Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 7
20
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002
21
Sport
Sport
Valur 2
Mörk/vlti: (skot/viti)
Bjarki Sigurösson ..... 25/2 (46/3)
Sigfús Sigurðsson ........ 20 (28)
Snorri Steinn Guðjónsson . 19/3 (49/6)
Freyr Brynjarsson .........17 (27)
Markús Máni Michaelsson 16/3 (45/6)
Einar Gunnarsson..................7 (12)
Ásbjöm Stefánsson............5 (7)
Geir Sveinsson ..............4 (7)
Skotnýting:....................51%
Skipting markskota: (nýting)
Langskot .... 99 skot/30 mörk (30%)
Gegnumbrot.............18/13 (72%)
Hom .................... 30/20(67%)
Lina.................. 33/23 (70%)
Hraðaupphlaup ........ 26/19 (73%)
Vítaskot ...............15/8 (53%)
Varin skot/viti: (Skot á sig/viti)
Roland Eradze........ 97/6 (212/27)
Pálmar Pétursson..............0 (2)
Markvarsla:...................45%
Skipting markvörslu (hlutfall)
Langskot ... 72 skot/45 varin (63%)
Gegnumbrot........... 39/21 (54%)
Hom.......................... 23/7 (30%)
Lina .................. 23/7 (30%)
Hraðaupphlaup ....... 30/11 (37%)
Vítaskot..................... 27/6 (22%)
Stoösendingar: (inn á línu)
Bjarki 22 (8), Snorri 22 (5), Markús 15
(5), Freyr 9 (2), Einar 6 (4), Sigfús 4, Geir
2, Eradze 1.
Fiskuö víti:
Snorri Steinn 6, Sigfús 5, Bjarki 2, Ás-
björn, Freyr.
Sendingar sem gáfu víti:
Bjarki 4, Freyr 3. Markús 2, Einar 2, Snorri.
Fiskaöir brottrekstrar:
Bjarki 5, Sigfús 5, Snorri Steinn 3,
Freyr 3, Geir, Einar.
Boltum náö:
Bjarki 9, Freyr 5, Markús Máni 4,
Snorri Steinn 4, Sigfús 3, Ásbjöm,
Geir, Eradze.
Varin skot i vörn:
Sigfús 20, Geir 14, Markús Máni 2,
Einar 1.
Hraðaupphlaupsmörk...........19
(Freyr 6, Sigfús 6, Snorri 3, Bjarki 2,
Geir, Ásbjörn).
Tapaðir boltar...............42
KA3
Mörk/víti: (skot/viti)
Halldór Sigfússon..... 39/19 (64/23)
Andrius Stelmokas ..........21 (28)
Heimir Öm Ámason............13 (40)
Heiðmar Felixson..........11 (41/1)
Sævar Ámason ...............10 (16)
Jóhann Gunnar Jóhannsson .. 8 (15)
Baldvin Þorsteinsson .....6/2 (8/2)
Jónatan Þór Magnússon .... 5 (15/1)
Einar Logi Friðjónsson........4 (8)
Ingólfur Axelsson ...........0 (2)
Skotnýting:...................49%
Skipting markskota: (nýting)
Langskot ... 112 skot/27 mörk (24%)
Gegnumbrot............ 26/18 (69%)
Hom .................. 25/16 (64%)
Lína.................. 20/16 (80%)
Hraðaupphlaup ........ 27/19 (70%)
Vítaskot.............. 27/21 (78%)
Varin skot/víti: (Skot á sig/víti)
Egidijus Petkevicius . . 77/7 (188/14)
Hans Hreinsson ............0 (2/1)
Markvarsla:.................41%
Skipting markvörslu: (hlutfall)
Langskot ... 72 skot/42 varin (58%)
Gegnumbrot..................22/9 (41%)
Hom....................... 27/7 (26%)
Lína .................31/8 (26%)
Hraðaupphlaup...............23/4 (17%)
Vítaskot: ............15/7 (47%)
Stoösendingar: (inn á linu)
Heiðmar 16 (1), Halidór 13 (2), Jónatan
Þór 12 (3), Heimir Örn 11 (3), Sævar 8
(5), Jóhann Gunnar 2 (1), Hreinn 1 (1),
Einar 1, Stelmokas 1, Petkevicius 1.
