Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Qupperneq 9
*
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2œ2
Sport
Hér fyrir ofan fellur Hollendingurinn Ruud Van Nistelrooy eftir viöskipti við varnarmenn Ipswich, John McGreal og Titus Brambie, í leik liðanna í gær.
Skömmu seinna var dæmd vítaspyrna sem þótti í meira lagi vafasöm en hún réði úrslitum í leiknum. Reuters
Hörð barátta á botni ensku úrvalsdeildarinnar:
Vafasamt víti
- veikti von Ipswich um að halda sér í úrvalsdeildinni
Hermann Hreiðarsson og félagar
hans í Ipswich sitja í súpunni eftir
tap um helgina gegn Manchester
United.
Þeir þurfa að sigra Liverpool á
útivelli í síðasta leik sínum og vona
jafnframt að Sunderland tapi á
heimavelli fyrir Derby sem er þegar
fallið í 1. deildina.
Það var vafasöm vítaspyma sem
felldi Ipswich í leiknum gegn
Manchester United. Ruud Van Ni-
stelrooy féll í teignum án þess að
nokkur virtist koma við hann og
dómarinn dæmdi vítaspymu leik-
mönnum Ipswich til lítillar ánægju.
Van Nistelrooy skoraði úr spym-
unni og það reyndist vera eina
mark leiksins.
Dómurinn var grín
George Burley, knattspymustjóri
Ipswich, var harðorður i garð dóm-
arans eftir leikinn.
„Eins og ég sé þetta þá var þessi
dómur grín og hann kostaði okkur
sigurinn í leiknum. Van Nistelrooy
lét sig detta til að fiska vítaspymu,
það er engin spuming um það, og
dómarinn féll fyrir því. Við erum
með atvinnudómara og þegar þeir
dæma vítaspymu er eins gott fyrir
þá að vera vissir 1 sinni sök. Leikur-
inn var jafn en þegar dómarinn tek-
ur sig til og gefur þeim mark þá
verður þetta mjög erfitt. Fyrsta
markið er alltaf mikilvægt og víta-
spymudómurinn, sem var alrangur,
gerði gæfumuninn," sagði Burley
eftir leikinn.
Enn í fallhættu
Peter Reid, knattspyrnustjóri
Sunderland, var svekktur yfir því
að liö sitt hefði ekki náð að tryggja
sæti sitt í úrvalsdeildinni á laugar-
daginn en liðið missti af sigri gegn
Charlton á lokamínútum leiksins.
„Ég leit á klukkuna á hverri ein-
ustu mínútu leiksins og var gjör-
samlega að fara á taugum. Svona er
knattspyman og þrátt fyrir að ég sé
svekktur yfir því að ná ekki að
sigra Charlton og tryggja sætið þá
er ég ánægður með mína menn. Við
eigum mikilvægan leik fyrir hönd-
um gegn Derby og þar verður allt
lagt í sölurnar," sagði Reid.
Nýtt liö í seinni hálfleik
Lið Newcastle, sem er i fimmta
sæti ensku úrvalsdeildarinnar,
sýndi á sér tvær ólíkar hliðar í
leiknum gegn West Ham á laugar-
daginn. I fyrri hálíleik var liðið yf-
irspilað af sprækum leikmönnum
West Ham en í seinni hálfleik spil-
uðu þeir eins og kóngar og unnu
sannfærandi sigur.
Glenn Roeder, knattspymustjóri
West Ham, var ósáttur við frammi-
stöðu sinna manna fyrir framan
markið i fyrri hálfleik.
„Við áttum sex dauðafæri auk
þess að skora mark í fyrri hálfleik
og það er ekki óheppni heldur aum-
ingjaskapur. Við áttum að vera bún-
ir að gera út um leikinn í hálfleik,"
sagði Roeder.
Bobby Robson, hinn aldni knatt-
spymustjóri Newcastle, tók í sama
streng.
„Það var bara eitt lið á vellinum í
fyrri hálfleik og ég skil ekki hvem-
ig okkur tókst að komast inn i hléið
með stöðuna 1-1. í síðari hálfleik
tókum við okkur hins vegar saman
í andlitinu og sýndum okkar rétta
styrk. Ég las yfir mínum mönnum
og sagði meðal annars við Laurent
Robert að ef hann færi ekki að
hreyfa sig þá endaði hann á sama
stað og ég - á bekknum. Það virkaði
því hann var frábær í síðari
hálfleik," sagði Robson eftir leikinn.
-ósk
i
ENGLAND
Úrvalsdeild
Aston Villa-Southampton . . . 2-1
1-0 Darius Vassell (7.), 2-0 Darius
Vassell (41.), 2-1 James Beattie (52.).
Charlton-Sunderland........2-2
1-0 Jason Euell (1.), 1-1 Kevin Kil-
bane (2.), 1-2 Kevin Phillips (10.), 2-2
Kevin Lisbie (82.).
Derby-Leeds................0-1
0-1 Lee Bowyer (16.).
Everton-Blackbum ..........1-21
0-1 Matt Jansen (10.), 1-1 Nick Chad-
wick (50.), 1-2 Andy Cole (63.).
Fulham-Leicester...........0-0
Ipswich-Manchester United . . 0-1
0-1 Ruud Van Nistelrooy, víti (45.).
Middlesbrough-Chelsea......0-2
0-1 Carlton Cole (38.), 0-2 Boudwijn
Zenden (43.).
Newcastle-West Ham.........3-1
0-1 Jermain Defoe (20.), 1-1 Alan She-
arer (41.), 2-1 Lumana Lua Lua (52.),
3-1 Laurent Robert (65.).
