömina sem var erfið sem
aldrei fyrr og skilaði þeim fjögurra
marka forskoti þegar fimm mínútur
voru liðnar. Haukamir vom á þess-
um tíma að gera mikið af mistökum
og jafnvel vottaði fyrir örvæntingu í
leik þeirra.
Reynsla Haukanna er þó meiri en
svo að þeir játi sig sigraða þegar svo
mikið er eftir af leik og þeir fóru
smátt og smátt að saxa á forskotið án
þess þó að ná að jafna leikinn, alltaf
var þetta eina mark þeim ofviða.
Reyndar varð leikurinn um stund-
arsakir æði líkur borðtennis þegar
liðin fóru að misnota færi og missa
boltann í gríð og erg.
Tvær sóknir Haukanna upp úr
miðjum síðari hálfleik skildu að lík-
indum miili feigs og ófeigs. í annað
skiptið fékk Ásgeir Öm Hallgríms-
son sendingu inn i teig en skaut í
stöngina en mark þama hefði hleypt
krafti í Haukana, krafti sem ómögu-
legt er að segja hvert hefði leitt þá.
Skömmu síðar kom hins vegar
vítamínsprauta fyrir KA-menn þegar
Egedijus Petkevicius varði vítakast
Jóns Karls Björnssonar.
Þrátt fyrir að eftir þetta hafi Hauk-
amir haldið áfram að sækja að KA-
mönnum og þegar rúmar þrjár mín-
útur vom eftir og KA-menn þremur
mörkum yflr sáu þeir að nýju glitta í
jafnteflið þegar Heimi Emi Ámasyni
var vikið af velli í tvær mínútur.
Haukamir náðu að minnka muninn í
eitt mark að Heimi ijarverandi og
allt í einu var full spenna komin í
leikinn aftur.
KA-menn komust i sókn sem dróst
mjög á langinn og á endanum neydd-
ist Heiðmar Felixson til að skjóta úr
erfiðu færi en Magnús Sigmundsson
varði. Haukarnir fengu boltann þeg-
ar 40 sekúndur voru eftir og ruku í
sókn en tóku síðan leikhlé á endan-
um. Þá kom Þorkell Magnússon inn
fyrir Magnús markvörð sem sjöundi
sóknarmaður og þá fór að glitta í
glufur í vöm KA. Aron Kristjánsson
nýtti sér eina þeirra og skaut úr
ágætu færi en örlagavaldurinn að
þessu sinni var Egedijus Petkevicius,
markvörður KA, sem varði skotið og
tryggði þar með sigurinn.
Áttundi maðurinn
Petkevicius átti finan leik í marki
KA og varði oft á tíðum úr dauðafær-
um. Jónatan Magnússon fór að vanda
fyrir frábærri vöm heimamanna en í
sókninni voru það Andrius Stel-
mokas og Heimir sem létu mest að
sér kveða auk Halldórs Sigfússonar
sem skoraði mikilvæg mörk, reyndar
flest úr vítum. Áttundi maðurinn á
pöllunum skilaði sínu einnig sem
sjaldan fyrr.
Rúnar Sigtryggsson var mjög
sterkur í liði Hauka og skiljanlegt að
þeir hafi saknað hans í síðasta leik.
Aron var síógnandi og erfiður viður-
eignar og Einar Öm Jónsson var
traustur. Haukamir fengu einnig
góðan stuðning áhorfenda en þó
nokkrir höfðu lagt leið sína norður
enda mikið í húfi.
Reyndar vakti það nokkra athygli í
byrjun leiks að Jón Karl og Vignir
Svavarsson voru ekki í byrjunarliði
Hauka, þrátt fyrir að hafa leikið mjög
vel að undanfómu en Jón Karl skor-
aði 13 mörk úr 13 skotum í fyrri leik
liðanna. Þetta hafði þó ekki teljandi
áhrif þar sem Haukaliðið hefur á
mjög sterkum leikmönnum að skipa.
-ÓK
KA-Haukar 27-26
0-1, 2-1, 2-2, 4-3, S4, 5-6, 7-6, 8-7, 8-10,
9-11, 11-11, 11-13, 13-13, 14-13 (14-14),
18-14, 18-17, 20-17, 20-19, 22-19, 22-21,
26-23, 27-24, 27-26.
