Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002
Útlönd
H>"V
REUTERSMYND
Áin Meghna í Bangladesh
Óveöur tefur viö björgun.
Ferjuslysið í Bangladesh:
44 lík fundin
Talið er að um 300 manns hafi
farist þegar ferja sökk á Meghna-
ánni í Bangladesh á fostudagskvöld
í miklu óveðri. 500 manns voru um
borð og var um 100 bjargað en
nokkrir gátu komið sér úr hættu
upp á eigin spýtur.
í gær fundu björgunarmenn 42 lík
og er þá fjöldi látinna kominn upp í
44 en ólíklegt verður að teljast að
margir, ef einhver, finnist á lífi úr
þessu. Enn er óveður á þessum
slóðum og var leitinni hætt í lok
dags og var haldið áfram i morgun
þegar tók að birta. Mörg líkanna
sem fundust voru á floti á ánni.
Stórsigur Jaques Chiracs í forsetakosningum í Frakklandi:
Vandræðalegur sigur
sem gæti kostað sitt
Þúsundir Frakka flykktust út á
götur borga landsins þegar ljóst var að
franska þjóðin hafði hafhað svo um
munaði hægri öfgamanninnum Jean-
Marie Le Pen sem ásamt núverandi
forseta, Jaques Chirac, fékk flest
atkvæði í fyrstu umferð kosninganna
og þar með sæti i síðari umferð. Hún
fór fram í gær og bentu fyrstu tölur tfl
þess að Chirac hefði hlotið um 80%
atkvæða og Le Pen um 18%.
Le Pen var fljótur að viðurkenna
ósigur og Chirac lýsti því yfir að með
sigri sínum hefðu Frakkar staðfest ást
sína á lýðræðinu en engu að síður
verður það að teljast afar slæmt að Le
Pen skyldi á annað borð komast jafh
langt og hann gerði.
Vinstrimenn sáu sér ekki annað
fært en kjósa Chirac þar sem hann
varð að teljast skárri kostur af tveim-
ur slæmum að þeirra mati og gengu
REUTERSMYND
Jear>-Marie Le Pen
Hægri öfgamaöurinn sem slysaöist
inn í 2. umferö forsetakosninganna.
margir þeirra til kosninga með
klemmu um nefið vegna „hægrifnyks-
ins“. Þrátt fyrir að stjómmálaferill sós-
íalistans Lionel Jospin, forsætisráð-
herra Frakklands, hafi dáið i fyrstu
umferð forsetakosninganna, þar sem
hann beið afhroð, verða sósíalistar að
teljast sigurstranglegir í þingkosning-
unum sem eru fram undan von bráðar
í kjölfar þessara afar vandræðalegu
kosninga um æðsta embætti Frakka.
Eftir að hægri öfgamaðurinn Jörg
Haider í Austurríki hafði margsinnis
bankað á dymar í austurrískum
stjómmálum hlaut hans flokkur „loks-
ins“ góða kosningu árið 1999. Með það
að fordæmi ættu Frakkar að varast
það að gera litið úr áhrifúm Le Pens í
frönskum stjómmálum og grípa strax
tfl aðgerða sé vilji tfl þess að afstýra
því í framtíðinni að hann komist jafh
nálægt völdum og raun bar vitni nú.
)
VIVALA
PARISIVIKU
-Rómantískasta höfuöborg Evrópu
Frá 47 i200kr. >
á mann m.v. tvíbýli á C.l. Sacré Coeur i júlí eða ágúst. '
Innifalið: Flug, gisting i 6 nætur og föst aukagjöld
FLUG OG BILL
-Spennandi sumarfrí
á einstöku verði
Frá 28.775kr.
á mann m.v. tvo fullorðna
og 2 börn í viku
Frá 36.000kr.
á mann m.v. tvo í bíl.
Innifalið: Flug, bíll B-fl. og föst
aukagjöld
PARÍS-flugsæti
Frá 23.950kr.
á mann m.v. tvo fullorðna
og2böm 2-11 ára
Frá 26.800kr.
flugsæti fyrir fullorðna
Föst aukagjöld innifalin
mm
M
TERRA vUv
NOVA isói
-SPENNANDI VALKOSTUR-
Stangarhyl 3A
110 Reykjavik
Simi: 591 9000
terranova.is
REUTERSMYND
Páskadagur
Alexiy annar, biskup rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, ávarpar söfnuö dóm-
kirkjunnar í Moskvu, en í gær var páskasunnudegi fagnaö samkvæmt
júlíönsku dagatali sem kirkjan styöst viö.