Tottenham-Liverpool........1-0
1-0 Gustavo Poyet (41.).
Staðan í úrvalsdeild
Arsenal 35 23 9 3 72-33 78-.
Man. Utd. 36 24 4 8 87-44 76
Liverpool 36 22 8 6 58-27 74
Newcastle 36 21 8 8 73-49 71
Chelsea 37 17 13 7 65-35 64
Leeds 37 17 12 8 52-37 63
Tottenham 37 14 8 15 48-51 50
West Ham 37 14 8 15 46-56 50
Aston VUla 37 11 14 12 43-46 47
Middlesbr. 37 12 9 16 35-46 45
FiUham 37 10 14 13 36-41 44
Blackbum 36 11 10 15 49-47 43
Everton 37 11 10 16 42-53 43
Charlton 37 10 13 14 38-49 43 -
Southampt. 37 11 9 17 43-53 42
Bolton 36 9 13 14 43-58 40
Sunderland 37 10 9 18 28-50 39
Ipswich 37 9 9 19 41-59 36
Derby 37 8 5 24 32-62 29
Leicester 37 4 13 20 28-63 25
Næstu leikir í deildinni:
Mánudagur 29. april:
Bolton-Arsenal. Sunnudagur 5.
mai: Liverpool-Blackburn. Mið-
vikudagur 8. maí: Man.
Utd.-Arsenal.
Umspil um sæti í úrvalsdeild
Fyrri leikir
Birmingham-Millwall .......1-1
1-0 Brian Hughes (56.), 1-1 Dion
Dublin (80.).
Norwich-Wolves .............3-1
0-1 Dean Sturridge (22.), 1-1 Mark
Rivers (56.), 2-1 Paul McVeigh (72.),
3-1 Malky Mackay (90.).
Umspil um sæti í 1. deild
Fyrri leikir
Huddersfield-Brentford.......0-0
Stoke-Cardiff................1-2
0-1 Earnshaw (12.), 0-2 Fortune-West
(59.), 1-2 Burton (84.).
Umspil um sæti í 2. deild
Fyrri leikir
Hartlepool-Cheltenham......1-1
1-0 Williams (45.), 1-1 Grayson (90.).
Rushden-Rochdale...........2-2
0-1 McEvilly (7.), 1-1 Wardley (33.),
1-2 Simpson (59.), 2-2 ButterwortiT
(73.).
Xfi SKOTIANP
Dundee-St. Johnstone .........0-0
Hibernian-Dundee..............2-2
Kilmamock-Motherwell..........1-4
Rangers-Aberdeen..............2-0
Hearts-Celtic.................1-4
Livingston-Dunfermline .......4-1
Celtic 37 32 4 1 93-18 100 A
Rangers 37 25 9 3 81-26 84
Aberdeen 37 16 7 14 5148 55
Livingston 37 15 10 12 47-45 55
Hearts 37 14 6 17 50-54 48
KUmamock 37 13 9 15 42-52 48
Dundee U. 37 12 9 16 36-57 45
Dundee 37 12 8 17 40-53 44
Dunferml. 37 12 8 17 40-63 44
Hibernian 37 9 11 18 50-56 38
Motherwell 37 10 7 20 47438 37
St. Johnst. 37 5 6 26 24-61 21
Okkar menn
safawgg-wa mann
Hreiöarsson spilaði allan leikinn i
vöm Ipswich gegn Manchester United
og lék vel. Hermann á það hins vegar á
hættu að falla í þriðja sinn úr ensku úr-
valsdeildinni sem væri sorglegt fyrir
þennan snjalla leikmann.
Eiöur Smúri Guöjohnsen sat á vara-
mannabekk Chelsea gegn Middles-
brough og kom ekki inn á. Claudio Ran-
ieri, knattspymustjóri Chelsea, sagði
eftir leikinn að hann hefði tekið þá
ákvöröun aö hvíla Eið og Jimmy Floyd
Hasselbaink fyrir bikarúrslitaleikinn
gegn Arsenal á laugardaginn næstkom-
andi.
Bjarni Guöjónsson var í byrjunarliði
Stoke gegn Cardiff. Hann var tekinn út
af á 83. minútu og náöi að krækja sér í
gult spjald á þeim tíma sem hann var
inn á.
Rikharöur Daöason kom inn á sem
varamaður á 85. mínútu í leik Stoke og
Cardiff en náði ekki að setja mark sitt á
leikinn.
ívar Ingimarsson spUaði alian leikinn
fyrir Brentford sem gerði markalaust
jafhtefli gegn Huddersfield á útivelli í
umspUi um sæti í 1. deUd.
Markvöröurinn Ólafur Gottskálks-
son sat á varamannabekk Brentford aU-
an tímann í sama leik.
-ósk
^ Umspil um sæti í 1. deild:
A brattann að sækja
- fyrir Stoke sem tapaði fyrir Cardiff
Það verður á brattann að sækja
fyrir Guðjón Þórðarson og læri-
sveina hans í Stoke þegar liðið
sækir Cardiff heim á miðvikudag-
inn í seinni leik liðanna í umspil-
inu um sæti í 1. deild.
Liðin mættust á laugardaginn á
Brittania-leikvanginum og fóru
leikmenn Cardiff með sigur af
hólmi, 2-1.
Þeir eru því með pálmann í
höndunum því Stoke þaif að vinna
tveggja marka sigur til að komast
í úrslitaleikinn.
Það virðist allt stefna í að Stoke
detti út þriðja árið í röð úr
umspilinu undir stjóm Guðjóns
Þórðarsonar. -ósk