KA■
Mörk/viti (skot/viti): Halldór Sigfússon
7/5 (9/5), Andrius Stelmokas 5 (6), Heimir
Öm Ámason 5 (7), Jóhann G. Jóhannsson
4 (5), Jónatan Þór Magnússon 3 (6), Heið-
mar Felixson 2 (12), Einar Logi Friðjóns-
son 1 (2), Sævar Ámason (2).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 4
(Stelmokas 2, Jóhann, Heiðmar).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 5.
Fiskuð víti: Stelmokas 5.
Varin skot/viti (skot á sig): Egidijus Pet-
kevicius 15/1 (41/4, hélt 7, 37%), Hans
Hreinsson 0 (2/2,0%).
Brottvísanir: 14 mínútur.
Haukar:
Mörk/viti (skot/víti): Rúnar Sigtryggsson
7 (8), Halldór Sigfússon 6/4 (9/5), Einar
ðm Jónsson 4 (6), Aron Krisfjánsson 4
(10), Jón Karl Bjömsson 3/1 (5/2), Vignir
Svavarsson 1 (1), Aliaksandr Shamkuts 1
(1), Þorkell Magnússon (1), Sigurður Þórð-
arson (1), Ásgeir Öm Hallgrimsson (3).
Mörk úr hraöaupphlaupunv 3 (Rúnar 3).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 7.
Fiskuð vítU Aron 4, Shamkuts, Einar Öm,
Jón Karl.
Vann skot/víti (skot á sig): Bjami Frosta-
son 15 (36/4, hélt 2, 42%), Magnús Sigu-
mundsson 5 (11/1, hélt 0, 45%).
Brottvisanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10): Anton Gylfi
Pálsson og Hlynur Leifsson ,(6).
GϚi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 1074.
Ma&ur leiksins:
Andrius Stelomkas, KA
Supum seyöiö af
tapinu á Ásvöllum
Með hugann við íslandsmeistaratitilinn
Atli Hilmarsson, þjálfari KA, var
himinlifandi, líkt og aðrir KA-menn, eft-
ir sigurinn.
„Það var rosalega gott að sigra á Ás-
völlum og við vorum í sjöunda himni
þegar við komum að sunnan," sagði Atli
aðspurður um áhrif fyrri leiksins á leik-
inn á fóstudag. „Það var hins vegar líka
mikilvægt að við skyldum geta einbeitt
okkur aftur að hörkuleik og verið til-
búnir í slaginn aftur. Það er oft þannig
þegar menn vinna góða sigra að þeir
detta niður.
Ég var mjög ánægður hvemig menn
héldu taktinum allan tímann, sama
hvað á gekk. Við vorum alltaf inni í
leiknum, hvað sem við vorum að gera,
við vomm tveimur undir, fjórum yfir,
tveimur færri en héldum alltaf áfram.
Við lulluðum alltaf áfram og það er það
sem gildir. Kollurinn fleytti okkur yfir
þessa hindrun, því þegar allir era orðn-
ir þreyttir þá þarf að nota hann og það
held ég að við höfum gert.
Við sáum það í hálfleiknum að við
vorum ekki að spila neina vöm en frá-
bæra sókn. Við sögðum okkur þaö í
hálfleiknum að ef við myndum spila
snefil af vöm þá myndum við vinna
þetta. Það kom á daginn, við byrjum aft-
ur brjálaðir í 3:2:1 vöm, komumst fjór-
um mörkum yfir og þeir gátu aldrei
minnkað það niður, ekki lengra en nið-
ur í eitt mark.
Atli segist aðspurður ekki hafa óttast
það að byrjun síðari hálfleiks myndi
leiða til svipaðrar þróunar og varð þeg-
ar liðið komst í 3-0 á Ásvöllum á mið-
vikudag. „Nei, ég sá það á mönnum að
þeir voru alltaf einbeittir, það var
glampi í augum manna. Þrátt fyrir að
við lendum í því að vera einum og
tveimur færri á þeim kafla þegar þeir
voru að saxa á forskotið þá var ég aldrei
hræddur. Ég sá einbeitinguna sem
skein úr hverju andliti."
