Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Side 11
MÁNUDAGUR 29. APRlL 2002
25
JDV
Sport
- Hreint ótrúlegir yfirburðir Schumachers í Barcelona
Yfirburðir Michaels Schu-
machers í Formúlu 1-kappakstrin-
um eru orðnir svo miklir að keppn-
in um heimsmeistaratitilinn er
laus við alla spennu.
Schumacher og Ferrari-liðið allt
er í algjörum sérflokki sem stend-
ur. Ef keppnin um heimsmeistara-
titilinn á að verða spennandi á ný
þurfa Schumacher og hans lið að
gera mistök i næstu keppnum. Að
öðrum kosti mun Michael Schu-
macher fagna heimsmeistaratitli
um mitt sumar, löngu áður en öll-
um keppnum ársins lýkur.
Schumacher var á ráspól í
Barcelona í gær og vann sinn 57.
sigur á ferlinum og fjórða
kappaksturinn af fimm í ár. Félagi
hans hjá Ferrari, Rubens
Barrichello, komst ekki af stað i
upphitunarhring vegna bilunar í
bílnum og var úr leik. Þetta voru
gríðarleg vonbrigði fýrir Barri-
chello sem hafði ekið frábærlega í
tímatökum á laugardag og var á
öðru stæði í rásmarki.
Yfirburðir Schumachers voru al-
gjörir, alveg frá fyrstu metrunum.
Strax skildi hann andstæðinga sína
eftir og kom í mark tæpum 40 sek-
úndum á undan Jauan Pablo
Montoya sem varð annar.
„Enn er að koma í ljós hve góðri
vinnu allt liðið er að skila. Svo
virðist sem allur pakkinn í kring-
um þetta sé að smella saman. Við
vorum í sérflokki í dag en fram-
haldið ræðst af því hvað hinir gera.
Ef hin liðin taka sig verulega á geta
næstu keppnir orðið spennandi,"
sagði Michael Schumacher eftir
aksturinn í gær.
Svo einfalt er það. Ferrari er
með yfirburðabíl, yfirburðaöku-
mann og yfirburðatæknilið. Til
þess að gera keppnina spennandi
þurfa hin liðin að taka sig saman í
andlitinu. Ferrari hefur yfir að
ráða miklum stöðugleika.
Það sama verður ekki sagt um
hin liðin. Það kann að þykja gott
hjá David Coulthard að hafa ekið
McLaren-bíInum í þriðja sætið í
gær. Það er hins vegar ömurlegt að
fylgjast með McLaren-liðinu miðað
við gengi liðsins í fyrra. Coulthard
var að skila sér i mark tæpri mín-
útu á eftir Schumacher í gær. Og
Schumacher hringaði hann í síð-
ustu keppni. Þetta getur ekki hafa
framkallað mikla hamingju hjá
McLaren sem nú er hætt að berjast
við Ferrari og Williams. Höfuðand-
stæðingar McLaren í dag eru bílar
á borð við Sauber, Renault og Ar-
rows. Þetta getur lið sem kennir sig
við Benz varla þolað lengi.
Sauber-liðið náði frábærum ár-
angri í gær en bílar liðsins enduðu
í fjórða og fimmta sæti. Þeir Nick
Heidfeld og Felipe Massa óku eins
og herforingjar og verður fróðlegt
að fylgjast með þeim í næstu
keppnum. Góður akstur Massa
kom skemmtilega á óvart í gær.
Hann er frá Brasilíu og er yngsti
ökumaðurinn í Formúlunni í dag.
„Þetta var frábær helgi hjá okk-
ur. Við höldum áfram þar sem frá
var horfið í fyrra og bíllinn er
stöðugt að batna. Ég naut þess
virkilega að berjast við báða
Renault-bílana og sigra þá,“ sagði
Nick Heidfeld eftir kappaksturinn í
Barcelona og Massa bætti við: „Það
er hreint frábært að hafna í fimmta
sæti þvi þetta var einungis minn
fimmti kappakstur á ferlinum i
Formúlu 1. Það eru margir með
meiri reynslu en ég en þrátt fyrir
það stefni ég að því að gera enn bet-
ur á þessu ári,“ sagði Felipe Massa.
-SK
Saga Formúlunnar á bók
Bókaútgáfan Forlagið sendir nú frá sér bókina Formúla 1.
Þetta er í fyrsta sinn sem út kemur bók á íslensku um allt sem
varðar Formúlu 1-kappaksturinn og sögu hans.
Árið 1950 ákvað AÍþjóða akstursíþróttasambandið að
hleypa af stokkunum heimsmeistarakeppni í kappakstri á lok-
uðum brautum: Formúlu 1. Æ síðan hafa milljónir manna
heillast af þessu magnaða sjónarspih þar sem helstu bilafram-
leiðendur heims teíla fram allri sinni þekkingu og tæknikunn-
áttu í því skyni aö tryggja mestu ökuþórum jarðar sigur í
langri og strangri keppni.
í bókinni Formúla 1 er þessi saga rakin. Sagt er frá aðdrag-
anda keppninnar, helstu ökuþórum, liðunum og reglunum.
