Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
DV kannar verð 13 vörutegunda í fjórum lágvöruverðsbúðum annan daginn í röð:
Bónus oftast með
besta verðið
Bónus reyndist á ný með hag-
stæðasta verðið í flestum tilfellum
þegar DV kannaði verð 13 vöruteg-
unda í fjórum lágvöruverðsverslun-
um í gær, Bónus og Europris í
Skútuvogi, Krónunni í Skeifunni og
Nettó í Mjódd.
Verðkönnun þessi var gerð með
það fyrir augum að finna hagstæð-
asta verð nokkurra vörutegunda
óháð vörumerki eða stærð umbúða.
DV setti sig þannig i spor við-
skiptavinar sem var einungis á
höttunum eftir hagstæðustu kaup-
unum i hverri verslun seinnipart-
inn í gær, lægsta verði á hverju
kílói eða lítra, t.d. kaffi eða
súkkulaðiíssósu. Niðurstöðurnar
má sjá i meðfylgjandi töflu. Hafa
ber í huga að verð á þessum til-
teknu vörutegundum getur breyst
frá degi til dags en starfsmenn lág-
vöruverðsverslananna fylgjast
grannt með verðlagningu hver hjá
öðrum alla daga.
Bónus reyndist bjóða hagstæð-
asta verðið á 9 vörutegundum,
Europris á 3 og Krónan og Nettó á
einni vörutegund hvor verslun. í
einu tilfelli deildu Bónus og
Hagstæðasta verð* nokkurra vörutegunda - samkvæmt könnun DV í 4 verslunum 17. október
Bónus Europris Krónan Nettó
íssósa - súkkulaði 1138 1083 827 : 952
Kaffl 318 ■ 423 396 555
KJúklingasúpa í bréfl 787 960 932 1863
Kókómjólkurduft 432 354 j 676 538
Núðlur 2S4 430 613 553
Rúsínur 258 325 ; 318 298
Rækjur frosnar 798 798 818 982
Salt 79 87 104 j 59
Svínakótilettur - ferskar í pk. 622 1125 1414 1402
Tannbursti 25 72 149 99
Teljós (sprittkerti) - stk. 3 4 7 7
Uppþvottabursti 99 74: 139 j 82
Vanilludropar 45 50 52 52
*Kíló eöa lítraverö f. utan bursta, teljós og vanllludropa
Europris heiðrinum, í kílóverði á
frosnum rækjum enda rækjurnar
hjá þeim frá sama framleiðanda.
Krónan reyndist með hæsta verð-
ið á 8 vörutegundum og Nettó á 5 en
í tveimur tilfellum deildu þessar
verslanir með sér þessum vafasama
heiðri. Vara reyndist einu sinni
dýrust í Bónus og einu sinni i
Europris.
Mestur verðmunur reyndist á
tannburstum eða tæplega 500 pró-
sent. Kílóverðsmunur á kjúklinga-
súpu í bréfi reyndist mestur 136 pró-
sent, teljósum (sprittkertum) 130
prósent og kílóverði á svínakótelett-
um 127 prósent. Þá reyndist 108 pró-
senta verðmunur á dýrasta og
ódýrasta kílói af núðlum.
Minnstur verðmunur var á glös-
um af vanilludropum, 15 prósent, en
þau eru öll frá sama framleiðanda.
Þá reyndist 23 prósenta munur á
hæsta og lægsta kílóverði frosinnar
rækju.
Verðkönnunin var gerð seinni-
partinn í gær, fnnmtudag. Starfs-
menn DV söfnuðu vörunum í inn-
kaupakörfu í verslununum. Vörun-
um var rennt í gegnum verðskanna
á kassa. Að því loknu tilkynnti
starfsmaðurinn að um verðkönnun
á vegum DV væri að ræða og fékk
strimilinn afhentan. -hlh
Hörmuleg lífssaga ungrar stúlku:
Fíkniefnasalinn gerði
hana út í vændi
Einelti, kynferðisleg misnotkun,
nauðganir, sjálfsvígstilraunir, dvöl
á geðdeild og vændi. Þetta er lífs-
hlaup ungrar stúlku, fíkniefnaneyt-
anda, í hnotskurn. DV segir nú ör-
lagasögu þessarar ungu stúlku í
stórum dráttum til þess að sýna les-
endum inn í ótrúlega harðan heim
bams sem svipt er lífsgleðinni, ung-
lings sem leiðist út í neyslu flkni-
efna og ungrar konu sem lætur selja
sig gegn því að fá fíkniefni í stað-
inn.