Fiskuó viti:
Heimir örn 7, Stelmokas 5, HaUdór 4,
Jóhann Gunnar 4, Jónatan Þór 2,
Sævar 2, Heiðmar, Einar, Hreinn.
Sendingar sem gáfu víti:
Heiömar 7, Halldór 6, Heimir Öm 2,
Sævar 1, Jónatan 1.
Fiskaðir brottrekstrar:
Stelmokas 7, Halldór 3, Heimir 3, Sæv-
ar 2, Heiðmar, Jónatan, Einar, Jóhann.
Boltum náö:
Stelmokas 8, Heimir 4, Jónatan 4, Heið-
mar 3, Sævar 2, Jóhann 2, Halldór 1.
Varin skot í vörn:
Heimir 6, Stelmokas 4, Heiðmar,
Hreinn.
Hraðaupphlaupsmörk...........19
(Stelmokas 9, Jóhann 3, Sævar 3,
Heiðmar 2, Jónatan 1, Heimir 1).
Tapaðir boltar...............40
- KA er íslandsmeistari í
handknattleik tímabiliö
2001-2002, eftir frækilegan
sigur á Valsmönnum í
stórbrotinni úrslitarimmu.
Uppbygging-
arstarfið aö
skila sér
- segir Halldór J. Sigfússon, KA
Halldór J. Sigfússon er án efa
maður þessarar úrslitakeppni og
er þá á engan hallað. Drengurinn
var hreint út sagt ótrúlegur og
fann alltaf glufur á frábærri vöm
Valsmanna og ég spyr hann hvort
þetta sé ekki toppurinn á tilver-
unni.
„Þetta er allavega nálægt því,“
segir yfirvegaður og hógvær Hall-
dór og bætir við: „Þegar maður er
kominn út í svona rimmu verður
maður einfaldlega aö leggja sitt af
mörkum og menn verða bara að
standa saman sem einn. Það sveif
mjög jákvæður andi yfír okkar
liði fyrir leikinn og ef menn gerðu
mistök þá var bara klappað á bak-
ið, brosað og svo haldið áfram og
þetta var hreinlega stórkostlegt
hjá okkur.
Það var rosalega sárt að tapa
úrslitaleiknum á heimavelli í
fyrra gegn Haukunum og við vor-
um alveg ákveðnir í því að láta
það ekki endurtaka sig og þaö sást
vel í kvennaboltanum um daginn
að allt er hægt og aftur nú í kvöld.
Framtiðin er björt hjá KA og
það er vel staðið að uppbyggingar-
starflnu hjá félaginu og það er
einfaldlega málið i þessu. Menn
verða að horfa lengra en eitt-tvö
ár fram í tímann og það er ná-
kvæmlega það sem bæði þessi lið,
Valur og KA, eru að gera. Það
þýðir ekkert að ausa bara pening-
um og horfa á næsta ár, menn
verða að líta fram á veginn með
þolinmæði, það skilar sér,“ sagði
hinn frábæri leikmaður KA, Hall-
dór J. Sigfússon. -SMS
Heiðmar Felixson og Hreinn Hauksson fara hér fyrir fagnaðarlátum KA-manna í
leikslok enda KA-liðið nýbúið að vinna einstakt og frábært afrek, þ.e. að koma
aftur eftir að hafa lent 0-2 undir með tvo leiki eftir á útivelli. DV-mynd Hilmar Þór
Eftir ótrúlegt tímabil í íslenska
handboltanum er íslandsmeistaratitill-
inn fyrir norðan, hjá KA. Það verður
að teljast ein ótrúlegasta útkoma á ís-
landsmóti í mörg, mörg ár þegar tekið
er tillit til stöðu KA í vetur.
Tímabilið byrjaði heldur brösulega
hjá KA og beindist athyglin fremur að
litla liðinu á Akureyri, Þór, sem var
nýliðar í deildinni en náði engu að
síður að gera usla í byrjun mótsins.
