Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2002, Qupperneq 7
Eftir 6 ára ævi sendi Stjörnukisi frá sér sína fyrstu breiðskífu í vikunni. Platan heit-
ir Góðar stundir og er búin að eiga sér langan aðdraganda en nú loksins orðin að
veruleika. Við hittum Stjörnukisann fyrir og ræddum við hann um nýju piötuna,
Land og syni, rándýr stúdíó og fræddumst örlítið um mennina á bak við köttinn.
Eins og að eiga
tvær konur
„Við stefnum hins vegar ekki á
jólaplötumarkaðinn eða sam-
keppni við Skífuna og Land og
syni, það er bara einfaldlega ekki
á dagskránni. Frekar ætlum við að
gefa út góða tónlist sem verð-
skuldar að fólk hlusti á hana.
Góða tónlist sem fólk getur svo
jafnvel hlustað á eftir fimm ár og
enn þá þótt hún góð.“
„Það er ýmislegt búið að
ganga á hjá okkur síðasta
árið. Við erum búnir að eyða
miklum tíma í að smíða
okkur stúdíó og það var eig-
inlega upphafið að þessari
plötu. Við kláruðum að
smíða stúdíóið í desember,
eftir það fórum við beint í
það að taka upp plötuna og
núna er hún loksins komin
út,“ segir Bogi Reynisson,
bassaleikari hljómsveitar-
innar Stjörnukisa, sem var
að senda frá sér sína fyrstu
breiðskífú, Góðar stundir,
eftir að hafa verið starfandi í
um 6 ár.
Akkerið fyrir borð
Stjömukisi hefur á sinni
ævi gengið í gegnum miklar
breytingar. Sveitin var
stofnuð árið 1996 af áður-
nefndum Boga, Úlfi Chaka
Karlssyni _ söngvara og
Gunnari Oskarssyni gítar-
leikara. Það árið tóku pilt-
amir þátt f Músíktilraunum
þar sem þeir stóðu að lokum
uppi sem sigurvegarar.
„Þá voru með okkur þeir
Viggó, Richard og Sölvi
Blöndal. A ákveðnum
tímapunkti duttu Sölvi og
Richard báðir út og Viggó
fylgdi fljótlega á eftir. Vð
hinir breyttum fyrirkomu-
laginu bara aðeins og héld-
um ótrauðir áfram. Síðan þá
höfum við verið að safna að
okkur fleiri meðlimum eftir
því hvemig það hentaði
músíkinni hverju sinni,“
segir Bogi. Asamt þessum
þriggja manna kjarna eru
þeir Ari Þorgeir Steinars-
son og Gísli Már Sigur-
jónsson nú hluti af
Stjömukisa. Þeir félagar
hafa fært sveitinni nýjar
víddir en Ari sér um
trommuleikinn á meðan
Gísli Már sér um gítarleik
og öll tölvumál þegar
hljómsveitin spilar opin-
berlega. Fram að komu
þeirra félaga hafði tónlist
hljómsveitarinnar verið
nokkuð opin og breytileg
en nú eru þeir dagar fyrir
bf.
„Þetta var ansi breytilegt
hjá okkur en núna erum við
búnir að henda akkerinu út.
Þessi plata er í rauninni
100% einn og sami stíllinn
sem við emm búnir að til-
einka okkur.“
Hver í sínu heimshorni
Eins og áður sagði fóru
allar upptökur fram í nýju
hljóðveri Stjömukisa sem
hefúr hlotið nafhið Veðurstofan en upptökumaður var
Svisslendingurinn Swell Mellah. Hann hefur áður unnið
með íslenskum sveitum og var t.d. upptökustjóri á nýlegri
plötu hljómsveitarinnar Ffdel.