DV hefur að undanfornu greint
frá mörgum myndum þess harða of-
beldis sem viðgengst í fíkniefna-
heiminum. Því miður er það svo að
ofbeldið hefur harðnað til muna á
síðustu árum. í dag virðist það ekk-
ert gefa eftir því svæsnasta sem ger-
ist 1 stórborgum erlendis.
Rauði þráðurinn er óttinn. Fíklar
eru hræddir allan sólarhringinn.
Þeir eru hræddir um að eiga ekki
fyrir efnum, þeir eru hræddir við
dílerana, þeir eru hræddir við hand-
rukkarana. Þeir vita að lif sitt og
limi eiga þeir undir því að kjafta
ekki frá undir neinum kringum-
stæðum. Þeir leita helst ekki læknis
eftir misþyrmingar, heldur fá sér
„kOó af verkjatöflum og halda sig
heima“, eins og einn þeirra komst
T3-021 Case 590 Super LE
traktorsgrafa, 95 hö., skotbóma 45
og 90 cm skóflur, 1600 vst.
Ingvar
Helgason hf,
VÉLADEILD
Vændi á götum úti
Vændi er áberandi í borgarlífi víöa á meginlandi Evrópu en fer fremur leynt
hér á landi. Einkum eru það ungir fikiar sem leiöast út í vændi hér á landi,
stundum meö ófyrirsjáanlegum afleiðingum eins og saga stúlkunnar hér á
síöunni ber meö sér. Myndin hér aö ofan er frá útlöndum.
að orði. „Að hringja í lögregluna
jafngildir dauðadómi," sagði sá
hinn sami.
Einelti
En hvað veldur því þá að ungt fólk
fer inn í þennan vítahring, fólk sem
ætti að hafa hlotið fræðslu um skað-
semi fíkniefna og lesið fréttir úr of-
beldinu í undirheimunum? Saga ungu
stúlkunnar sem DV segir nú varpar
ljósi á sögu og viðhorf unglings sem
sekkur eins djúpt og hægt verður að
sökkva í heim neyslunnar. Hún er
ekki ein um það. Alltof stór hópur
unglinga úti í þjóðfélaginu hefur átt
erfiða æsku í einhverri mynd og leiðst
síðan út í neyslu. Þeir þurfa hjálp -
sem kostar peninga.
„Ég held að vandamálið hafi byij-
að í skólanum, strax í 6 ára bekk,“-
segir viðmælandi DV. „Þá byrjuðu
sumir krakkamir að stríða mér,
upphefna mig og segja að ég væri
„ljótasta stelpan" í bekknum."
Eineltið jókst frá ári til árs. Það tók
á sig harðari myndir eftir því sem
tíminn leið, meðal annars með bar-
smiðum. „Ég hef alltaf haft þennan
kvíða í hjartanu frá því eiginlega að
ég man eftir mér,“ rifjar stúlkan upp.
„Ég var búin að gefast upp í hjartanu
fyrir þessu ömurlega einelti sem hélt
áfram alla leið upp í 10. bekk. Ég var
farin að hugsa mikið um það hvað ég
vildi stundum bara deyja.“
Kynferðisleg misnotkun
Þegar stúlkan var enn bam að
aldri lenti hún í barnaníðingi sem sví-
virti hana. „Mér fannst eins og hnífur
hefði verið rekinn í hjartað á mér. Ég
var svo lítil að ég kunni ekki einu
sinni öll orðin sem þurfti að nota til
þess að lýsa því sem hann gerði mér
og því sem ég þurfti að gera við hann.
Hann rústaði bamæsku mína. Það
var svo sárt að bera þetta ljóta leynd-
armál á bakinu svona lítil."
Viðmælandi DV leitaði á náðir
fíkniefnanna eins og svo margir aðrir
sem lent hafa þó aðeins í broti af því
sem hún upplifði. Þá fann hún
„hvemig allur kvíði, vanlíðan og
feimni hurfu og sjálfstraustiö jókst.
Þá langaði mig aldrei að verða edrú
aftur, mér leið eins og ég hefði loksins
„fundið" mig í lífinu. Þetta var hrein-
lega eins og að frelsast." Hún var í
spítti, kókaini, e-töflum og hassi. Svo
fór hún að sprauta sig.