Stemningin i KA-heimilinu á fóstu-
dag minnti um margt á „þá gömlu, góðu
daga“ þegar KA atti kappi við Val í
frægum úrslitarimmum um miðjan síð-
asta áratug og segir Atli slikan stuðning
geysilega mikilvægan.
„Þetta er áttundi maðurinn okkar,
við hrífumst með og reyndar ekki hægt
annað. Alltaf þegar eitthvað bjátaði á þá
komu þeir (áhorfendur) og hjálpuðu
okkur. Það er ekkert grín að mæta okk-
ur hér fyrir fullu húsi, áhorfendur era
frábærir og þeir hjálpuðu okkur yfir
erfiða hjalla. Við erum í þeirri stöðu
núna að vera alltaf á útivelli fyrst, en
vorum með heimaleikjaréttinn í fyrra.
Nú erum við að byija á útivelli og náum
góðum úrslitum vegna þess að pressan
er á heimaliðinu því enginn viU koma
hingað í annan leik og þurfa að vinna."
KA-menn taka á móti Valsmönnum í
úrslitarimmunni og Atli gerir sér full-
komlega grein fyrir því að þar er um
erfitt verkefni að ræða. „Við erum að fá
þama næstbesta lið á íslandi, ég vil
meina að Haukamir séu með það besta.
Við þurfum að halda áfram eins og ver-
ið hefur. Ég er mjög ánægður með að
vera ekki að fara í þriðja leik á sunnu-
daginn og getum því hvílt leikmenn og
síðan farið að einbeita okkur að Val.
Við spiluðum þrjá leiki við þá í vetur,
töpuðum fyrir þeim í bikar en unnum
báða leikina í deildinni. Þetta verða
hörkuleikir, við byrjum á útivelli og
lykillinn að þessu að sjálfsögðu aö
vinna á Hlíðarenda."
Atli fagnar því að fá lengri tíma með
KA-liðinu áður en hann heldur til
Þýskalands. „Þaö er stórkostlegt. Maður
fékk það í hausinn fyrir Gróttu/KR-leik-
ina að þetta yrði endasleppt hjá KA-
mönnum af því að þjálfarinn væri með
hugann í Þýskalandi, Heiðmar á Spáni,
hinir og þessir að hætta og aðrir að fara
suður. Ég held að menn hafi sýnt það á
vellinum hvar menn eru með hugann,
þeir eru með hugann við það að fá þenn-
an titil hingað heim,“ segir Atli. -ÓK
Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, var aö vonum ósáttur við
lyktir mála og þá staðreynd að
meistaratitillinn og þrennan eftir-
sótta væru gengin meisturanum úr
greipum.
„Áuðvitað eru þetta vonbrigði,
við höfðum titil að verja. Vonbrigð-
in liggja á heimavellinum á Ásvöll-
um, það liggur þungt á okkur og
það var alger klaufagangur að fara
þannig með þann leik,“ sagði Viggó
í samtali við DV-Sport eftir leikinn
á fóstudag.
„Ég tel að KA-menn hafi verið
mjög heppnir að fara með jafntefli
inn í hálíleik. Við vorum að fara
með fimm hraðaupphlaups- og
dauðafæri þar sem reyndir leik-
menn voru að klúðra boltanum.
KA-menn geta verið mjög sáttir við
14-14 stöðu í hálfleik." Þess má geta
að Haukar vora einum fleiri í sex af
síðustu tíu mínútum fyrri hálfleiks
en á þessum tíma skoraði KA tvö
mörk auk þess sem Haukar misnot-
uðu m.a. vítakast og eitt hraðaupp-
hlaup.
„Okkur vantaði betri markvörslu
í leiknum, hún var ekki nærri nógu
góð í svona leik. Á endanum er það
sem skipti máli þegar upp er staöið
að Petkevicius varði meira úr
dauðafærum en okkar markmenn.
Ekki að ég sé að álasa þeim en það
er þetta semskiptir máli þegar upp
er staðið.