Trek Sport800
dömu/herra
Litin BláttAilfur, rautt/hvrtl, svart
Verð kr. 32.132,-
ÖRNINNP*
STOFNAÐ 1925
TrekTrailer
Tengihjól f.böm frá 5-8ára
Verðfrákr. 26.247,
Trek Navigator
dömu/herra
Litin Rautt svartísilfur
Verð kr. 47.581,-
Skeifunni 11. Sími 588 9890
Söluaöilan Hjóliö, Seltjamamesi - Músík og sport, Hafnarfiröi
Útisport, Kefiavík - Hjólabær, Seifossi - Sportver, Akureyri
Byggingavöruversl.Sauöárkr. - Olíufélag útvegsmanna, ísafiröi
Eðalsport, Vestmannaeyjum - Pípó, Akranesi
Opið laugard. 10-16 www.orninn.is
Shuttleworth aftur á jörðu
Intemet-miIIj óna-
mæringnrinn suð-
ur-afríski, Mark
Shuttleworth, lenti
heill á húfi á jörðu
aftur, nánar tiltekið
í Kazakstan, í
fyrrinótt eftir 10
daga ferð í geimn-
um sem ferðalangur með rússneska
geimfarinu Soyuz. Sögusagnir eru
um að ferðin hafi kostað þennan 28
ára mann um 135 þúsund krónur á
mínútuna.
Roca laus úr fangelsi
Andófsmaðurinn Vladimiro Roca,
alrómaðasti pólitfski fanginn á
Kúbu, var um helgina látinn laus úr
fangelsi, 10 vikum á undan áætlun.
Gerist þetta fimm dögum fyrir
heimsókn Jimmys Carters, fyrrum
Bandaríkjaforseta, til Kúbu. Roca
fékk ásamt fleirum úr sínum hópi
dóm fyrir að reyna að grafa undan
núverandi valdhöfum á Kúbu.
Flugslys í Ástralíu
Taliö er að fjögurra manna fjöl-
skylda, hjón með tvö böm, hafi
farist í slysi í Sydney í Ástralíu þeg-
ar tvær litlar flugvélar skuflu sam-
an rétt hjá smáflugvélaflugvelli í
einu úthverfa borgarinnar.
Píramídi númer 110
Fomleifafræðingar hafa í fyrsta
sinn í fjögur ár fundið nýjan
píramída og er sá númer 110 í
Egyptalandi. Talið er að hann sé
4500 ára gamall og hann geymi graf-
hýsi egypskrar drottningar.
Hugo Banzer látinn
Hugo Banzer,
fyrrum forseti
Bólivíu, lést í gær,
en hann greindist
með lungna- og
lifrarkrabbamein
síðastliðið sumar.
Hann varð fyrst for-
seti 1971, þá sem
leiðtogi herstjómar, og aftur 1997 en
þá lýðræðislega kjörinn. Varaforseti
hans, Jorge Quiroga, tók við völd-
um þegar veikindin komu upp.
Eldur í vopnabúri
Eldur kom upp í hermannaskál-
um í höfuðborg Gíneu í gær og
skapaði mikinn skarkala meðal
íbúa borgarinnar. Háværar spreng-
ingar ómuðu um borgina klukku-
stundum saman og óttuðust margir
að uppreisnarmenn væm að búa sig
undir að hrifsa til sín völd eins og
gerðist árið 1984. Svo var þó ekki.
Aung San Suu Kyi sleppt?
Búist er við því að leiðtoga NLD-
flokksins í Burma, hinni 56 ára
Aung San Suu Kyi, friöar-
verðlaunahafa Nóbels, veröi sleppt
úr því stofufangelsi sem hún hefur
setið í síðustu 19 mánuðina. Flokk-
ur hennar vann þingkosningar í
landinu fyrir 12 árum en herinn,
sem er við völd i landinu, hefur
neitað að viðurkenna úrslit kosn-
inganna.
írakar hætta mótmælum
Frá og með 8. maí næstkomandi
munu írakar hefja aftur útflutning
á olíu en fyrir um mánuði var út-
flutningi hætt í mótmælaskyni við
hernað Israela gagnvart Palesttnu-
mönnum.