Hún fékk „ríkulega" reynslu af
nauðgunum. Henni var nauðgað fjór-
um sinnum, einu sinni af nánum ætt-
ingja og öðru sinni af pilti sem hún
lenti ein í herbergi með. Þriðja nauðg-
unin var hópnauðgun. Hún kærði
aldrei. „Ég dó inni í mér, ég held ég
hafi fengið einhvers konar áfall, ég
fraus, gat ekki hreyft mig. Svo þegar
þetta var búið þá bara skalf ég. Mér
finnst ég hafa verið tilfinningalaus
síðan þá.“
Sjálfsvígstilraunir
Þar kom hjá þessari ungu stúlku
að hún vildi ekki lifa lengur. Þrisvar
sinnum reyndi hún sjálfsvíg, en
mistókst. Hún dvaldi á geðdeild og
hakkaði þar i sig læknadóp í stað
fikniefnanna sem hún hafði neytt fyr-
ir utan. úr því sem komið var vildi
hún bara dópa til að „losna við allar
áhyggjur og detta inn í algert al-
gleymi, fara alveg inn í mig og vera
ein með sjálfri mér. Þá getur enginn
náð til mín, þá er ég svo öragg, þá get
ég sofnað svo að allar þessar hræði-
legu hugsanir láti mig í friði. I al-
gleyminu er alger ró ..."
Út vildi hún ekki fara. Hún var
'hrædd, ekki sist við að hitta aftur
ffianninn sem hafði séð henni fyrir
eiturlyfjum. Hann hafði haft hana á
sínum snærum i tvö ár og selt hana.
Þannig var fíkniefnaneysla hennar
fjármögnuð, dílerinn gerði hana út,
hirti af henni peningana og lét hana
hafa dóp i staðinn.
Nú er hún laus. -JSS
JJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 17.58 17.43
Sólarupprás á morgun 08.29 08.14
Síódeglstlóó 17.11 21.44
Árdeglsflóó á morgun 05.28 10.01
Norðaustan og norðan 8 til 13 metr-
ar á sekúndu. Snjó- eða slydduél á
Norður- og Austurlandi en annars
víöa léttskýjað. Víöa vægt frost í
nótt.
Norðaustan og norðan 8 til 13 metr-
ar á sekúndu. Snjó- eða slydduél á
Norður- og Austurlandi en annars
víða léttskýjað. Víða vægt frost í
nótt.
Sunnudagur Mánudagur
Þriðjudagur
HHiO”
«1 5“
Vtndun
8-13 "V*
Slydda eða
él norðan- og
austanlands
en þurrt að
kalla suð-
vestan tll.
Hiti 0°
til S"
Vindun
8-13 '11/»
I
Slydda eöa
él norðan- og
austanlands,
en þurrt aö
kalla suö-
vestan til.
mti 2°
iil 8°
Vindun
a-i3m/s
*
Slydda eöa él
norðan- og
austanlands,
en þurrt að
kalla suð-
vestan tll.
Logn
Andvarl
Kul
Gola
Stlnningsgola
Kaldl
Stlnnlngskaldl
Allhvasst
Hvassvlðrl
Stormur
Rok
Ofsaveður
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
17,2-20,7
20,8-24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
Fárvlðri > = 32,7
Kms
AKUREYRI snjóél 2
BERGSSTAÐIR rigning og súld 2
BOLUNGARVÍK skúr 3
EGILSSTAÐIR úrkoma! grennd 1
KEFLAVÍK léttskýjaö 2
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjað 1
RAUFARHÖFN alskýjaö 3
REYKJAVÍK heiösklrt 0
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 4
BERGEN léttskýjað 0
HELSINKI skýjað -3
KAUPMANNAHÖFN rigning 3
ÓSLÓ alskýjaö -1
STOKKHÓLMUR -1
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö -5
ALGARVE skýjaö 14
AMSTERDAM skúr 9
BARCELONA léttskýjað 10
BERLÍN skýjað 6
CHICAGO hálfskýjaö 3
DUBLIN léttskýjað 2
HALIFAX skýjað 7
HAMBORG léttskýjaö 10
FRANKFURT súld 6
JAN MAYEN úrkoma í gr. -1
LONDON mistur 4
LÚXEMBORG þokumóða 6
MALLORCA skýjað 10
MONTREAL heiðskírt 5
NARSSARSSUAQ heiðskírt 0
NEW YORK alskýjaö 11
ORLANDO heiðskírt 16
PARÍS skýjaö 5
VÍN rigning 9
WASHINGTON heiöskírt 6
WINNIPEG alskýjaö 0