Þetta var frábær leikur í kvöld,
frábær handbolti sem liðin buðu
upp á, þetta var eins og leikir ger-
ast bestir á íslandi. Það var engin
þreyta í liðinu, við sýndum mjög
góða baráttu og mikinn karakter.
Við misstum okkur i þrjátíu mínút-
ur á Ásvöllum og eram að súpa
seyðið af því,“ sagði Viggó Sigurðs-
son. -ÓK
Atii Hilmarsson, fagnar hér til vinstri
sigri á Haukum inni í búningsherbergi
eftir leikinn og það voru ekki minni
fagna&arlæti hjá lærisveinum hans
eins og sjá má hér til hægri. KA-menn
hafa unnið alla fjóra leiki sína í
úrslitakeppninni í ár án þess aö hafa
heimavallarréttinn. DV-myndir Pjetur
Það var mikil stemning í KA-húsinu á föstudagskvöldiö og heimamenn fögnu&u gífurlega þegar KA-menn höf&u
slegiö út íslands- og bikarmeistara Hauka í undanúrslitum Esso-deildar karla. DV-mynd Pjetur
Sigurvilji
Valsmanna
- fleytti þeim áfram í úrslit
Valur bar sigurorð af Aftureldingu
öðru sinni þegar liðin mættust á fóstu-
dagskvöld í Mosfellsbæ, 23-29, í fram-
lengdum leik þar sem Valsmenn keyrðu
yfir heimamenn I seinni hálfleik fram-
lengingarinnar. Staðan var 21-21 eftir
venjulegan leiktíma og var jafht 22-22
þegar blásið var til hálfleiks í framleng-
ingunni en eftir það stóð ekki steinn yf-
ir steini hjá heimamönnum og gestimir
gerðu sjö mörk gegn aðeins einu marki
heimamanna.
Valsmenn vora sterkari til að byija
með og voru komnir með fimm marka
forskot eftir 20 mínútna leik, 5-10.
Bjarki Sigurðsson byijaði á bekknum
hjá Aftureldingu en kom inn á snemma
í leiknum og þá fór sóknarleikur heima-
manna að ganga betur. Hann gerði
fimm mörk í röð og sá til þess að mun-
urinn var aðeins tvö mörk í hálfleik, 10-
12.
Valsmenn gerðu fyrsta markið í
seinni hálfleik en þá fór allt í baklás hjá
liðinu. Bjarki hélt uppteknum hætti hjá
Aftureldingu og skoraði grimmt á með-
an ekkert gekk hjá Val. Afturelding
gerði átta mörk gegn aðeins einu Vals
og heimamenn komnir fjórum mörkum
yfir, 18-14, þegar seinni hálfleikur var
hálöiaður. Þá tóku Valsmenn Bjarka úr
umferð og átti það eftir að reynast vel.
Valur jaihaði 18-18 með fiórum
mörkum i röð og upphófust spennandi
lokamínútur. Afturelding virtist ætla að
knýja fram oddaleik þar sem þeir leiddu
með tveimur mörkum þegar fimm mín-
útur vora eftir, 21-19, en Valsmenn
Taktískur sigur
Ágúst Jóhannsson, aðstoðarþjálfari Vals, var
að vonum sáttur við sigurinn en Ágúst stjórnar
liðinu í leikjum þar sem Geir Sveinsson, þjálfari
liðsins, er að spila. „Þetta var sterkur taktískur
sigur þar sem við breyttum úr hefðbundinni 6-0
vöm í 5-1 vörn til að geta tekið á Bjarka. Hann
fór illa með okkur um tíma. Þá gerðu menn
tæknileg mistök og fóru illa með góð færi. Það
varð til þess að við lentum fjórum mörkum und-
ir. Þeir refsuðu okkur fyrir mistökin og menn
voru orðnir frekar þreyttir.
Við keyrðum mikið á sömu mönnunum og vissum að við værum að
taka áhættu með því að hafa fáa menn. Markús var orðinn mjög þreytt-
ur og settum við hann á miðjuna og Snorra í skyttuna um tíma tO að
dreifa álaginu og gekk það upp.“
Þú talar um aó menn hafi verió orðnir þreyttir en engu aö siður
keyrið þið yfir þá i seinni hálfleik framlengingar. Voru menn bara
á innsoginu i lokin?