Maður í manns stað
KA-liðið hafði misst tvo lykilmenn
frá tímabiiinu á undan, þá Guðjón Val
Sigurðsson og Hörð Flóka Ólafsson,
en fengið til sín þá Heiðmar Felixson
og Egidijus Petkevicius. Sá fyrmefndi
meiddist reyndar eftir aðeins tvo leiki
og var frá í fáeinar vikur en þeir Sæv-
ar Ámason og Heimir Öm Ámason
voru meiddir lengi vel í haust. Fyrsti
sigurinn kom ekki fyrr en í 4. umferð.
Áfollin hættu ekki að dynja yflr og
ein helsta skytta liðsins, hinn ungi
Amór Atlason fótbrotnaði tvisvar á
tímabilinu. Mótlætið var því mikið en
liðið endaði í 5. sæti deildarinnar, í
miðju hóps sjö liða sem aðeins 4 stig
skildu að.
í fjórðungs- og undanúrslitum var
svo tónninn gefinn. Bæði gegn
Gróttu/KR og Haukum byrjaði liðið á
útivelli en engu að síður tókst því að
vinna bæði einvígin, 2-0. Sannarlega
frábær árangur og óvæntur, sér i lagi
þar sem Haukar höfðu unnið deildina
með yfirburðum og vora langsigur-
stranglegastir í úrslitakeppninni.
Svo kom úrslitarimman gegn Val.
Fyrstu tveir leikimir fóru báðir í
framlengingu og enduðu báðir með
sigri Vals. Þá var það einfaldlega að
duga eða drepast fyrir norðanmenn.
Taktísk breyting á vamarleik KA
skilaði sigrum í næstu tveimur leikj-
um, jafnaði einvígið og var komið að
hreinum úrslitaleik sem fór fram á
fóstudaginn. Einkar löngum aðdrag-
anda var loksins lokið og komið að
mikilvægasta leik ársins.
Óviðjafnanleg stemning
Stemningin í íþróttahúsinu við
Hlíðarenda var ótrúleg. Þótt aðeins
væm rúmlega þúsund manns inni í
salnum var svo þétt setið og hátt kall-
að að auðveldlega virtist vera tífalt
fleiri áhorfendur á leiknum.
Og þó að KA-menn skoruðu fyrsta
mark leiksins leit allt út fyrir að Vals-
menn væru eftir smálægð komnir aft-
ur á fulla ferð. Markús Máni Mikaels-
son skoraði í sinni fyrstu sókn eftir
góðan undirbúning Snorra Steins
Guöjónssonar en þeir tveir sáu um
fyrstu fjögur mörk sinna manna á
meðan Roland Eradze varði oft glæsi-
lega í Valsmarkinu. Þótt útlitið hafi
verið gott fyrir Valsmenn vom KA-
menn alls ekki á því að gefast upp og
var frammistaða þeirra á þessum
kafla einkennandi fyrir leikinn - og
liðið allt. Með mikilli seiglu leyfðu
þeir Valsmönnum aldrei að komast of
langt fram úr og alltaf náðu þeir að
svara marki með marki.
Frábær vörn
Vamarleikur beggja liða, eins og í
fjórða leiknum, var gífúrlega góður og
var mikið um hörku. Sóknimar dróg-
ust oft á langinn og voru öll mörk
nánast undantekningarlaust frábær-
lega gerð, enda lítið annað sem dugði
í eins sterkum varnarleik.
Vert er að minnast frammistöðu
Halldórs Sigfússonar sem var sérlega
vel gætt af Geir Sveinssyni í
Valsvöminni en þrátt fyrir það tókst
honum að skora nokkur glæsileg
mörk.
I síðari hálfleik kom svo óvænt út-
spil hjá Atla Hilmarssyni, þjálfara
KA. Hann ákvað að breyta út 6-0
vörninni sem hafði reynst svo vel í
3-2-1 vömina sem KA spilaði í tap-
leikjunum. Valsmenn byrjuðu að
leysa það vel í fyrstu sóknunum en á
rúmlega 10 mínútna kafla breyttist
staðan úr 12-10 í 14-17. Með það í
huga að barátta KA-manna hafði ver-
ið þvílík allan leikinn gegn þessu
fimasterku Valsliði þótti það frekar
ljóst að það þætti of stór biti fyrir
heimamenn.