Ekki síst ætti öllum Formúluáhugamönnum að vera fagnað-
arefni að fá á einum stað afar ítarlega umfjöllun um allar
brautir sem komið hafa við sögu í kappakstrinum. Fjallað er
um brautimar sem nú er keppt á en einnig þær sem hafa ver-
iö aflagðar og jafnvel var aðeins keppt á einu sinni.
Það er heldur ekki víst að þeir fjölmörgu sem bæst hafa í
hóp Formúluaðdáenda hér á landi á síðustu árum viti af því
hve stormasöm saga íþróttarinnar er. Hér eru raktar pólitísk-
ar deilur vegna kappaksturskeppna, einvígi ökuþóra, barátta
framleiðenda við reglur alþjóðasambandsins og síðast en ekki
síst öll þau hörmulegu slys sem voru tahn nánast óhjákvæmi-
legur fylgifiskur kappakstursins fyrstu áratugina. Hve marg-
ir vita til dæmis að árið 1958 lést helmingur allra ökumanna
í Formúlu 1 af slysförum? Bókina þýddi Eggert Þór Aðal-
steinsson. Hún er prýdd miklum ijölda litmynda og er í stóru
broti. Fuilt verð m. vsk. 4.990 kr.
Formúlu-
punktar
Glaumgosinn Eddie Irvine, sem
ekur fyrir Jaguar-liðið í formúlunni
má muna sinn fifil fegri. Þessi kjaft-
fori ökumaður hefur ekkert getað
það sem af er árinu. Svo virðist sem
hann hafi staðið sig betur á öðrum
vígstöðvum. Þegar timatökurnar
fóru fram á laugardag hafði verið
hengt upp stórt skilti á girðinguna
við áhorfendastæðin og á því stóð:
„Ég er ófrísk.“
Irvine var óheppinn og þurfti að
ræsa síðastur í Barcelona í gær þar
sem gerðar voru athugasemdir við
eldsneyti sem var á bíl hans.
Vœngir á bílunum voru að skap-
rauna mönnum um helgina í For-
múlunni. Kimi Raikkonen var einn
þeirra sem fengu að finna fyrir
þessu en hann varð að hætta keppni
eftir að afturvængur hafði dottið af
bíl hans. Mátti Raikkonen teljast
heppinn að halda bílnum á braut-
inni.
Báðir ökumenn Minardi, Yoong
og Webber, voru fjarri góðu gamni
í gær. Minardi-liðið átti í miklum
vandræðum með vængina á bifreið-
um sínum á laugardag og treysti sér
ekki til að stilla bflunum upp í
rásmarki í gær. Þetta er önnur
keppnin í röð sem Yoong missir af
en hann náði ekki lágmarkstíma
fyrir síðustu keppni.
Undarlegt atvik átti sér stað á
viðgerðarsvæðinu í keppninni í
gær. Einn af starfsmönnum Willi-
ams-liðsins, sá sem gefur ökumönn-
um liðsins merki þegar þeir mega
aka af stað frá svæðinu, gerði það
heldur snemma með þeim afleiðing-
um að Juan Pablo Montoya ók
hreinlega yfir fót hans. Starfsmaður-
inn slasaðist ekki alvarlega og slapp
með mar og tognun.
Renault-lióiö varð fyrir miklu
áfalli í lok keppninnar í gær. Báðir
bílar liðsins duttu þá úr keppni á
sama hringnum þegar aðeins tveir
hringir voru eftir. Þeir Jenson
Button og Jarno Trulli voru þá í
ágætum málum og í hörðum slag
um stigasæti.
Aöeins stórslys getur nú komið í
veg fyrir að Michael Schumacher
verði heimsmeistari í kappakstri í
haust. Hann var á ráspól í
Barcelona en sá ökumaður sem náð
hefur ráspól þar hefur orðið heims-
meistari síðustu sex árin.
Michael Schumacher er orðinn
leiður á allri tölfræðinni í kringum
Formúluna. Hann segist ekkert spá í
þessa tölfræði og einbeiti sér að því
að ná góðum árangri utan sem inn-
an kappakstursbrautanna. Segja má
að honum hafi tekist þokkalega upp
í að halda einbeitingunni það sem af
er árinu.
Schumacher hringaöi fyrsta
andstæðing sinn í gær á 19. hring.
Það var Mika Salo á Toyota sem þá
varð fyrir barðinu á heimsmeist-
aranum. Síðar hringaði Schu-
macher m.a. bróður sinn á Williams
á 33. hring. CK.
Úrslitin í Barcelona
1. Michael Schumacher, Ferrari.
2. Juan Pablo Montoya, Williams.
3. David Coulthard, McLaren.
4. Nick Heidfeld, Sauber.
5. Felipe Massa, Sauber.
6. Heinz-Herald Frentzen, Arrows.
Staða ökumanna
1. Michael Schumacher 44
2. Juan Pablo Montoya 23
3. Ralf Schumacher 20
4. David Coulthard 9
5. Jenson Button 8
6. Rubenms Barrichello 6
Staða ökuliðanna
1. Ferrari 50
1. Williams 43
3. McLaren 13
4. Renault 8
5. Sauber 8
6. Jaguar 3
i
V
r