„Við tókum plötuna upp á tveggja vikna kafla þarna í
desember þegar við vorum búnir með stúdíóið en færðum
okkur svo til Sviss þar sem pródúserinn er með sitt eigið
stúdíó. Þar lögðum við lokahöndina á þetta en þegar allt
mix fór fram vorum við reyndar staddir í þremur mismun-
andi löndum. Eg var staddur í Sviss, Úlfur á Spáni og hin-
ir heima á íslandi þannig að við vomm bara í email-sam-
bandi svo allir gætu lagt eitthvað til málanna. Þetta fjar-
skiptasamband var mjög áhugavert þar sem ég var að vinna
úr uppástungum úr öllum áttum. En það var líka mjög gef-
andi,“ segir Bogi og Gunnar bætir við: „Platan er í raun
mjög hrá þótt hún hafi verið svona lengi í smíðum enda var
framkvæmdin á henni mjög knöpp. Við ákváðum raunar að
gera hana þannig í staðinn fyrir að liggja yfir henni í lengri
tíma, leyfðum henni bara að koma og fara. En þetta kom
bara út eins og við ætluðum að hafa þetta. Þétt og mikið
rokksánd og við erum mjög
sáttir við útkomuna.“
Allir endar opnir
Fyrir utan að taka plötuna
upp sjálfir gerði Stjörnukisi
nánast allt annað sem að
vinnslu hennar kemur upp
á eigin spýtur. Úlfur hann-
aði t.d. umslagið og svo sáu
þeir um öll útgáfumál sjálfir.
„Þetta er náttúrlega búið
að kosta okkur heilmikið, en
þó aðallega vinnu. En núna
er náttúrlega bæði platan og
stúdíóið tilbúið þannig að
núna er bara að láta þetta
ganga. Hljóðverið var fyrst
og fremst byggt með okkar
hag í huga en svo er líka
mikil vöntun á góðu stúdíói
hér á landi sem kostar ekki
einhverjar fáránlegar upp-
hæðir. Núna teljum við okk-
ur geta boðið upp á mjög
gott stúdíó sem er ekki mjög
dýrt, alla vega ekki alveg fá-
ránlega dýrt og við erum
þegar búnir að bóka nokkrar
hljómsveitir."
Hvað útgáfúna varðar
segjast meðlimir Stjömukisa
vera opnir fyrir öllu en þeir
stefna þó ekki á að hella sér
út í markaðsfræðilegar pæl-
ingar og samkeppni við ís-
lenska hljómplötuhelstim-
ið.
„Það er opið í alla enda,
við erum þegar komnir með
eitt prjójekt sem við stefn-
um á að koma á plast seinna.
Það heitir Bacon og er
tölvupopp-verkefni sem
Gísli Már er potturinn og
pannan í. Við stefnum hins
vegar ekki á jólaplötumark-
aðinn eða samkeppni við
Skífuna og Land og syni,
það er bara einfaldlega ekki
á dagskránni,“ segir Bogi og
Gunnar bætir við: „Frekar
ætlum við að gefa út góða
tónlist sem verðskuldar að
fólk hlusti á hana. Góða
tónlist sem fólk getur svo
jafnvel hlustað á eftir fimm
ár og enn þá þótt hún góð.“
Eins oc að eiga tvær
KONUR
Stjörnukisi mun svo
fagna útkomu plötunnar í
kvöld með útgáfutónleikum
í Iðnó. Piltamir eru ný-
komnir úr stuttu tónleika-
ferðalagi um Sviss þannig að
þeir ættu að vera vel
spilandi þegar þeir stíga á
sviðið f kvöld.
„Við erum nýkomnir úr
stuttum túr um Sviss þar
sem við spiluðum á nokkrum
tónleikum. Þetta var nú
enginn markaðsherferð heldur spiluðum við bara í nokkrum
klúbbum og vorum svona aðeins að dýfa puttanum í vatn-
ið og sjá hvort það væri einhver grundvöllur fyrir þessu. Það
er fyrirtæki sem heitir Genetics Manegement sem skipu-
lagði þetta en þeir hafa tekið okkar mál erlendis að sér. Þeir
hafa líka verið að hjálpa Ffdel þarna úti og við vitum að þeir
hafa áhuga á að taka að sér fleiri íslenskar hljómsveitir. Þeir
eru búnir að átta sig á því að það er meira að gerast hérna
en bara toppurinn á ísjakanum - þ.e. þetta sem sést í er-
lendu músíkpressunni," segir Bogi.
„Svo eru allar líkur á því að við förum út aftur fljótlega
en það eru engar dagsetningar komnar á það enn. A með-
an verðum við bara að vinna héma heima og svo eru auð-
vitað útgáfutónleikamir f kvöld í Iðnó. Þeir hefjast kl. 22
en við ætlum að hafa þetta í fyrra fallinu svo við höfum góð-
an tíma til að fagna á eftir,“ segir Gunnar og Bogi tekur
undir: „Já þetta er búið að taka nógu hclvíti langan tíma en
það er mjög tímaffekt að standa í þessu, svona svipað og að
eiga tvær konur. En þetta er líka gefandi - lfklega eins og
að eiga tvær konur.“
12. júlf 2002 f Ó k U S
7