Markvarslan var iykillinn
Á þessum kafla varði Egidijus Pet-
kevicius stórkostlega. Hreint út frá-
bærlega og skapaði í raun þessa afar
mikilvægu forystu. Hann varöi meðal
annars víti frá Bjarka Sigurðssyni og
þegar þeir Bjarki og Andrius
Stelmokas börðust um frákastið sauð
allt upp úr og sturlaðist sá fyrrnefhdi
hreinlega. Báðir uppskáru þeir 2ja
mínútna brottvísun og bar þetta vitni
um hina gífurlegu taugaspennu sem
lá í loftinu.
Valur minnkaði muninn í stöðunni
16-17. Nær komust þeir ekki enda leit
hvert snilldarmarkið á fætur öðru hjá
KA-mönnum dagsins ljós og undir lok
leiksins vora örþrifaráð Valsmanna
aðeins til að liðka fyrir i sóknarleik
KA. Sigurinn var tryggður og íslands-
meistaratitillinn í höfn.
Leikinn var frábær handknattleik-
ur að Hlíðarenda á föstudag og var
leikurinn og allt sem honum tengdist
ein hin allra besta skemmtun sem
undirritaður hefur orðið vitni að.
Til hamingju, KA.
-esá
Úrslitamolar
Byrjað var strax á funmtudagskvöldið
að selja miða á leik Vals og KA daginn
eftir en strax um kl. 14 á leikdag var orð-
ið uppselt.
Alls voru 1200 miðar i boði og voru þar
af 300 ætlaðir stuðningsmönnum KA. Þó
komst þessi fjöldi ekki allur í áhorfenda-
stæðin hjá vellinum þannig að stillt var
risaskjá upp í kaffiteríu Vals þar sem
dágóður fjöldi fylgdist með leiknum.
Stuðningsmenn KA, sem komu suöur
gagngert til þess að horfa á leikinn,
fylltu tvær flugvélar enda taldi sá hópur
um 100 manns.
Smekkfullt var orðið í öll áhorfenda-
stæði kl 19.30, heilum 45 mínútum fyrir
leik. Stemningin lét ekki standa á sér og
var leikmönnum til að mynda fagnað
gífurlega þegar þeir hófu upphitun.
Fyrstu áhorfendur voru mættir í hús kl.
18 á föstudag til að tryggja sér góð sæti.
Jónatan Magnússon, leikmaður KA,
hitaði upp í búningi franska hand-
boltalandsliðsins, nánar tiltekið í treyju
númer 17, sem Jackson Richardson
hefur verið kenndur við undanfarin ár,
en Jónatan leikur með númerið 17 á
bakinu hjá KA.
Margt fyrirmenna var mætt á úrslita-
leik Vals og KA. Ingibjörg Sólrún
Gisladóttir borgarstjóri heilsaði upp á
leikmenn fyrir leik og þá var bæjarstjóri
þeirra Akureyringa, Kristján Þór Júlí-
usson, á staðnum. Forseti vor, herra
Ólafur Ragnar Grimsson, lét einnig
sjá sig en Dorrit var hvergi sjáanleg.
Margir stuðningsmenn KA voru mættir
í sínu flnasta „pússi“ - í gulri KA-skyrtu
með blátt KA-bindi.
Kristján Kristjánsson, Kastljósmaður,
er mikill KA-maður og lét sig ekki vanta
á leikinn og hann fékk ríkulega umbun
fyrir aö hafa tekið Árna Johnsen rétti-
lega í bakaríið í Kastljósinu kvöldið áð-
ur; sjálfan íslandsmeistaratitilinn.
Eins og í öðrum heimaleikjum Vals í úr-
slitakeppninni voru ljósin öll slökkt og
notast við reykvél þegar leikmenn Vals
voru kynntir til leiks. Þetta er að banda-
rfskri fyrirmynd, nánar tiltekið úr NBA-
deildinni, og eins og allt annað í um-
gjörð Vals í leikjunum tókst þetta ein-
staklega vel upp.