„Það var bara hungrið og viljinn sem dreif menn áfram í lokin. Þess-
ir drengir hafa mikinn karakter og eru algjörir toppstrákar sem vilja
vinna. Þá varði Roland mikilvæga bolta og hinir bara píndu sig áfram.
Roland er án efa besti markvörður landsins.“
Hvernig metur þú einvígið gegn KA í úrslitum?
„Ég tel það gott fyrir handboltann að þessi liö mætist í úrslitum. Þetta
eru tvö lið sem hafa yfir að ráða sterkum heimavöllum og eru að spila á
sinum mönnum. Okkur hefur gengið illa með KA og töpuðum báðum
leikjunum gegn þeim í deildinni í vetur og þetta verður mjög erfitt. Það
kæmi mér ekki á óvart ef þessi rimma færi í fimm leiki.
Bæði lið spila léttleikandi bolta. Við spilum 6-0 en þeir spila kraft-
mikla 3-3 vöm. Þá eru bæði lið með sterka erlenda markverði. Þeir hafa
kannski aðeins meiri breidd en við. Ég býst bara við spennandi og
skemmtilegum leikjum.“
-Ben
gegn KA
gerðu tvö síðustu mörkin og var það
besti maður Vals, Markús Máni, sem
jafiiaði tveönur möiútum fyrfr leikslok.
Eöis og áður segir kláraðu Valsmenn
leikinn í sefrmi hálfleik framlengöigar-
ömar og sigruðu þvi eöivigið 2-0. Mark-
ús Máni átti mjög góðan leik sem og
Roland Eradze í marköiu og þeir Geir
Sveöisson og Sigfús Sigurðsson stjóm-
uðu sterkri vöm liðsöis. Þá var Snorri
Steöm drjúgur.
Hjá Aftureldöigu var Bjarki bestur og
Reynfr átti ágætisleik í marköiu. Páll
Þórólfsson gerði marga góða hluti en
einnig slæma. Hann og Daði Hafþórsson •
áttu til að taka misjafnlega góð skot og
Svemfr Bjömsson var ekki skuggöm af
sjálfum sér að þessu sömi. -Ben
Afturelding-Valur 23-29
0-2, 3-3, 3-6, 5-7, 5-10, 7-10, 9-11, (10-12),
10-13, 15-13, 15-14, 18-14, 18-18, 19-19,
21-19, (21-21), 22-21, (22-22), 22-28, 23-29.
Aftureldine:
Mörk/viti (skot/víti): Bjarki Sigurðs-
son 9/3 (13/3), Páll Þórólfsson 6 (15/1),
Daði Hafþórsson 3 (13), Magnús Már
Þórðarson 2 (5), Níels Reynisson 1 (2),
Hjörtur Arnarson 1 (2), Valgarð
Thoroddsen 1 (3), Sverrir Bjömsson (2).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 4 (Páll 3,
Magnús).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuð vítU Bjarki 2, Páll, Magnús.
Varin skot/víti (skot á sig): Reynir
Reynisson 18 (47/2, hélt 8, 38%, víti í
stöng).
Brottvisanir: 8 mínútur (Hjörtur fekk
rautt fyrir brot).
Valur:
Mörk/viti (skot/víti): Markús Máni
Mikaelsson 10/2 (16/3), Sigfús Sigurðs-
son 6 (10), Snorri Steinn Guðjónsson 6
(11), Bjarki Sigurðsson 4 (10), Freyr
Brynjarsson 2 (3), Ásbjöm Stefánsson 1
(1), Roland Eradze (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 5 (Snorri
Steinn 2, Freyr 2, Bjarki).
Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.
Fiskuð vítu Geir 2, Sigfús.
Varin skot/viti (skot á sig): Roland
Eradze 21 (44/3, hélt 7, 48%, viti í slá).
Brottvísanir: 2 minútur.
f
Dómarar (1-10): Stefán Amaldsson
og Gunnar Viðarsson (8).
Gœði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 700.
Ma&ur leiksins:
Markús Máni Mikaelsson, Val