Dagur Sigurösson, leikmaður Waka-
noga i Japan, var mættur með Valstref-
ilinn til að fylgjast með sínu gamla félagi
og bróður sínum, Bjarka Sigurössyni.
Sólveig Zophoniasdóttir, nýkrýnd Ung-
frú Island.is, var á leiknum til að styðja
KA-liðið, enda fædd og uppalin á Akur-
eyri. Að eigin sögn er hún reyndar úr
Hlíðahverfl Akureyrar sem öllu jöfhu er
Þórshverfi en í leikjum eins og á fostu-
daginn sé það bæjarfélagið sem telur,
fyrst og fremst. -esá/SMS
1 i
5. úrslitaleikur karla 2002: Valur-KA 21-24 (10-9) Leikstaóur og dagur: Hliðarendi 10. maí. Stefán Amaldsson (8). Gœöi leiks (1-10): 9. Dómarar (1-10): Gunnar Viðarsson og Áhorfendur: 1200.
Valur l s 1 n V o o a 1
ö S s
Útileikmenn: Skot/Mörk 9 m Vlti Hrað. 1 1 3 I & I § .p >
Sigfús Sigurðsson 8/6 75% 1/0 1/1 1(0) í 2 0 2
Snorri Steinn Guðjónss. 13/5 38% 12/5 1/0 7(2) í 2 0 0
Markús M. Michaelss, 7/3 43% 5/2 1/0 1(0) í 0 1 0
Bjarki Sigurðsson 9/3 33% 4/0 2/1 5(1) 0 0 1 0
Ásbjöm Stefánsson 2/2 100% 1/1 0 0 0 0 0
Geir Sveinsson 1/1 100% 0 0 0 1 1
Einar Gunnarsson 2/1 50% 2/1 3(2) 0 0 0 1
Freyr Brynjarsson 4/0 0% 1/0 1(1) 0 0 1 0
Davíð Höskuldsson
Erlendur Egilsson
Davíð Sigursteinsson
Ragnai' Már Ægisson
Samtals 46/21 46% 24/8 4/1 3/2 4 4 4
Markvarsla: Skot/Varin 9 m Viti Hrað. TUmót Haldið hena
Roland Eradze 43/19 44% 18/11 2/0 4/1 0 0 1 6
Pálmar Pétursson
Samtals markvarsla 43/19 44% 18/11 2/0 4/1 1 18(6) 3 7 6
Skipting markskota: Langskot: 24/8 (33%), lína: 9/7 (78%), hom: 5/2 (40%),
gegnumbrot: 1/1 (100%), hraðaupphlaup: 3/2 (67%), viti: 4/1 (25%).
Sendingar sem gáfu vitv 4 Bjarki 2, Freyr, Snorri Steinn.
Fiskaöir brottrekstrar: 5 Bjarki 2, Freyr, Snorri Steinn, Sigfús (10 mín.).
0-1, 2-1, 2-2, 3-3, 4-3 (9 mín.), 4-5,
5-5, 5-6, 7-K (20 mín.), 7-8, 9-8, 9-9,
(10-9), 11-9, 12-10, 12-12 (36 mín.),
13-13,14-13 (39 mín.), 14-17 (45,mín.),
16-17, 16-18, 17-18 (53 mín.), 17-21,
18-21,18-22, 20-22, 20-24, 21-24.
Sóknarnýting:
Fyrri hálfleikur:
Valur (21/10, 1 tapaður)........48%
KA (21/9, 5 tapaðir) .............43%
Seinni hálfleikur:
Valur (22/11, 2 tapaðir)..........50%
KA (22/15, 0 tapaðir).............68%
Samtals:
Valur (43/21, 3 tapaðir)..........49%
KA (43/24, 5 tapaðir) ............56%
Fráköstfrá marki í leiknum:
Valur ..............9 (4 í sókn)
KA .................5 (0 í sókn)
Maður leiksins:
Egidijus Petkevicius, KA
KA
Útileikmenn:
Halldór J. Sigfúss.
Sævar Árnason
Jóhann G. Jóhannss.
Heimir Örn Ámason
Andrius Stelmokas
Heiðmar Felixson
Einar Logi Friðjónss.
Jónatan Þór Magnúss.
Ingólfur Axelsson
Hreinn Hauksson
Amar Þór Sæþórss.
Baldvin Þorsteinss.
Skot/Mörk 9 m Vití Hrað.
13/8 62% 6/3 2/2
5/4 80% 1/0 1/1
5/4 80% 2/1
8/3 38% 6/2
3/2 67% 1/1
4/2 50% 3/1
1/1 100% 1/1
1/0 0% 1/0
1/0 0% 1/0
41/24 59% 19/7 2/2 4/3
Skot/Varin 9 m Vití Hrað.
39/18 46% 17/9 4/3 3/1
I 1 £ f o a 1
•cS s s jf c
tr. & | & iS 1 >
4(1)
1(0)
1(1)
6(0)
0
6(0)
0
2(0) 1
0 0
0 0
0 0
0 0
Samtals
Markvarsla:
Egidijus Petkevicius
Hans Hreinsson
3 2
Tilmót-
2
Haldið
0 7 7
Samtals markvarsla 39/18 46% 17/9 4/3 3/1 | 17 (2)
Skipting markskota: Langskot: 19/7 (37%), lína: 5/3 (60%), hom: 5/5 (100%),
gegnumbrot: 6/4 (67%), hraðaupphlaup: 4/3 (75%), víti: 2/2 (100%).
Sendingar sem gáfu viti: 2 Halldór, Heimir Öm.
Fiskaöir brottrekstrar: 5 Halldór, Jónatan, Stelmokas, Jóhann, Einar Logi (10 mín.).
Hornamaðurinn Jóhann Jóhannsson:
Ótrúlegur vetur
Jóhann Jóhannsson, leikmaöur
KA, var að taka á móti titlmum í
annað sinn en óhætt er að segja að
hann hafi átt frábæran lokasprett
í leiknum:
„Veistu, það var frábært að
vinna ‘97 en það er alveg yndislegt
að vinna þetta núna og þá sérstak-
lega vegna þess að það eru svo
margir strákar í liðinu uppaldir
hjá félaginu og það sýnir að þolin-
móð uppbygging skilar sér marg-
falt. Þetta er búinn að vera ótrú-
legur vetur og margt búið að
ganga á og það er í raun ekki fyrr
en i lok deildakeppninnar sem við
náum að stilla upp okkar
sterkasta liði og þetta er einfald-
lega meiri háttar afrek að koma og
vinna tvisvar á Hlíðarenda, þetta
er hálfótrúlegt miðað við allt sem
á undan var gengiö."
Um andstæðingana hafði Jó-
hann þetta að segja: „Þetta Valslið
er einfaldlega bara þrælgott og við
vissum að þetta yrði jafht og
spennandi. Við vorum hins vegar
með það á tæru að ef við næðum
að halda í við þá fram í síðari hálf-
leik þá tækjum við þetta í lokin og
það gekk eftir,“ sagði Jóhann Jó-
hannsson sigurreifur í leikslok.
Jóhann Gunnar Jóhannsson og Egidijus Petkevicius faömast í leiklok.
Heimir Örn Árnason, KA:
Baráttan, viljinn
og einbeitingin
Eftir leikinn leit Heimir Örn
Ámason, leikmaður KA, út eins og
hann hefði verið að stiga út úr
hringnum eftir tólf lotna bardaga við
Mike Tyson. Eyrun voru þó á sínum
stað þó að kappinn hafi verið alveg
búinn og ég spyr hann hvað mikið sé
eftir af honum? „Svona hálft prósent,"
segir Heimir og glottir.
„Mér fannst við eiga rosalega mikið
inni eftir tvo fyrstu leikina og þrátt
fyrir vonda stöðu misstum við aldrei
trúna. Við vorum einfaldlega að spila
frábærlega hér í kvöld og sprungum út
í seinni hálfleik. Það var baráttan og
viljinn og einbeitingin sem gerði okkur
þetta kleift," sagði Heimir Öm
Ámason, lurkum iaminn. -SMS
Atli Hilmarsson kátur í leikslok
meö soninn upp á arminn.